Feykir - 08.07.2020, Síða 2
Landið hefur opnað á ný. Íslendingar flykkjast heim og
ferðamennirnir „flæða“ inn í landið. Með þeim fylgir
óboðinn gestur, kórónan sem við héldum að við værum laus
við. Við héldum að við værum sloppin, aftur frjáls og
tilbúin fyrir sumarið. Sækjum
barnaíþróttamótin hvert á fætur
öðru og gleymum hlutverki okkar
í hita leiksins, að huga að okkar
eigin sóttvörnum. „Æi það er allt í
lagi þó ég skjótist hér yfir, þetta er
nú bara rugl,“ hugsar eflaust
margur og við það flæðir alls
staðar á milli hólfa og áður en
varir verður skipulagslaust kaos
og Víðir verður snar.
Nú er Símamótið í Kópavogi framundan um helgina í 5.-7.
flokki stúlkna í knattspyrnu. Skipuleggjendur hafa gefið
samviskusamlega út hólfaskipt skipulag og beint er til foreldra
að takmarka komu sína á vellina og aðra dagskrárliði mótsins.
Hins vegar er svo öllum boðið upp á sömu afþreyinguna á
milli leikja og búast má við að blöndun verði milli hópanna
utan vallar. Tjaldsvæðum er t.d. ekki skipt upp í samræmi við
leikjaplan mótsins enda er það ógjörningur. Maður veltir því
fyrir sér hvort þessar smitvarnir hjá mótshöldurum geri
eitthvert gagn.
En þá er nefnilega komið að því að við sinnum okkar
hlutverki. Mótshaldarar gera sitt með breyttu fyrirkomulagi
og strangari reglum um flakk og samgang á milli svæða og
fækka fjölda gesta inn á svæðið. Svo er það okkar að haga
okkur og passa utan svæðis og huga að okkar eigin sótt-
vörnum. Þvo okkur um hendur, spritta, sleppa knúsinu og
virða 2m regluna. Gleymum því heldur ekki að við erum
fyrirmynd barnanna. Þau gera eins og við gerum en ekki eins
og við segjum þeim að gera.
Knattspyrnustúlkur Tindastóls munu mæta galvaskar á
Símamótið. Foreldrar munu fylgja suður en hlýða tilmælum
og takmarka veru sína á vellinum. Hvetja stúlkurnar fyrir og
eftir leik og láta þjálfara og liðstjóra um leikina. Fylgja þeim
svo eftir utan vallar og vera þeim og félaginu til fyrirmyndar
með því að huga að okkar hlutverki og kenna þeim um leið
hvernig við breytum hegðun okkar þegar svona ástand ríkir í
heiminum. Þannig mun okkur takast að halda allar sam-
komur, þrátt fyrir allar kórónur og veldissprota.
Við erum spennt fyrir mótinu og hlökkum til að sjá
hvernig nýtt fyrirkomulag mun takast til.
Áfram Ísland – pú á heimsfaraldur.
Soffía Helga Valsdóttir
blaðamaður
LEIÐARI
Leggjumst öll á eitt
Rúmum 42 tonnum var landað á Skagaströnd
í vikunni sem leið en þar lögðu 28 bátar upp
og til Sauðárkróks barst tæpt 431 tonn. Á
Hofsósi var landað 1,8 tonni og á Hvamms-
tanga 2,5 tonnum. Heildarafli vikunnar á
Norðurlandi vestra var 477.447 kíló. /FE
Aflatölur 28. júní – 4. júlí 2020 á Norðurlandi vestra
477 tonnum landað í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Drangey SK 2 Botnvarpa 188.519
Fannar SK 11 Handfæri 2.338
Gammur II SK 120 Handfæri 672
Gjávík SK 20 Handfæri 1.575
Gullhólmi SH 201 Lína 4.603
Hafey SK 10 Handfæri 935
Kristín SK 77 Handfæri 1.291
Málmey SK 1 Botnvarpa 172.678
Már SK 90 Handfæri 2.330
Onni HU 36 Dragnót 6.500
Pálína Þórunn GK 49 Botnvarpa 47.121
Skvetta SK 7 Handfæri 1.313
Steini G SK 14 Handfæri 926
Alls á Sauðárkróki 430.801
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Handfæri 2.043
Bergur sterki HU 17 Lína 5.053
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 1.690
Blíðfari HU 52 Handfæri 1.560
Blær HU 77 Landbeitt lína 928
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 897
Dagrún HU 121 Handfæri 1.430
Elfa HU 191 Handfæri 2.620
Elín ÞH 85 Handfæri 1.179
Fengsæll HU 56 Handfæri 665
Geiri HU 69 Handfæri 1.526
Greifinn SK 19 Handfæri 1.693
Guðrún Ragna HU 162 Handfæri 1.216
Hafdís HU 85 Línutrekt 2.048
Hjördís HU 16 Handfæri 739
Hrund HU 15 Handfæri 1.645
Húni HU 62 Handfæri 1.307
Ísak Örn HU 151 Handfæri 355
Jenný HU 40 Handfæri 1.640
Kambur HU 24 Handfæri 2.154
Kópur HU 118 Handfæri 850
Loftur HU 717 Handfæri 2.233
Lukka EA 777 Handfæri 1.107
Sandvík E 79 Handfæri 1.191
Svalur HU 124 Handfæri 1.767
Sæunn HU 30 Handfæri 311
Viktor Sig HU 66 Handfæri 1.293
Víðir EA 423 Handfæri 1.164
Alls á Skagaströnd 42.304
HOFSÓS
Skáley SK 32 Handfæri 1.842
Alls á Hofsósi 1.842
HVAMMSTANGI
Harpa HU 4 Dragnót 2.500
Alls á Hvammstanga 2.500
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is Soffía Helga Valsdóttir, bladamadur@feykir.is
Auglýsingastjóri:
Sigríður Garðarsdóttir, siggag@nyprent.is
Áskriftarverð: 585 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 720 kr. m.vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171.
Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Í kjölfar óveðurs vetrarins
Unnið að úrbótum á 64 fjarskipta-
stöðvum með auknu varaafli
Austur Húnavatnssýsla
Laxveiði í Blöndu borgið í bili
Í síðustu viku var útlit fyrir að laxveiðin í
Blöndu væri í hættu þar sem Blöndulón var
óðum að fyllast vegna mikilla hlýinda í veðri
síðustu daga á Norðurlandi. Veðurguðirnir sáu
hins vegar að sér og kólnað hefur í veðri og
vatnsborðið því lækkað um 6 sentimetra. Því
mun yfirfallið verða seinna en virtist vera fyrir
helgi. Vonast er nú til að júlímánuður sleppi en
um leið og lónið fer í yfirfall verður áin
óveiðanleg.
Fjallað er um málið í Sporðaköstum, veiðivef
mbl.is og er þar sagt frá því að Landsvirkjun og
Veiðifélag Blöndu og Svartár hafi ekki komist að
samkomulagi um hvernig bregðast ætti við hárri
vatnsstöðu lónsins. Vildu fulltrúar veiðifélagsins
opna botnlokur á Blöndulóni og hleypa þannig
úr því en Landsvirkjun hafnaði þeirri tillögu.
Útlit var fyrir að lónið færi í yfirfall 10.-12. júlí
með áframhaldandi hlýindum en síðar ef myndi
kólna. Nú hefur orðið svo og því útlit fyrir að
júlímánuður sleppi. Bendir fréttavefurinn huni.is
á það að í venjulegu ári verði yfirfall um og eftir
Verslunarmannahelgi.
Vonast nú veiðimenn til þess að veður haldist
kalt næstu daga því veiðisvæðið við Blöndu sé
viðkvæmt og megi ekki við áfalli sem þessu. /SHV
Eftir óveðrið í vetur varð ljóst að bæta þyrfti
rekstraröryggi fjarskiptastöðva og tryggja að
almenningur geti kallað eftir aðstoð í
neyðarnúmerið 112 í vá eins og þá skapaðist.
Neyðarlínan fór því að vinna að úrbótum á 64
fjarskiptastöðvum víða um land með auknu
varaafli og að fjölga færanlegum vararafl-
stöðvum. Þar af eru 36 fastar vararafstöðvar
og verða fimm þeirra í Skagafirði og sex í
Húnavatnssýslum en annars staðar eru raf-
geymar eða tenglar fyrir færanlegar rafstöðvar.
Tilgangurinn er að tryggja rekstraröryggi í
fjarskiptum eftir mikil óveður sem gengu yfir
landið í vetur.
Í Skagafirði verða fastar rafstöðvar við
Einhyrning, Sauðárkrók, Hegranes, Miðgarð og
Fljót. Færanlegar rafstöðvar/tenglar verða í
Varmahlíð, Hofsósi og við Ketilás og rafgeymir/
færanleg stöð/tengill við Straumnes, Fell og
Sauðanes.
Í Húnavatnssýslum verða fastar rafstöðvar
á Bláhæð, Hvítabjarnarhóli, Grenjadalsfjalli,
Laugarbakka, Hnjúkum og Steinnýjarstaðafjalli.
Færanlegar rafstöðvar/tenglar verða á Stað,
Hvammstanga, Blönduósi og Skagaströnd og
rafgeymir/færanleg stöð/tengill á Hvammstanga
og Hnjúki í Vatnsdal.
Verkefnið er unnið í samstarfi við fjar-
skiptafélögin og RÚV um endurbæturnar og
tilkynnti Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu-
og sveitarstjórnarráðherra, nýverið að verkefnið
fengi 125,5 milljóna kr. fjárveitingu á þessu ári á
vegum fjarskiptasjóðs í tengslum við landsátakið
Ísland ljóstengt.
Í fyrsta áfanga verður unnið að verkefnum á
Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi og
Austurlandi. Áformað er að 100 milljónir bætist
við þetta verkefni á næsta ári. Þá verður hugað að
varaaflstöðvum á Suðurlandi og suðvesturhorni
landsins. /SHV
2 27/2020