Feykir - 08.07.2020, Síða 5
Lið Tindastóls og KFG
mættust á Sauðárkróks-
velli sl. sunnudagskvöld.
Reiknað var með hörkuleik
en þegar til kom voru
gestirnir einfaldlega sterk-
ari og lið Tindastóls náði í
raun aldrei neinum takti í
leik sinn. Lokatölur 1-3.
Stólarnir urðu fyrir áfalli
strax á 3. mínútu þegar
Benni fyrirliði varð að fara af
velli meiddur og munar um
minna. Eftir um 15 mínútna
leik fengu gestirnir víta-
spyrnu þegar Atli Dagur,
markvörður Stólanna, gerð-
ist brotlegur. Hann gerði sér
lítið fyrir og varði vítið
glæsilega. Leikmönnum
Tindastóls gekk óskaplega
illa að spila boltanum fram á
vallarhelming KFG, spila-
mennskan ómarkviss og
gestirnir unnu boltann hvað
eftir annað eftir ónákvæmar
sendingar út úr vörn Stól-
anna. Addi Ólafs, sem kom
inn fyrir Benna, kom Stól-
unum yfir gegn gangi leiks-
ins rétt fyrir hlé, fékk þá
góðan tíma fyrir framan
vítateig gestanna og dúndr-
aði í hægra hornið hjá
reynslulausum markverði
gestanna.
Það tók gestina aðeins
tvær mínútur að jafna leik-
inn í síðari hálfleik. Jóhann
Ólafur lyfti þá yfir Atla Dag
sem kom út á móti honum.
Næstu mínútur voru leik-
menn Tindastóls sprækir,
skoruðu ágætt mark sem
dæmt var af vegna rang-
stöðu. Á 66. mín. átti mark-
vörður gestanna útspark
sem varnarlína Stólanna mis-
reiknaði, Kristján Gabríel
slapp inn fyrir og skoraði af
öryggi. Stólarnir voru meira
með boltann það sem eftir
lifði en sem fyrr voru fyrir-
gjafir slakar og illa gekk að
skapa færi. Luke Rae átti þó
nokkra ágæta spretti og var
ógnandi. Það var síðan Bó
sem kórónaði sigur KFG á
90. mínútu eftir góðan
undirbúning samherja síns
sem stóð af sér 2-3 þreytu-
legar tæklingar Tindastóls-
manna áður en hann renndi
boltanum á Bó.
Svekkjandi tap því stað-
reynd en fjórir leikmenn
gestanna voru í sóttkví og
því ekki með og þar fyrir
utan voru þeir ekki með
markmann í markinu –
hvorugur markvarða liðsins
gat spilað og því útileik-
manninum Atla Jónassyni
skellt í markið. Hann stóð
fyrir sínu þó ljóst sé að betri
markverðir hafi skutlað sér á
Sauðárkróksvelli. Luke Rae
og Tanner Sica áttu ágætan
leik fyrir lið Tindastóls og þá
stóð Atli Dagur sig með
ágætum í markinu. /ÓAB
Kvennamót GSS fór fram í
sólinni á Hlíðarendavelli
laugardaginn 4. júlí,
sautjánda árið í röð.
Kylfingar glímdu við vind úr
ýmsum áttum en Skarða-
golan var þó áberandi.
Völlurinn skartaði sínu
fegursta, blómum skreyttur
og snyrtilegur í alla staði. Um
50 konur, víðs vegar að,
mættu til leiks og heppnaðist
mótið vel. Sigurvegari í ár var
Dagbjört Rós Hermunds-
dóttir GSS, en nánari úrslit
má nálgast á golf.is.
Konur í klúbbnum hjálpast
að við undirbúning og utan-
umhald mótsins en mótið er
styrkt af fjölda fyrirtækja í
Skagafirði og víðar. Að vanda
svignaði verðlaunaborðið
undan glæsilegum verðlaun-
um og eru styrktaraðilum
færðar hjartans þakkir fyrir
stuðninginn. /Fréttatillkynning
Dagbjört Rós bar
sigur úr býtum
Golf | Kvennamót GSS
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Garðbæingar unnu góðan sigur
Knattspyrna 3. deild | Tindastóll – KFG 1–3
Jónas Aron með boltann í leiknum gegn KFG. MYND: ÓAB
Golfklúbburinn Ós á
Blönduósi hélt meistaramót
sitt dagana 3. og 4. júlí á
Vatnahverfisvelli í ágætis
veðri. Sagt er frá mótinu á
huni.is.
Sigurvegari í meistara-
flokki karla á 170 höggum var
Eyþór Franzon Wechner, í
öðru sæti á 175 höggum var
Jón Jóhannsson og Valgeir M.
Valgeirsson í þriðja sæti á 186
höggum. Birna Sigfúsdóttir
sigraði í meistaraflokki
kvenna á 205 höggum og í
öðru sæti var Jóhanna G.
Jónasdóttir á 230 höggum.
Hafsteinn Pétursson sigr-
aði svo í fyrsta flokki karla
með 201 högg, Jón Aðalsteinn
Sæbjörnsson lenti í öðru sæti
með 205 högg og í þriðja sæti
varð Helgi Haraldsson með
220 högg. Úrslit voru sem hér
segir:
Meistaraflokkur karla:
1.sæti Eyþór Franzson Wechner.
2.sæti Jón Jóhannsson.
3.sæti Valgeir M Valgeirsson.
Meistaraflokkur kvenna:
1.sæti Birna Sigfúsdóttir.
2.sæti Jóhanna G Jónasdóttir
1. flokkur karla:
1.sæti Hafsteinn Pétursson.
2.sæti Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson.
3.sæti Helgi Haraldsson. /SHV
Eyþór og Birna meistarar
í meistaraflokki
Meistaramót Golfklúbbsins Óss á Blönduósi
Sigurvegarar mótsins, Eyþór, Birna og Hafsteinn. MYND: HÚNI.IS
Það bættust þrjú stig í sarpinn hjá
kvennaliði Tindastóls sl. föstudagskvöld
þegar liðið vann sterkan sigur á ágætu liði
Víkings í Lengjudeildinni. Leikið var í
höfuðborginni og hvort lið skoraði eitt mark
í fyrri hálfleik en í þeim síðari gerði lið
Tindastóls tvö mörk og sigraði því 1-3. Að
sögn Guðna Þórs Einarssonar þjálfara eru
Stólastúlkur ánægðar með stigin þrjú á
erfiðum útivelli. „Þetta var ekkert endilega
fallegasti sigurinn en okkur gæti ekki verið
meira sama,“ sagði Guðni í spjalli við Feyki.
Fyrsta markið gerði Aldís María fyrir
Tindastól á 27. mínútu en hún fékk stungu inn
fyrir vörn Víkings og afgreiddi boltann laglega
framhjá markverðinum og í netið. Rut
Kristjánsdóttir jafnaði fyrir Víking með
glæsimarki tíu mínútum síðar og staðan jöfn í
hálfleik. Mur kom Stólastúlkum yfir á 58.
mínútu eftir fyrirgjöf frá Aldísi og eftir það
reyndu heimastúlkur að jafna og náðu upp
smá pressu. Það var hins vegar lið Tindastóls
sem náði góðri skyndisókn skömmu fyrir
leikslok, Mur sendi boltann á Laufeyju Hörpu
sem náði að skora í annarri tilraun.
Guðni tjáði Feyki að Víkingar hefðu skorað
algjört draumamark í fyrri hálfleik og við það
hafi lið Tindastóls orðið óþolinmótt. „En við
sýndum góða seiglu í seinni hálfleik og náð-
um að innbirða stigin þrjú. Þetta var sigur
liðsheildarinnar. Áttum nokkra ágætis spilkafla
en duttum aðeins niður þess á milli. En við
vörðum markið okkar vel og unnum fyrir
þessum stigum með baráttu og sigurvilja.“
Aldís María átti frábæran leik, gerði gott
mark og átti stoðsendingu eftir sprett og góða
fyrirgjöf. Hún var mjög vinnusöm og ógnandi
í framlínunni. Þá spilaði Laufey Harpa einnig
virkilega vel að sögn Guðna, vann öll návígi og
náði að skora gott mark eftir frábæran undir-
búning frá Murielle.
Næsti leikur Stólastúlkna er næstkomandi
þriðjudag kl. 19:15 en þá koma Augnabliks-
stúlkur í heimsókn á Krókinn. Lið Tindastóls
er í öðru sæti Lengjudeildarinnar að loknum
þremur umferðum, með sjö stig líkt og topplið
Keflavíkur sem er með hagstæðara marka-
hlutfall. /ÓAB
Sterkur sigur Stólastúlkna í Víkinni
Lengjudeild kvenna | Víkingur R – Tindastóll 1-3
Þátttakendur á Kvennamóti GSS. MYND: AÐSEND
27/2020 5