Feykir - 08.07.2020, Qupperneq 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
27
TBL
8. júlÍ 2020 40. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Það gerist ekki oft að
brúðguminn mæti til kirkju
óafvitandi þess að hann sé að
fara að kvænast. En þannig var
það svo sannarlega í tilfelli
Jökuls Helgasonar er Guðný
Elíasdóttir kom honum á óvart
með óvæntu brúðkaupi. Giftu
þau sig í Þingeyrakirkju í
Húnavatnshreppi þann 30. júní
síðastliðinn, í miðri hestaferð,
og má segja að athöfnin hafi
komið brúðgumanum jafn
mikið á óvart og gestunum.
Lögðu hjónaleysin af stað í
fimm daga hestaferð um
söguslóðir í Húnaþingi. Er
hópurinn sat í Tjarnarkirkju í
einu stoppinu og hlustaði á
tónleika með Atla Guðlaugssyni
og Helgu Bryndísi Magnúsdóttur
leiddi Guðný hugann að því
hversu yndislegt það væri að gifta
sig við aðstæður sem þessar. Hún
lét ekki þar við sitja heldur fékk
samferðafólk sitt í lið með sér og á
skömmum tíma var búið að
skipuleggja brúðkaup í Þingeyra-
kirkju seinna í ferðinni, án
vitundar Jökuls. Giftingarhring-
ana útbjuggu faðir brúðarinnar
og systir og voru þeir úr rafmagns-
girðingabandi.
Athöfnin fór svo fram í
Þingeyrakirkju þann 30. júní
síðastliðinn og gaf sr. Ursula
Árnadóttir hjónin saman. Voru
gestirnir og Jökull lokkuð til
kirkju með það að yfirskyni að
halda ætti aðra tónleika þar sem
hinir hefðu nú tekist svo vel. „Við
vorum nýkomin af baki og
höfðum riðið Þingeyrasandana
og 30 mínútum fyrir athöfnina
var Jökull að járna fyrir fólk sem
misst hafði skeifu undan hesti í
ferðinni. Því vorum við vel skítug
í athöfninni,“ segir Guðný er hún
rifjar upp daginn.
Fara í bað fyrir næstu athöfn
Að athöfn lokinni virtist Jökull
ekki annað en sáttur við þetta allt
saman og nefndi að hann hefði nú
allavega þvegið sér um hendur
hefði hann vitað hvað til stæði.
Guðný og Jökull hafa verið saman
í rúmlega fjögur ár og búa á
Akranesi. Guðný er þaðan en
Jökull er stoltur Snæfellingur.
Samtals eiga þau fimm börn;
Stefaníu, Örnu Jöru, Andreu Ínu,
Birtu Kristínu og Elías Marvin.
Því miður gat Arna Jara ekki tekið
þátt í athöfninni og því ætla þau
að vera með aðra athöfn og veislu
þegar öll börnin geta verið með
þeim og hyggjast vera hrein í það
skiptið.
Aðspurð segir Guðný að hún
hafi nú verið alveg viss um að
Jökull segði já því þau hafi nú
verið búin að ræða þetta eitthvað.
Hún segir þetta einnig búið að
vera mikið grín í fjölskyldunni
hennar og mikið rætt af hverju
þau væru ekki búin að drífa í
þessu fyrir löngu. Nálægðin við
Þrístapa hafi nú verið tilviljun og
hún hefði síður viljað að pabbi
hennar og föðurbróðir hefðu
þurft að ríða með Jökul þangað til
að verja heiður fjölskyldunnar.
„Ég held að vestfirska þrjóskan úr
móðurömmu minni, Rut Hall-
grímsdóttur, og norðlenska hvat-
vísin úr föðurömmu minni, Rut
Sigurmonsdóttur frá Kolkuósi,
hafi rutt mér áfram í þessum
gjörningi,“ segir Guðný að lokum.
Óskar Feykir þeim hjóna-
kornum innilega til hamingju
með ráðahaginn og alls hins besta
í komandi hestaferðum og lífinu
sjálfu. /SHV
Ástir og hestaferðir
Óvænt brúðkaup á sögu-
slóðum í Húnvatnshreppi
Stórsigur Húnvetninga
4. deild B-riðill : Snæfell – Kormákur/Hvöt 0–7
Sameiginlegt lið Kormáks og Hvatar vann fyrsta sigur
sinn í 4. deildinni þetta sumarið þegar það sótti þrjú
stig á Stykkishólmsvöll í fyrrakvöld. Lokatölur voru
0-7 en gestirnir voru þremur mörkum yfir í hléi.
Heimamenn urðu fyrir skakkafalli strax á 4. mínútu
þegar markvörður Snæfells fékk að líta rauða spjaldið
hjá dómaranum. Oliver Torres gerði fyrsta mark K/H á
14. mínútu og sjö mínútum síðar bætti Sigurður
Aadnegard við marki. Oliver gerði þriðja markið rétt
fyrir hlé. Hilmar Kára gerði fjórða markið á 52. mínútu
og síðan bættu Hlynur Rafnsson, Emil Óli og Viktor
Ingi við mörkum á síðasta stundarfjórðungi leiksins.
Eftir að hafa byrjað mótið á þremur útileikjum þá
eiga liðsmenn Kormáks/Hvatar loks heimaleik nk.
sunnudag en þá kemur lið Álafoss úr Mosfellsbæ í
heimsókn. Leikurinn hefst kl. 16:00. /ÓAB
Giftingarhringarnir voru búnir til úr rafmagnsgirðingabandi.
Lið Kormáks/Hvatar. MYND AF FB
Haustið 1893 var á
Bessastöðum grafið
fyrir veggjaundirstöð-
um fjárhúsa er þar
skyldi byggja. Þegar
komið var nær eina alin
niður fannst þar beina-
grind af manni og sýndi
lega beinanna að hann
hafði verið látinn tvöfaldur niður í gryfju. Þótti auðsætt
að maður sá hefði verið myrtur. Gömul kona,
ónafngreind, tjáði þá að hún hefði í æsku heyrt að
maður utan að austan, úr Fljótum eða af Höfðaströnd,
hefði verið sendur með peninga vestur í Húnavatnssýslu,
komist eitthvað vestur yfir Héraðsvötn en síðan eigi til
hans spurst. Var þess getið til, ef kvittur þessi væri
sannur, maðurinn hefði verið myrtur á Bessastöðum [í
Sæmundarhlíð í Skagafirði].
/Byggðasaga Skagafjarðar
Byggðasögumoli | palli@feykir.is
Beinagrindin
á Bessastöðum
Séra Ursula gefur hjónaleysin saman. AÐSENDAR MYNDIR
H Ö N N U N P R E N T U N S K I L T A G E R Ð
Borgarflöt 1 550 Sauðárkrókur Sími 455 7171 nyprent@nyprent.is
BREYTTUR AFGREIÐSLUTÍMI!!
Afgreiðsla Nýprents verður opin
frá kl. 8 -12 í sumar.
Jökull virðist ekki annað en kampakátur með uppátæki Guðnýjar.