Bjarmi - 01.12.2021, Side 42
| bjarmi | desember 202142
Jólin nálgast og við fáum enn á ný að undrast
og gleðjast yfir stórkostlegum sannleika.
Drottinn Guð sjálfur, skapari himins og
jarðar, eilífur og öllum æðri, gerðist maður,
fæddist eins og ég og þú, gekk um og lifði
hér á jörð til þess að hann gæti vitað hvernig
það er að vera ég eða þú. Kærleikur hans
knúði hann þegar „hann svipti sig öllu, tók
á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur.
Hann kom fram sem maður, lægði sjálfan
sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans
á krossi.“1 Með orðum jólasálmsins:
Snauður kom hann í heiminn hér,
hans að miskunnar nytum vér,
auðguðumst fyrir fátækt hans,
fögnuðum arfleifð himnaranns.2
Guð kom í Jesú Kristi til þess að vera með
okkur. Eftir upprisu og uppstigningu sendi
hann Heilagan anda að vera með okkur,
hugga, leiða, hjálpa og styrkja, hvetja, efla
og gæta. Við erum þess vegna ekki ein
og hjálparvana. Guð sjálfur er með þér og
mér. Hvar sem við erum, hver svo sem
staða okkar er eða reynsla, þá megum við
treysta því. Við erum ekki skilin eftir ein eða
munaðarlaus.
Við megum því halda jólin með honum,
„því Guð er sjálfur gestur hér“ mættur til
að vera með okkur. Og alla daga milli jóla
og næstu jóla.
Guð kom til jarðar með frið sinn og
velþóknun sína yfir okkur mennina.3 Órói
og streita, ekki síst í aðdraganda jóla og
yfir jólin, rænir auðveldlega friði þeim sem
Jesús kom að gefa sínum. Lífið virðist
einkennast af streitu og þreytu, deilum
og einmanaleika, og jafnvel tilfinningu um
vanþóknun frekar en velþóknun. En orð
Jesú standa, hann kom til að gefa frið. En
ef við beinum sjónum okkar að sjálfum
okkur er hætt við að friðurinn týnist. En
Jesús vill fá að kyrra huga okkar og róa
sál okkar enda lofar hann að vera með
okkur og sjá um okkur. Stöldrum því við
Guð hjá
mér og þér
„SJÁ, YNGISMÆR MUN ÞUNGUÐ VERÐA OG FÆÐA SON OG LÆTUR
HANN HEITA IMMANÚEL,“ SEM ÞÝÐIR: GUÐ MEÐ OSS (MATT 1.23).
1 Filippíbréfið 2.7-8.
2 Þýðing Stefáns Thorarensen á sálmi Lúthers: Heiðra
skulum vér Herrann Krist nr. 86 í Sálmabókinni.
3 Lúkasarguðspjall 2.14.
4 Sama og 2. Orð þessi byggja að hluta til á
hugvekjum Charles Stanley í Every Day in His
Presence, 23. og 24. desember.
og notum tíma með „gestinum“, honum
sem kom til að vera með okkur dag
hvern. Við erum örugg í umsjá hans.
Leyfum Guði að vera með okkur þessi jól
og alla daga fram að næstu jólum. Hann
þráir að vera meira en gestur, hann vill
vera uppáhaldsvinurinn.
Fyrir allt, sem að oss hann gaf
Óverðskulduðum kærleik af,
Honum sé þökk af hjarta skýrð,
Honum sé eilíft lof og dýrð.
Sé Drottni dýrð! 4
RAGNAR GUNNARSSON