Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 2

Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 2
- 3,6% söluaukning hjá ÁTVR frá fyrra ári - Aldrei áður hefur sala Vínbúðanna farið yfir þrjár milljónir lítra- Afgreiðslum til viðskiptavina fækkaði nokkuð eða um 1,2% frá því í fyrra Rebekka Líf Ingadóttir rebekka@mbl.is Mikið magn áfengis var selt í vínbúð- um Áfengis- og tóbaksverslunar rík- isins í vikunni fyrir verslunarmanna- helgina, sem er ein stærsta vika ársins hjá ÁTVR. Í seinustu viku voru seldir 814 þúsund lítrar, sem jafngildir 3,6% aukningu frá fyrra ári, en þá seldust 786 þúsund lítrar. Aldr- ei hefur áður selst jafn mikið magn á einni viku í Vínbúðunum samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá ÁTVR í gær. 141 þúsund viðskiptavinir Í síðustu viku komu 141 þúsund viðskiptavinir í Vínbúðirnar sem er um 0,3% fjölgun frá sambærilegri viku fyrir ári. Ef litið er á söluna yfir allan júlí- mánuð kemur í ljós að þá var einnig slegið met. Heildarsalan í júlí var 3.023 lítrar í Vínbúðunum, sem er 1,5% aukning frá sama mánuði í fyrra. „Aldrei áður hefur sala Vínbúð- anna í einum mánuði farið yfir 3 millj- ónir lítra,“ segir Kristján M. Ólafs- son, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu Vínbúðanna, í skriflegu svari við fyrirspurn Morgunblaðsins um vínsöluna. „Skýring á meti júlímánaðar er að vikudagar júlí á þessu ári raðast þannig að stærstu söludagar fyrir verslunarmannahelgi og fyrstu helgi júlímánaðar eru allir í júlí,“ segir hann. Í nýliðnum mánuði voru hins vegar afgreiðslur til viðskiptavina í Vínbúð- um ÁTVR 584 þúsund talsins en þær voru til samanburðar 591 þúsund í fyrra, sem jafngildir 1,2% fækkun viðskiptavina. Heildarsalan hjá Vín- búðunum það sem af er ári er aftur á móti um 4% meiri en í fyrra, sam- kvæmt upplýsingum Kristjáns. Aldrei selst jafn mikið áfengi í einni viku Metsala Seldir voru 814 þúsund lítrar í Vínbúðunum í seinustu viku. Áfengissala fyrir verslunarmannahelgina 814 2021 H e im ild :v in b u d in .is 141.000 viðskiptavinir komu í Vínbúðirnar í vikunni fyrir verslunarmannahelgi sem eru 0,3% fleiri en í sömu viku í fyrra 814 þúsund lítrar af áfengi seldust í vikunni fyrir verslunarmannahelgi sem er 3,6%meira en í sömu viku í fyrra 786 2020 2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Eitt kynferðisbrotamál kom inn á borð neyðarmóttöku Landspítal- ans um verslunarmannahelgina. Hrönn Stefánsdóttir, verkefna- stjóri neyðarmóttöku fyrir þolend- ur kynferðisofbeldis, segir jákvætt að ekki hafi verið meira að gera en vill þó ekki draga úr alvarleika einstakra brota og tiltekur að eitt mál sé ávallt einu of mikið. Lítil breyting hefur orðið milli ára en í fyrra kom einnig eitt mál inn á borð neyðarmóttökunnar yfir verslunarmannahelgina. Spurð hvort aflýsing útihátíða sé að hafa áhrif á fjölda mála segir Hrönn að almennt sé rólegra yfir verslunar- mannahelgar hjá neyðarmóttök- unni vegna kynferðisafbrota und- anfarin ár. Var þessi þróun orðin sýnileg fyrir heimsfaraldurinn en árið 2019 komu tvö mál inn yfir verslunarmannahelgina. Hrönn telur að rekja megi þessa fækkun að hluta til almennrar vit- undarvakningar í samfélaginu gagnvart kynferðisofbeldi og einn- ig aukinnar fræðslu meðal þeirra sem standa að baki útihátíðum. Gæsla, kynjaskipt klósett og aukið eftirlit hafi meðal annars fælandi áhrif.Hún vekur þó athygli á að oft leitar fólk ekki til þeirra fyrr en eftir helgi og því ekki hægt að lesa of mikið úr þeim tölum sem hafa borist núna. Hópmyndun hafi áhrif Aðspurð kveðst Hrönn almennt ekki sjá beina tengingu milli þeirra samkomutakmarkana sem eru við lýði og fjölda mála sem koma inn á borð neyðarmóttök- unnar. Til að mynda var álíka mikið að gera á þessu ári hjá þeim í febrúarmánuði og júlí. Segir hún skemmtanir, hópmyndun og drykkju vissulega hafa áhrif en nauðganir eigi sér oftast stað í heimahúsum. Bætir hún að lokum við að kynferðisbrot eigi sér stað allan ársins hring, sama hvort það er verslunarmannahelgi eða önnur helgi. Einn leitaði til neyðarmóttöku - Verslunarmannahelgin orðin rólegri Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir að það sé undir dómur- um sjálfum komið að meta hæfi sitt þegar þeir taka að sér störf utan þeirra dómstóla sem þeir sitja við. Þar vísar Katrín til Páls Hreinsson- ar, forseta EFTA-dómstólsins, sem tók að sér að gera álitsgerð að beiðni Katrínar á meðan hann sat sem dóm- ari. Álitsgerðin snerist með almennum hætti um heimildir sóttvarnalaga og var hún birt 20. september sl. Katrín segir að ekki sé óvenjulegt að dómarar taki að sér störf eins og álitsgerðir að beiðni stjórnvalda. Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseti EFTA-dómstólsins, skrifaði grein í Morgunblaðið á laugardag, þar sem hann lýsir gagnrýni sinni í garð Páls. Að beiðni ráðherra „Ég og heilbrigðisráðherra lögð- um fram þá tillögu í ríkisstjórn að fá Pál Hreinsson til að skrifa þessa álitsgerð og það var kynnt í ríkis- stjórn. Það er ekkert ókunnugt að dómarar vinni álitsgerðir fyrir stjórnvöld og þeir meta hverju sinni stöðu sína sjálfir, það er að segja hvort slík vinna geti haft einhver áhrif á sitt hæfi. Og Páll mat það þannig að svo væri ekki, enda lá það mjög skýrt fyrir að álitsgerðin tæki fyrst og fremst á almennum heimildum sótt- varnalaga en ekki einstökum ráð- stöfunum sem íslensk stjórnvöld hefðu gripið til við þennan faraldur og kynnu þá að koma til kasta dóm- stóla,“ sagði Katrín við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Utanríkisráðherra sammála Guðlaugur Þór Þórðarson utan- ríkisráðherra tekur í sama streng og Katrín og segir að það sé ekki við hæfi að stjórnvöld tjái sig um hæfi dómara, það sé á þeirra eigin for- ræði. „Málefnaleg gagnrýni á stofnanir EES styrkir EES-samninginn og treystir tveggja stoða kerfi hans. Ís- land tekur slíka gagnrýni alvarlega enda hafa íslensk stjórnvöld verið í fararbroddi við að tryggja stöðu EFTA-stofnananna um árabil. Að öðru leyti er ekki viðeigandi að ís- lensk stjórnvöld tjái sig með almenn- um hætti um hæfi dómara EFTA- dómstólsins sem þeim sjálfum ber að gæta að í hverju einu dómsmáli,“ segir Guðlaugur í skriflegu svari við fyrirspurn mbl.is. Segir Páls sjálfs að meta hæfi sitt - Katrín Jakobsdóttir segir að Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins, hafi ekki endilega glatað hæfi sínu vegna álitsgerðar sem hann vann að beiðni stjórnvalda - Utanríkisráðherra tekur undir Katrín Jakobsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson Logi Sigurðarson logis@mbl.is Aðfaranótt mánudags fengu þrír kvikmyndagerðarmenn óboðinn gest í heimsókn til sín í rannsóknarkofa sem tilheyrir Háskólanum í Árósum. Kofinn er í 400 metra fjarlægð frá Daneborg-stöðinni í austurhluta Grænlands. Um nóttina vaknaði einn þeirra við að ísbjörn hafði komist inn í gegnum glugga á herbergi þeirra. Ísbjörninn réðst á manninn og beit fast í vinstri hönd hans. Hinir tveir vöknuðu við öskrin í samstarfs- félaga sínum og í sameiningu náðu þeir að láta ísbjörninn sleppa takinu á hönd mannsins og fældu hann í burtu með blysbyssu. Kvikmyndagerðarmennirnir höfðu samband við dönsku hersveit- ina Síríus, sem er með herstöð í Daneborg, eftir árásina. Tveir her- menn úr sveitinni komu að rann- sóknarkofanum og skoðuðu þann slasaða. Þeir ákváðu að flytja hann á læknastofu í Daneborg til aðhlynn- ingar. Enginn læknir var á staðnum og sáu tveir hermenn um að gera að sárum mannsins, sem er danskur, í samráði við lækni í Danmörku. Þeir töldu hins vegar að maðurinn þyrfti á ítarlegri læknisskoðun að halda og var hann fluttur með sjúkraflugi til Akureyrar, þar sem maðurinn fór á bráðamóttökuna á sjúkrahúsinu á Akureyri. Maðurinn var ekki lagður inn en gert var að sárum hans og fór hann aftur til Grænlands að því loknu. Þegar hermennirnir úr Síríus- hersveitinni skoðuðu kofann betur aðfaranótt mánudags eftir árásina, sáu þeir að ísbjörninn hafði reynt að komast í gegnum fleiri glugga, án ár- angurs, en mikið var af fótsporum eftir ísbjörn fyrir utan gluggana. Fluttur til Akureyrar eftir árás ísbjarnar - Kvikmyndagerðarmenn lentu í „vandræðaísbirni“ AFP Ísbjörn Yfirvöld í Grænlandi hafa skilgreint björninn sem „vandræðabjörn“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.