Morgunblaðið - 04.08.2021, Side 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 2021
Tunguhálsi 10
Sími 415 4000
www.kemi.is
kemi@kemi.is
„ÞAÐ VAR MUN TILKOMUMEIRI REYNSLA
AÐ SNÚA AFTUR FRÁ DAUÐANUM ÁÐUR EN
NIÐURSKURÐURINN KOM TIL.“
„HELMINGINN AF PENINGUNUM ÞÍNUM …
ÉG OG GAURINN Í NÆSTA RUNNA ERUM
MEÐ SAMKOMULAG OKKAR Á MILLI!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... aldurslaus.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÝÝÝÝÝÝÝÝLLLLFFFFRRRRR!ÝÝÝLLLFFFRRR! NÚ GERUM VIÐ
HLÉ Á „FULLU
TUNGLI“
HVERNIG GETUR
ÞÚ HORFT Á
ÞETTA RUSL?!
GAGNGRÝNDU MATARGERÐINA MÍNA EINSOG ÞIG
LYSTIR, EN MUNDU AÐ ÞAÐ ERU TIL ÞJÓÐFLOKKAR
SEM BÓKSTAFLEGA BORÐA MOLD!
ÁTTU VIÐ AÐ ÉG EIGI VAL?
Þegar ég opnaði Boðnarmjöð
blasti þessi limra Benedikts
Jóhannssonar við mér:
Sífellt er tíminn að tifa
og tárin á kinnarnar skrifa.
Göngum á grund
og gleymum smá stund
að lífsháski felst í að lifa.
Ingólfur Ómar Ármannsson
yrkir hringhendu í klassískum
stíl:
Alltaf hlýnar andans glóð
angur dvína lætur,
þegar vín og fögur fljóð
freista mín um nætur.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifar:
„Brátt liggur leið mín til Hellu og
til að gleðja tilvonandi gestgjafa
þar og tryggja mér örugga köku-
sneið sendi ég þessi skilaboð á
undan mér“:
Drottinn á dagsverkið leit
svo dáindis blómlega sveit,
þá fór skrattinn að gala
með horn sín og hala
og Hellu í dýrðina skeit.
Gunnar J. Straumland kveður:
Miðaldra mörhlunka gleður
molla og bræðandi veður,
sem ólgandi bik
allt þeirra spik
lekur af kviðum og kveður.
Kristján Björn Snorrason bætir
við:
Meira en miðaldra er orðinn
í maganum safnast upp forðinn
Þau æða á mig árin
og öll grána hárin
En nú vantar nýjustu orðin!
Friðrik Steingrímsson um „Frétt
í DV“:
Viðstaddra það gladdi geð
svo gaus upp hláturhrina,
er Boris lent’í basli með
bölvaða regnhlífina.
Hallmundur Guðmundsson yrkir
„Útileguljóð“:
Ég settist í stóra stólinn
því steikjandi heit var sólin.
Þar ég nú dvel
og þykir það; vel
því það fer svo vel um tólin.
Eggert J. Levý lætur fara vel
um sig og yrkir „Vökunætur“:
Naskur maður finnur frið
flestar vökunætur
heldur áfram sínum sið
seinn er hann á fætur.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Lífsháski og miðaldra
mörhlunkar
tæki og það er mikil ábyrgð að hafa
fólk í vinnu, en kostirnir eru líka
margir.“ Fyrir fjórum árum keypti
Gunnar hlut bróður síns, Sturlu, og
eiga því hjónin fyrirtækið ein í dag.
„Núna eru Bandaríkin mikilvægasti
markaður okkar, ásamt Kanada og
Englandi. Reksturinn hefur verið
farsæll frá upphafi og við erum einn-
ig stórir hluthafar og stofnendur
sjávarútvegsfyrirtækisins AG Sea-
food ehf. Í Sandgerði sem við eigum
með þeim góðu hjónum og vinum
Arthuri Galvez og Jenný Ragnars-
dóttur.“
Afmælisdeginum ætlar Gunnar að
eyða við laxveiðar í Stóru-Laxá með
fjölskyldunni. „Við viljum helst verja
sem mestum tíma úti í náttúrunni.
Ég er lánsamur með fjölskylduna,
finnst gott að eldast og lífið er ljúft.
Vonandi get ég áfram gert eitthvað
gott og gagnlegt fyrir mína nánustu
og samfélagið.“
Fjölskylda
Eiginkona Gunnars er Guðrún
Hildur Jóhannsdóttir, stjórnar-
formaður IceMar ehf. og flugfreyja
hjá Icelandair, f. 13.3. 1978.
Foreldrar hennar eru hjónin Jó-
hann Kjartansson, f. 3.1. 1948, og
Þórhildur Loftsdóttir, f. 12.5. 1947.
Börn Gunnars og Guðrúnar Hildar
eru Birta Rún, nemi í innan-
húshönnun í Mílanó, f. 17.8. 1999, og
Kristín Anna nemi, f. 1.2. 2007.
Systkini Gunnars eru 1) Snorri, f.
28.8. 1960, d. 28.8. 1960; 2) Sturla, f.
17.9. 1961; 3) Hulda, f. 26.12. 1962; 4)
Margrét, f. 13.7. 1965; 5) Teitur, f.
9.1. 1967; 6) Kristín, f. 10.3. 1973, og
7) Stefán, 10.3. 1973. Bróðir Gunnars
sammæðra er 8) Svavar Garðar
Garðarsson, f. 8.11. 1955.
Foreldrar Gunnars eru hjónin
Örlygur Þorvaldsson, flugumsjón-
armaður í áratugi fyrir Loftleiðir og
síðar Flugleiðir, f. 4.4. 1926, d. 17.8.
2013, og Guðbjörg Erna Agnars-
dóttir, húsfreyja á stóru heimili, auk
þess að sinna fjölmörgum störfum,
m.a. eldhússtýra á leikskóla, f. 11.11.
1934.
Gunnar Örn
Örlygsson
Kristín Kristmannsdóttir
húsfreyja í Jónsbæ, Hólssókn, N-Ís.
Sigmundur Jónsson
bóndi í Jónsbæ, Hólssókn, N-Ís.
Kristjana Margrét Sigmundsdóttir
húsfreyja á Ísafirði
Sturla Agnar Guðmundsson
skipstjóri á Suðureyri og Ísafirði
Guðbjörg Erna Agnarsdóttir
húsfreyja og eldhússtýra
á leikskóla í Ytri-Njarðvík
Guðrún Sigríður Sigþrúður Oddsdóttir
húsfreyja á Suðureyri
Guðmundur Sturluson
b. á Arnarstapa í Tálknafirði og á Sæbóli við
Arnarfjörð, síðar sjómaður og smiður á Suðureyri
Halldóra Guðlaugsdóttir
húsfreyja í Tjarnarhúsum á Akranesi
Jón Jónsson
bóndi í Munaðarnesi, Arnarholtskoti,
Klöpp og Tjarnarhúsum á Akranesi
Hulda Jónsdóttir
húsfreyja á Akranesi
Þorvaldur Þórarinsson
skrifstofumaður á Blönduósi, síðar bókari í Reykjavík
Sigríður Þorvaldsdóttir
húsfreyja á Hjaltabakka á Ásum,A-Hún.
Þórarinn Jónsson
bóndi, hreppstjóri og alþingismaður
á Hjaltabakka á Ásum,A-Hún.
Úr frændgarði Gunnars Arnar Örlygssonar
Örlygur Þorvaldsson
flugmaður og
flugumsjónarmaður og fékkst
einnig við ýmis störf tengd
sjávarútvegi í Ytri-Njarðvík