Morgunblaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
°Ö¤ µÕئÜÑÖ¤Ø3ܤ°¦
u¦3Ó3¤¦ ° Þ3Ø
• ¸ÜÖ ¦ÜÑÖ¤Ø@¦ÜÖÖ ¢Ó3<
• ¤¤Ö×ÜÑÞ ºE|¢ gºE| g¢ÓÜÚ¤Ö Ñ°Ó3¦3¤f@
3ؤܰ¦ ¶Ö3Ü@ ¶¢Ü¤Ö¦Üy@ |×p3ÜfA
• ÜØ3¤ ×pÑÓÖA k¤ ÚpÑÑÖÜÚ¤3@ 0Ö¤ÞÖÜÚ¤3 Ü3
3¤¤33 Õ¶ÖÜÚ¤3A
¶ ° Õܦ 3 »ÜÓ¦@ ×ÜÖÑ0r¦ ¢Ø ° ×ÜÖÑ×ÖÑѦ »¦3Ó33
°Ø Ü ¢ ܦ0Þ ¢Ø Ú¶¦3Ø3»¤¢ ÜÖ
¦uѰÖA °Ø ÜÓ ÜÖ ×pÑÓÖ u ܤ cØ 0¢3 ¢Ø
ؤ¤ ÜÓÓÖ ÚpÖ »¶ØÖ¤Þ¦ ÑܤØA °Ø ÜÓ Ñ°Ó3
×pÑÓÖ ÚpÖ ¦¢Ø¤¦3 ¢Ø ×ÜÚ 3 Ü ÜØÑ u
ÓÑ»ÜÚÜÖ ×Õu¦cA
Barbara Kresfelder.
¨ÜÚ ØÜ Ó33ÜÓ
Digest Gold
°¤°¦ ØÜ3 ÞÜØÖ r ¦3ØÓ¢¤3 ¦ÜÑÖ¤Ø33¤Þ3¦uѦ
AA ܦ0@¦ÜÑÖ¤Ø3»ÜØÑ@ Ñ¢¦p¤Þ¤ ¢Ø
í¦¦ ÜÖ¤Óܤ¤¦ Ú¶»¢ÑA
6. ágúst 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.31
Sterlingspund 173.24
Kanadadalur 99.15
Dönsk króna 19.848
Norsk króna 14.119
Sænsk króna 14.476
Svissn. franki 137.58
Japanskt jen 1.1417
SDR 177.54
Evra 147.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.6204
« Grænar tölur
voru áberandi á
aðalmarkaði
kauphallar Ís-
lands í gær og
hækkaði úrvals-
vísitalan um
0,29%. Mest
hækkun varð á
bréfum Íslands-
banka, eða 3,64% í 220 mkr. við-
skiptum. Stendur gengi bréfa félagsins
nú í 114 kr. hver hlutur. Næstmesta
hækkun gærdagsins varð á bréfum í
olíufélaginu Skeljungi, eða 3,35% í 34
mkr. viðskiptum. Hver hlutur í félaginu
kostar nú 11 kr. og hefur verðið aldrei
verið hærra. Þriðja mesta hækkun gær-
dagsins varð á bréfum fasteignafélags-
ins Eikar, eða 2,71% í 84 mkr. við-
skiptum. Gengi félagsins er nú 11,35.
Úrvalsvísitalan hækkaði
um 0,29% í gær
Grænt Íslandsbanki
leiddi hækkanir
STUTT
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Gangi fyrirætlanir breska fyrir-
tækisins Hydrogen Ventures og
HS Orku eftir, mun fyrrnefnda
fyrirtækið hefja 15 milljarða upp-
byggingu innan Auðlindagarðsins á
Reykjanesi einhvern tíma á næstu
tveimur til fimm árum. Þetta stað-
festir Jóhann Snorri Sigurbergs-
son, forstöðumaður viðskiptaþróun-
ar hjá HS Orku. Í gær sendu
fyrirtækin út tilkynningu um að
Hydrogen Ventures Limited hygði
á uppbyggingu
umfangsmikillar
metanólfram-
leiðslu á Reykja-
nesi sem yrði
staðsett innan
Auðlindagarðs-
ins, í nágrenni
við annað af
tveimur raforku-
verum HS Orku.
„Í fyrri áfanga
verkefnisins,
eins og lagt er upp með það, myndi
verksmiðja Hydrogen Ventures
framleiða meantól úr 30 megavött-
um af jarðhita og það yrði allt vott-
að umhverfisvænt. Í öðrum áfanga
yrði framleiðslugetan síðan aukin
verulega.“
Seinni áfanginn óljós
Jóhann Snorri segir ekki tíma-
bært að slá nákvæmri stærð á
seinni áfanga verkefnisins en bend-
ir á að það gæti falið í sér marg-
földun á framleiðslugetu í fyrsta
áfanga.
„Orkuna til fyrsta áfangans get-
um við tryggt á grundvelli stækk-
unar Reykjanesvirkjunar sem eru
30 megavött.“
Spurður út í hvert orkan yrði
sótt ef frekari áform fyrirtækisins
yrðu að veruleika segir Jóhann
Snorri að ósennilegt sé að hún
kæmi öll úr ranni HS Orku en upp-
sett afl núverandi framleiðslukerfis
fyrirtækisins er um 185 megavött.
„Það er þekkt í tengslum við
verkefni sem þetta að eitt orkufyr-
irtæki ýti því úr vör og komi að
þróun þess en að á síðari stigum
komi fleiri að því að afla orku til
framleiðslunnar.“
Eitt skref af mörgum
Spurður út í hvað knýi á um yf-
irlýsingu af þessu tagi þegar fátt
virðist fast í hendi varðandi upp-
bygginguna segir Jóhann Snorri að
metanól- og vetnismarkaðurinn
þróist hratt þessa dagana og að
ekki sé ráðist í framkvæmd af
þessu tagi öðruvísi en að tryggt sé
að kaupendur séu að framleiðsl-
unni. Því sé þetta skref sem tekið
sé á þessum stað í ferlinu og að
þegar betri mynd fáist á mark-
aðinn og tækifærin í framleiðsl-
unni, séu lausir hnútar hnýttir end-
anlega.
Kolefnishlutlaust Ísland 2040
HS Orka og Hydrogen Ventures
eru sammála um að framleiðsla
metanóls geti átt þátt í að stuðla að
kolefnishlutleysi Íslands fyrir árið
2040. Þannig benda fyrirtækin á að
yfir 80% af orkunotkun Íslands
byggi á endurnýjanlegum orku-
gjöfum sem fyrst og síðast tengist
jarðhita og vatnsafli. Með upp-
byggingu innviða til framleiðslu
vetnis og metanóls geti Ísland orð-
ið leiðandi á sviði endurnýjanlegrar
og hreinnar orku sem felist m.a. í
því að skipta út jarðefnaeldsneyti í
samgöngum fyrir endurnýjanlega
orkugjafa.
„Þar er ekki síst verið að horfa
til sjávarútvegsins en auk þess inn-
lenda bílaflotans, ekki síst stærri
bifreiða á borð við sendi- og vöru-
bifreiðar,“ segir Jóhann Snorri.
Tugmilljarða fjárfesting í
pípunum í Auðlindagarði
Morgunblaðið/Ómar
Hitaveita Suðurnesja Stefnt er að tugmilljarða uppbyggingu innan Auðlindagarðsins á Reykjanesi á næstu árum.
- Breskt fyrirtæki hyggur á mikla metanólframleiðslu - Mun skapa tugi starfa
Jóhann Snorri
Sigurjónsson
Bandaríski álframleiðandinn Cent-
ury Aluminum hefur birt uppgjör
annars ársfjórðungs. Century Alum-
inum er eigandi og móðurfélag Norð-
uráls sem rekur álverið á Grundar-
tanga.
Félagið var rekið með 35,1 millj-
ónar dala tapi á öðrum ársfjórðungi
sem nemur rétt tæplega fjórum og
hálfum milljarði íslenskra króna. Tap
fyrsta ársfjórðungs var þó mun
meira eða 145 milljónir dala.
Heildartap fyrri hluta þessa árs er
töluvert meira en árið áður þegar tap
fyrstu tveggja ársfjórðunga nam 29,6
milljónum dala á móti 175,1 milljón
dala sem félagið hefur tapað það sem
af er þessu ári en það jafngildir 22
milljörðum króna.
Í tilkynningu sem fylgir uppgjör-
inu er því fagnað að félagið hafi kom-
ist að samkomulagi við Landsvirkjun
um þriggja ára framlengingu á raf-
orkusölusamningi við álverið á
Grundartanga. Landsvirkjun skuld-
batt sig þannig til þess að svara raf-
orkuþörf versins, sem mun að sögn
félagsins aukast um rúmlega 20
megawött á tímabilinu, út árið 2026.
Samkvæmt uppgjörinu seldi álver-
ið á Grundartanga 78.102 tonn af áli á
öðrum ársfjórðungi samanborið við
79.206 tonn á þeim fyrsta. Álverð
hækkaði milli ársfjórðunga svo sölu-
verð þessara 78.102 tonna er hærra
en verð afurða fyrsta ársfjórðungs
eða 180,1 milljón dala, sem nemur
rétt rúmlega 22,5 milljörðum króna,
samanborið við 164,2 milljónir dala
fyrir framleiðslu fyrsta ársfjórðungs.
Forstjóri Century Aluminum segir
álmarkaðinn í góðum vexti sem megi
rekja til meiri einkaneyslu og auk-
inna framkvæmda.
Morgunblaðið/Eggert
Höfuðstöðvar Skrifstofa Norðuráls
er í Skógarhlíð í Reykjavík.
Álverð hækkað
gífurlega á árinu
- Álverið á Grundar-
tanga selt minna ál
en tekjur aukist
Á vef Orkustofnunar er að finna
eftirfarandi skilgreiningu á met-
anóli framleiddu með jarðhita:
„Tilbúið eldsneyti úr vetni,
framleiddu með rafgreiningu
vatns, og koltvísýringi sem los-
aður er við nýtingu jarðhita. Það
má því orða það þannig, að met-
anólið nýtist sem geymslumiðill
vetnis. Kostir metanóls fram yf-
ir hreint vetni eru einkum
tengdir geymslunni. Metanólið
er t.d. vökvi en ekki gas, og þarf
því ekki að geyma á sérstökum
þrýstigeymum. Líkt og vetnið,
er hægt að nýta metanól bæði
sem eldsneyti í bíla sem ganga
fyrir brennsluhreyflum og bíla
sem nýta efnarafla. Að auki er
hægt að blanda metanólinu út í
bensín líkt og etanóli.“
Metanól
CH3OH
« Ívar S. Kristinsson hefur verið ráðinn
fjármálastjóri Icelandair Group en hann
hefur verið starfandi fjármálastjóri síð-
an í maí sl. Ívar hefur samkvæmt til-
kynningu gegnt ýmsum ábyrgð-
arstöðum fyrir Icelandair og stjórnaði
meðal annars flota og leiðarkerfi félags-
ins. Þar áður gegndi hann stjórn-
endastöðu á fjármálasviði. Ívar er með
meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá
Háskóla Íslands og er með MBA-gráðu
frá háskólanum í Norður-Karólínu í
Bandaríkjunum, Chapel Hill.
Ívar ráðinn fjármála-
stjóri Icelandair Group