Morgunblaðið - 06.08.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. ÁGÚST 2021
30 ÁRA Áslaug fæddist í
Bergen í Noregi og bjó þar
fyrstu þrjú árin en þá flutti fjöl-
skyldan til Reykjavíkur. „Ég
ólst upp í Háteigshverfinu og
framan af var ég í fimleikum
hjá Ármanni en á unglingsaldri
færði ég mig yfir í handbolta
hjá Fram.“ Hún fór í Verslun-
arskólann og var í tvö ár í ól-
ympíuliðinu í stærðfræði, árin
2010 og 2011, og síðan dúxaði
hún á eðlisfræðibraut skólans
árið 2011. Eftir stúdentinn fór
hún í eitt ár í Biblíuskóla í
Tromsø í Noregi. Þegar heim
var komið fór hún í stærðfræði
í Háskóla Íslands og útskrif-
aðist með BS árið 2015. „Ég
byrjaði í meistaranámi í stærð-
fræði, en lauk því ekki þá en er
að ljúka því núna í haust.“ Hún
fór að vinna í Landsbankanum í
áhættustýringu og var þar í þrjú ár, en byrjaði þá í læknisfræði árið 2019.
„Ég vildi gera eitthvað sem væri meira gefandi þar sem ég ynni meira með
fólki svo ég ákvað að ég ætti nóg eftir að starfsævinni til þess að breyta um
kúrs.“ Áslaug er búin með tvö ár í læknanáminu og mikið að gera með þrjú
lítil börn. „Ég þarf bara að skipuleggja mig mjög vel, því maður hefur ekki
endalausan tíma. Maður lærir bara strax að skilja á milli vinnu og einkalífs
og gerir sitt besta.“
Áslaug segist hafa gaman af allri útivist með fjölskyldunni og eins fer hún
út að skokka. „Síðan er ég hrifin af handavinnu og að baka.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Áslaugar er Daníel Steingrímsson leikskóla-
kennari, f. 13.1. 1986. Þau eiga börnin Þuríði, f. 28.4. 2015; Harald, f. 5.1.
2018, og Ágúst, f. 8.5. 2020. Foreldrar Áslaugar eru hjónin Haraldur Jó-
hannsson taugalæknir, f. 9.2. 1961, og Margrét Jóhannesdóttir hjúkr-
unarfræðingur, f. 28.12. 1965. Þau búa í Reykjavík.
Áslaug Haraldsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú geislar af hamingju og hefur já-
kvæð áhrif á umhverfi þitt. Taktu það sem
hrós og brynjaðu þig með sjálfstraustinu
sem hefur alltaf verið þinn helsti styrkleiki.
20. apríl - 20. maí +
Naut Varðandi verkefni sem þú vinnur að
ertu búin/n að bollaleggja og velta vöng-
um nógsamlega. Vertu samt með báða
fætur á jörðinni og ekki missa þig út í ein-
hverja óskhyggju.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú ættir að ráðast í óþægileg
verkefni á heimilinu í dag. Leyfðu ævin-
týraþránni að ráða og kannaðu ókunna
stigu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Farðu varlega í fjármálum núna og
hugsaðu þig tvisvar um áður en þú eyðir
peningum. Farðu þér samt í engu óðslega.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú ert spurður spurninga sem virð-
ast hversdagslegar en eitthvað býr undir
þeim. En vertu hvergi smeykur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Ef þér finnst þetta eitthvað furðu-
legt – dragðu þig þá í hlé. Þú ferð létt með
að klára verkefni tengd dánarbúum, erfða-
málum og sameiginlegum eigum. Allt
lagast með tímanum.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Sjaldan veldur einn þá tveir deila. Við-
fangsefnið er þess eðlis að þú getur ekki
annað en grætt á því að skila því heilu í
höfn.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ættir að slappa af í dag.
Notaðu tækifæruð til að ráðast til atlögu
við verkefni sem þú hefur ýtt á undan þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú varst ekki að grínast þegar
þú sagðist geta lokið verkefninu í dag.
Leiddu þessar hugsanir hjá þér því þær
eru aðeins tímabundnar.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Vinir falast eftir hjálp þinni og
þú ert til staðar fyrir þá. Einnig kemur til
greina að þú komist á snoðir um leynd-
armál og verði illa brugðið.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Hlustaðu á það sem vinur segir
um hlutverk þitt í lífi hans. Ekki er allt sem
sýnist og ekki ráð nema í tíma sé tekið.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Nú er rétti tíminn til þess að inn-
leiða breytingar í heimilislífinu. Hlustaðu
líka á drauma þína. Ef þú hins vegar verð-
ur spurður álits skaltu vanda orð þín.
hefur aðallega starfað að markaðs-
málum, vörumerkjastjórnun og sam-
skiptamálum og hefur verið á ferð og
flugi öll þessi ár og sinnt mörgum
skemmtilegum verkefnum. „Þegar
Aron Kári, elsti sonurinn, var
tveggja ára fluttum við til Hollands
þar sem ég sá um markaðsmál fyrir
starfsemina í Evrópu og þegar við
komum heim bættist annar sonur,
Arnar Daníel, í hópinn.“ Síðustu þrjú
árin hefur hún verið framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs Össurar þar
sem hún leiðir innri og ytri sam-
skiptamál félagsins.
„Skemmtilegasta verkefnið mitt er
Team Össur-hópurinn sem ég hef séð
Ég erfði ferðagenin hans pabba og
hef alltaf haft áhuga á ferðalögum og
öðrum menningarheimum.“ Árið
1993 réðst Edda til starfa hjá varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins þar sem hún sá fyrir sér að geta
nýtt námið í stjórnmálafræði og
enskukunnáttuna. „Ég starfaði í
utanríkisráðuneytinu í nokkur ár en
rak svo augun í auglýsingu frá ný-
sköpunarfyrirtækinu Össuri hf. sem
vakti áhuga minn. Ég hóf störf hjá
Össuri í byrjun árs 1997 og hef starf-
að þar óslitið síðan. Það eru að verða
25 ár, sem er alveg ótrúlegt. Við eig-
um bæði 50 ára afmæli á þessu ári en
Össur var stofnað árið 1971.“ Edda
E
dda Heiðrún Geirs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 6. ágúst
1971. Árið 1976 fluttu
foreldrar Eddu til
Calgary í Albertafylki í Kanada en
mikill uppgangur var í fylkinu á þeim
tíma. Upphaflega átti ævintýrið ytra
að endast í nokkur ár en varði í tvo
áratugi. „Foreldrar mínir höfðu farið
í ferð til Kanada með Bændaferðum
árið áður og það kveikti í pabba að
taka stökkið og flytja enda mikill æv-
intýramaður sem hafði sjálfur stund-
að nám í Bandaríkjunum og unnið í
London. Ég hóf skólagönguna mína
með því að læra ensku og ég man að
fimm ára gömul voru einu orðin sem
ég gat sagt í skólanum: „I’m five and
I’m fine.“ Skólagangan í Kanada var
hefðbundin og Edda lauk námi við
Henry Wise Wood High School og
fór þaðan í University of Calgary þar
sem hún nam stjórnmálafræði.
„Það var yndislegt að alast upp í
Kanada og ég á frábærar vinkonur
þar sem ég held enn sambandi við.
Það voru náttúrlega engir samfélags-
miðlar á þessum tíma og langt og
strangt ferðalag fyrir fjölskyldu-
meðlimi að heimsækja okkur en ég er
gríðarlega þakklát foreldrum mínum
fyrir að henda sér út í óvissuna og
byggja upp frábært líf fyrir okkur í
Calgary. Ég man að við fengum oft
spólur sendar þar sem amma og aðr-
ir fjölskyldumeðlimir töluðu inn á
hvað hefði á daga þeirra drifið og við
sátum öll og hlustuðum af ákafa. Svo
var spóla með dómkirkjumessunni
alltaf spiluð á aðfangadagskvöld.“
Foreldrar Eddu skildu þegar hún
var 17 ára og pabbi hennar varð eftir
í Kanada en flutti sig síðar um set til
Vancouver og mamma hennar flutti
heim til Íslands. „Ég var aðeins týnd
á þessum árum, var miklu meiri Kan-
adamaður en Íslendingur, kunni
varla að tala íslensku en fann nokkr-
um árum seinna að mig langaði að
kynnast Íslandi betur. Upp úr tví-
tugu fór ég að venja komur mínar til
landsins á sumrin og starfaði meðal
annars á Laugarvatni þar sem
frændfólk mitt rak tjaldsvæðið.
Verslunarmannahelgarnar á Laug-
arvatni eru svo sannarlega eftir-
minnilegar!
um í meira en áratug. Team Össur er
hópur afreksíþróttafólks víða um
heim sem Össur styður og þau keppa
öll á Ólympíuleikum fatlaðra. Ég
fylgdi þeim á leikana í Peking og Ríó
og hefði sannarlega verið til í að vera
í Tokýó en hópurinn keppir á leik-
unum sem hefjast 24. ágúst nk. Ég
hefði líka farið til London 2012 ef
ekki hefði verið fyrir þær sakir að
yngsti sonurinn, Stefán Ragnar,
fæddist á sama tíma.
Ég er gríðarlega stolt af því starfi
sem Össur sinnir og fyllist enn eld-
móði eftir öll þessi ár þegar ég kynn-
ist notendum og hæfileikaríku fólki
um allan heim, svo ekki sé minnst á
Edda Heiðrún Geirsdóttir framkvæmdastjóri samskiptasviðs Össurar – 50 ára
Fjölskyldan Golfið er nýjasta áhugamálið. F.v.: Aðalsteinn, Edda, Arnar, Ragnheiður mamma Eddu og Aron Kári.
Erfði ferðagenin frá pabba
Team Össur Hér er Edda að tala við Guðna Th. Jóhannesson
forseta í heimsókn á Bessastöðum með Team Össur. Synirnir Arnar Daníel, Stefán Ragnar og Aron Kári.
Til hamingju með daginn