Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Page 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Page 15
29.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Afganistan,“ segir Erna og segist nú hafa miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni í Afgan- istan. „Þau eru öll í hættu.“ Að semja frið við morðingja Nýlegir sögulegir atburðir í Afganistan hafa ekki farið fram hjá neinum, en Bandaríkja- menn og Nató hafa dregið herlið sín að mestu úr landinu. Talíbanar voru fljótir að ná völdum og tók það mun skemmri tíma en fólk átti von á. Nú var afganski herinn rúmlega þrefalt stærri en her talibana og búið að þjálfa hann lengi. Hvað gerðist? „Bandaríkjamenn gerðu þetta rangt. Þeir opnuðu fangelsi og slepptu út fimm þúsund talíbönum í tíð Trumps. Þeir voru í samninga- viðræðum við talíbana en voru ekki að hugsa um ríkisstjórn Afganistans. Það má segja að Bandaríkjamenn hafi gefið talíbönum meiri völd og afganski herinn missti löngunina til að berjast. Stjórnmálamenn studdu heldur ekki hermennina og sögðu þeim að berjast ekki því þeir vildu semja frið við talíbana. Þannig gekk þetta fram og til baka. Bandaríkjamenn vildu semja frið við morðingja. Þetta var alrangt, að semja frið við talíbana. Þeir drápu fólk dag- lega, áður og í stríðinu og núna eru þeir enn að drepa. Og Bandaríkjamenn vildu semja frið við þessa morðingja Afgana,“ segir Zahra. „Það er einnig annað sem þarf að hafa í huga þegar maður talar um 300.000 hermenn á móti 75.000 talíbönum. Afganska þjóðin er svo fá- tæk og þessir hermenn höfðu enga vinnu og fóru því í herinn. Þeir fóru ekki í herinn til að verja landið sitt. Í fyrsta lagi tel ég að við séum ekki ein þjóð í Afganistan. Við höfum ekki sjálfsmynd sem ein þjóð, sem Afganistan. Við erum svo mörg þjóðarbrot og það er mikilvæg- ara að tilheyra sínu þjóðarbroti en þjóðinni,“ segir Erna. „Hitt er það að Afganar vildu ekki endilega að Bandaríkjamenn kæmu upp her, þeir höfðu bara ekkert val. Þannig fóru ungir menn í her- inn bara til að lifa af. En svo vilja þeir ekki deyja í stríði sem hefur engan tilgang. Og hverjir eru talíbanar? Flestir þeirra eru Afg- anar,“ segir Erna. „Við getum kennt nágrönnum okkar um, eins og Pakistan og Íran, en þessi lönd græða á þessum átökum því vatnið fer nú til Írans. Vatn er eitt helsta deilumál á milli Afganistans og Írans,“ segir Erna. „Þannig er það nágrönnum okkar til hags- bóta að það sé stríð í Afganistan,“ segir Zahra. Konur hræddar við að fara út Systurnar reyna að vera í sambandi við fólkið sitt í Afganistan eins og hægt er, en ekki er alls staðar gott netsamband. Hvernig er ástandið hjá fólkinu sem þið heyrið í? „Konur eru hræddar við að fara út. Þær hafa stundum farið út nokkrar saman til að sjá hvort talíbanar leyfi þeim að fara til vinnu. Í fréttunum heyrist að þær fái að vinna en í raun er það ekki svo. Þær eru sendar aftur heim. Bankar eru allir lokaðir og því ekki hægt að taka út pening. Ég get ekki sent fjölskyldunni pening. Verð á mat hefur hækkað mikið og búðir eru flestar lokaðar. Fólk fer ekki í vinn- una,“ segir Zahra. „Frændi okkar var handtekinn og barinn og skorið í handlegg hans, en pabbi hans vann fyrir ríkið og bróðir hans var í hernum. Talíb- anar eru þarna að fara hús úr húsi. Fólk er að reyna að brenna öll gögn,“ segir Erna og seg- ist hafa miklar áhyggjur af þessum frænda sínum. Zahra segir að ýmis tæki sem áður voru í eigu Bandaríkjamanna séu nú fallin í hendur talíbönum. „Það er alls kyns tölvubúnaður og hugbún- aður sem er nú í þeirra höndum; persónu- upplýsingar um fólk. Talíbanar leita að aktív- istum, blaðamönnum og konum sem voru til dæmis dansarar eða að vinna að jafnrétti,“ segir Zahra. „Þeir eru búnir að drepa ættingja þýsks blaðamanns. Þeir eru líka að taka ungar stúlk- ur til að gifta þær talíbönum, allt niður í tólf ára aldur. Líka konur látinna hermanna,“ seg- ir Zahra. Sumir í meiri hættu en aðrir Nú hafa talíbanar lofað ýmsu til dæmis varð- andi menntun kvenna, er eitthvað að marka þessi loforð? „Þeir segja eitt og svo annað. Sumir segja að stelpur megi bara mennta sig til tólf þrettán ára aldurs. Maður skilur ekki þennan hugs- unarhátt,“ segir Zahra. „Þessir talíbanar vilja að við lifum eins og við værum á sjöundu öld. Þeir vilja að við bú- um undir sjaríalögum og að konur geti notið réttinda undir sjaríalögum, en þeir segja ekki hvaða sjaríalög nákvæmlega þeir eiga við. Það er margs konar túlkun á þessu,“ segir Erna og að mikilvægt sé að ekki sé farið í annað stríð. „Ég veit ekki hvað talíbanar gera. Þetta eru ekki sömu talíbanar og voru fyrir tuttugu ár- um og Afganistan er ekki sama land og fyrir tuttugu árum. Fólk er menntaðra og með fleiri tækifæri en þá. Ef talibanar vilja fá viðurkenn- ingu frá alþjóðasamfélaginu hafa þeir ekkert annað val en að fallast á kröfur þess. Þeir geta ekki haft mannréttindi af helmingi þjóð- arinnar; konum. Þeir geta ekki sniðgengið minnihlutahópa og þeir geta ekki svipt fólkið frelsi. En ég býst frekar við að þetta verði það sem þeir munu gera og þá verður stríð,“ segir Erna. Hvað viltu sjá alþjóðasamfélagið gera núna til að hjálpa Afgönum? „Það sem er mikilvægast núna er að hjálpa fólkinu sem er lokað inni í Afganistan og á von á að verða drepið í fjöldamorðum. Það þarf að gefa þessu fólki forgang að komast úr landi,“ segir Erna og segir aldrei verði hægt að hjálpa öllum. „Sumir eru í meiri hættu en aðrir. Eins og konur og minnihlutahópar,“ segir hún og nefn- ir að hinsegin fólk sé nú réttdræpt undir stjórn talíbana. „Ég vona að Ísland taki á móti einhverjum,“ segja þær systur og segja framtíð Afgana ekki bjarta. „Ég vona að það verði ekki annað stríð en það er mjög líklegt.“ Morgunblaðið/Ásdís Systurnar Erna Huld og Zahra frá Afganistan hafa miklar áhyggj- ur af framtíð afgönsku þjóð- arinnar. Þær óttast hið versta.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.