Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Blaðsíða 15
29.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Afganistan,“ segir Erna og segist nú hafa
miklar áhyggjur af fjölskyldu sinni í Afgan-
istan.
„Þau eru öll í hættu.“
Að semja frið við morðingja
Nýlegir sögulegir atburðir í Afganistan hafa
ekki farið fram hjá neinum, en Bandaríkja-
menn og Nató hafa dregið herlið sín að mestu
úr landinu. Talíbanar voru fljótir að ná völdum
og tók það mun skemmri tíma en fólk átti von
á.
Nú var afganski herinn rúmlega þrefalt
stærri en her talibana og búið að þjálfa hann
lengi. Hvað gerðist?
„Bandaríkjamenn gerðu þetta rangt. Þeir
opnuðu fangelsi og slepptu út fimm þúsund
talíbönum í tíð Trumps. Þeir voru í samninga-
viðræðum við talíbana en voru ekki að hugsa
um ríkisstjórn Afganistans. Það má segja að
Bandaríkjamenn hafi gefið talíbönum meiri
völd og afganski herinn missti löngunina til að
berjast. Stjórnmálamenn studdu heldur ekki
hermennina og sögðu þeim að berjast ekki því
þeir vildu semja frið við talíbana. Þannig gekk
þetta fram og til baka. Bandaríkjamenn vildu
semja frið við morðingja. Þetta var alrangt, að
semja frið við talíbana. Þeir drápu fólk dag-
lega, áður og í stríðinu og núna eru þeir enn að
drepa. Og Bandaríkjamenn vildu semja frið
við þessa morðingja Afgana,“ segir Zahra.
„Það er einnig annað sem þarf að hafa í huga
þegar maður talar um 300.000 hermenn á móti
75.000 talíbönum. Afganska þjóðin er svo fá-
tæk og þessir hermenn höfðu enga vinnu og
fóru því í herinn. Þeir fóru ekki í herinn til að
verja landið sitt. Í fyrsta lagi tel ég að við séum
ekki ein þjóð í Afganistan. Við höfum ekki
sjálfsmynd sem ein þjóð, sem Afganistan. Við
erum svo mörg þjóðarbrot og það er mikilvæg-
ara að tilheyra sínu þjóðarbroti en þjóðinni,“
segir Erna.
„Hitt er það að Afganar vildu ekki endilega
að Bandaríkjamenn kæmu upp her, þeir höfðu
bara ekkert val. Þannig fóru ungir menn í her-
inn bara til að lifa af. En svo vilja þeir ekki
deyja í stríði sem hefur engan tilgang. Og
hverjir eru talíbanar? Flestir þeirra eru Afg-
anar,“ segir Erna.
„Við getum kennt nágrönnum okkar um,
eins og Pakistan og Íran, en þessi lönd græða
á þessum átökum því vatnið fer nú til Írans.
Vatn er eitt helsta deilumál á milli Afganistans
og Írans,“ segir Erna.
„Þannig er það nágrönnum okkar til hags-
bóta að það sé stríð í Afganistan,“ segir Zahra.
Konur hræddar við að fara út
Systurnar reyna að vera í sambandi við fólkið
sitt í Afganistan eins og hægt er, en ekki er
alls staðar gott netsamband.
Hvernig er ástandið hjá fólkinu sem þið
heyrið í?
„Konur eru hræddar við að fara út. Þær
hafa stundum farið út nokkrar saman til að sjá
hvort talíbanar leyfi þeim að fara til vinnu. Í
fréttunum heyrist að þær fái að vinna en í raun
er það ekki svo. Þær eru sendar aftur heim.
Bankar eru allir lokaðir og því ekki hægt að
taka út pening. Ég get ekki sent fjölskyldunni
pening. Verð á mat hefur hækkað mikið og
búðir eru flestar lokaðar. Fólk fer ekki í vinn-
una,“ segir Zahra.
„Frændi okkar var handtekinn og barinn og
skorið í handlegg hans, en pabbi hans vann
fyrir ríkið og bróðir hans var í hernum. Talíb-
anar eru þarna að fara hús úr húsi. Fólk er að
reyna að brenna öll gögn,“ segir Erna og seg-
ist hafa miklar áhyggjur af þessum frænda
sínum.
Zahra segir að ýmis tæki sem áður voru í
eigu Bandaríkjamanna séu nú fallin í hendur
talíbönum.
„Það er alls kyns tölvubúnaður og hugbún-
aður sem er nú í þeirra höndum; persónu-
upplýsingar um fólk. Talíbanar leita að aktív-
istum, blaðamönnum og konum sem voru til
dæmis dansarar eða að vinna að jafnrétti,“
segir Zahra.
„Þeir eru búnir að drepa ættingja þýsks
blaðamanns. Þeir eru líka að taka ungar stúlk-
ur til að gifta þær talíbönum, allt niður í tólf
ára aldur. Líka konur látinna hermanna,“ seg-
ir Zahra.
Sumir í meiri hættu en aðrir
Nú hafa talíbanar lofað ýmsu til dæmis varð-
andi menntun kvenna, er eitthvað að marka
þessi loforð?
„Þeir segja eitt og svo annað. Sumir segja að
stelpur megi bara mennta sig til tólf þrettán
ára aldurs. Maður skilur ekki þennan hugs-
unarhátt,“ segir Zahra.
„Þessir talíbanar vilja að við lifum eins og
við værum á sjöundu öld. Þeir vilja að við bú-
um undir sjaríalögum og að konur geti notið
réttinda undir sjaríalögum, en þeir segja ekki
hvaða sjaríalög nákvæmlega þeir eiga við. Það
er margs konar túlkun á þessu,“ segir Erna og
að mikilvægt sé að ekki sé farið í annað stríð.
„Ég veit ekki hvað talíbanar gera. Þetta eru
ekki sömu talíbanar og voru fyrir tuttugu ár-
um og Afganistan er ekki sama land og fyrir
tuttugu árum. Fólk er menntaðra og með fleiri
tækifæri en þá. Ef talibanar vilja fá viðurkenn-
ingu frá alþjóðasamfélaginu hafa þeir ekkert
annað val en að fallast á kröfur þess. Þeir geta
ekki haft mannréttindi af helmingi þjóð-
arinnar; konum. Þeir geta ekki sniðgengið
minnihlutahópa og þeir geta ekki svipt fólkið
frelsi. En ég býst frekar við að þetta verði það
sem þeir munu gera og þá verður stríð,“ segir
Erna.
Hvað viltu sjá alþjóðasamfélagið gera núna
til að hjálpa Afgönum?
„Það sem er mikilvægast núna er að hjálpa
fólkinu sem er lokað inni í Afganistan og á von
á að verða drepið í fjöldamorðum. Það þarf að
gefa þessu fólki forgang að komast úr landi,“
segir Erna og segir aldrei verði hægt að hjálpa
öllum.
„Sumir eru í meiri hættu en aðrir. Eins og
konur og minnihlutahópar,“ segir hún og nefn-
ir að hinsegin fólk sé nú réttdræpt undir stjórn
talíbana.
„Ég vona að Ísland taki á móti einhverjum,“
segja þær systur og segja framtíð Afgana ekki
bjarta.
„Ég vona að það verði ekki annað stríð en
það er mjög líklegt.“
Morgunblaðið/Ásdís
Systurnar Erna Huld og Zahra
frá Afganistan hafa miklar áhyggj-
ur af framtíð afgönsku þjóð-
arinnar. Þær óttast hið versta.