Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Side 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Side 18
Í litlu tjörninni er til- valið fyrir gæsir að þvo sér og breiða svo úr vængjum sínum. Þ að var skýjað, logn og sautján stiga hiti daginn sem ljósmyndari lagði leið sína í Laugardalinn. Kyrrðin var alger og fáir á ferli. Í tjörninni fyrir framan Fyssu voru gæsir og endur að baða sig í hlýjunni. Fyssa, eftir lista- konuna Rúrí, var eitt sinn heiðblá á lit en er nú svört og klæðir nýi liturinn hana vel. Einstaka ástfangið par leiðist í gegnum garðinn á þessum síðsumarsdegi; kona með tvo hunda reynir að hemja hvuttana sem vilja sinn í hvora áttina og glað- lynd garðyrkjukona stýrir hjólbörum fimlega í gegnum garðinn. Inni í Grasagarði eru listaverk náttúr- unnar í röðum; blóm í öllum regnbogans litum, plöntur og tré. Grasagarðurinn sextugur Grasagarðurinn var stofnaður 18. ágúst 1961 og er því nýorðinn sextugur. Grasagarður Reykjavíkur er sannarlega lifandi safn undir berum himni. Á vefsíðunni grasagardur.is má lesa ýmsan fróðleik um garðinn. Þar segir: Hlutverk Grasagarðsins er að varðveita og skrá plöntur til fræðslu, rann- sókna og yndisauka. Í garðinum eru varð- veittar um 5.000 plöntur í átta safndeildum. Eitt meginhlutverk Grasagarðsins er fræðsla og boðið er upp á fjölbreytta fræðslu fyrir al- menning og skólahópa árið um kring. Markmið fræðslunnar er að nýta hin margvíslegu plöntu- söfn til fræðslu um umhverfið, garðyrkju, grasafræði, dýralíf, garðmenningu og grasnytj- ar sem og til eflingar útiveru og lýðheilsu. Hægt er að fá leiðsögn um garðinn og einnig er hægt að fá lánaða græna bakpoka sem inni- halda skemmtileg náttúruverkefni og fróðlega leiki fyrir leikskólahópa og nemendahópa á yngsta stigi grunnskóla. Upplifun að ganga um dalinn Mitt í Grasagarði má finna kaffihúsið Flóruna sem býður upp á gróðurhúsastemningu innan dyra en einnig er hægt að sitja úti undir berum himni. Þennan dag situr þar fólk með kaffiboll- ana sína og hádegisverð og spjallar í friði og ró. Umhverfið er nærandi fyrir sál og líkama. Einn þeirra sem þekkja garðinn betur en margur annar er fyrrverandi garðyrkjustjóri Reykjavíkur, Jóhann Pálsson. Hann er nýorð- inn níræður og hélt einmitt upp á afmæli sitt í garðskálanum sem stendur í garðinum fyrir ut- an Flóru. Jóhann segir garðinn nú einstaklega fal- legan. „Ég hélt upp á níræðisafmælið mitt þarna 21. júlí. Ég held alltaf upp á afmælið mitt í litla garðskálanum sem við fluttum í dalinn. Það er yndislegt að sitja inni í þessum litla garðskála,“ segir hann. „Ég er grasafræðingur og fór víða og skoðaði mikið garða í Evrópu og seinna í Kína líka. Ég þekki ansi mikið af plöntum og hef mikið dund- að mér í skógrækt,“ segir Jóhann. „Ég mæli með að fólk leggi leið sína í Laug- ardalinn sem er orðinn geysilega fallegur. Það er virkileg upplifun að ganga um Grasagarðinn og jafnvel allan dalinn.“ Blóm, fólk og önnur dýr Laugardalurinn er sannkallaður griðastaður mitt í höfuðborginni. Í Grasagarðinum, sem varð 60 ára í síð- ustu viku, má rölta um og skoða fegurð náttúrunnar, fá sér kaffi og finna ilminn af blómunum. Texti og myndir: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Í Grasagarðinum í Laugardal má finna fimm þúsund tegundir plantna og blóma. ’ Ég mæli með að fólk leggi leið sína í Laugardalinn sem er orðinn geysilega fal- legur. Það er virkileg upplifun að ganga um Grasagarðinn og jafnvel allan dalinn. Jóhann Pálsson 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021 GRASAGARÐURINN

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.