Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Síða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.8. 2021 ÁTAK Í grunninn er ég enginn hlaupari en þegar sonur minn greindist með einhverfu þá byrjaði ég að hlaupa og komst fljótt að raun um að það er mjög góð leið til að hreinsa hug- ann,“ segir Sólveig Ása B. Tryggvadóttir sem ætlar að hlaupa 10 kílómetra 15. september og safna um leið áheitum fyrir Einhverfusamtökin. Upprunalega markmiðið var að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu en enda þótt því væri aflýst ákvað Sólveig Ása að halda sínu striki. Hún kveðst vera með takmarkaðan bak- grunn í íþróttum. „Ég er bara venjuleg kona, þannig lagað. Ég er frá Akureyri og var á skíð- um þegar ég var lítil og á kort í ræktina en hef aldrei stundað neinar íþróttir af kappi. Það var því átak og áskorun fyrir mig að byrja að hlaupa reglulega síðasta sumar. Þetta gekk ágætlega í vetur og í vor ákvað ég að setja mér markmið – að hlaupa 10 kílómetrana í Reykja- víkurmaraþoninu til að vekja athygli á ein- hverfu. Það eru margir að hlaupa í þágu góðs málstaðar og ég mátti til með að slást í hópinn. Vegferð einhverfra einstaklinga og aðstand- enda þeirra er miklu lengri en 10 kílómetrar og þess vegna langar mig að safna áheitum fyrir samtökin sem berjast fyrir réttindum þessa fólks,“ segir Sólveig Ása. Öðrum þræði er hún að koma út úr skápnum með tilfinningar sínar, eins og hún orðar það. „Það er áfall þegar barnið manns greinist með einhverfu og ákveðið sorgarferli fer í gang. Á sama tíma er maður óhjákvæmilega með sam- viskubit út af tilfinningum sínum enda er maður með nákvæmlega sama barnið fyrir framan sig,“ segir hún. Ég var alveg blind Tryggvi, sonur Sólveigar Ásu og Grettis Heim- issonar, er fjögurra ára. Hann þroskaðist eðli- lega til að byrja með en um tveggja ára ald- urinn fór að bera á frávikum. Það hægðist til dæmis á málþroska Tryggva og um tíma virtist meira að segja vera um afturför að ræða. Þá átti hann erfitt uppdráttar í samskiptum. „Mað- urinn minn sá þetta á undan mér, ég var alveg blind, og við ýttum eftir því að þessi möguleiki væri kannaður, það er að Tryggvi væri ein- hverfur. Hann er fyrsta og eina barnið okkar og auðvitað bregður manni þegar maður fær svona lagað staðfest. Ótal spurningar vakna. Hvaða áhrif mun þetta hafa á líf drengsins okkar? Hvernig kemur hann til með að spjara sig? Og þar fram eftir götunum. Í þessum vangaveltum er fólgið falið álag sem fólk sér ekki.“ Að sögn Sólveigar Ásu hefur baklandið verið sterkt. „Tryggvi er í afskaplega góðum hönd- um. Ég má til með að hrósa borginni; hún greip okkur um leið. Við höfum mætt mikilli fag- mennsku og skilningi þar. Eins leikskólinn, Laugasól. Hann höndlaði þetta mjög vel, bæði starfsfólkið og foreldrar annarra barna, og við höfum fengið frábæra þjónustu. Þá er Tryggvi með mjög góðar stuðningsfjölskyldur.“ Áætlað er að á bilinu 2-3% mannkyns séu á einhverfurófinu. Sólveig Ása segir að enda þótt skilningur á merkingu þess hafi aukist sé ennþá langt í land. Einhverfa sé ekki sjúkdómur held- ur öðruvísi sýn á lífið og tilveruna og eigi sér hinar fjölbreyttustu birtingarmyndir. „Öll sam- félög njóta góðs af þeim eiginleikum sem ein- hverfir koma með að borðinu.“ Hún segir snemmbæra íhlutun skipta höfuð- máli en því fyrr sem einstaklingurinn fái viðeig- andi þjónustu þeim mun betra. „Fólk er alltaf með ákveðnar væntingar þegar það eignast börn og svo liggur allt í einu fyrir greining á einhverju sem maður veit lítið sem ekkert um. Til verður nýr heimur sem maður kemur til með að verða í út lífið. Tilfinningarnar eru líka blendnar; auðvitað vill enginn fá svona grein- ingu en það er samt ákveðinn léttir þegar hún er komin enda verður vinnan með barninu upp frá því markvissari.“ Tíminn einn mun leiða í ljós hvernig hlutirnir eiga eftir að þróast. „Það er innbyggt í okkur mannfólkið að þurfa alltaf að vita næstu skref. Það er partur af því sem er erfitt. Auðvitað vill maður vita sem mest en það er bara engin leið að segja til um það hvernig þetta mun þróast hjá Tryggva. Við höfum ekki hugmynd um hvað gerist næst. Eins og ég segi þá er einhverfa svo margbreytileg og ekki síst þess vegna er mik- ilvægt að tala opinskátt um hana til að stuðla að auknum skilningi og umburðarlyndi, eins og með önnur frávik í lífinu.“ Tryggva gengur betur að tjá sig í dag en þeg- ar hann var greindur, sem Sólveig Ása segir mjög mikilvægt. Vanlíðan einhverfra stafi oftar en ekki af því að þeir komi ekki hugsunum sín- um í orð. „Það er strax mjög góð vísbending um að við séum á réttri leið. Annars höfum við lært að hugsa ekki of langt fram í tímann; þetta ferli hefur verið góð æfing í að lifa í núinu,“ segir hún brosandi. Það hjálpar til að Tryggvi er glaðlyndur og hamingjusamur drengur, þrátt fyrir áskor- anirnar sem blasa við honum. „Hann nýtur sín í hópi en er ekki eins félagslega fær og aðrir. Langar þó að vera með, sem skiptir mjög miklu máli. Þá einangrast hann síður.“ Sólveig Ása og Grettir hafa sjálf leitað til fag- manna, sálfræðinga og fleiri, til að freista þess að skilja betur við hvað er að etja og að verða betri foreldrar. „Við viljum koma okkur í stöðu til að geta tæklað þarfir sonar okkar sem best,“ segir hún. „Við erum líka með frábæra stuðn- ingsaðila sem hringja í okkur annað veifið til að kanna hvernig við höfum það. Það er alls ekki sjálfgefið að eiga slíkt fólk að og fyrir það erum við afskaplega þakklát. Við höfum lært ótal- margt undanfarið ár og allt er það gott nesti í bakpokann fyrir framtíðina. Líf okkar í dag er í senn innihaldsríkara og litríkara en það var og maður áttar sig betur á því hvað skiptir í raun og veru máli.“ Við lifum á óvenjulegum tímum og Sólveig Ása og Grettir fengu fréttirnar af geiningunni gegnum samskiptaforritið Skype. „Það var óneitanlega undarlegt en ekkert við því að gera; svona er lífið bara í Covid. Í eðlilegu árferði hefðum við án efa verið í meiri beinum sam- skiptum við fólk en við höfum samt fundið fólk sem hefur verið reiðubúið að miðla af reynslu sinni og þekkingu. Það hefur hjálpað.“ Hún kveðst raunar vera þakklát fyrir allan áhuga. „Auðvitað veit fólk mismikið um ein- hverfu, sjálf vissum við lítið sem ekkert áður en Tryggvi greindist, og maður fær spurningar eins og „hefur hann þá bara áhuga á risaeðl- um?“ eða „er hann þá eins og Rain Man?“ eða „er hann þá eins og Einstein?“ Þetta hjálpar allt, ef maður horfir þannig á það. Og þess vegna er mikilvægt að hver og einn segi sína sögu. Samtökin Blár apríl hafa staðið sig frá- bærlega í vitundarvakningu og fræðslu.“ Ekki í kappi við klukkuna En aftur að hlaupinu sjálfu. Hvernig skyldu æf- ingar hafa gengið? „Bara ágætlega,“ svarar Sólveig Ása bros- andi. „Ég var mjög dugleg að æfa í sumarfríinu en núna er vinnan aðeins að þvælast fyrir mér en ég er framkvæmdastjóri hjá AFS á Íslandi sem orðið hefur illa fyrir barðinu á Covid.“ AFS er samfélag skiptinema, fjölskyldna og sjálf- boðaliða sem vinna að því að tengja saman menningarheima. „Ég hef mest hlaupið níu kílómetra með smá labbi inn á milli en er staðráðin í að hlaupa 10 kílómetrana í gegn – á þrjóskunni. Annars skiptir tíminn mig engu máli, ég hleyp ekki í kappi við klukkuna.“ Ánægðust er hún með snjóboltaáhrifin en fjölskylda og vinir eru líka farin að hlaupa til að sýna stuðning sinn í verki. Þá er Grettir eig- inmaður hennar maraþonhlaupari, þannig að hún kemur ekki að tómum kofunum þar. „Fyrir utan markmiðið þá er þetta auðvitað ljómandi fín Covid-hreyfing, eins og margir hafa komist að raun um.“ Sólveig Ása æfir mest í Laugardalnum, sem er í grennd við heimili hennar, og á Sæbrautinni þegar veður og vindar leyfa. Þá kann hún vel við sig í Elliðaárdalnum. Hún hefur ekki end- anlega gert upp við sig hvaða leið hún ætlar að hlaupa 15. september. Það verður þó ábyggi- lega ekki fyrir norðan. „Við hlupum í tuttugu og eitthvað stiga hita á Sigló í sumar og það var of- boðslega erfitt. Þá er betra að gera þetta hérna fyrir sunnan.“ Hún hlær. – Hvernig gengur að safna? „Bara nokkuð vel. Markmiðið er 250 þúsund krónur og vonandi næst það. Fólk hefur verið mjög jákvætt og fyrir það er ég þakklát. Ann- ars snýst þetta fyrst og fremst um að opna fyrir samtalið við umhverfið. Að segja hátt og snjallt: Strákurinn minn er einhverfur!“ Styrkja má Sólveigu Ásu á slóðinni https:// www.rmi.is/hlaupastyrkur/hlauparar/2440. „Er hann þá eins og Einstein?“ Sólveig Ása B. Tryggvadóttir ætlar að hlaupa 10 kílómetra 15. september og safna um leið áheitum fyrir Einhverfu- samtökin en sonur hennar, Tryggvi Grettisson, greindist með einhverfu á síðasta ári. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sólveig Ása B. Tryggvadóttir er stað- ráðin í að hlaupa kílómetrana 10 út í gegn og hefur engar áhyggjur af klukk- unni. Aðalatriðið sé að komast í mark. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sólveig Ása segir Tryggva glaðlyndan og hamingjusaman dreng þrátt fyrir miklar áskoranir í lífinu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.