Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Síða 29
símtalinu, sem slúðurmiðill vestra
birti, kemur fram að Jordison hafi
þess utan verið langt genginn með
alkóhólisma og að því var látið liggja
að heilsukvillarnir hafi verið fleiri.
Joey Jordison þótti strax mikið
séní þegar hann kom fram á sjónar-
sviðið með nýbylgjumálmbandinu
Slipknot á ofanverðum tíunda ára-
tugnum. Stíllinn var einstakur og
tæknin næsta ómennsk. „Að horfa á
Joey Jordison spila, það er bara
brjálæði sem þessir menn búa til,“ er
haft eftir Paul Bostaph, trymbli
Slayer, í bókinni The Bloody Reign of
Slayer frá 2008, en böndin túruðu
saman í kringum aldamótin. Gjörólík
bönd en Bostaph segir orkuna sem
varð til hjá Slipknot hafa haft djúp-
stæð áhrif á Slayer á þessum tíma.
Fáum brá líka árið 2010 þegar
Jordison var valinn besti trymbill
undangenginna 25 ára af trommu- og
ásláttartímaritinu Rhythm magazine.
Skákaði þar mönnum á borð við Neil
Peart og Mike Portnoy. „Ég er orð-
laus,“ sagði hann af því tilefni. „Þetta
er meira en ótrúlegt. Svona lagað
minnir mig á degi hverjum á það
hvers vegna ég er að þessu.“ Sama ár
var hann valinn besti málmtrymbill
ársins í kjöri sem 6.500 trymblar vítt
og breitt um heiminn tóku þátt í og
árið 2013 völdu lesendur málm-
gagnsins Loudwire hann besta málm-
trymbil heims.
Síðla sama ár tilkynnti Slipknot að
Jordison hefði hætt í bandinu en
hann leiðrétti það sjálfur og kvaðst
hafa verið rekinn. „Slipknot hefur
verið líf mitt undanfarin 18 ár og ég
myndi hvorki yfirgefa bandið né
aðdáendur mína.“
Jordison kom að ýmsum böndum
eftir það, svo sem Scar the Martyr og
Sinsaenum, en þau náðu ekki sama
flugi og Slipknot.
Jordison er enn einn rokktrymbill-
inn sem deyr fyrir aldur fram. Fyrsta
má telja helstu fyrirmyndir hans og
áhrifavalda, John Bonham úr Led
Zeppelin og Keith Moon úr The Who,
sem báðir urðu óreglu að bráð, aðeins
32 ára gamlir. Jordison tilgreindi
einnig djasstrymbilinn goðsagna-
kennda Gene Krupa sem áhrifavald.
Hann lifði lengur án þess þó að verða
gamall; lést 64 ára úr hjartabilun eftir
glímu við krabbamein.
Af öðrum trymblum sem látist hafa
vegna ofneyslu áfengis og/eða lyfja
má nefna Jimmy Sullivan, uppruna-
legan trymbil Avenged Sevenfold, en
hann er betur þekktur undir bráð-
góðu listamannsnafni sínu, the Re-
verend Tholomew Plague, eða ein-
faldlega The Rev. Hann var 28 ára
þegar hann lést árið 2009.
Dó á miðjum tónleikum
Sitthvað fleira hefur orðið þessum
ágætu mönnum að aldurtila. Þannig
felldi kransæðasjúkdómur Vinnie
Paul, trymbil grúvgoðanna í Pantera,
árið 2018. Hann var 54 ára.
Hjartaslag á miðjum tónleikum ár-
ið 2016 var banamein Nick Menza,
sem í eina tíð var í þrassbandinu
Megadeth. Hann var 51 árs. Lifrar-
bilun tók annan Megadeth-
trommara, Gar Samuelson, árið 1999.
Hann var 41 árs.
Clive Burr, sem trommaði á fyrstu
þremur breiðskífum Iron Maiden,
lést 56 ára gamall árið 2013 eftir ára-
langa baráttu við MS-sjúkdóminn.
Burr var verndari góðgerðarsamtak-
anna Clive Aid sem fram á þennan
dag hafa safnað fé með tónleikahaldi
til að styðja við þá sem greinst hafa
með MS, krabbamein og fleiri sjúk-
dóma.
Það var einmitt afar sjaldgæft
krabbamein í hjarta sem varð Eric
Carr, trommara Kiss til margra ára,
að bana árið 1991. Hann var ekki
nema 41 árs.
Tommy Ramone, trymbill pönk-
bandsins góðkunna The Ramones,
tapaði líka baráttu sinni við krabba-
mein árið 2014, 65 ára að aldri. Réttið
upp hönd ef þið vissuð að hann var af
ungverskum ættum og skírður Ta-
más Erdélyi. Þeir Ramonar, fjórir að
tölu, eru raunar allir látnir.
Fleiri má nefna, svo sem Ingo
Schwichtenberg, trymbil þýska
sprettmálmbandsins Helloween, en
hann svipti sig lífi aðeins 29 ára árið
1995 eftir trylltan dans við við áfengi,
fíkniefni og geðklofa. Henti sér fyrir
lest í heimaborg sinni Hamborg. Bú-
inn að fá nóg.
Listinn er án efa lengri en við lát-
um þetta gott heita og vottum þess-
um góðu drengjum virðingu okkar.
Svo er þetta auðvitað alls ekki algilt.
Þannig kvaddi Charlie Watts í vik-
unni áttræður og Ringo Starr er í
fullu fjöri árinu eldri!
Joey heitinn Jordison á
tónleikum árið 2008.
AFP
29.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Speglaframlenging
Kerrulás
Hitablásarar
Reiðhjólafestingar
á bíl
Tjalds
Flugnanet fyrir
börn og fullorðna
Rafmagnspumpa
Farangursteygjur
og strekkibönd
ikföng
Allt í ferðalagið
frá 3.845
4.485
2.995
frá 4.999
1.995
995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
2.995Rafmangskælibox
frá 9.999
STUÐ Kanadíska leikkonan
Sandra Oh fer mikinn í nýrri sjón-
varpssatíru á efnisveitunni Netflix,
The Chair, ef marka má gagnrýni í
breskum blöðum. Þar leikur hún
fyrstu konuna sem gegnir embætti
forseta ernskudeildar við hinn
ímyndaða Pembroke-háskóla á
Englandi. Að sögn The Guardian
njóta bæði kómískir og dramatískir
hæfileikar Oh sín til fulls í téðum
þáttum. Þá sé hún í mun betra
formi en í öðrum þáttum, Killing
Eve, sem megi muna sinn fífil fegri.
Ohborganleg í nýrri satíru
Söndru Oh er margt til lista lagt.
AFP
BÓKSALA 18.-24. ÁGÚST
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Þín eigin saga – Rauðhetta
Ævar Þór Benediktsson
2
Kennarinn sem kveikti í
Bergrún Íris Sævarsdóttir
3
New Close-up B2
Jeremy Day
4
Stærðfræði 2B
Gísli Bachmann/Helga Björnsd.
5
Rosalingarnir
Kristjana Friðbjörnsdóttir
6
Randafluga
Ýmsir höfundar
7
Ísadóra – Nótt á afmæli
Harriet Muncaster
8
Ísadóra – Nótt fer í skóla
Harriet Muncaster
9
Þroskasálfræði
Aldís Unnur Guðmundsd.
10
Síðasti naglinn
Stefan Ahnhem
1
Ekki var það illa meint
Hjálmar Freysteinsson
2
Klón – eftirmyndasaga
Ingólfur Eiríksson
3
Draumasafnarar
Margrét Lóa Jónsdóttir
4
Íslensk kvæði
FrúVigdís Finnbogadóttir valdi
5
Vísur og kvæði
Þórarinn Már Baldursson
6
Söngur reyrsins
Rumi
7
Ljóð 2007-2018
Valdimar Tómasson
8
Leðurjakkaveður
Fríða Ísberg
9
Fimm leiðir til að komast
óhultur gegnum dimman
skóg um nótt
Roger McGough
10
Perlur úr ljóðum
íslenskra kvenna
Silja Aðalsteinsdóttir valdi
Allar bækur
Ljóðabækur
Ég les ekki margar bækur og
mér finnst oft erfitt að byrja en
þegar ég er komin í þægilega
stöðu til þess að lesa finnst mér
eins og ég geti ekki sett bókina
niður og finnst eins og ég geti
tengst bókinni mjög vel, erfiði
parturinn er einfaldlega bara að
byrja og ég er viss um að aðrir
tengja við það.
Með tækninni í dag er ekki eins
mikið verið að
fókusa á bækur og
áður var og það
hefur áhrif á mína
kynslóð. Í dag er
mikið verið að
tala um framtíð
kynslóðarinnar
minnar og það er
erfitt að sjá ekki fréttir um lofts-
lagsbreytingar eða Covid-19 svo
eitthvað sé nefnt. Það er mikið
frelsi á Íslandi en stundum fer ég
að hugsa hversu öðruvísi Ísland
gæti orðið þegar þessar miklu
breytingar hafa orðið á landinu.
Bókin Múrinn eftir Sif Sigmars-
dóttur segir frá Íslandi í framtíð-
inni, eftir miklar umbyltingar og
þegar ég byrjaði að lesa hana
festist ég við hana. Hún segir frá
Íslandi þar sem allt frelsi er
næstum horfið og öryggi allra
verður minna og minna. Múrinn
er vel skrifuð bók og mér finnst
Sif skilja vel
hvernig það er að
vera unglingur í
samfélagi þar
sem er mikill
þrýstingur frá
nær öllum.
Dystópíubækur
eru í efsta sæti
hjá mér, í þeim er hægt að færa
sögur mikið áfram af atburðum
sem hafa gerst í raunveruleik-
anum og sýnt hvernig þeir gætu
haft mikil áhrif á framtíðina. Ljót
eftir Scott Westerfeld er einnig
gott dæmi um bók sem notar
áhrifin sem lýtaaðgerðir og feg-
urð hafa á samfélagið. Í þessum
bókum eru aðalhetjurnar næst-
um á sama aldri og ég og er
áhugavert að lesa og taka eftir
að stundum hef ég sama hug-
arfar og þær.
Ég hef eiginlega
aldrei átt uppá-
haldshöfund eða
-bók því ég hef
mismunandi
smekk sem gerir
það að verkum að
ég get ekki valið á
milli, allar bækur
geta verið þær bestu sem ég hef
lesið. Að hafa mismunandi
smekk þýðir einnig að ég get far-
ið frá því að lesa bókina Undur
eftir R.J. Palacio í að lesa Skurð-
lækninn eftir Tess Gerritsen á
stuttum tíma en mér finnst
skemmtilegt að
flakka á milli bóka
og skoða hversu
ólíkar þær eru og
hvernig þær koma
ákveðum skila-
boðum fram, fyrir
hvaða aldurshópa
þær eru og hvaða
tilfinningar vakna
út frá sögunum. Þegar bók vekur
hjá mér sterkar tilfinningar veit
ég að hún er að gera eitthvað
rétt og er ekki ólíklegt að ég fari
að gráta eða að hlæja með bók-
inni og mér finnst það mikilvæg-
ast.
BRYNDÍS ÓMARSDÓTTIR ER AÐ LESA
Erfiðast að byrja
Bryndís Óm-
arsdóttir er
hönnunar- og
nýsköp-
unarnemi.