Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.08.2021, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2021
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
MADE IN
DENMARK
Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt
fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn.
Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939.
Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í
boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta
og rúmgafla.
Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks-
stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin
detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig.
Sýningin Soft Approach, sem opnuð
verður í Galerie Marguo í París á
laugardaginn eftir viku, er fyrsta
einkasýning Steingríms Gauta Ing-
ólfssonar á erlendri grundu. Getur
þar að líta um tuttugu abstrakt-
málverk máluð á síðustu fjórum
mánuðum og mynda þau eina heild.
Í kynningu gallerísins segir meðal
annars að mikil tjáningargleði ein-
kenni verk Steingríms Gauta enda
þótt tónninn í þeim sé jarðbundinn.
Verkin séu í reynd tímalaus og erfitt
sé að tengja þau við ákveðna stefnu.
„Líkt og rennandi vatn er hver part-
ur framhald af heildinni; ógerlegt er
að ákvarða upphaf eða endi.“
Ennfremur segir að verk Stein-
gríms Gauta bjóði hugmyndafræð-
inni birginn og séu til marks um
mótþróa hans gegn rökrænni hugs-
un, auk þess sem þau beri listfengi
hans og valdi á forminu fagurt vitni.
Sjálfur kveðst listamaðurinn
sækja innblásturinn víða; svo sem í
íslenska náttúru, í verk Pers heitins
Kirkebys og skreytingar á veggjum
leikskóla dóttur hans.
Steingrímur Gauti fæddist árið
1986 og lauk námi frá Listaháskóla
Íslands árið 2015. Hann hefur sýnt
verk sín á Mokka, í Hafnarborg,
Listasafni Mosfellsbæjar og víðar.
Sýningin stendur til 9. október.
Verk eftir Steingrím Gauta frá árinu 2020. Án titils.
Mikil tjáningargleði
Steingrímur Gauti Ingólfsson myndlistarmaður hleypir nú heimdraganum.
Ljósmynd/Saga Sig
Sýning á verkum Steingríms Gauta Ingólfssonar opnuð í París 4. september
Menn greindi á um þjónustulund
Akureyringa síðsumars 1961, ef
marka má bréf sem Velvakanda
bárust frá tveimur lesendum.
Í öðru bréfinu, sem var frá
Bangsa nokkrum, var farið fögr-
um orðum um fagmennsku
norðlenskra leigubílstjóra. „Ég
fór norður til Akureyrar í sumar
og hafði þá ekki komið þar í 8 ár.
Erlendis hef ég dvalið um tíma
og ferðast víða, bæði í Evrópu
og Ameríku. Mér varð því hugs-
að til hinnar góðu þjónustu
leigubílstjóra erlendis, þegar
Akureyrarbílstjórarnir komu út
úr bifreiðum sínum og opnuðu
hurðir, bæði þegar ökutúr hófst
og þegar honum lauk.“
Annar bréfritari, frú S.S., var
ekki eins hrifin. Hún hafði snætt
á Hóteli KEA ásamt eiginmanni
sínum og systur og fór allt vel
fram þar til komið var að ísnum,
sem borinn var fyrir gestina
bráðinn í glösunum. Þríeykið
kvartaði undan þessu en þá
brást þjónustustúlkan við með
vanþóknun og yfirlæti. „Við hó-
uðum í yfirþjóninn og sögðum
okkar farir ekki sléttar. Þótti
honum þetta bersýnilega miður.
Víð báðum hann að hafa ekki
áhyggjur af ábætinum. Hann
væri í rauninni ósköp lítils virði.
Hitt væri alvarlegra að hafa
þjónustulið, sem hvorki kynni
kurteisi né umgengnisvenjur.
Hann sagði okkur að þetta væri
plága. Hann réði bara hreint
ekkert við þessar kerlingar. Það
veit sá sem allt veit að við vor-
kenndum aumingja mann-
inum.“
GAMLA FRÉTTIN
Norðlensk
(ó)kurteisi
Bréfritarar höfðu ólíka sögu að segja eftir heimsóknir sínar til Akureyrar.
Morgunblaðið/Ómar
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Joseph Mawle
breskur leikari
Heiðar Örn Sigurfinnsson
fréttamaður
Scott Bakula
bandarískur leikari