Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 15

Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Lægð Ferðamennirnir voru þungir á svip í lægðinni í Reykjavík. Spurning hvort það var veðrið eða fréttir af endurtalningu sem gerði útslagið. Unnur Karen Niðurstaða kosn- inganna er að þjóðin vill stöðugleika. Prófkjör sjálfstæð- ismanna í Krag- anum sl. vor fól einn- ig í sér skilaboð um stöðugleika, þar sem fjórir sitjandi þing- menn voru valdir til áframhaldandi setu í þeim sætum, en ég kjörinn í 5. sætið. Mikill stuðningur við minn málflutning dugði ekki til að fleyta mér inn á Al- þingi. Persóna mín skiptir þó engu máli hér. Í stóra sam- henginu skiptir öllu að þingmenn ræði af heilindum um áhrifaleysi Ís- lands innan EES, um skæðadrífu erlendra laga- reglna sem Alþingi hvorki breytir né afnemur að eigin frumkvæði, um skort á lýðræðislegu að- haldi o.fl. Til eru þeir, jafnvel í hópi lögfræðinga, sem ekki vilja að athygli sé beint að þeirri stað- reynd að lög Íslendinga eru nú að stórum hluta samin af fulltrúum annarra þjóða og gefin út í nafni yfirþjóðlegra stofnana. Framangreint rétt- arástand er ósjálfbært, ótryggt, ögrun við lýð- ræðið og opnar möguleika á misbeitingu valds. Um þetta er skylt að ræða. Skilyrðislaust bann verður ekki lagt við því að embættismenn taki þátt í slíkri umræðu, enda hljóta þeir að mega vera trúir samvisku sinni og sannfæringu. Hér sem annars staðar ber að árétta að ásýndin má ekki bera inntakið ofurliði og að kerfið er ekki mikilvægara en fólkið sem það á að þjóna. Ég bauð fram krafta mína til að leiða upplýsta umræðu um þessi mál á Alþingi og til að vara við því að við framseljum valdið úr landi, enda sýnir sagan að slíkt getur haft neikvæð áhrif á hagsæld Íslands til lengri tíma. Vonandi taka nýkjörnir þingmenn þetta hlutverk að sér. Þar má einna helst binda vonir við þingmenn Sjálfstæð- isflokksins, enda var sá flokkur stofnaður m.a. í þeim tilgangi að stuðla að sjálfstæði þjóðarinnar. Brýnt er þó að aðrir víkist ekki undan ábyrgð í þessum efnum. Að því sögðu óska ég öllum þing- mönnum góðs gengis, landi og þjóð til heilla. Eftir Arnar Þór Jónsson »Undirstöður lýðveldisins verða að vera traustar til að stöðugleiki haldist. Arnar Þór Jónsson Höfundur er lýðræðis- og lýðveldissinni. Að kosning- um loknum Í upphafi alþjóðlegs áratugar um endur- heimt vistkerfa er það undarleg þversögn að drög að landsáætlun í skógrækt, sem enn er á vinnslustigi, skuli boða stórfellda röskun á vist- kerfum Íslands. Drögin einkennast af áherslu á ræktun framandi tegunda, meðal annars stafa- furu, sem víða um heim er ágeng. Svo ágeng er hún að notkun hennar á Nýja-Sjálandi hefur verið takmörkuð og sums staðar bönnuð vegna áhrifanna á einstæða náttúru. Hernaðurinn heldur áfram Fyrir rúmum 50 árum ritaði Halldór Laxness greinina Hernaðurinn gegn landinu þar sem hann deildi hart á meðferð Íslendinga á landinu sínu, ofbeitina og hvernig menn væru „verðlaun- aðir af hinu opinbera fyrir að ræsa fram mýrar“. Ef sú ríkisstyrkta umbreyting náttúru landsins sem nú stendur til að efla verður að veruleika er hætt við að skógræktaráætlunin í núverandi mynd eigi eftir að fá hliðstæð eftirmæli. Vistkerfi Íslands eru bæði ung og viðkvæm. Þess vegna þarf að fara varlega í gróðursetn- ingu nýrra tegunda sem geta haft keðjuverk- andi áhrif langt út fyrir þau svæði þar sem plantað er fyrst. Reynslan í mörgum löndum hefur sýnt fram á getu ágengra trjátegunda til að yfirtaka svæði, flæma burt þær tegundir sem fyrir eru, ryðja í burtu mikilvægum vist- gerðum og breyta landslagsheildum. Til lengri tíma litið er sú stórfellda aukning á gróðursetningu slíkra tegunda sem drögin boða eitt stærsta náttúruverndarmál okkar tíma. Óvissuþættirnir eru óviðunandi og varða mikilvæga hagsmuni þjóðarinnar eins og varð- veislu náttúrunnar, aðdráttarafl landsins fyrir ferðamenn og möguleika til matvælafram- leiðslu í framtíðinni. Ágengar trjátegundir og forsendur landsáætlunar Í forskrift stjórnvalda fyrir gerð landsáætl- unar í skógrækt er lögð áhersla á að „gera grein fyrir skógrækt í samhengi líffræðilegrar fjölbreytni“ og að gerð verði grein fyrir „for- sendum fyrir vali á landi til skógræktar með tilliti til náttúruverndar, minjaverndar og landslags“. Jafnframt er nefnt að fjalla skuli um „notkun tegunda í skógrækt og tryggja að ekki verði notaðar ágengar framandi teg- undir“. Meirihluti verkefnisstjórnar fer þá ein- földu leið fram hjá slíkum takmörkunum að vísa til þess að þær innfluttu tegundir sem hér eru notaðar hafi ekki verið skráðar á lista stjórnvalda yfir ágengar tegundir og séu þar með ekki ágengar. Sá veruleiki blasir hins vegar við, þegar horft er opnum augum á þróun náttúru lands- ins, að stafafura, sitkagreni og fleiri tegundir eru farnar að sá sér af miklu afli út frá skóg- arreitum. Stafafuran Hin norðurameríska stafafura er nú er talin ágeng í mörgum löndum og hefur jafnvel verið verið lýst sem ágengustu trjátegund jarðar. Eitt gleggsta dæmið um ágengni stafafuru hér á landi er við Staðarfjall í Suðursveit. Gróðursetn- ing hennar hófst þar vorið 1959 en fyrst var tek- ið eftir sjálfsánum plöntum þar 1985. Árið 2012 var útbreiðsla stafafurunnar um 20 hektarar og núna sumarið 2021 vex stafafuran á meira en 100 hekturum lands. Tegundin er þar í veld- isvexti og sáir sér upp í fjallshlíðarnar og niður á áraurana. Finna má köngulberandi plöntur mörg hundruð metra frá elstu plöntunum og út- breiðsluhraðinn á því aðeins eftir að aukast. Álíka sjálfsáningu stafafuru er víða að finna á Íslandi sem sýnir sig í því að gróðursettir reitir þéttast og stækka. Sjálfsáin stafafura hefur fundist níu kílómetra frá næstu stafa- furutrjám og erlendis eru dæmi um stafa- furutré í 55 kílómetra fjarlægð frá næsta þekkta furulundi. Hyldjúp gjá Megindriffjöður þessara áforma er sú þrá meirihluta verkefnisstjórnar að skógrækt verði gerð að lykilatriði í loftslagsmálum og sett eru fram miklu stórtækari markmið en stjórnvöld hafa ætlað þessum geira hingað til. Áherslan sem lögð er á aukningu birkiskóga er vissulega af hinu góða. Hins vegar kemur fram að auk þess miði forsendur landsáætlunarinnar við að gróðursetja sitkagreni og stafafuru í 20.000 hektara vel gróins þurrlendis, rússa- lerki í 5.000 ha. rýrlendis og alaskaösp í 5.000 ha. frjósams lands, eða um 30.000 hektara í allt, sem samsvarar stærð allra uppistöðulóna vegna vatnsaflsvirkjana frá upphafi. Við hljót- um að sjá að það standa til boða aðrar lausnir vegna loftslagsmála en svo róttæk end- ursköpun vistkerfa. Það fór hljótt þegar drög að þessari áætlun voru auglýst til umsagna á heimasíðu Skóg- ræktarinnar. Samt sendu alls 45 aðilar um- sagnir og þar af gerði 21 umsagnaraðili alvar- legar, rökstuddar athugasemdir við þá umfangsmiklu endursköpun á náttúru Íslands sem boðuð er. Þar við bætist sérálit minnihluta verkefnisstjórnar, sem við styðjum heilshugar. Í heild opinbera umsagnirnar hyldjúpa gjá milli Skógræktarinnar og þeirra sem vilja vernda sérkenni náttúru Íslands. Hvernig vilj- um við sem þjóð að landið okkar líti út í fram- tíðinni? Eru vistkerfi landsins og lífríki fánýtt drasl sem þarf að umbreyta með nýjum tegundum, eða eitthvað sem ber að vernda, virða og end- urheimta? Eftir Svein Runólfsson, Andrés Arnalds » Í upphafi alþjóðlegs áratug- ar um endurheimt vist- kerfa er óásættanlegt að lands- áætlun í skógrækt skuli boða stórfellda röskun á vistkerfum Íslands. Andrés Arnalds Höfundar eru áhugamenn um náttúruvernd. sveinnrun@gmail.com; andres.arnalds@gmail.com. Er ekki löngu tímabært að stöðva gróðursetningu stafafuru hér á landi? Sveinn Runólfsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.