Morgunblaðið - 28.09.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021
30 ÁRA Birgitta Steingrímsdóttir er
Reykvíkingur, ólst upp í Árbænum og býr
þar. Hún er með BS-gráðu í líffræði frá
Háskóla Íslands og MS-gráðu í umhverfis-
og auðlindafræði frá sama skóla. Birgitta
starfar hjá Umhverfisstofnun en er í
fæðingarorlofi sem stendur. „Ég er sér-
fræðingur á sviði loftslags og hringrás-
arhagkerfis og er aðallega að vinna í
fræðslu og miðlun um umhverfismál. Ég
hef alltaf haft áhuga á náttúrunni og útivist
og fór þess vegna í líffræðina. Þar opnaðist
heimur umhverfisfræðinnar fyrir mér og
mig langaði að sjá hlutina í stærra sam-
hengi.“ Birgitta æfði dans sem barn og
kenndi í Kramhúsinu. „Ég er enn að dansa
í dag þótt ég sé ekki að kenna lengur.“
FJÖLSKYLDAN Marvin Ingi Einarsson, f. 1991, iðnaðarverkfræðingur hjá
Matís. Börn þeirra eru Einar, f. 2018, og Ragna, f. 2021. Foreldrar Birgittu eru
Kristrún Ágústsdóttir, f. 1970, starfsmaður Arion banka, og Steingrímur Ell-
ertsson, f. 1965, pylsusali hjá Skalla í Hraunbæ. Þau eru búsett í Norð-
lingaholti.
Birgitta Steingrímsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Hvaðeina sem þú festir kaup á í dag
verður hagnýtt, á góðu verði og mun að lík-
indum endast um langan aldur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú þarft að hrista af þér slenið, bretta
upp ermarnar og taka þinn þátt í því sem
gera þarf á heimilinu. Finndu lag til þess að
vinsa úr það sem einhver veigur er í.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Óvænt hól eða jafnvel launahækk-
un gæti beðið þín í dag. Líklegt er að þú talir
meira við fólk í vinnunni á næstunni en oft
áður.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú vekur athygli annarra og finnst
notalegt að láta hana leika um þig. Farðu þér
hægt í umgengni við hitt kynið.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú munt að öllum líkindum fá nýja inn-
sýn í hlutina í dag. Ef fólk er trekkt í kringum
þig gæti nærvera þín verið ógnandi.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú nýtur tímans sem þú verð með
vinum eða í góðum hópi. Óvæntar fréttir
berast langt að sem gleðja þig.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Skemmtilegt síðdegi er í vændum með
vinum og fjölskyldu. Þótt það sé stundum
gott að fá athygli skaltu gæta þess að það sé
ekki á annarra kostnað.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þetta er hentugur tími til að
ganga frá lausum endum og ljúka hálfklár-
uðum vekum. Þér finnst þú eiga erfitt með
að setja þér takmörk í lífinu.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú átt erfitt með að gera það
upp við þig hvort þú eigir að setja sjálfan þig
eða aðra í forgang í dag. Í dag gefst tækifæri
fyrir þýðingarmiklar samræður við aðra.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú býrð yfir miklum fróðleik sem
þú getur miðlað til annarra ef þú ert tilbúinn
til að gefa af sjálfum þér. Komið er að því að
horfast í augu við nokkur úrlausnarefni.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það verður ekki bæði sleppt og
haldið svo þú þarft að gera það upp við þig
hvað þú raunverulega vilt. Staldraðu við og
íhugaðu hvað það er sem þú sækist raun-
verulega eftir.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Ekki eyða tímanum í að reyna að
sannfæra einhvern um að hann hafi rangt
fyrir sér. Nú er rétti tíminn til þess að söðla
um, leggja af gamla siði og taka aðra og
heilsusamlegri upp í staðinn.
Marel, Kópavogsbæ og Íslandspósti,
bæði sem verkefnastjóri, vefstjóri og
upplýsingaöryggisstjóri.
sjóðanna árið 2006. Hún hefur
starfað óslitið við upplýsingatækni
allar götur síðan, m.a. hjá Skýrr,
M
argrét Valgerður
Helgadóttir fæddist
28. september 1971 í
Reykjavík en bjó
fyrstu æviárin í
Lundi í Svíþjóð. Hún bjó á Selfossi
til 10 ára aldurs en flutti þá til
Reykjavíkur. „Ég var í sveit á sumr-
in hjá ættingjum í Hlíð í Gnúpverja-
hreppi auk þess að eyða mörgum
stundum á Blesastöðum á Skeiðum
hjá ömmu og afa.“
Margrét hóf skólagöngu í Barna-
skóla Selfoss en gekk í Vogaskóla
eftir að hún fluttist til Reykjavíkur
og lauk þaðan grunnskólaprófi 1987.
Hún var eitt ár sem skiptinemi í
bænum Greenwood í Indianaríki í
Bandaríkjunum að grunnskóla lokn-
um. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund af hag-
fræðibraut árið 1992. „Ég starfaði á
auglýsingadeild Morgunblaðsins á
sumrin og í fríum samhliða mennta-
skóla og þar kviknaði áhuginn á fjöl-
miðlum og blaðamennsku.“
Margrét hóf nám í stjórnmála-
fræði 1993 við Háskóla Íslands og
lauk BA-prófi þaðan 1996. „Ég vann
ýmis störf á meðan ég var í háskóla-
námi, m.a. við kennslu og blaða-
mennsku.“
Margrét starfaði við blaða-
mennsku að loknu námi, bæði sem
sjálfstætt starfandi blaðamaður og
fastráðinn blaðamaður hjá Fróða í
nokkur ár. „Ég fluttist til Kaup-
mannahafnar árið 2000 ásamt fjöl-
skyldu minni sem taldi eiginmann og
tvö börn. Ég lagði stund á skapandi
skrif og rak eigið fyrirtæki, Data-
Text hús, á meðan ég bjó þar.“
Hún lauk meistaranámi í upplýs-
ingasamskiptum frá Háskólanum í
Hróarskeldu árið 2003. Hún hóf
störf sem vefstjóri hjá norrænu ráð-
herranefndinni eftir að hún eignaðist
yngsta barnið og starfaði þar þangað
til hún fluttist aftur til Íslands árið
2006. „Ég tók mikinn þátt í starfi Ís-
lendingafélagsins í Kaupmannahöfn
á þeim tíma, var m.a. ritari stjórnar
og ritstýrði Hafnarpóstinum, mál-
gagni Íslendingafélagsins.“
Eftir að Margrét flutti heim til Ís-
lands á ný hóf hún störf sem verk-
efnastjóri hjá Tölvumiðstöð Spari-
Margrét lauk námi í kennslurétt-
indum frá HR árið 2009. Hún hefur
lokið ýmsum námskeiðum í verk-
efnastjórnun, m.a. alþjóðlegri C-
vottun IPMA og alþjóðlegum nám-
skeiðum í upplýsingaöryggis-
stöðlum. Hún lauk enn fremur
grunnnámi í markþjálfun frá Pro-
fectus árið 2017. „Ég hef nýtt þá
reynslu inn í verkefnastjórnun
þeirra verkefna sem ég er að stýra.“
Margrét tók við starfi verkefna-
stjóra fyrir Stafrænt Suðurland 1.
ágúst síðastliðinn. Markmið Staf-
ræns Suðurlands er að móta eins
konar stafrænt ráðhús og þjón-
ustuver fyrir Sveitarfélagið Suður-
land og ná þannig fram hagræðingu í
rekstri, auknu öryggi í vinnslu
gagna og meiri sérhæfingu í störf-
um. Þó að ekki hafi orðið af samein-
ingu sveitarfélaga á Suðurlandi, en
kosið var um hana um síðustu helgi,
heldur verkefnið áfram, en það er til
eins árs.
„Á meðan börnin mín voru yngri
tók ég virkan þátt í foreldrastarfi,
bæði í íþróttafélögum, leik- og
grunnskólum. Ég starfaði með
SAMFOK (Samtökum foreldra
grunnskólabarna í Reykjavík) og var
formaður á árunum 2012-2013.“
Margrét hefur einnig tekið þátt í
ýmiss konar fagstarfi tengdu upp-
lýsingatækni. Hún hefur m.a. setið í
dómnefnd Samtaka vefiðnaðarins
(SVEF) um vefverðlaun, flutt fyrir-
lestra og starfað með faghópi Stjórn-
vísi í upplýsingaöryggi.
„Helstu áhugamál mín eru að eiga
góðar stundir með fjölskyldu og vin-
um, ferðalög innanlands og utan,
ljósmyndun og þá helst að njóta
náttúrunnar og mynda landslag. Á
allra síðustu árum hefur jákvæð sál-
fræði og markþjálfun tekið sífellt
meira pláss í kassanum sem inni-
heldur áhugamál. Svo finnst mér
vinnan mín frábærlega skemmtileg,
sem eru mikil forréttindi, og því hef
ég alltaf litið á hana sem hluta af
áhugamálunum mínum.“
Fjölskylda
Börn Margrétar eru: 1) Hafdís
Rún Guðnadóttir, f. 14.12. 1992 (fað-
ir: Guðni Jónsson, f. 7.5. 1971), verk-
Margrét Valgerður Helgadóttir, verkefnastjóri Stafræns Suðurlands – 50 ára
Afmælisveisla Margrét ásamt börnum sínum, Daníel Má, Kjartani Helga
og Hafdísi Rún, og Sigríði, móður sinni, í 70 ára afmæli Sigríðar í fyrra.
Vinnan hluti af áhugamálunum
Systkinin Frá vinstri: Hulda Rós, Margrét Valgerður, Finnur Þór og
HafþórHelgi Helgabörn samankomin á góðri stundu.
Til hamingju með daginn
Reykjavík Ragna Marvinsdóttir fædd-
ist föstudaginn 19. mars 2021 kl. 7.33
heima í Reykási. Hún vó 4.040 g og
var 53 cm löng. Foreldrar hennar eru
Birgitta Steingrímsdóttir og Marvin
Ingi Einarsson.
Nýr borgari
Við
Hækk
um
í gleð
inni