Morgunblaðið - 28.09.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021
efnastjóri hjá Rauða krossinum, bú-
sett í Reykjavík; 2) Daníel Már
Guðmundsson, f. 18.9. 1998 (faðir:
Guðmundur B. Daníelsson, f. 15.10.
1974), hugbúnaðarsérfræðingur hjá
Þjóðskrá, búsettur í Garðabæ. Sam-
býliskona hans er María Rún Björg-
vinsdóttir, f. 9.11. 1998, íþróttafræð-
ingur og meistaranemi; 3) Kjartan
Helgi Guðmundsson (faðir: Guð-
mundur B. Daníelsson, f. 15.10.
1974), framhaldsskólanemi.
Albróðir Margrétar er Hafþór
Helgi Helgason, f. 4.9. 1979, tölv-
unarfræðingur, búsettur í Reykja-
vík. Hálfsystkini Margrétar eru
Finnur Þór Helgason, f. 14.7. 1989,
tölvunarfræðingur, búsettur í
Reykjavík, og Hulda Rós Helgadótt-
ir, f. 9.9. 1991, jarðeðlisfræðingur,
búsett í Reykjavík. Stjúpsystur
Margrétar eru Dagbjört Jónas-
dóttir, f. 5.6. 1974, launafulltrúi, bú-
sett í Reykjavík; Ingibjörg Högna
Jónasdóttir, f. 20.9. 1981, búsett á
Spáni.
Foreldrar Margrétar eru Sigríður
Margrét Hermannsdóttir, f. 8.1.
1950, félagsráðgjafi, í fyrstu búsett á
Selfossi og síðar í Reykjavík, núna
búsett í Kópavogi, og Helgi Bjarna-
son, f. 8.12. 1947, verkfræðingur hjá
Landsvirkjun, í fyrstu búsettur á
Selfossi, en síðan í Reykjavík. Þau
voru gift í 15 ár. Eiginmaður Sigríð-
ar er Jónas H. Jónasson, f. 16.10.
1951, húsasmiður og meðferðar-
fulltrúi. Eiginkona Helga er Svan-
hildur Edda Þórðardóttir, f. 23.2.
1956, íslenskufræðingur.
Margrét Valgerður
Helgadóttir
Páll Lýðsson
bóndi og hreppstjóri í Hlíð, frá Hlíð
Ragnhildur Einarsdóttir
húsfreyja í Hlíð í Gnúpverjahr.,
Árn., frá Hæli
Bjarni Pálsson
skólastjóri og byggingarfulltrúi á Selfossi
Margrét Helgadóttir
húsmóðir á Selfossi
Helgi Bjarnason
verkfræðingur í Reykjavík
Helgi Helgason
bóndi í Gautsdal, frá Garpsdal
í Gilsfirði, A-Barð.
Ingibjörg Guðmundsdóttir
vinnukona í Gautsdal í Geiradal, A-Barð., frá
Kveingrjóti í Saurbæ, Dal.
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja á Blesastöðum,
frá Vorsabæ
Guðmundur Magnússon
bóndi á Blesastöðum,
frá Votumýri
Hermann Guðmundsson
bóndi á Blesastöðum
Ingibjörg Jóhannsdóttir
ljósmóðir á Blesastöðum á Skeiðum, Árn.
Jóhann Benediktsson
bóndi á Minna-Grindli,
frá Neðra-Haganesi
Sigríður Jónsdóttir
húsfreyja á Minna-Grindli í Fljótum, Skag.
frá Höfn í Fljótum
Úr frændgarði Margrétar Valgerðar Helgadóttur
Sigríður Margrét Hermannsdóttir
félagsráðgjafi í Kópavogi
STOFNAÐ 1953
Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is
www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími 553 1380
Ertu með allt á
hreinu 2021?
„SEGÐU HONUM AÐ EF HANN FER EKKI
AÐ STANDA SIG BETUR Í SKÓLANUM
MUNUM VIÐ SELJA TRAMPÓLÍNIÐ.“
„ER PLÁSS Í FRYSTINUM HJÁ ÞÉR?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að nenna að liggja
saman í leti.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
STUNDUM GLEYMI
ÉG AÐ BORÐA
SAGÐI GRETTIR
ALDREI
REIKNINGINN, TAKK!
VIÐ ÞURFUM AÐ
RJÚKA!
ALVEG SJÁLFSAGT!
VILTU BOX UNDIR
LEIFARNAR?
NEI, TAKK! DÚKURINN DUGAR ALVEG!
EINKUNNA-SPJALD
Sigríður Hjálmarsdóttir kvað á
kjördag:
Vinstri öflin vægðarlaust
á vetur harðan kalla.
Kjósum frekar hægra haust
og hagvöxt fyrir alla.
Ingólfur Ómar gaukaði að mér
þessari haustvísu:
Fölva slær á fjallahring
fölna gróðurreitir.
Mosabreiður lauf og lyng
litadýrðin skreytir.
Og enn kveður Ingólfur Ómar:
„Nú er haustið gengið í garð og
þrestirnir gæða sér á rifsberjunum
og sumir fljúga í hringi“:
Falla lauf og fölnar reyr
flögra í hringi þrestir.
Vankaðir nú virðast þeir
vel af berjum hresstir.
Á Boðnarmiði yrkir Gylfi Þor-
kelsson og kallar „Haust“:
Léttu skýin skreyttu
skríða himin víðan
geyst með norðan gusti.
Glitra haustsins litir
gulir, rauðir gleðja
og grænir balar vænir.
Húmið senn að sveimar,
svæfir njóla bólin.
Á fimmtudag orti Gylfi:
Þetta veður þykir skítt,
þusa lægðir stríðar,
og nú er orðið næpuhvítt
niðr’ í miðjar hlíðar.
Eyjólfur Ó. Eyjólfsson skrifar:
„„Hvað er sannleikur“? spurði Píl-
atus fyrir langa löngu og á sú
spurning vel við á kjördegi sem og
aðra daga“:
Skoðir þú sjálfan þig sést
að sannleikur reynist þér best
en þó er hann háll
eins og hraðsyntur áll
og svo líkist hann lyginni mest.
Gunnar J. Straumland yrkir:
Lakkrís er ljúffengur biti
en ljóst er að neytandinn hlyti
áhrifin næm
því afleiðing slæm
er blóðþrýstingshækkun og hiti.
Þessi er talin vera síðasta vísa
Þórðar Magnússonar á Strjúgi:
Kær bið ég ráði Kristur því,
kóngurinn öllum meiri,
hvort ég lifi heimi í
hvítasunnur fleiri.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á kjördag og
það haustar að