Morgunblaðið - 28.09.2021, Síða 28

Morgunblaðið - 28.09.2021, Síða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 2021 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við vorum svo blessunarlega vel sett að við þurftum ekki að aflýsa neinum af okkar stóru verkefnum heldur færast þau milli ára. Eins og allir vita þá er meðgöngutími stórra óperusýninga mjög langur og því hefði orðið töluvert tjón ef þurft hefði að aflýsa verkefnum sem kom- in voru vel á leið. Þessi langi með- göngutími kallar á mikilvægi þess að geta gert langtímaplön,“ segir Stein- unn Birna Ragnarsdóttir óperu- stjóri Íslensku óperunnar (ÍÓ). Stærstu verkefni komandi starfs- árs hjá ÍÓ eru fjórar sýningar á óperunni La traviata, sem hætti fyrir fullu húsi á sínum tíma, í Eld- borg og Hofi í samstarfi við Menn- ingarfélag Akureyrar í nóvember og Valkyrjan í Eldborg í febrúar, sem sett er upp í samvinnu við Sinfóníu- hljómsveit Íslands á Listahátíð í Reykjavík. Sem fyrr syngur Herdís Anna Jónasdóttir hlutverk Violettu, en hún hlaut Grímuverðlaunin 2019 sem söngvari ársins fyrir túlkun sína á hlutverkinu. „Valkyrjan átti fyrst að fara á svið vorið 2020 þannig að það hefur þurft að fresta þeirri uppfærslu tvisvar vegna Covid,“ segir Steinunn Birna. Sem fyrr er leikstjóri Julia Burbach og Tal Rosner sér um vídeóhönnun og útlit. Eva Ollikainen er hljóm- sveitarstjóri. Iréne Theorin syngur Brünnhilde og Kristinn Sigmunds- son Hunding. „Vegna seinni frestun- arinnar fáum við aftur Ólaf Kjartan Sigurðarson með í uppfærsluna í hlutverki Wotan sem er mikið gleði- efni, enda er hann nú orðinn alþjóð- leg Wagner-stjarna eftir glæsilega frammistöðu sína á Wagner- hátíðinni í Bayreuth í Þýskalandi.“ Mikilvægt að gefa ungu listafólki sín fyrstu tækifæri Að sögn Steinunnar Birnu hófst starfsárið raunar fyrr í september með vinnustofu vegna nýrrar óperu eftir Daníel Bjarnason um Agnesi Magnúsdóttur, sem ÍÓ pantaði af tónskáldinu. „Hingað komu gríski leikstjórinn Rodula Gaitanou og líbrettistinn Royce Vavrek frá Kanada til þess að vinna að undir- búningi,“ segir Steinunn Birna og tekur fram að sköpunarferli óper- unnar hafi byrjað 2018, en stefnt sé að frumsýningu haustið 2024. „Ég er að vinna að því að finna alþjóðlega samstarfsaðila til að tryggja upp- færslunni framhaldslíf. Ég veit að það verður auðvelt að vekja áhuga kollega minna erlendis á óperunni því Daníel er orðinn stórt nafn í tónlistar- og óperuheiminum og Royce er einn eftirsóttasti líbrettisti okkar tíma.“ Líkt og í fyrra verður boðið upp á tvær tónleikaraðir hjá Íslensku óperunni í vetur. „Þetta eru annars vegar Kúnstpásan sem haldin er mánaðarlega í hádeginu í Norður- ljósum gestum að kostnaðarlausu og hefur göngu sína í október. Þar koma margir af okkar reyndustu söngvurum fram í bland við unga söngvara sem eru að kynna sig til leiks. Mér hefur alltaf fundist mikil- vægt að gefa ungu listafólki sín fyrstu tækifæri,“ segir Steinunn Birna og bendir á að síðan hún tók við sem óperustjóri hafi 19 söngv- arar debúterað hjá ÍÓ. „Síðan eru það Söngskemmtan- irnar sem við fórum af stað með í faraldrinum. Þar gleðja vel þekktir og reyndir söngvarar áheyrendur með fjölbreyttum verkum sem þeir kynna sjálfir,“ segir Steinunn Birna og tekur fram að Óperuminningin, sem hóf göngu sína í faraldrinum, haldi áfram í samstarfi við RÚV. „Enda mæltist verkefnið mjög vel fyrir. Þar deila þátttakendur úr ýmsum áttum minningum sínum og óperuupplifunum.“ Önnur verkefni eru Örlagaþræðir þar sem Auður Gunnarsdóttir sópran, Lára Stefánsdóttir dansari og Snorri Sigfús Birgisson píanó- leikari leiða saman krafta sína og flytja verk eftir Wagner og Schu- mann. „Hugmyndir um fræðslustarf vetrarins eru enn í mótun og verða vonandi að veruleika. Þröngur fjár- hagur stofnunarinnar undanfarin ár hefur tafið að hægt sé að sinna fræðslustarfinu eins og við vildum. Við eigum mjög fallega barnasýn- ingu um Hans og Grétu sem hæg- lega mætti stytta og einfalda með það að markmiði að leyfa nemendum að njóta,“ segir Steinunn Birna og rifjar upp að um 800 börn hafi séð sýninguna á sínum tíma. „Það er svo mikilvægt að ná eyrum og hjörtum barna meðan þau eru opin og hrífast af listforminu sem býr með þeim alla ævi,“ segir Steinunn Birna. Covid þjálfað úthaldshæfni Spurð hvernig ÍÓ komi undan Covid-tímanum segir Steinunn Birna að faraldurinn hafi sannarlega þjálfað úthaldshæfnina. „Það má segja að við höfum tímabundið misst hæfileikann til að vera undrandi eða vonsvikin. Veruleikinn okkar hefur verið í stöðugri endursköpun og for- sendur hafa tekið sífelldum breyt- ingum. Í svona ástandi skiptir öllu að hafa góð tengsl við tilganginn, bæði í starfinu og persónulega því þaðan tekur maður mesta styrkinn. Á síðustu mánuðum hefur reynt mest á heilbrigt raunsæi og hæfnina til að impróvísera,“ segir Steinunn Birna sem er þess fullviss að lista- heimurinn komi út úr faraldrinum með sameiginlega vitund um að mannauðurinn og líðan fólks skipti öllu. Ekki er hægt að sleppa Steinunni Birnu án þess að leita viðbragða hennar við skýrslu sem nefnd um stofnun þjóðaróperu skilaði af sér síðasta vor að beiðni mennta- og menningarmálaráðherra. Þar er lagt til að ráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á lögum um sviðslistir og lögfesti stofnun þjóðaróperu. Sér nefndin fyrir sér að stofnun þjóðar- óperu kalli á fastráðningar söngv- ara, hægt sé að auka samstarfið við aðrar listastofnanir hérlendis og að frumsköpun íslenskra verka verði listrænt akkeri þjóðaróperu. Kallar á aukið fjármagn „Augljóslega finnst mér liggja beint við að ef til stofnunar þjóðar- óperu kemur yrði það gert á grunni Íslensku óperunnar þar sem allt er til staðar sem til þarf. Íslenska óper- an hefur þjónað íslensku þjóðinni af metnaði og stórhug síðustu 40 árin, oft af litlum efnum. Það hafa margir byggt upp mikilvægt starf til að þjóðin geti notið vandaðra óperu- sýninga á heimavelli. Það má því segja að stofnunin hafi, vegna reynslunnar og þessarar sögu, áunnið sér titilinn þjóðarópera Íslendinga. Þjóðarópera verður ekki til nema hún sé byggð á traustum grunni, eins og Íslenska óperan hef- ur upp á að bjóða með sitt alþjóðlega tengslanet, eignasafn, þekkingar- skráningu og orðspor sem tekur langan tíma að byggja upp. Það eru ómetanleg menningarverðmæti,“ segir Steinunn Birna og tekur fram að hvernig sem þessu verði háttað þurfi að skapa Íslensku óperunni rekstraröryggi þangað til svo hægt sé að standa við skuldbindingar. „Hvernig svo sem rekstrarformið á þjóðaróperu verður, ríkisópera eða sjálfseignarstofnun, þá er ekki hægt að framkvæma hugmyndir um þjóðaróperu nema fyrir miklu meira fjármagn en nú er sett í þessa starf- semi,“ segir Steinunn Birna. Í skýrslunni kemur fram að sam- kvæmt þjónustusamningi eru fram- lög ríkisins til Íslensku óperunnar nú um 220 milljónir króna á árs- grundvelli, en til samanburðar nema framlög ríkisins til reksturs Þjóð- leikhússins um 1.500 milljónum króna á ársgrundvelli. Spurð um gagnrýni skýrsluhöf- unda þess efnis að ÍÓ sinni íslensk- um verkum ekki nægilega vel segist Steinunn Birna ekki vera sammála því. „Við getum ekki verið allt fyrir alla. Í samningi við ráðuneytið kveð- ur á um tvær stórar óperusýningar á ári og það er í samhljómi við stefnu- mótun okkar ásamt fjölmörgum þátttakendum og skoðanakannanir meðal okkar gesta sem eru mörg þúsund á hverju ári. Í flestum lönd- um er starfandi ópera sem þjónar stórum áhorfendahópi sem vill sjá vel þekktar óperur, en við höfum einnig átt frumkvæði að því að panta ný verk,“ segir Steinunn Birna og nefnir í því samhengi Agnesi og Brothers, sem ÍÓ framleiddi ásamt Den Jyske opera, ásamt óperu eftir Báru Gísladóttur. „Sem við pönt- uðum, en gafst því miður ekki tæki- færi til að sýna vegna Covid. Samræmi þarf að vera í kröfum og möguleikum til útfærslu Í nágrannalöndum okkar er alltaf sjálfstæð óperusena til viðbótar við óperuhúsin, eins og í leikhúsunum, þ.e. grasrót, sjálfstæðir óperuhópar og óperuhátíðir þar sem ný verk, oft á tilraunastigi, eru sýnd sem eiga þátt í því að þróa listformið áfram. Mér finnst ekki raunhæft að gera þær kröfur til Íslensku óperunnar að sjá um allar þessar breiðu þarfir listformsins. Það þarf að vera sam- ræmi milli þess sem krafist er af stofnun og möguleikanna til að upp- fylla þær kröfur, en þær afmarkast af því fjármagni sem fylgja verk- efnum. Ef gerðar hefðu verið kröfur um að við sýndum aðallega íslenskar óperur hefðum við þurft talsvert meira fjármagn því eðli málsins samkvæmt er áhorfendahópurinn minni og niðurgreiðsla hvers miða því meiri,“ segir Steinunn Birna og bendir á að um 20% af rekstrarfé ÍÓ sé í formi sjálfsaflafjár frá miðasölu. „Ég vildi óska þess að við gætum sett upp fleiri sýningar og eflt fræðslustarfið, og vil í því sambandi kalla eftir auknu fjármagni til þess. Ég tel að stjórnvöld verði samtímis að styrkja grasrótina og sjálfstæða hópa, sem eru að gera frábæra hluti, og einnig Íslensku óperuna sem setur upp stórar óperusýningar og pantar jafnframt reglulega ný óperuverk af íslenskum tón- skáldum,“ segir Steinunn Birna. Óvissan slæm fyrir alla Í skýrslunni kemur fram að óvissa hafi ríkt um samningsstöðu Íslensku óperunnar allt frá því áform um ný sviðslistalög voru kynnt í samráðs- gátt stjórnvalda í september 2018. „Óvissa fyrir Íslensku óperuna er líka óvissa fyrir allt það fjölmarga listafólk sem hjá henni starfar og þar með áhorfendur. Það eru sam- eiginlegir hagsmunir allra að málið sé til lykta leitt. Niðurstaðan þarf að vera skýr, þótt allir verði sennilega ekki jafnsáttir við hana, svo hægt sé að halda fram með framtíðina. Í því samhengi er lykilatriði að faglega og málefnalega sé að allri umræðu og ákvörðunartöku staðið, enda þurfa allar ákvarðanir að vera vel ígrund- aðar. Það er mjög mikilvægt þegar svona stórar ákvarðanir eru teknar að það sé gert með farsælum hætti þannig að það haldist samfella í starfinu, tengslunum og orðsporinu. Annað væri óskynsamlegt. Við lýsum okkur reiðubúin til slíkrar samvinnu og samtals. Ósk mín er að óperustarfsemin fái þann stað í okkar menningarlífi sem hún verðskuldar og það öryggi sem hún er í raun búin að vinna sér inn rétt- inn til þess að hafa. Auðvitað tel ég að Íslenska óperan ætti að verða grunnurinn að þjóðaróperunni okk- ar ef af verður hvert sem rekstrar- formið verður. Öryggið er þar mikil- vægast, þar sem hlutverk þjóðar- óperu er skýrt og því fylgi fjármagn í samræmi við faglega kostnaðar- greiningu og væntingar.“ Ljósmynd/Valli Öryggi „Ósk mín er að óperustarfsemin fái þann stað í okkar menningarlífi sem hún verðskuldar og það öryggi sem hún er í raun búin að vinna sér inn réttinn til þess að hafa,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir óperustjóri. „Ómetanleg menningarverðmæti“ - „Augljóslega finnst mér liggja beint við að ef til stofnunar þjóðaróperu kemur yrði það gert á grunni Íslensku óperunnar þar sem allt er til staðar sem til þarf,“ segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.