Morgunblaðið - 28.09.2021, Side 32
STÓLATILBOÐ
25
með
setu
erð
vsk.
20
óll
erð
vsk.
05
ðri setu
verð
. vsk.
Malika1
Staflast
Tilboðsv
14.648 m.
Malika1
Með bólstra
Tilboðs
18.907 m
Malika1
Staflastóll
bólstraðri
Tilboðsv
20.269 m.
Malika100
Tilboðsverð
13.664 m. vsk.
Hádegistónleikar verða haldnir í Hafnarfjarðarkirkju í
dag, þriðjudag, kl. 12 til 12.30. Á þeim leikur Guðný Ein-
arsdóttir, organisti Háteigskirkju, verk eftir konur á
bæði orgel kirkjunnar. Tónskáldin eru þær Nadia Bou-
langer, Guðný Einarsdóttir og Elisabeth de la Guerr en
eins og sjá má er organistinn eitt tónskáldanna.
Aðgangur er ókeypis.
Guðný leikur verk eftir konur á
bæði orgel Hafnarfjarðarkirkju
ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 271. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Silfurlið Breiðabliks fékk flest M í einkunnagjöf Morg-
unblaðsins í úrvalsdeild karla í knattspyrnu á nýliðnu
keppnistímabili. Blikar fengu samtals 126 M í 22 leikj-
um, eða 5,72 M að meðaltali í leik, en Víkingar, sem
fögnuðu sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í þrjátíu ár á
laugardaginn, fengu 121 M, eða 5,5 að meðaltali í leik.
KR-ingar, sem enduðu í þriðja sæti, voru ekki langt
undan með 117 M. Botnlið Fylkis fékk fæst M, samtals
76, eða 3,45 að meðaltali í leik. ÍA var með næstfæst M,
81, og síðan kom HK með 84 M samtals. »26-27
Silfurlið Breiðabliks fékk flest M
í einkunnagjöf Morgunblaðisins
ÍÞRÓTTIR MENNING
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Hann hefur elt mig eins og skuggi
hér innanhúss frá því að hann kom
heim. Hann hangir í fanginu á mér,
enda er hann félagsdýr þótt hann
fari sínar eigin leiðir,“ segir Laufey
Vilhjálmsdóttir, eigandi kattarins
Hnúts, sem skilaði sér óvænt heim
nú í haust eftir rúmlega þriggja mán-
aða fjarveru. „Þetta er langlengsta
útilegan hans og ég var farin að jarða
hann í huganum. Ég hef eytt ómæld-
um tíma í að leita að honum,“ segir
Laufey og bætir við að þetta sé ekki í
fyrsta sinn sem hinn ellefu ára Hnút-
ur lætur sig hverfa.
„Við fengum hann ársgamlan og
þá bjuggum við á Völlunum í Hafnar-
firði. Við fluttum svo til útlanda og
Hnútur varð eftir hjá dóttur okkar
sem bjó í Áslandinu. Hann strauk
alltaf frá henni á gamla heimilið á
Völlunum, svo við tókum hann á end-
anum með okkur út til Bretlands þar
sem hann var rólegur í sólbaði úti í
garði í eitt og hálft ár. Þegar við
fluttum heim þurftum við að skilja
hann eftir úti í heilan mánuð á katta-
hóteli. Heimflutningi fylgdi dýra-
læknakostnaður og við þurftum að
borga undir hann flugfar og ferjufar.
Sumir segja að Hnútur sé fyrir vikið
dýrasti köttur á Íslandi.“ Eftir að
fjölskyldan flutti heim var Hnútur
hinn rólegasti og heimakær.
„Svo tók hann upp á því eitt sum-
arið að láta sig hverfa í nokkra daga.
Við settum á hann staðsetningartæki
og komumst að því að hann fór yfir í
skóg sem er hér þó nokkuð frá heim-
ili okkar. Þar var hann að þvælast í
einhverja daga í senn, en kom svo
alltaf til baka aftur. Fyrir tveimur
árum gleymdum við að setja á hann
tækið og þá hvarf hann í sex vikur.
Við héldum að við sæjum hann ekki
meir, en svo skilaði hann sér einn
daginn, tággrannur eftir útileguna.
Sumarið á eftir passaði ég að setja á
hann staðsetningartækið og sá að
hann var ekki aðeins að þvælast í
skóginum heldur líka lengst uppi á
heiði. Ég fór í fyrra á vikufresti til
hans í skóginn og skipti um rafhlöðu
í GPS-tækinu hjá honum. Þá sá ég að
hann hafði gert sér huggulegt mosa-
bæli í birkirjóðri.“ Hnútur kemur af-
ar grannur heim eftir útilegurnar en
yfir veturinn nær hann aftur á sig
holdum. „Í vor sá ég á honum þegar
útþráin til skógarins togaði í hann,
enda hvarf hann einn daginn og skil-
aði sér ekki heim fyrr en í haust. Ég
náði ekki að setja GPS-tækið á hann
áður en hann fór svo ég vissi ekkert
um hann,“ segir Laufey og bætir við
að Hnútur hafi verið inniköttur þar
sem hann bjó fyrsta árið sitt. „Nú á
efri árum hefur hann breyst í sí-
gauna og fer í árvissa orlofið sitt. Við
erum búin að flytja svo oft að það er
kannski ekki að undra að kötturinn
smitist af flökkueðlinu. “
Morgunblaðið/Ásdís
Laufey og Hnútur „Hann er vænn og gæfur köttur sem svarar nafninu sínu,“ segir Laufey, alsæl með vin sinn.
Sígauninn Hnútur
leggst út yfir sumarið
- Töldu hann af en nú er hann heimtur úr helju