Morgunblaðið - 29.09.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 29.09.2021, Síða 4
Vilborg Dagbjartsdóttir, skáldkona og kennari, var borin til grafar frá Hallgrímskirkju í gær. Séra Sigfinnur Þorleifsson jarðsöng. Þorleifur Hauksson, Guðrún Hannesdóttir, Elísabet Gunn- arsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir fóru með minn- ingarorð. Arnar Jónsson las úr ljóðum Vilborgar. Kistuna báru (frá vinstri) Bergur Þorgeirsson, Árni Hjartarson, Skúli Skúlason, Gunnar Örn Guð- mundsson, Vilborg Egilsdóttir, Víglundur Gunn- arsson, Sunna Rún Pétursdóttir og Edda Þorgeirs- dóttir. Vilborg fæddist á Vestdalseyri við Seyðisfjörð 18. júlí 1930 og lést á líknardeild Landspítala 16. sept- ember. Vilborg Dagbjartsdóttir jarðsungin Morgunblaðið/Unnur Karen 4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Stefnt er að því að landskjörstjórn komi saman í næstu viku og úthluti þingsætum í samræmi við úrslit al- þingiskosninganna á laugardaginn. Landskjörstjórn ákvað á fundi sínum í gær að fundurinn verði haldinn næstkomandi þriðjudag, 5. október. Á þessum úthlutunarfundi mun liggja formlega fyrir að við næstu al- þingiskosningar muni eitt þingsæti færast frá Norðvesturkjördæmi yfir í Suðvesturkjördæmi, í samræmi við íbúaþróun. Þingsætin verða sjö í norðvestri og fjórtán í suðvestri. Í 9. grein kosningalaganna er svo fyrir um mælt að eftir hverjar alþing- iskosningar skuli landskjörstjórn reikna út hvort kjósendur á kjörskrá að baki hverju þingsæti, að meðtöld- um jöfnunarsætum skv. 2. mgr. 8. gr., séu helmingi færri í einu kjördæmi en kjósendur að baki hverju þingsæti í einhverju öðru kjördæmi, miðað við kjörskrá í nýafstöðnum kosningum, sbr. 5. mgr. 31. gr. stjórnarskrárinn- ar. Ef svo er skal landskjörstjórn breyta fjölda kjördæmissæta í kjör- dæmum þannig að dregið verði úr þessum mun. Sú breyting má þó aldr- ei verða meiri en þörf krefur hverju sinni til þess að fullnægja fyrirmæl- um þessa stjórnarskrárákvæðis. Þessi tilfærsla hefur legið í loftinu frá síðustu kosningum 2017, en litlu munaði að breyting yrði eftir þær kosningar. Þá reiknaðist misvægið 1,99, eða rétt undir tveimur, og því varð engin breyting. En nú hefur orðið slík fjölgun íbúa í Suðvesturkjördæmi að misvægi er orðið yfir leyfilegum mörkum og breytingin gengur því í gegn. Landskjörstjórn auglýsir breyt- inguna í Stjórnartíðindum jafnskjótt og hún hefur verið gerð og tekur hún gildi við næstu alþingiskosningar héð- an í frá. Rifja má upp að eftir kosningarnar 25. apríl 2009 kom í ljós að misvægi atkvæða milli þessara sömu kjör- dæma hafði aukist svo að nauðsynlegt reyndist að flytja tvö þingsæti milli þeirra og kom breytingin til fram- kvæmda við kosningarnar 2013. Þingsæti færist milli kjördæma - Misvægi milli suðvesturs og norð- vesturs er komið yfir leyfileg mörk Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kópavogur Íbúum hefur fjölgað mjög í þeim sveitarfélögum sem teljast til Suðvesturkjördæmis. Því fær kjördæmið eitt þingæsti til viðbótar næst. GOLFMÓT ÚÚ ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS 04. - 09. OKTÓBER 04. - 12. OKTÓBER 04. - 16. OKTÓBER OKTÓBERFEST Á EL PLANTIO 10.000 KR.AFSLÁTTUR Á MANN EF BÓKAÐER FYRIR 30. SEPTEMBER.* GILDIR Á ALLAR GOLFFERÐIR TILALICANTE GOLF EÐA ELPLANTIOSEPTEMBER - OKTÓBER Kíktu með okkur á El Plantio Golf Resort á Spáni í október. Í þessari skemmtilegu ferð verða tveir skemmtanastjórar, þeir Magnús Margeirs og Einar Viðar Gunnlaugsson. Golfmót ÚÚ verður haldið á meðan á ferðinni stendur og verður fjöldi glæsilegra vinninga í boði. El Plantio er vinsælasti golfstaður okkar á Spáni. Þessi skemmtilegi staður er steinsnar frá Alicanteborg og því tilvalið fyrir þá sem vilja spila golf og njóta menningarinnar í Alicante. Golfvöllurinn við hótelið er 18 holu völlur sem hentar fyrir alla kylfinga. INNIFALIÐ 8 NÆTUR Á EL PLANTIO GOLF RESORT 4* MORGUNVERÐUR EÐA HÁLFT FÆÐI ÓTAKMARKAÐ GOLF ÞÁTTTAKA Í GOLFMÓTI ÚÚ GLÆSILEGIR VINNINGAR AFNOT AF GOLFBÍL ÍSLENSK FARASTJÓRN AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI ÍSLENSK FARARSTJÓRN BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR FLUTNINGUR Á GOLFSETTI Golfstjóri Einar Viðar Gunnlaugsson Fararstjóri Magnús Margeirsson NÝTTVINSÆL FERÐ! Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Strikamerki eru skönnuð með síman- um í gegnum snjallforrit Krónunnar og varan svo sett beint ofan í poka eða innkaupakörfuna. Fyrir búð- arferð er mögulegt að setja upp staf- rænan innkaupalista, það er þegar komið er í búðina er gengið að öllu vísu. Þegar kemur að afgreiðslu í lok búðarferðar sést í símanum sam- antekt á innkaupunum og hvað greiða skuli. Áður en smáforritið er tekið í notkun hefur viðskiptavinurinn ein- kennt sig með rafrænum skilríkjum og upplýsingum um greiðslukort – og þannig smellur allt í gegn. „Þetta er algjörlega ný upplifun fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted framkvæmda- stjóri Krónunnar. Hún kynnti þessa nýju verslunarhætti ásamt starfsfólki í verslun fyrirtækisins í Lindum í Kópvogi í gær. Lausnin sem Krónan býður nú er kölluð Skannað og skundað. Viðskiptavinir hlaða snjall- forritinu Snjallverslun Krónunar í símann og skanna inn strikamerki varanna í gegnum myndavél símans. Ítarlegar upplýsingar má finna um hverja vöru sem skönnuð er inn, ásamt mynd. Hvernig kaupin gerast nú í Krón- unni er fjórða tæknibyltingin í hnot- skurn. Í Lindum bjóðast nú um það bil 8.000 vörunúmer sem öll má nálg- ast í snjallforritinu. Forritið er hið sama og býður viðskiptavinum Krón- unnar að fá vörur sendar heim eða sækja samanteknar í verslun. „Flestir ættu að geta tileinkað sér þessa tækni mjög fljótt. Við hefjum vegferðina hér í Lindum. Höldum svo áfram næsta árið, en alls eru verslanir okkar 24 talsins. Við byrjuðum í mars sl. að útbúa þann möguleika að við- skiptavinir gætu skannað vöruna og afgreitt sig þannig sjálfir. Að kannski 10% viðskiptavina séu farnir að nýta sér þessa þjónustu eftir eitt ár væri af- ar ánægjulegt. Annars segir reynslan okkur að í þessum efnum gerast hlut- irnir oft miklu hraðar en spáð hefur verið,“ segir Ásta Sigríður og áfram: Flýtir afgreiðslu „Viðskiptaþróunardeild okkar í Krónunni er öflug og starfsfólk okkar höfundar að þessari tæknilausn en við höfum líka átt í samstarfi við Reon um þróun. Auðvitað bjóðum við áfram hefðbundnari lausnir í af- greiðslu verslana okkar. Snjall- viðskipti eins og Krónan er komin með nú eru þó komin til að vera, ættu að flýta afgreiðslu og bæta verðvit- und.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Krónan Ásta Sigríður Fjeldsted og Hörður Már Jónsson skönnuðu vörur og kynntu nýmælið í verslun fyrirtækisins í Lindum í Kópavogi í gærdag. Sjálfsafgreiðslan er snjöll framtíð - Hefja afgreiðslu í síma í Krónunni Fjórir nýir leikskólar opna á næstu sex mánuðum og er áætlað að leikskól- arnir geti tekið á móti samtals 340 börnum, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að leikskólarnir fjórir verði í færanlegu hús- næði, svokölluðum „ævintýraborgum“, og verði við Eggertsgötu, Naut- hólsveg, Barónsstíg og í Vogabyggð. „Opnun nýrra leikskóla er liður í aðgerðaáætluninni „Brúum bilið“ sem hefur að markmiði að fjölga leikskólarýmum í Reykjavík svo bjóða megi börnum leikskólapláss þegar 12 mánaða fæðingarorlofi sleppir,“ segir í til- kynningunni. Þegar „Brúum bilið“ var fyrst samþykkt fyrir tveimur árum var gert ráð fyrir að leikskólarýmum fjölgaði um 700-750 fyrir lok árs 2023. Í tilkynn- ingunni segir að leikskólarýmum muni fjölga meira, til þess meðal annars að mæta fólksfjölgun og „vaxandi þörf“. 340 pláss í fjórum nýjum leikskólum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.