Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 28
þú Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr og félagar flytja Gran Par- títu, stóru blásaraserenöðuna eftir Mozart, í kvöld í til- efni af 10 ára afmæli Hörpu. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósasal Hörpu kl. 20. Gran Partíta er af mörgum talin krúnudjásn hinnar klassísku blásarahefðar á 18. öld sem gjarnan er nefnd „Harmonie-musik“. Seren- aðan er í sjö þáttum og var henni síðar gefinn undirtit- illinn Gran Partíta vegna óvenjulegrar stærðar og glæsileika. Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr er skipaður tveimur óbóum, tveimur klarínettum, tveimur hornum og tveimur fagottum. Hnúkaþeyr flytur Gran Partítu MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 272. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Arnar Pétursson hefur gert nýjan þriggja ára samning við HSÍ um áframhaldandi þjálfun kvennalandsliðsins í handknattleik. Hann segir hreyfinguna þurfa að horfast í augu við þá stöðu að íslenska liðið sé eins og sakir standa töluvert á eftir tuttugu bestu landsliðunum. Með því sé hægt að bregðast við vandanum og sækja fram. Í viðtali við Morgunblaðið í dag segist Arnar vilja sjá liðið taka stórstígum framförum á næstu árum. Smám saman gæti verið hægt að koma liðinu aftur í þá stöðu að komast inn á stórmót. »23 Vill sjá kvennalandsliðið taka stór- stígum framförum á næstu árum ÍÞRÓTTIR MENNING fell og Mosfell.“ Ólafur fer á Úlfars- fellið hvernig sem viðrar. „Ég klæði mig eftir veðri og er með mann- brodda. Ég fer þótt það sé ís og snjór, ég hef vaðið snjó upp í mitti á leið upp á fjallið. Það þarf rosalega mikið til að ég fari ekki.“ Ólafur segir göng- urnar skipta öllu máli fyrir andlegu hliðina. „Ég er alltaf að koma því á framfæri við fólk sem á erfitt með að koma sér af stað. Þetta snýst um að gefast ekki upp. Við getum allt ef við ætlum okkur það. Ég er sönnun þess að allt er hægt, frá því að vera fatl- aður og gersamlega ónýtur, upp í það að vera í fjallgöngum alla daga. Ég tekst glaður og ánægður á við lífið,“ segir Ólafur og tekur fram að hverj- um sem er sé velkomið að fara með honum á Úlfarsfell. „Ég geng hægt á mínum hraða. Ég er fatlaður og það geta þetta allir, gamlir og ungir. Trúðu mér, það er allt hægt ef fólk er til í að leggja eitthvað á sig, stundum er þetta auðvitað erfitt, þarf að taka aðeins á til að fara út og koma sér af stað, en ekki gefast upp. Fólki er guðvelkomið að hafa samband, hvort sem það er fatlað eða ekki, fer hratt eða hægt, ég er til í að fara með þeim alla leið upp, styðja fólk og hvetja.“ Sími Ólafs er: 773-4021. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Þessar fjallgöngur hafa gjörsam- lega bjargað mínu lífi,“ segir Ólafur Árnason, fyrrverandi sjómaður og grafískur hönnuður, sem hefur geng- ið 3.488 sinnum upp á Úlfarsfell, en hann hefur þrisvar fengið heilablóð- fall á undanförnum tíu árum. „Fyrir átta árum var ég nánast ósjálfbjarga og rúmliggjandi og við það að bugast andlega. Ég lamaðist að hluta, vinstri hliðin á mér var ónýt og ég gat ekki gengið nema með hækjum. Stutt var í uppgjöf og lítið eftir af lífsvilja, en þá tók ég ákvörð- un um að snúa við blaðinu. Ég ákvað að labba upp á Úlfarsfell, án þess að geta það, því ég var alveg hand- ónýtur og orðinn fatlaður, sem ég er reyndar enn. Ég fékk vin minn með mér og það tók okkur fjóra klukku- tíma að berjast upp í þetta fyrsta sinn. Ég er ekki þannig persóna að ég gefist upp eða hætti því sem ég er byrjaður á. Ástandið á mér í þessari fyrstu ferð var þannig að ég þurfti að setjast niður á tíu metra fresti, ná andanum og safna krafti fyrir næstu tíu eða tuttugu metra. Þetta var tekið í stuttum áföngum,“ segir Ólafur og bætir við að hann gleymi aldrei til- finningunni sem fylgdi því að ná upp á toppinn. „Það var stórkostleg upplifun og mikill sigur. Ég hékk á skilti sem er þarna uppi, rétti stelpu símann minn og bað hana að taka mynd,“ segir Ólafur og hlær. „Allar götur síðan hef ég farið nánast daglega upp á Úlfars- fell, en reyndar fótbraut ég mig í sumar og þurfti að vera frá í tvo mán- uði á spítala.“ Hann segir breytinguna á líkam- legu og andlegu ástandi sínu gríð- arlega, frá fyrsta skiptinu sem hann gekk á fjallið og þar til núna. „Ég fer þetta núna án þess að finna fyrir því, það eykst varla hjart- slátturinn. Úthaldið er ofboðslega gott en var ekkert fyrir átta árum. Ég er líka búinn að ganga á öll fjöll hér í nágrenninu; Móskarðshnjúka, Esjuna, Vífilfellið, Skálafell, Helga- Þetta snýst um að gefast ekki upp - Ólafur hefur gengið 3.488 sinnum upp á Úlfarsfell Göngugarpur Ólafur í hlíðum Úlfarsfells, en hann hefur þrisvar fengið heilablóðfall á undanförnum tíu árum. „Ég er alltaf með sólgleraugu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.