Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.09.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2021 Ilmur er ný litalína Slippfélagsins hönnuð í samstarfi við Sæju innanhúshönnuð. Línan er innblásin af jarðlitum, dempaðir tónar með gulum og rauðum undirtónum. Opið: 8-18 virka daga 10-14 laugardaga slippfelagid.is slippfelagid.is/ilmur Hör Leir Truffla Börkur Myrra Krydd Lyng Kandís Lakkrís Innblástur og nýir litir á slippfelagid.is Kjarninn, vefsíða sem lengi hefur virst leynilega trúlofuð „RÚV“ í margvíslegu bralli, segir: - - - Þrátt fyrir að Sósíalistaflokk- urinn hafi ekki náð mönnum inn á þing í alþingiskosn- ingum laugardags- ins mun flokkurinn fá framlög úr rík- issjóði næstu fjögur ár, líklega um 30 milljónir króna á ári eða um 120 milljónir á kjör- tímabilinu, í sam- ræmi við fylgið sem flokkurinn fékk í kosning- unum, 4,1 prósent. - - - Þetta fé ætlar flokkurinn meðal annars að nota til þess að fjármagna róttækan fjölmiðil, samkvæmt því sem Gunnar Smári Egilsson formaður framkvæmda- stjórnar flokksins sagði í viðtali á Bítinu á Bylgjunni í morgun. - - - Slíkur miðill er þegar til og Gunnar Smári verið í for- grunni hjá Samstöðinni, sem er „samfélags-sjónvarp og vett- vangur fyrir róttæka samfélags- umræðu og raddir þeirra sem ekki fá rúm í umfjöllun meg- instraumsmiðla,“ eins og segir á vef stöðvarinnar. - - - Við ætlum að byggja upp fjöl- miðla til að styrkja rödd hinna fátæku og kúguðu,“ sagði Gunnar Smári í viðtalinu.“ Gæti ekki farið vel á því að hin- ir fátæku og kúguðu byrjuðu á því að borga til baka milljónatug- ina sem þeir hlupu frá síðast þeg- ar Fréttatíminn þeirra fór á haus- inn? Gunnar Smári Egilsson Skattgreiðendum snýtt STAKSTEINAR Þórður Snær Júlíusson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Kórónuveiran heldur áfram að malla í samfélaginu. Í gær var tilkynnt að 32 smit hefðu greinst deginum áður, þar af 18 utan sóttkvíar. Áberandi mörg sýni voru tekin, samanborið við síðustu daga, en fjöldi sýna sl. þriðjudag var sá mesti síðan 6. september síðastliðinn. Níu lágu í gær á sjúkrahúsi vegna Co- vid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Fimm smit greindust við landa- mærin. Fjögur þeirra töldust virk en í einu tilviki var mótefnamælingar beðið. Fjórtán daga nýgengi innan- lands á hverja 100.000 íbúa stendur nú í 115,1. Nýgengið á landamær- unum er nú 6,5. Alls voru 855 manns í sóttkví í gær, 355 í einangrun og 507 í skimunarsóttkví. Heilbrigðisráðuneytið greindi frá því í gær að frá og með 1. október falli niður krafa um að einstaklingar með tengsl við Ísland þurfi að fram- vísa neikvæðu kórónuveiruprófi við komu til landsins. Sem fyrr þurfi þeir þó að fara í sýnatöku eftir komu til landsins, að undanskildum börnum sem fædd eru 2005 og síðar. Tekið er fram í til- kynningunni að heilbrigðisráðherra hafi ákveðið þetta í samræmi við til- lögur sóttvarnalæknis. Gert sé ráð fyrir að reglurnar gildi til 6. nóvem- ber næstkomandi. Veirupróf við landamærin fellt niður - Alls 32 kórónuveirusmit greindust á þriðjudag - Níu lágu á sjúkrahúsi í gær Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leifsstöð Breytingar verða á kröf- um um veirupróf frá 1. október. Bjarg íbúðafélag afhenti í gær fimm- hundruðustu íbúð félagsins við há- tíðlega athöfn. Bjarg er leigufélag að danskri fyrirmynd sem stofnað var árið 2016 af ASÍ og BSRB og hefur það markmið að tryggja öruggt hús- næði á viðráðanlegu verði. Félagið var byggt upp frá grunni og sumarið 2019 var fyrsta íbúð Bjargs afhent. Nú tveimur árum síðar er félagið að afhenda til leigu 500. íbúð félags- ins sem er í Gæfutjörn í Úlfarsárdal. Lykla að íbúðinni fékk Hjördís Björk Þrastardóttir úr hendi Björns Traustasonar, framkvæmdastjóra Bjargs. Viðstödd afhendinguna voru Sonja Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri. Haft er eftir Birni í fréttatilkynn- ingu að Bjarg hafi lækkað leiguverð í kjölfar endurfjármögnunar sl. sum- ar. Þannig sé dæmigerð leiga fyrir þriggja herbergja íbúð á höfuðborg- arsvæðinu um 155 þúsund krónur. Í Þorlákshöfn sé sambærileg íbúð leigð á um 125 þúsund krónur. Björn segir eftirspurn eftir íbúðum félags- ins mikla og stefnt sé að áframhald- andi uppbyggingu til að ná betra jafnvægi í framboðinu. Til að svo megi verða telur Björn að þörf sé áfram á stuðningi við almenna íbúða- kerfið, ásamt stöðugu lóðaframboði. Íbúðir Bjargs í leigu, í byggingu eða á hönnunarstigi eru í Grafarvogi, Kirkjusandi, Árbæ, Vogahverfi, Úlf- arsárdal, Bryggjuhverfi, Selási, Skerjafirði, Breiðholti og Háaleit- isbraut í Reykjavík. Þá er félagið einnig með íbúðir í Hamranesi í Hafnarfirði, Urriðaholti í Garðabæ, á Akureyri, Selfossi, Akranesi, Þor- lákshöfn, Hveragerði, Grindavík og Suðurnesjabæ. 500 íbúðir Bjargs á tveimur árum - Sú 500. var afhent í Gæfutjörn í Úlfarsárdal í gær Afhending Björn Traustason frá Bjargi afhendir Hjördísi Björk Þrastardóttur lykla að íbúðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.