Morgunblaðið - 13.10.2021, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021
Við Reykjavíkurtjörn Baráttan um vort daglegt brauð getur verið hörð hjá öndum og álftum við Reykjavíkurtjörn, að ekki sé talað um máfana sem sæta færis þegar álftirnar sjá ekki til.
Unnur Karen
Þegar þetta er
skrifað liggur ekki
fyrir hvort ríkis-
stjórnin sem tók við
völdum árið 2017 end-
urnýi samstarfið. Lík-
urnar fyrir því eru
góðar en í stjórnmál-
um ekki á vísan að
róa fyrr en allt er
frágengið.
Í liðinni viku
fjallaði ég hér á þessum stað um
nokkur mikilvæg mál sem stjórn-
arflokkarnir þrír verða að ná sam-
stöðu um áður en lagt er að nýju
af stað í fjögurra ára leiðangur.
Sum þeirra eru erfið. En það er
að minnsta kosti eitt sem ekki má
gleymast og ætti ekki að vera erf-
itt fyrir flokkana þrjá að ná saman
um: Að styrkja stöðu sjálfstæðra
fjölmiðla. Ekki með beinum rík-
isstyrkjum, líkt og formaður
Blaðamannafélagsins telur eðli-
legt, heldur með því að jafna leik-
inn í ójafnri samkeppni við Ríkis-
útvarpið.
Sýn formanns Blaðamanna-
félagsins á framtíð félagsmanna
sinna er fremur dapurleg. Í viðtali
við Ríkisútvarpið [Svona er þetta,
á Rás 1] í byrjun september síð-
astliðins taldi hann að „stjórn-
málaflokkar geri sér grein fyrir
því að þetta er í rauninni bara
spurning um það
hvort þú viljir fjöl-
miðla sem eru ríkis-
styrktir eða enga fjöl-
miðla“. Formaðurinn
hélt því fram að ræða
þyrfti „af meiri alvöru
hversu miklu fjár-
magni ríkið verji til
styrktar íslenskum
fjölmiðlum“ því þetta
væri „ekki lengur
spurning um hvort,
heldur hve mikið“.
Tryggð við Ríkisútvarpið
Fullyrðing formanns Blaða-
mannafélagsins um að það sé orð-
inn samhljómur eða sameiginlegur
skilningur á því hjá stjórnmála-
flokkum að valið standi milli þess
að setja sjálfstæða fjölmiðla í súr-
efnisvélar ríkisins eða hafa enga
fjölmiðla er röng. En litast líklega
af tryggð við Ríkisútvarpið og
þeirri trú að ríkisrekstur fjölmiðla
sé lífsnauðsynlegur í samfélagi 21.
aldarinnar. Formaðurinn á hins
vegar marga skoðanabræður og
-systur innan þings og utan. Ríkis-
útvarpið hefur notið þess að faðm-
ur flestra stjórnmálamanna er
mjúkur og hlýr. Í hugum þeirra á
allt umhverfi frjálsra fjölmiðla að
mótast af hagsmunum ríkisrekna
fjölmiðlafyrirtækisins. Ríkis-
styrkir til sjálfstæðra fjölmiðla
eru því ekki annað en fórn-
arkostnaður vegna Ríkisútvarps-
ins, – skjólveggur um Efstaleiti
gegn vindum breytinga og
framþróunar.
Í júní 2018 skrifaði ég einu sinni
sem oftar um fjölmiðla hér á þess-
um stað:
„Fátt er hættulegra fyrir frjálsa
fjölmiðlun en að vera háð opinber-
um styrkjum og nefndum á vegum
hins opinbera sem skammta úr
hnefa fjármuni til að standa undir
einstökum þáttum í rekstrinum.
Fjölmiðlun sem er háð hinu op-
inbera með beinum hætti verður
aldrei frjáls nema í orði.
Ég hef ekki lagt það í vana
minn að nota stóryrði en nauðsyn
brýtur regluna. Það er galin hug-
mynd að reyna að stuðla að
frjálsri og óháðri fjölmiðlun með
umfangsmiklum millifærslum og
ríkisstyrkjum. Verst er að með
millifærslum og styrkjum er í
raun verið að réttlæta ranglætið á
fjölmiðlamarkaði og komast þann-
ig hjá því að fjarlæga meinið
sjálft.“
Þessu eru formaður Blaða-
mannafélagsins og skoðanabræður
hans ekki sammála.
Fyrsta og annað skref
Í maí síðastliðnum var afgreitt
stjórnarfrumvarp um beinan ríkis-
stuðning við frjálsa fjölmiðla með
atkvæðum 34 þingmanna gegn 11
en 12 þingmenn greiddu ekki at-
kvæði. Sá er þetta ritar var einn
þeirra sem sátu hjá þrátt fyrir að
um stjórnarfrumvarp væri að
ræða. Í meðförum þingsins var
frumvarpinu breytt og stuðning-
urinn gerður tímabundinn og að-
eins „vegna miðlunar á fréttum og
fréttatengdu efni árin 2020 og
2021,“ eins og segir í nefndaráliti
meirihluta allsherjar- og mennta-
málanefndar. Án þessarar breyt-
ingar hefði ég ekki átt annan kost
en að greiða atkvæði gegn frum-
varpinu og svo á einnig við um
fleiri þingmenn sem töldu sér
skylt að styðja frumvarpið vegna
þeirra aðstæðna sem uppi eru.
Með breytingunni gæfist svigrúm
til að leggja grunn að sæmilega
heilbrigðu rekstrarumhverfi fjöl-
miðla. Þetta svigrúm verður ný
ríkisstjórn að nýta, enda varla
ætlunin að feta í fótspor læknisins
sem neitar að skera sjúklinginn
upp til að koma honum til heilsu
en gefur honum verkjalyf til að
lina mestu þjáningarnar í þeirri
von að hann tóri eitthvað áfram.
Fyrsta skref er að draga ríkis-
miðilinn út úr beinni samkeppni
við frjálsa fjölmiðla á mikilvægum
tekjumarkaði – auglýsingamark-
aði. (Raunar þarf að endurskoða
samkeppnisrekstur ríkisins á öðr-
um mörkuðum með svipuðum
hætti).
Annað skref er að styrkja
rekstrarumhverfi fjölmiðla með
lækkun skatta. Það er annars veg-
ar hægt með lækkun eða niðurfell-
ingu virðisaukaskatts á áskriftir
og hins vegar með lækkun trygg-
ingagjalds. Á meðan meirihluti
þingsins telur nauðsynlegt að ríkið
standi í rekstri fjölmiðils er rétt-
lætanlegt að taka upp skattalegar
ívilnanir af þessu tagi – ívilnanir í
gegnum skattkerfið sem tryggja
að allir frjálsir fjölmiðlar sitji við
sama borð. Engin opinber nefnd
eða stofnun kemur þar nærri.
Ásamt félögum mínum hef ég
lagt fram frumvörp þessa efnis, en
þau ekki fengið framgang á þingi.
Þau eru hins vegar einföld og
tilbúin. Ekkert er því til fyr-
irstöðu að ný ríkisstjórn horfi til
þeirra í stjórnarsáttmála og leggi
þar með grunn að öflugum sjálf-
stæðum fjölmiðlum, sem þó þurfa
enn að glíma við ríkisrekstur sam-
hliða samkeppni við erlend risa-
fyrirtæki sem sækja af auknum
þunga inn á íslenskan auglýsinga-
og áskriftamarkað.
Eftir Óla Björn
Kárason » Fyrst er að draga
ríkismiðilinn út úr
samkeppni við frjálsa
fjölmiðla á mikilvægum
tekjumarkaði – auglýs-
ingamarkaði. Næst er
lækkun skatta.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Eitt sem má ekki gleymast