Morgunblaðið - 13.10.2021, Side 15

Morgunblaðið - 13.10.2021, Side 15
UMRÆÐAN 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 Eftir að hafa dvalið langdvölum í Þýska- landi er ég enn tengd- ur margvíslegri þjón- ustu þar. Regulega koma þannig ýmis varnings- og þjónustu- tilboð inn á borðið hjá mér. Fyrir nokkru barst mér lánstilboð þar sem ársvextir voru 0,68%. Sem dæmi var tekið að ef mig vantaði 27.000 evrur (4.000.000 kr.) til að endurnýja bíl, innrétt- ingar, hressa upp á sumarbústaðinn eða fara í heimsreisu, þá gæti ég fengið það fé með þessum kjörum. Lánið gæti t.a.m. verið til 84 mánaða (sjö ára). Heildarend- urgreiðsla lánsins yrði þá 27.670,44 evrur. Þannig kostaði það aðeins 670,44 evrur (100.000 kr.) að nýta sér 27.000 evrur (4.000.000 kr.) yfir þetta árabil. Ég skoðaði sambærileg tilboð bankanna hér. Bankarnir þrír bjóða allir svipuð kjör. Ef þýska evrutilboðið yfir 4.000.000 kr. (27.000 evrur) væri sett upp með þessum íslensku kjör- um kostaði það 787.000 kr. að vera með 4.000.000 kr að láni, dreift yfir 84 mánuði. Í evrulandi 100.000 kr., hér 787.000 kr.! Margur maðurinn þarf að vinna í heilan mánuð fyrir þess- um mismun. Hvernig getum við gert okkur sjálfum þetta, ár eftir ár, áratug eftir áratug? Varla erum við svona heimsk! Eða skortir okkur hug- rekki og kraft til að gera sjálfsagð- ar og nauðsynlegar breytingar? Erum við of niðurnjörvuð í vana og íhaldssemi? Of miklir eyjar- skeggjar? Þau hagstæðu skilyrði fyrir lán- takendur, sem bjóðast í evrulönd- um, byggjast á styrk og stöðugleika evrunnar, sem 29 evrópskar þjóðir nýta sér sem sitt gjaldmiðils- verkfæri. Evran er sterkasti og stöðugasti gjaldmiðill heims. Þegar evran var innleidd, fyrir rúmum 20 árum, var gengi milli evru og bandaríkjadals reiknað 1,07 dalir í einni evru. Nú síðustu mánuði hefur það mest verið 1,18 dalir í evru; evran hefur styrkst um 10%. Eftirfarandi smá- þjóðir sjá sínum efna- hag best borgið með evrunni: Finnland, Eistland, Lettland, Litháen, Ír- land, Lúxemborg, Aust- urríki, Slóvakía, Slóven- ía, Svartfjallaland, Kósovó, Grikkland, Kýpur, Malta, Vatíkanið, Mónakó, San Marínó og Andorra. 18 lönd með gjörólíka stöðu í at- vinnumálum, atvinnurekstri, út- flutningi og efnahagsmálum. Sum þeirra byggja bara á einni eða tveimur meginatvinnugreinum en þau eiga það sameiginlegt að vilja byggja afkomu sína á traustum og stöðugum grunni; skilja að betra er að byggja hús sitt á bjargi en sandi. En líka Þýskaland, sem hafði sitt ofursterka þýska mark fyrir, sá sér hag í að taka upp evruna. Svo og Belgar, Hollendingar, Frakkar, Spánverjar, Portúgalar og Ítalir. Danir og Færeyingar hafa svo evruna með óbeinum hætti, dulbúna sem danska og færeyska krónu en með beintengingu við ERM2- gengismekanisma ESB. Fá þessir gjaldmiðlar styrk evrunnar án þess að heita evra. Króatar og Búlgarar hafa farið sömu leið með sína gjadmiðla, kúnu og lev. Það er með ólíkindum að við, sem eina smáþjóð álfunnar, skulum ekki hafa borið gæfu til að taka upp evr- una, jafn mikið og við höfum liðið undan óstöðugleika og kostnaði krónunnar. Tilvera margra hefur hrunið til grunna með krónunni. Stundum aftur og aftur. Flestir þekkja þá sögu. Hvernig má það vera, að almenn- ingur sjái ekki skýra kosti evr- unnar, ekki bara í stöðugleika og öryggi heldur ekki síður í út- gjöldum og kostnaði! Hvað þarf að reka mörg dæmi upp í nefið á mönnum? Hér kemur þá annað dæmi, stærra og þýðingarmeira. 10 á móti 50 milljónum, okkar fólki í óhag – er það í lagi? Eftir Ole Anton Bieltvedt »Með ólíkindum að við ein smáþjóða álf- unnar skulum ekki hafa tekið upp evruna, jafn mikið og við höfum liðið undan óstöðugleika og kostnaði krónunnar. Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir. Ung hjón kaupa hér íbúð á 60 milljónir. Borga út 10 milljónir. Fá 50 milljónir að láni til 40 ára. Vextir hér, gróft reiknað, um 50 milljónir. Það liggur við að ungu hjónin hér séu að borga tvær íbúðir. Í Þýskalandi væri þessi vaxta- kostnaður um 10 milljónir. 40 millj- ónum lægri. Hvernig getur nokkur ungur maður á Íslandi viljað krónu fremur en evru? Elska menn fjármagnseig- endur, sem auðvitað hirða þessa vexti, svona heitt? Ég skil auðvitað af hverju ákveðnir stjórnmálamenn, ákveðnir atvinnuvegir og Seðlabanki vilja halda í krónuna; hún er þeim mik- ilvægt valda- og hagsmunaverkfæri! Með því að stuðla að auknum styrk eða veikingu krónunnar er unnt að færa mikla fjármuni milli manna; einstaklinga, fyrirtækja og atvinnuvega, án þess að almenn- ingur ráði þar nokkru um. Þannig geta misvitrir og misheið- arlegir stjórnmálamenn aukið eða minnkað tekjur og útgjöld, eða eignir og skuldir, manna, með af- leiðingum fyrir alla, án þess að al- menningur komi þar nokkuð nærri. Seðlabanki getur líka keyrt gengi krónunnar upp og niður með sömu afleiðingum. Ekki ráða kjörnir fulltrúar þar för. Ef evran kæmi kæmu líka evr- ópskir bankar inn á markaðinn, sem myndu stórauka samkeppni hér og tryggja miklu hagkvæmari almenn kjör og þjónustu en hinir þrír íslensku bankar, sem reyndar hafa þrjú nöfn og aðgreinda starf- semi en virðast samstiga í flestu. Þar virðist ríkja algjör fákeppni. Kannski mætti kalla þessa bankastarfsemi einokunarstarfsemi. Undanfarið hefur Bændahöllin nokkuð verið í fréttum vegna hugsanlegrar sölu á henni. Það eru ekki allir sem athuga að byggingarnar í kring- um Hagatorg eru skemmtilega ólíkar. Í rauninni er staðurinn einstakur á Íslandi og jafnvel þótt víðar væri leitað. Ef farið er réttsælis í kringum torgið er húsaröðin þannig: Ef byrjað er á Bændahöllinni vekur athygli hversu vel tókst ný- leg stækkun hennar til norðurs. Næst er Háskólabíó sem byggt var fyrir 60 árum með skriðmótum. Þá kemur Hagaskóli sem gárungarnir nefndu Agaskóla þegar agavanda- mál komu upp í skólanum hér um árið. Neskirkja er næst og var mikið deilt um hana vegna óvenju- legs útlits hennar af kirkju að vera. Melaskólinn var byggður þegar fjár- ráð voru rúm í land- inu enda ber hann þess glögg merki ut- an sem innan. Sama má segja um íbúðar- húsin austast á Haga- mel. Þá kemur glæsi- legt fjölbýlishús sem Vesturbæingurinn Gísli Halldórsson, lengi forseti ÍSÍ, teiknaði. Síðast í hringnum er bensínstöð sem byggð var á tímum þegar sagt var að arkitektar væru að reisa sér minnismerki. Útsýnið frá Hagatorgi Eftir Halldór Halldórsson Hagatorg Yfirlitsmynd frá níunda áratugnum. Þarna má sjá að búið er að taka grunn að Þjóðarbókhlöðunni. » Það eru ekki allir sem athuga að byggingarnar í kringum Hagatorg eru skemmtilega ólíkar. Höfundur er útvegsfræðingur. Halldór Halldórsson Ferðaþjónustan á Íslandi hefur vaxið mjög mikið á liðnum árum. Gríðarlega miklu fé hefur verið varið í uppbyggingu innviða hennar und- anfarinn áratug. Ný gistihús hafa verið byggð og önnur end- urbætt að kröfum nú- tímans. Rútufyrir- tækin hafa fjárfest mikið í endurnýjun bíla og aðstöðu. Ferða- skrifstofur hafa vaxið mikið eftir því sem eftirspurn eftir þjónustu þeirra hefur aukist. En svo kom Covid-19, sem bók- staflega lamaði ferðaþjónustuna, sem hefur átt í vandræðum síðan. Þessar kringumstæður vekja ugg af ýmsu tagi. Í lok ágúst var haft samband við mig af einni elstu ferðaþjónustunni á Íslandi. Var ég inntur eftir hvort ég gæti tekið að mér verkefni við leiðsögn. Þar sem ég hef verið án verkefna vegna Covid undanfarin tvö sumur sló ég til. Þetta var skipulögð ferð um Snæfellsnes og um Suðurland með ferðamenn frá Aust- urríki. Gegnum þýsk- an ferðaheildsala var íslenska ferðaskrif- stofan fengin til að út- vega rútu, bílstjóra og leiðsögumann. Að öðru leyti var ferðin algjörlega skipulögð af ferðaþjónustufyr- irtæki í Austurríki, sem mér skilst að sé í eigu fjöl- skyldu hópstjórans. Veðrið var ekki hagstætt ferða- fólkinu því mikið rigndi á ferða- slóðum fyrsta daginn. Mikill vand- ræðagangur var hjá hópstjóranum, sem var í sinni fyrstu ferð um Ís- land. Aldrei hef ég upplifað annað eins þau 30 sumur sem ég hef fengist við leiðsögn. Endalausar símhringingar til Austurríkis og var þess m.a. krafist að fá stærri rútu. Fyrstu dagana var ekið í nýj- asta bíl íslenska fyrirtækisins. Því miður var ekki unnt að breyta veðrinu og áfram varð að halda og mér ákaflega sérkennilegt og hef aldrei upplifað aðra eins ósvífni. Þann dag átti að aka til baka austur að Skógum og verður það að teljast ansi einkennilegt skipu- lag ferðar því það er viðbótar- akstur sem nemur nálægt 70 km fram og til baka sem bætast eðli- lega við. Langflestar ferðaskrif- stofur skipuleggja ferðir á sínum vegum svo jafna megi sem mest lengd áfanga. Þannig er leiðinni milli Öræfa eða Suðursveitar og Rangárvallasýslu gjarnan skipt upp í tvo áfanga. Þess má geta að einn ferðamað- urinn hefur tjáð mér að þetta hafi verið furðulegasta ferðalag sem hann hafi tekið þátt í en lang- flestir ferðamennirnir voru eldri borgarar. Ég er feginn því að hafa lent í þessari reynslu fremur en einhver óharðnaður og reynslulítill nýút- skrifaður leiðsögumaður. Hóp- stjórinn misskildi gjörsamlega hlutverk sitt sem hópstjóri og yf- irtók starf mitt með ráðnum hug og einbeittum ásetningi. Og vænt- anlega hefur viðkomandi ekki haft atvinnuleyfi á Íslandi. Í heima- landi viðkomandi, Austurríki, er óheimilt að skipuleggja hópferð þarlendis nema innlendir leið- sögumenn séu ráðnir og sama má segja um Ítalíu, Grikkland og fleiri lönd. Nú er áleitin spurning hvort viðkomandi erlend ferðaskrifstofa hyggi á ný ævintýri á Íslandi á sumri komanda og ætli sér í leið- inni að hunsa íslenska leiðsögu- menn. Uppivöðslusamir hópstjórar eru vonandi fáir en á meðan svona gerist er alltaf hætta á að íslensk- ur leiðsögumaður verði hrakinn úr starfi. Vernd okkar gagnvart slíku er engin, en þess ber að geta að í allmörgum löndum er starf leið- sögumanna lögverndað. Hugsar þessi erlenda ferðaskrif- stofa sér aftur gott til glóðarinnar á sumri komanda að skipuleggja ferðir hingað með svipuðum hætti? Væntanlega munu svo fleiri ferða- skrifstofur sigla í kjölfarið ef ekk- ert verður að gert af íslenskum stjórnvöldum. Þegar grafið verður undan starfi íslenskra leiðsögumanna þá eru aðrir aðilar innan íslenskrar ferða- þjónustu næstir. Gististaðir, af- þreyingarþjónusta og rútufyrir- tæki gætu orðið í eigu erlendra aðila og eru jafnvel dæmi um slíkt nú þegar. Margir erlendir fjár- festar í ferðaþjónustu sjá vænt- anlega mikil og góð viðskiptatæki- færi á Íslandi. Ætli mörgum þætti ekki nokkuð þröngt fyrir sínum dyrum ef ís- lensk ferðaþjónusta hyrfi smám saman en hér yrðu einungis á ferð- inni ferðamenn á vegum erlendra aðila að öllu leyti. Eftir Guðjón Jensson »Hópstjórinn mis- skildi gjörsamlega hlutverk sitt sem hóp- stjóri og yfirtók starf mitt með ráðnum hug og einbeittum ásetningi. Guðjón Jensson Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Eru róttækar breytingar fram undan í ferðaþjónustu? fylgja áætluninni. Kom í ljós að skipulag ferðalags um Ísland við aðrar aðstæður en hér eru reynist mjög vanhugsað. Síðasta daginn sem ég var með hópnum var ekið frá Hvolsvelli alla leið að Jökulsárlóni og til baka aft- ur, um 600 km. Nú ákvað hópstjór- inn að fá að sitja við hlið mér og átti ég að segja henni hvað sjá mætti á leiðinni. Þetta þótti mér vægast sagt undarleg afskipti hóp- stjóra af leiðsögn og urðum við mjög ósátt um hvernig að leiðsögn skyldi staðið. Að kvöldi þess dags var mér sagt upp sem leiðsögu- manni og yfirgaf ég því hópinn næsta morgun. Eigi var mér leyft að ávarpa hópinn og kveðja eins og venja er þegar leiðsögumaður hef- ur lokið starfa sínum. Það þótti Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.