Morgunblaðið - 13.10.2021, Page 22

Morgunblaðið - 13.10.2021, Page 22
Í FOSSVOGI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Íslenska U21-árs landsliðið í knatt- spyrnu karla þurfti að sætta sig við naumt 0:1-tap gegn Portúgal þegar liðin mættust í 3. umferð D-riðils undankeppni Evrópumótsins á Vík- ingsvellinum í gær. Íslenska liðið má naga sig í handarbökin yfir því að hafa ekki fengið neitt út úr leiknum þar sem spilamennskan var með besta móti. Sérstaklega spilaði liðið vel í fyrri hálfleik þar sem það var með hrein- um ólíkindum að því skyldi ekki tak- ast að skora. Celton Biai í marki Portúgals átti sannkallaðan stórleik og varði eins og berserkur í hálf- leiknum þegar fjögur frábær færi Ís- lendinga fóru forgörðum. Varnarleikur Íslands gekk þá upp að mestu leyti og þá sér í lagi há- pressa á þá leikmenn Portúgals sem voru með boltann. Sú pressa skilaði Íslendingum þeim mikla fjölda færa og hornspyrna sem raunin varð í fyrri hálfleiknum. Portúgal fékk sömuleiðis sín færi í honum en Jökull Andrésson í marki Íslands sá afar vel við gestunum í tvígang. Í síðari hálfleik höfðu gestirnir í Portúgal betri stjórn á leiknum og uppskáru gott mark á 55. mínútu þegar sóknartengiliðurinn Fábio Vieira skoraði eftir laglega sendingu framherjans skæða Goncalos Ramos. Þetta reyndist sigurmark leiksins. Gefur góð fyrirheit Það sem eftir lifði leiks fengu bæði lið góð færi, Portúgalar öllu fleiri en Jökull átti líkt og kollegi hans hjá Portúgal stórleik og varði nokkrum sinnum frábærlega í síðari hálf- leiknum. Sævar Atli Magnússon, sem fékk tvö frábær færi í fyrri hálf- leik, komst einnig í gott færi eftir rúmlega klukkutíma leik en Eduardo Quaresma í vörn Portúgals bjargaði á ögurstundu. Þá voru varamaðurinn Gísli Lax- dal Unnarsson og Kristall Máni Ingason hársbreidd frá því að jafna metin í blálokin en Celton varði frá- bærlega frá þeim síðarnefnda af ör- stuttu færi í kjölfar þess að skot Gísla hafði farið af varnarmanni. Mörkin urðu því ekki fleiri en þrátt fyrir að frammistaða Íslands í síðari hálfleik væri ekki jafn góð og í þeim fyrri var hún virkilega góð á heildina litið. Verður því afar áhugavert að fylgjast með hvernig íslenska liðinu reiðir af í framhaldinu. Enn eru nefnilega sjö leikir eftir í D-riðlinum og þrátt fyrir að upp- skeran sé fjögur stig að loknum fyrstu þremur leikjunumm má hæg- lega vænta þess að Ísland muni sanka að sér stigum í næstu verk- efnum, sérstaklega ef frammistaða gærdagsins gefur einhverjar vís- bendingar um það sem koma skal. Svekkjandi tap í Fossvogi - Frábær frammistaða hjá U21-árs landsliðinu gegn Portúgal í fyrri hálfleik - Fengu fjölda tækifæri til að koma boltanum í netið en hann vildi ekki inn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Víkin Bjarki Steinn Bjarkason sendir boltann fram hjá Nuno Tavares í rigningunni á Víkingsvelli í Fossvogi í gær. 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. OKTÓBER 2021 Undankeppni EM U21 karla Ísland – Portúgal...................................... 0:1 H-Rússland – Liechtenstein ................... 6:0 Staðan: Portúgal 3 3 0 0 13:0 9 Grikkland 4 2 2 0 8:1 8 Kýpur 3 2 1 0 12:0 7 Ísland 3 1 1 1 3:3 4 H-Rússland 4 1 0 3 7:5 3 Liechtenstein 5 0 0 5 0:34 0 EM U19 karla A-deild, undanriðill í Slóveníu: Litháen – Ísland ....................................... 1:2 Slóvenía – Ítalía ........................................ 1:3 Lokastaðan: Ítalía 3 3 0 0 8:1 9 Ísland 3 2 0 1 5:5 6 Slóvenía 3 0 1 2 2:5 1 Litháen 3 0 1 2 3:7 1 _ Ísland er komið áfram í A-deild undan- keppninnar, líkt og Ítalía og Slóvenía, en Litháen er fallið í B-deild. Undanleppni HM karla A-RIÐILL: Portúgal – Lúxemborg ............................ 5:0 Serbía – Aserbaídsjan.............................. 3:1 Staðan: Serbía 17, Portúgal 16, Lúxemborg 6, Ír- land 5, Aserbaídsjan 1. B-RIÐILL: Kósovó – Georgía...................................... 1:2 Svíþjóð – Grikkland.................................. 2:0 Staðan: Svíþjóð 15, Spánn 13, Grikkland 9, Kósovó 4, Georgía 4. C-RIÐILL: Búlgaría – N-Írland ................................. 2:1 Litháen – Sviss ......................................... 0:4 Staðan: Ítalía 14, Sviss 14, Búlgaría 8, N-Írland 5, Litháen 3. D-RIÐILL: Kasaktstan – Finnland ............................ 0:2 Úkraína – Bosnía...................................... 1:1 Staðan: Frakkland 12, Úkraína 9, Finnland 8, Bosnía 7, Kasakstan 3. F-RIÐILL: Danmörk – Austurríki ............................. 1:0 Færeyjar – Skotland................................ 0:1 Ísrael – Moldóva....................................... 2:1 Staðan: Danmörk 24, Skotland 17, Ísrael 13, Aust- urríki 10, Færeyjar 4, Moldóva 1. _ Danir eru öruggir um sæti á HM í Katar. I-RIÐILL: Albanía – Pólland ..................................... 0:1 England – Ungverjaland ......................... 1:1 San Marínó – Andorra ............................. 0:3 Staðan: England 20, Pólland 17, Albanía 15, Ung- verjaland 11, Andorra 6, San Marínó 0. >;(//24)3;( Olísdeild karla Valur – HK............................................ 32:25 Staðan: Valur 3 3 0 0 84:65 6 ÍBV 3 3 0 0 91:83 6 Haukar 4 2 1 1 114:105 5 Fram 3 2 0 1 80:75 4 KA 3 2 0 1 82:78 4 Stjarnan 2 2 0 0 66:63 4 FH 4 2 0 2 102:100 4 Afturelding 3 1 1 1 87:86 3 Selfoss 4 1 0 3 96:109 2 Grótta 3 0 0 3 66:71 0 HK 3 0 0 3 75:89 0 Víkingur 3 0 0 3 64:83 0 E(;R&:=/D 1. deild kvenna Aþena/UMFK – Þór Ak....................... 60:86 Snæfell – Stjarnan................................ 89:71 Staðan: Þór Ak. 3 3 0 243:195 6 ÍR 2 2 0 148:109 4 Snæfell 3 2 1 230:223 4 Ármann 2 1 1 155:128 2 KR 2 1 1 150:138 2 Fjölnir b 1 1 0 58:53 2 Tindastóll 2 1 1 141:151 2 Aþena/UMFK 3 1 2 189:222 2 Hamar/Þór 1 0 1 76:89 0 Vestri 2 0 2 102:137 0 Stjarnan 3 0 3 192:239 0 Spánn B-deild: Gipuzkoa – Caceres............................. 74:76 - Ægir Már Steinarsson skoraði 14 stig fyrir Gipuzkoa, stal boltanum fjórum sinn- um, gaf 3 stoðsendingar og tók 2 fráköst. >73G,&:=/D Bandaríski bakvörðurinn Travis Atson hefur samið við körfuknatt- leiksdeild Grindavíkur um að leika með karlaliði félagsins á tímabilinu í úrvalsdeildinni, Subway-deildinni. Atson kom til landsins um nýliðna helgi og hefur þegar tekið þátt í tveimur æfingum með Grindavík þar sem hann hefur þótt standa sig vel. Hann er 196 sentimetrar á hæð og bakvörður að upplagi en getur einnig spilað sem framherji. Vonast Grindvíkingar til þess að hann verði kominn með leikheimild fyrir heimaleikinn gegn KR 21. október. Liðstyrkur í Grindavík Ljósmynd/Grindavík Bakvörður Travis Atson lék með St. Francis-háskólanum í New York. Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elín Jóna Þorsteinsdóttir er í úr- valsliði fyrstu tveggja umferða undankeppni EM 2022 í handknatt- leik kvenna eftir frábæra frammi- stöðu hennar gegn Svíþjóð og Serb- íu á dögunum. Hún gat ekki komið í veg fyrir stórt tap gegn sterkum Svíum en varði þó nokkrum sinnum afar laglega. Gegn Serbum átti Elín Jóna svo sannkallaðan stórleik er hún varði 14 skot, þar af bæði víta- köst Serba, og átti stóran þátt í mögnuðum 23:21 sigri Íslands á Ás- völlum í Hafnarfirði. Markvörðurinn í úrvalsliðinu Morgunblaðið/Eggert Öflug Elín Jóna var besti leikmaður Íslands gegn Svíþjóð og Serbíu. Körfuknattleikur Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Dalhús: Fjölnir – Keflavík ................... 18.15 Origo-höllin: Valur – Breiðablik.......... 18.15 Grindavík: Grindavík – Njarðvík ........ 20.15 1. deild kvenna: Dalhús: Fjölnir B – Ármann................ 20.30 Handknattleikur Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Kaplakriki: FH - Víkingur................... 19.30 Í KVÖLD! ÍSLAND – PORTÚGAL 0:1 0:1 Fábio Vieira 55. MM Jökull Andrésson M Finnur Tómas Pálmason Kolbeinn Þórðarson Kristall Máni Ingason Sævar Atli Magnússon Valgeir Lunddal Friðriksson Rautt spjald: Enginn. Dómari: Robert Ian Jenkins, Wales. Áhorfendur: 350. _ Jökull Andrésson lék sinn fyrsta leik fyrir U21-árs landsliðið. _ Þá léku þeir Gíxli Laxdal Unnarsson, Karl Friðleifur Gunnarsson og Orri Hrafn Kjartansson allir sína fyrstu landsleiki fyrir liðið en þeir komu inn á sem varamenn í leiknum. Íslands- og bikarmeistarar karla í handknattleik í Val hefja nýtt keppnistímabil einstaklega vel. Val- ur vann HK á Hlíðarenda í gær 32:25 og hefur unnið fyrstu þrjá leikina í Olís-deildinni. Valur sigr- aði í bikarkeppninni á dögunum sem tilheyrði síðasta tímabili. Þá vann liðið Meistarakeppni HSÍ auk þess að standa uppi í hárinu á þýsku bikarmeisturunum í Lemgo í Evrópuleikjum. Leikurinn var nokkuð jafn að loknum fyrri hálfleik en Valur var yfir 16:14. Í sundur dró með lið- unum í síðari hálfleik. Benedikt Gunnar Óskarsson var markahæst- ur hjá Val með 10 en sex þeirra skoraði hann af vítalínunni. Finnur Ingi Stefánsson og Tumi Steinn Rúnarsson nýttu ekki hvor sitt víta- kastið í leiknum en Benedikt skilaði sex vítum rétta leið í jafn mörgum tilraunum. Bróðir hans, Arnór Snær Óskars- son, var næstmarkahæstur með fimm mörk en Elías Björgvin Sig- urðsson skoraði fimm fyrir HK. Valsmenn sannfærandi í upphafi tímabilsins Morgunblaðið/Árni Sæberg Mark Einar Þorsteinn Ólafsson skorar fyrir Val gegn HK í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.