Morgunblaðið - 18.10.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
ÆFÐU SVEIFLUNA Á ALICANTE
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS
KOMDU MEÐ Í GOLFFERÐ TIL EL PLANTIO GOLF RESORT
10.000 KR.AFSLÁTTUR Á GOLFFERÐUMTIL ALICANTE Í NÓVEMBER OGDESEMBER EF BÓKAÐ ER FYRIR31. OKTÓBER
NÝTT
LENGRIFERÐIR Á GÓÐU
VERÐI
INNIFALIÐ
ÓTAKMARKAÐ GOLF
INNRITUÐ TASKA 20 KG.
8 KG. HANDFARANGUR
FLUTNINGUR Á GOLFSETTI
MÖGULEGT AÐ BÓKA GOLFBÍL AUKALEGA
NÓVEMBER OG DESEMBER
14, 21 EÐA 28 DAGA FERÐIR
EL PLANTIO GOLF RESORT
VERÐ FRÁ189.900 KR.
Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA Í 14 DAGA FERÐ
VERÐ FRÁ 209.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Í 14 DAGA FERÐ
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Viðræður um endurnýjað ríkis-
stjórnarsamstarf halda áfram í dag,
en formenn stjórnarflokkanna tóku
sér hvíld frá viðræðum um helgina
og ræddu við trúnaðarmenn í sínum
hópi. Lítið hefur spurst út af viðræð-
um formannanna, jafnvel inn í þing-
flokka þeirra.
Það er þó að heyra að viðræðurnar
hafi gengið bærilega, en það hafi
óneitanlega tafið fyrir þeim að reynt
var að gera út um helstu ágreinings-
efni í upphafi. Það hafi að sumu leyti
gengið vel, en önnur mál hafi áfram
verið stál í stál. Þar mun einkum
hafa verið togast á um orkumál og
náttúruvernd.
Í síðustu viku voru loftslagsmálin
einnig talsvert rædd, en þau tengjast
að sumu leyti núningsflötum um
orkunýtingu og landvernd. Þrátt
fyrir að stjórnarflokkarnir séu á einu
máli um mikilvægi þeirra er nálgun
flokkanna á þau mjög mismunandi.
Það á ekki síst við um þær hugmynd-
ir að aukin nýting endurnýjanlegra
orkuauðlinda hér á landi verði fram-
lag Íslands til hins hnattræna við-
fangsefnis, en Vinstri græn telja að
það geti trauðla farið saman við
áherslur sínar á landvernd. Velflest-
ar hugmyndir um frekari orkuvirkj-
un eru eitur í þeirra beinum.
Um fleira hefur þó verið rætt á
liðnum vikum og þar eru efnahags-
mál og ríkisfjármál ævinlega undir-
liggjandi, en í þeim felast einnig
skattamál, félagsmál og kjaramál,
sem viðbúið er að verði mjög í deigl-
unni á komandi ári, enda renna lífs-
kjarasamningar út áður en árið er
allt.
Stjórnarmyndun
heldur áfram enn
- Orkumál og landvernd vefjast fyrir
Morgunblaðið/Eggert
Ríkisstjórn Katrín Jakobsdóttir for-
sætisráðherra verst fimlega frétta.
Logi Sigurðarson
Þorsteinn Ásgrímsson
Margir ökumenn lentu í vandræðum á
hringveginum í gær. Austanstormur
gekk yfir landið og gular veðurviðvar-
anir voru víða í gildi frá því klukkan
16. Hvasst var um landið sunnanvert.
Umferðaróhöpp mátti líka rekja til
vetrarfærðar sem virtist koma mörg-
um ökumönnum í opna skjöldu.
Bryndís Harðardóttir, sem rekur
dráttarþjónustu í Vík í Mýrdal, sagði í
samtali við mbl.is síðdegis í gær að
hátt í tuttugu bílar hafi farið út af hjá
Reynisfjalli en mikið vonskuveður var
á svæðinu og vindhviður allt að 30
metrar á sekúndu.
Erlendir ferðamenn töldu sig
vera á vetrardekkjum
„Við höfum verið að draga bíla í all-
an dag, en við erum hætt núna því
Vegagerðin er farin að fylgja bílum
yfir. Þeir fóru að fylgja yfir um fimm-
eða sexleytið, þeir hefðu mátt gera
þetta fyrr. Það hefur verið gríðarleg
umferð þarna í allan dag,“ sagði
Bryndís og bætti því við að ökumenn-
irnir hafi aðallega verið erlendir
ferðamenn. Þeir hafi talið að þeir
væru á vetrardekkjum en annað hafi
komið á daginn. Umferðaróhöpp voru
víðar í gær. Hellisheiðinni var lokað í
austurátt í stutta stund eftir að sex
bílar fóru út af og vörubíll þveraði
veginn. Þá var veginum við Hafnar-
fjall lokað um tíma meðan bíll var
dreginn upp á veg. Dynjandisheiði og
Nesjavallaleið var lokað í gær.
Ekki þörf á rýmingu
Síðdegis í gær var tilkynnt að ekki
hefði verið talin ástæða til að rýma
hús á Seyðisfirði en þó var gefin út úr-
komu- og skriðuviðvörum á sunnan-
verðum Austfjörðum. Þetta var
ákveðið á fundi lögreglunnar á Aust-
urlandi með Veðurstofu Íslands, al-
mannavörnum og Múlaþingi.
Segir í tilkynningu frá lögreglu að
úrkoma á næstu dögum gæti valdið
því að einhver hluti hryggsins milli
skriðuássins og Búðarár á Seyðisfirði
fari af stað. Ekki er gert ráð fyrir því
að hann fari allur af stað í einu þar
sem hann er sprunginn og gliðnaður.
Allar líkur eru taldar á því að varn-
argarðar og safnþró leiði aurinn til
sjávar án þess að valda tjóni á mann-
virkjum. Enn er í gildi óvissustig al-
mannavarna á Seyðisfirði.
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Vetrarfærð Ekki voru allir undir það búnir að aka í snjónum á Hellisheiði í gær og fóru margir bílar út af.
Margir í vanda í vetrarhvelli í gær
- Vonskuveður gekk yfir í landið gær - Gular viðvaranir vegna hvassviðris - Allt að 30 metrar á sek-
úndu hjá Reynisfjalli þar sem fjöldi bíla fór út af - Ekki þörf á rýmingu á Seyðisfirði vegna úrkomu
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Einn mánuður er nú liðinn frá því
kvika rann upp úr gígnum í Geld-
ingadölum. Gosið hefur því í raun
verið í dvala undanfarinn mánuð.
Þrátt fyrir það gerir fólk sér enn
ferð upp að gosstöðvunum, þó í
minna mæli en áður. Ferðamála-
stofa heldur utan um fjölda þeirra
sem hafa gert sér ferð að gosstöðv-
unum frá því gosið hófst nú í vor.
Samkvæmt upplýsingum Ferða-
málastofu hafa í heildina 324.778
einstaklingar farið og séð gosið frá
upphafi. Umferðin hefur því verið
stöðug undanfarna mánuði.
Mest var umferðin í byrjun en
fyrstu dagana voru að jafnaði rúm-
lega sex þúsund manns sem gerðu
sér ferð daglega að gosstöðvunum.
Frá því kvika hætti að renna úr
gígnum þann 18. september síðast-
liðinn fram að laugardeginum 16.
október hafa 29.406 manns gert sér
ferð að gosstöðvunum eða rétt rúm-
lega þúsund á dag. Þá hafa ekki yfir
1.500 manns gert sér ferðina sama
daginn síðan 25. september og því
ljóst að áhugi fólks á því að fara og
sjá gosið hefur minnkað töluvert frá
því að hraun hætti að renna úr gígn-
um. Bogi Adolfsson, formaður
björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í
Grindavík segir í samtali við Morg-
unblaðið að erlendir ferðamenn séu í
meirihluta gesta á svæðinu. „Núna
eru þetta bara túristar, þeir eru allt-
af þarna eitthvað að bralla.“
Bogi segir umræðu um að minnka
viðveru björgunarsveita á svæðinu
hafna, en þó sé allt á umræðustigi
enn sem komið er. Svæðið sé í góðu
ástandi og göngustígar til að mynda
vel upplýstir.
Enn þúsund manns á dag
- Gestir skoða gosið þótt það sé í dvala - Aðallega ferðamenn
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rólegt Bogi Adolfsson formaður
Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Morgunblaðið/Einar Falur
Eldgos Þegar mest lét var eldgosið í Geldingadal mikið sjónarspil.