Morgunblaðið - 18.10.2021, Page 6

Morgunblaðið - 18.10.2021, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021 Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta Sérhæfð þjónusta fyrir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 544 5151 tímapantanir Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Á fundi borgarráðs á fimmtudag var samþykkt tillaga borgarstjóra þess efnis að fela umhverfis- og skipulags- sviði að eiga samstarf við Listasafn Íslands, Vegagerðina og Betri samgöngur ohf. varðandi nýtt útilistaverk Lista- safns Íslands í tengslum við stoppistöð borgarlínu við Frí- kirkjuveg. Haft verður samráð við menningar- og ferða- málasvið borgarinnar við vinnslu málsins. Frumkvæði að samstarfinu kemur frá Listasafninu en fyrir liggur að breytingar verða á Fríkirkjuvegi þegar Borgarlínu verður komið fyrir þar, en gert er ráð fyrir stoppistöð við Fríkirkjuveg. Þá er litið til þess möguleika að útilistaverkið verði hluti af stoppistöðinni sjálfri en fram kemur í bréfi frá listasafninu sem sendist á áð- urnefnda aðila að „verkið gæti verið stoppistöðin sjálf“ sé áhugi fyrir að hnika staðsetningu stöðvarinnar og skoða fleiri möguleika. Listasafn Íslands á hátt í 14.000 verk en minnstur hluti þeirra eru útilistaverk. Nýtt kennileiti í borginni Þá er einnig bent á í bréfinu að útilistaverkið gæti skap- að nýtt kennileiti í Reykjavík og dregið athygli íbúa og gesta að þjóðlistasafninu sem staðsett er við Fríkirkjuveg. Ein bókun var lögð fram vegna tillögunnar og var það frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins. Þar segir: „Það er já- kvætt að fá nýtt útilistaverk í borgarlandið í nágrenni við stoppistöð almenningssamgangna.“ Útilistaverk við stoppistöð borgar- línu í miðbænum - Lítill hluti safnsins útilistaverk Morgunblaðið/Sigurður Bogi Við tjörnina Nýtt útilistaverk gæti risið samhliða borg- arlínustöð. Verkið gæti jafnvel verið stoppistöðin sjálf. Jóhann Steinar Ingimundarson tók á laugardag við for- mennsku í UMFÍ. Hann tók af Hauki Valtýssyni, sem gegnt hefur emb- ætti formanns frá árinu 2015 og ákvað að gefa ekki kost á sér að nýju. Jóhann var sjálfkjörinn í formanns- embættið. Hann hefur setið í stjórn UMFÍ síðustu fjögur ár og var áður formaður Stjörnunnar í Garðabæ. UMFÍ er landssamband ung- mennafélaga á Íslandi. Innan þess eru 450 félög, þar af nær öll íþrótta- félög landsins og eru iðkendur rúm- lega 100 þúsund. Í tilkynningu kemur að kosning stjórnar UMFÍ fór fram á sam- bandsþingi UMFÍ á Húsavík. Mál- fríður Sigurhansdóttir kom ný inn í stjórnina fyrir hönd ÍBR. Aðrir í stjórn UMFÍ voru kosin þau Gunnar Þór Gestsson, Ragnheiður Högna- dóttir, Guðmundur Sigurbergsson, Gunnar Gunnarsson og Sigurður Óskar Jónsson. Jóhann nýr formaður UMFÍ - Kosning fór fram á sambandsþingi Jóhann Steinar Ingimundarson Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrver- andi forseti Íslands og forsvarsmað- ur Arctic Circle, segir það hafa verið skýrt í umræðum um loftlagsbreyt- ingar á ráðstefn- unni, sem lauk á laugardaginn var, að straumhvörf í orkumálum um allan heim séu forsendur þess að ná árangri í loft- lagsmálum. „Þetta var ansi fjölþættur vett- vangur og mörg söguleg tíðindi. Sem dæmi má nefna að Evrópusam- bandið kom á Hringborð norður- slóða og kynnti í fyrsta sinn á op- inberum alþjóðlegum vettvangi hina nýju norðurslóðastefnu ESB,“ segir Ólafur. Nýskipuð forystusveit Joe Biden Bandaríkjaforseta í málefnum norðurslóða, lét þá sjá sig á þinginu, fáeinum vikum eftir að hún tók til starfa, til þess að útskýra áherslur og markmið Bandaríkjanna í þessum málum og líka til þess að eiga fjöl- marga fundi á þinginu með fulltrúum annarra aðila. Þá beri að fagna þátt- töku tveggja öldungadeildarþing- manna Bandaríkjaþings sem gegna forystu í öldungadeildinni annars vegar í málefnum norðurslóða, og hins vegar loftslagsmálum. „Það var mjög mikilvægt að þessir tveir for- ystumenn úr öldungadeild Banda- ríkjaþingsins úr sitthvorum flokkn- um, skyldu taka jafnvirkan þátt í þinginu eins og raun bar vitni.“ Ann- ar þeirra er Lisa Murkowski, öld- ungadeildarþingmaður Alaska á Bandaríkjaþingi, sem sagði ástæðu til að brýna fyrir ríkisstjórn Bidens mikilvægi fríverslunarsamnings Bandaríkjanna við Ísland, sem lið í breyttri norðurslóðastefnu. „Flestir áttuðu sig ekki á að Bandaríkin eru norðurslóðaríki og á það við embætt- ismenn, stjórnmálamenn og almenn- ing,“ sagði hún. Þátttakendur ráðstefnunnar voru um 1.300 talsins frá meira en 50 löndum og var þar farið vítt og breitt yfir stöðu norðurslóða í alþjóðasam- hengi. Katrín Jakobsdóttir forsætis- ráðherra sagði í opnunarávarpi sínu að hnattræn hamfarahlýnun sé mannanna verk og þess vegna standi það á mannkyninu að bregðast við og snúa þróuninni jörðinni í vil. „Grænland er mætt til leiks“ Ólafur segir að það hafi sætt mikl- um tíðindum að margvíslegir fulltrú- ar hinnar nýju ríkisstjórnar á Græn- landi hafi flutt á þinginu afdráttar- lausan boðskap um stefnu hinnar nýju ríkisstjórnar Grænlands og áttu fjölmarga fundi á þinginu með fulltrúum annarra aðila. „Grænland er mætt til leiks með nýjum hætti og nýja kynslóð for- ystumanna, sem mikilvægt er að Ís- lendingar geri sér grein fyrir. Bæði vegna þess að þetta er okkar næsti nágranni en líka vegna þess að það skapar fjölmörg tækifæri fyrir Ís- land.“ Að lokum bætti Ólafur við að þátttaka ungs fólks á þinginu hafi verið einstaklega áberandi í ár: „Á fyrstu árum þinganna þurftum við dálítið að sækja slíka þátttakendur en núna komu nokkur hundruð af ungu fólki af eigin frumkvæði. Marg- ir af hinum eldri þátttakendum og forystumönnum höfðu orð á því að þeir hefðu aldrei fyrr verið á alþjóð- legu þingi með jafnfjölmenna sveit af ungu fólki sem væru jafnvirknir þátttakendur í umræðum og skoð- anaskiptum,“ segir hann og nefnir til dæmis unga vísindamenn, aktívista, áhugafólk um loftslagsbreytingar, námsmenn og aðra, sem töldu nokk- ur hundruð. Mörg söguleg tíðindi á Arctic Circle - Straumhvörf í orkumálum forsendur árangurs í loftslagsmálum - Bandaríkin og Grænland áberandi Morgunblaðið/Eggert Norðurslóðir Þátttakendur ráðstefnunnar voru um 1.300 talsins frá yfir 50 löndum en innkoma Grænlands á ráðstefnuna vakti nokkra athygli.Ólafur Ragnar Grímsson Framkvæmdir eru hafnar við nýja íbúðabyggð á lóðinni Furugerði 23, skammt frá Bústaðavegi og Grensásvegi. Þarna munu rísa tvö 10 íbúða fjölbýlishús á tveimur hæðum og 10 íbúða raðhús á tveimur hæðum með sameiginlegan bílakjallara. Á umræddri lóð stóðu áður gróðurhús og byggingar sem tilheyrðu gróðrarstöðinni Grænu- hlíð. Íbúar við Furugerði og nágrenni hafa frá upphafi mótmælt því að uppbygging á lóðinni yrði svo umfangsmikil sem raun varð á. Töldu þeir að breytt deiliskipulag muni raska alvarlega hagsmunum íbúa í nágrenninu. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Uppbygging hafin á íbúðabyggð við Furugerði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.