Morgunblaðið - 18.10.2021, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Vel er hljóðbært milli hæða og
herbergja í Tónlistarskólanum á
Ísafirði svo húsið ómar allt. Spil-
verkið er heldur ekki af lakari
endanum. Hér heyrist nemandi
æfa Óðinn til gleðinnar, velþekkta
9. sinfóníu Beethovens. Annar æf-
ir svo Á Sprengisandi eftir Sig-
valda Kaldalóns og heldur sig
neðst í tónstiganum. Krakkarnir
koma og fara; brosið þeirrar segir
allt um hvað spilatímarnir eru
ljómandi skemmtilegir.
„Ísafjörður er menningarbær
og tónlistarhefðin hér er sterk,“
segir Bergþór Pálsson söngvari
og skólastjóri tónlistarskólans. Nú
á haustdögum eru alls 235 nem-
endur við skólann og kennararnir
eru fjórtán. Starfið er öflugt, eins
og lengi hefur farið orð af. Berg-
þór er nú á sínum öðrum vetri sem
skólastjóri, en hann flutti vestur
fyrir um hálfu öðru ári síðan.
Hann segir tilviljun hafa ráðið því
að leið sín og Alberts Eiríkssonar,
eiginmanns síns, lá vestur.
Leið til þroska
„Ég var á ferðinni hér fyrir
vestan og rakst þá hér á auglýs-
ingu þar sem auglýst var eftir
skólastjóra. Okkur Albert bar
saman um að þetta gæti verið
skemmtilegt tækifæri svo ég setti
inn umsókn um starfið, sem ég
fékk. Ísafjörður hefur tekið afar
vel á móti okkur. Oft heyri ég á
fólki að því þyki Ísafjörður hér inn
á milli fjallanna vera aðþrengdur
staður. Tilfinning mín er hins veg-
ar fremur sú að fjöllin taka vel ut-
an um okkur sem hér búum,“ seg-
ir Bergþór.
Gítar og píanó eru þau hljóð-
færi sem jafnan eru vinsælust
meðal tónlistarnema, rétt eins og
gerist á Ísafirði. Slagverk kemur
reyndar líka sterkt inn nú – og
strengja- og blásturshljóðfæri
skora líka alltaf. Ónefnd er þá
fornám fyrir til dæmis nemendur
leikskólans, sem er í kjallara tón-
listarskólahússins við Austurveg.
Þá er grunnskóli bæjarins ör-
skammt frá – og fyrir vikið eru
góðir gagnvegir milli þessara
menntastofnana.
„Tónlist er leið til þroska. Er
ekki aðeins starfsvettvangur tón-
listarmanna, heldur leiðangur til
að gera samfélagið betra. Allir
ættu að læra að meta tónlist og
njóta hennar. Því þarf að fylgja
gleði – samhliða aga – og þar með
sjálfstraust og persónuleg upp-
bygging. Skólarnir þurfa vissu-
lega að fylgjast með í síbreyti-
legum heimi. Góðar og gamlar
aðferðir eiga að mörgu leyti alltaf
við, en nú er hægt að nýta tækni
til að kenna tónlist. Krakkar geta
nú búið til tónlist með einföldum
forritum og skólinn þarf að spila
með. Mikilvægt er skólarnir missi
ekki nemendur vegna íhaldssemi.
Um leið kann ekki góðri lukku að
stýra að poppa svo mikið upp að
skólinn sé leiksoppur tísku-
strauma,“ segir Bergþór og held-
ur áfram:
Ópera er í undirbúningi
„Fyrir mig er stjórnunarstarf
ný reynsla og margt að læra við
skipulag og Excel-skjöl. Að halda
heilanum virkum er þó mjög mjög
kærkomið fyrir mann sem farinn
að eldast. Ég hef ekki kennslu-
skyldu, en gríp þó í forfalla-
kennslu sem er einstaklega gam-
an. Hins vegar er trúlega það
skemmtilegasta að ræða við börn-
in á göngunum. Stundum koma
þau inn til mín og spila fyrir mig,
eða spjalla eða syngja fyrir mig.“
Ýmsir þeir viðburðir sem efnt
er til á vegum eða í tengslum við
starfsemi Tónlistarskóla Ísafjarð-
ar setja svip á bæjarlífið vestra. Á
sjötíu ára afmæli skólans haustið
2018 fluttu nemendur og kenn-
arar barnaóperuna Kalli og sæl-
gætisgerðin eftir Hjálmar H.
Ragnarsson við texta Böðvars
Guðmundssonar. Nú er hins vegar
í deiglunni að færa upp óperu sem
tónlistarfólk á Íslandi og í Fær-
eyjum, Noregi og Ungverjalandi
ynni saman – hvar byggt yrði á
þjóðsagnaarfi þessara landa.
„Að setja upp stóra óperu er
talsvert fyrirtæki og tekur sinn
tíma. Ég sé fyrir mér að þetta
gæti orðið að veruleika árið 2023,
en undirbúningur er þegar hafin
bæði að skrifa handrit, tónlist og
afla styrkja,“ segir Bergþór.
Skólinn sé sýnilegur
Á dögunum hélt Jóhann
Kristinsson óperusöngvari þar
tónleika og söng þar úr Vetr-
arferðinni eftir Schubert. Góður
rómur var gerður að flutningi Jó-
hanns, sem er fyrrum nemandi
Bergþórs og sonur Kristins Sig-
mundssonar óperusöngvara.
Næstkomandi laugardag, 23. októ-
ber, verður svo opið hús í Tónlist-
arskólanum á Ísafirði milli kl. 14 –
16.30. Þar og þá verða nemendur
við æfingar í stofum og gestum er
velkomið að fylgjast með. Klukk-
an 15 er svo dagskrá í tónleika-
salnum Hömrum þar sem Samúel
Einarsson, vel þekktur vestra sem
Sammi rakari, flytur eigin lög
ásamt hljómsveit. Þá mun hljóm-
sveitin Hljómórar flytja lög eftir
Jón Gunnar Margeirsson, Jón
Hallfreð Engilbertsson flytur eig-
in kveðskap og bæjarlistamaður
Ísafjarðarbæjar 2021 verður
kynntur og heiðraður.
„Í litlu samfélagi þarf að vera
völ á margs konar afþreyingu ef
fólk á að sækjast eftir því að búa
hér. Það er ekki nóg að hér séu
bara íþróttir eða bara tónlist-
arskóli, þetta þarf allt að blómstra
hlið við hlið. Eins og öll menning-
arstarfsemi eru samkomur eins og
þessar upplyfting og fyrir tónlist-
arskólann er mikilvægt að vera
sýnilegur í samfélaginu,“ segir
Bergþór Pálsson að síðustu.
Bergþór Pálsson óperusöngvari stýrir öflugu starfi í Tónlistarskóla Ísafjarðar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tónlistarfólk Bergþór Pálsson skólastjóri hér með Ágústu Þórólfdóttur kennara og Dagný Emmu Kristjáns-
dóttir píanónema. Alls eru 235 nemendur við skólann sem er öflug stofnun í bæjarlífinu á Ísafirði.
Tónlistin til að gera samfélagið betra
- Bergþór Pálsson er fæddur
árið 1957. Hann lauk BA-gráðu í
tónlist frá Indiana-háskóla í
Bandaríkjunum 1985, MA-gráðu
í tónlist frá sama skóla 1987 og
útskrifaðist sem leikari frá
Drama Studio í London 1997.
Söngkennari um langt árabil.
Var ráðinn skólastjóri Tónlistar-
skóla Ísafjarðar á sl. ári.
- Um dagana hefur Bergþór
tekið þátt í uppfærslu fjölda
ópera. Hefur haldið fjölda ein-
söngstónleika og sungið með
Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Kammersveit Reykjavíkur. Einn-
ig sungið einsöng í t.d. Messíasi
Händels, Mattheusarpassíu, Jó-
hannesarpassíu, Sköpuninni og
Árstíðunum eftir Haydn og
Sálumessu Mozarts.
Hver er hann?
Félagar í IOGT af-
hentu á dögunum veg-
lega gjöf sem nýtast
mun föngum á Íslandi.
Um var að ræða verk-
færi til notkunar í
fangelsum fyrir tóm-
stundir fanga. Fé-
lagar í stúkunni Ein-
ing nr. 14 hafa
undanfarið safnað fé
og ákváðu að afrakst-
urinn skyldi renna til
tómstunda fanga og til
Píeata-samtakanna.
Það voru þau Að-
alsteinn Gunnarsson
æðstitemplar, Gunnar
Þorláksson ritari, Kolbrún Hauks-
dóttir fyrrverandi æðstitemplar,
Loftur Hauksson gjaldkeri og Krist-
ín Þóra Gunnarsdóttir varatemplar
fulltrúar IOGT stúkunnar Eining-
arinnar nr.14 sem afhentu Halldóri
Vali Pálssyni, forstöðumanni fang-
elsa og deildarstjórum á Litla-
Hrauni gjöfina.
„Þeir sögðu gjöfina höfðinglega og
myndi nýtast vel,“ segir í tilkynn-
ingu frá Einingu en við þetta tæki-
færi rifjaði Gunnar Þorláksson ritari
Einingarinnar upp þegar hann kom í
mars 1967 með 10.000 króna gjöf frá
IOGT-hreyfingunni til Litla-Hrauns.
„Halldór staðfesti að verkfæragjöf
sú hafi leitt til uppsetningar á fönd-
urstofu Litla-Hrauns, ráðningu Ei-
ríks Guðmundssonar, smiðs frá
Stokkseyri, sem leiðbeinenda og efl-
ingar tómstunda fanga. Enn er hægt
að finna nokkur sporjárn á trésmíða-
verkstæðinu sem voru gefin fyrir 54
árum. Halldór Valur fangelsisstjóri
sagði aðeins frá sögu fangelsisins og
fjölgun úrræða fyrir fanga ásamt
verkefnum sem unnin eru þar sem
ýta undir iðjusemi og aukna vellíðan
fanga,“ segir í tilkynningu frá IOGT.
Færðu föngum
verkfæri að gjöf
- Gjöfin sögð vera „höfðingleg“
Gjöf Halldór Valur Pálsson og deildarstjórar á Litla-
Hrauni tóku við verkfærum sem nýtast föngum.