Morgunblaðið - 18.10.2021, Side 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Bandarísk-íslenska sprotafyrirtækið
Standby Deposits var stofnað í byrj-
un þessa árs en hefur þegar tekist að
ná fótfestu á bandarískum húsa-
leigutryggingarmarkaði. Egill Al-
mar Ágústsson er
framkvæmda-
stjóri félagsins og
einn af fjórum
meðstofnendum
og segir hann að í
Bandaríkjunum
séu húsaleigu-
tryggingar nær
óplægður akur og
til mikils að vinna
að ná að bjóða þar
upp á lausn sem bæði þjónar þörfum
leigjenda og leigusala.
Í dag eru nokkur hundruð leigu-
íbúðir í Flórída komnar í kerfi
Standby Deposits og viðræður langt
komnar við stór leiguþjónustufélög
sem sum hafa tugi þúsunda íbúða í
sinni umsjá. Fram undan eru m.a.
viðræður við fjárfesta með það fyrir
augum að efla reksturinn og auka
umsvif félagsins hratt og örugglega.
Stutt er síðan Íslendingum stóð
fyrst til boða að fá þriðja aðila til að
veita húsaleigutryggingu og er þjón-
usta Standby Deposits af svipuðum
toga. Eins og lesendur þekkja krefj-
ast leigusalar tryggingar sem jafn-
gildir gjarnan eins til þriggja mán-
aða leigu og verja sig þannig gegn
mögulegu tjóni ef leigjandinn t.d.
veldur skemmdum eða stendur ekki
við skilmála leigusamningsins.
Fyrirtæki eins og Standby Deposits
veita ábyrgð sem getur komið í stað
þessarar tryggingar og þarf leigj-
andinn í staðinn að borga lágt mán-
aðarlegt gjald. „Bandaríkin eru mik-
ill leigjendamarkaður og sýna
opinberar tölur að þar býr um það bil
þriðjungur landsmanna í leiguhús-
næði. Í stórborgunum er leigan oft
býsna dýr og ef leigjandinn þarf að
reiða fram tryggingu í reiðufé getur
verið um mjög háa upphæð að ræða,“
segir Egill. „Að leigja t.d. dæmi-
gerða íbúð í New York gæti kallað á
um 7.000 dala tryggingu eða jafn-
virði hátt í einnar milljónar króna,
sem er stór biti fyrir flesta.“
Fá aðgang að bankaábyrgð
Viðskiptamódel Standby Deposits
reiðir sig á samstarf við bandarískar
fjármálastofnanir sem veita, í gegn-
um fyrirtækið, bankaábyrgð sem
nemur þeirri leigutryggingu sem
leigusali biður um. Er því ekki um
eiginlega tryggingu að ræða heldur
aðgang að lánsfé sem hægt er að
virkja í samræmi við ákvæði leigu-
samnings. Þegar ábyrgðin er nýtt
stofnast skuld sem leigjandinn ber
ábyrgð á að greiða og býður Standby
Deposits upp á þægilegar afborgan-
ir en rukkar vexti af upphæðinni þar
til skuldin er greidd að fullu.
Sú upphæð sem leigjandinn greið-
ir fyrir þjónustuna ræðst af lánshæf-
ismati hans, en er oft í kringum fjór-
ir dalir á mánuði fyrir hverja 1.000
bandaríkjadali í ábyrgð. Segir Egill
að Standby Deposits geti komið til
móts við alla hópa og meira að segja
þjónustað leigjendur sem eiga ekki
að baki viðskiptasögu í Bandaríkj-
unum, s.s. erlenda námsmenn og
fólk sem ræður sig til starfa erlendis
frá.
Á undanförnum árum hafa nokkur
fyrirtæki komið inn á Bandaríkja-
markað með svipaða vöru og reikn-
ast Agli til að markaðshlutdeild
þeirra sé samanlagt um 10%. Sú
nálgun Standby Deposits að veita
aðgang að bankaábyrgð frekar en að
selja eiginlega tryggingu þýðir að
fyrirtækið getur boðið umtalsvert
hagstæðari kjör en samkeppnisaðil-
arnir en að auki býður Standby
Deposits upp á hugbúnaðarlausn
sem auðveldar stjórnendum stórra
leiguþjónustufyrirtækja að hafa
skýra yfirsýn yfir sín leigutrygg-
ingamál. „Við ættum að standa vel
að vígi enda með góða vöru og betri
verð, og njótum á sama tíma góðs af
því að húsaleigutrygging í gegnum
þriðja aðila er komin á kortið hjá
bæði leigusölum og leigjendum. Er
nú svo komið að bæði borgir og ríki
víðs vegar um Bandaríkin vinna að
því að setja það í lög að leigusalar
verði að bjóða upp á svona þjónustu
sem valkost til viðbótar við greiðslu
tryggingar með hefðbundnum
hætti.“
Íhaldssamur markaður
Ávinningurinn er mikill fyrir alla
sem að viðskiptunum koma og segir
Egill að fyrir leigjendur geti komið
sér vel að binda ekki mikið fé í trygg-
ingu leiguíbúðar. „Fyrir ákveðna
hópa greiðir þessi þjónusta þeim leið
að leigumarkaðinum og er t.d. ekki
auðvelt fyrir nýútskrifaðan náms-
mann sem fengið hefur gott starf í
stórborginni að nurla saman pening-
um fyrir tryggingunni þó hann hafi
gott kaup og hafi hæglega efni á að
greiða leiguna af góðri íbúð. Fyrir
leigusalann, að sama skapi, stækkar
það markaðinn til muna að geta boð-
ið leigjendum upp á þennan valkost
og einfaldar á margan hátt það um-
stang sem fylgir því að geyma þá
fjárhæð sem leigjandinn hefur greitt
sem tryggingu og verður t.d. lögum
samkvæmt að skila með vöxtum sem
eru ekki þeir sömu og fást á innláns-
reikningum.“
Ýmsar hindranir þarf að yfirstíga
og segir Egill að það feli í sér áskor-
un að leigumarkaðurinn er í eðli sínu
íhaldssamur og gangi ekki áreynslu-
laust að fá leigusala til að taka upp ný
vinnubrögð. „En á allra síðustu árum
hefur orðið greinileg vitundarvakn-
ing um að hægt er að nýta tækni til
að bæta og einfalda ýmislegt sem við
kemur rekstri leiguíbúða. Ég hugsa
að þegar menn líta um öxl og lausnir
eins og Standby Deposits hafa náð
almennri útbreiðslu muni blasa við
hvað gömlu aðferðirnar voru óþjálar
og kostnaðarsamar.“
Standby Deposits virðist standa
vel að vígi til að gera viðskiptahug-
myndina að veruleika og hefur stofn-
endahópurinn á að skipafólki úr hug-
búnaðar-, fjármála- og húsaleigu-
geiranum en tveir þeirra eru
bandarískir og hinir tveir íslenskir.
Segir Egill að þó Standby Deposits
verði aðgengilegt einstökum leigu-
sölum og leigjendum þá verði fyrst
um sinn lögð megináhersla á að ná til
stóru leiguþjónustufélaganna sem
mörg hafa yfir svo mörgum íbúðum
að ráða að jafnast á við allan íslenska
leigumarkaðinn. „Það skiptir miklu
að hafa sem bestar tengingar innan
þessa geira enda ekki mjög stór hóp-
ur sem stjórnar honum og byggir ár-
angurinn á því að eiga greiðan að-
gang að rétta fólkinu.“
Bjóða Bandaríkjamönnum
upp á húsaleigutryggingu
- Leggja áherslu á leiguþjónustufélög sem eru á við allan íslenska leigumarkaðinn
að stærð - Markaður sem er á frumstigi og varan betri en hjá keppinautunum
Egill Almar
Ágústsson
AFP
Byrði Landslagið í New York. Húsaleiga er dýr í stórborgunum og hafa
leigjendur þurft að reiða fram mjög háar fjárhæðir sem tryggingu.
Stéttarfélag starfsmanna í kvik-
myndaiðnaði gerði á laugardag
bráðabirgðasamkomulag við full-
trúa bandarísku kvikmyndaver-
anna og afstýrði þannig verkfalli
sem átti að hefjast í dag, mánu-
dag, og hefði lamað kvikmynda-
framleiðslu í Hollywood.
Undir stéttarfélagið IATSE
falla um 60.000 manns sem starfa
á bak við tjöldin í kvikmynda- og
sjónvarpsþáttagerð en félags-
menn hafa kvartað undan miklu
álagi og löngum vinnudögum í
kjölfar þeirrar röskunar sem varð
á sjónvarps- og kvikmyndaiðnaði
Hollywood í kórónuveirufaraldr-
inum. Hefur uppsöfnun verkefna
orðið til þess að sumir stéttar-
félagar hafa neyðst til að vinna
fjórtán stunda vinnudag að því er
Reuters greinir frá.
Krafðist IATSE þess að settar
yrðu skýrari reglur um styttri
vinnutíma, matarhlé og hvíld-
artíma, og að laun vegna vinnu
fyrir þætti streymisveitufyrir-
tækja yrðu hækkuð en fyrir tíu
árum var samið um lægri taxta
fyrir slík störf þegar streymi
kvikmynda og þátta yfir netið var
að byrja að taka á sig mynd.
ai@mbl.is
Verkfalli
afstýrt í
Hollywood
Eftirspurn Allt er á fljúgandi ferð
í Hollywood um þessar mundir.
AFP
18. október 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 128.93
Sterlingspund 177.3
Kanadadalur 104.3
Dönsk króna 20.107
Norsk króna 15.329
Sænsk króna 14.918
Svissn. franki 139.42
Japanskt jen 1.1277
SDR 182.0
Evra 149.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.8448