Morgunblaðið - 18.10.2021, Side 14

Morgunblaðið - 18.10.2021, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrir helgi kvað við nýjan tón hjá Landspítal- anum um aðgerðir vegna kórónuveir- unnar. Settur for- stjóri spítalans, Guðlaug Rak- el Guðjónsdóttir, tók undir með framkvæmdastjóra hjúkrunar, Sigríði Gunnars- dóttur, um að spítalinn ætti að vera undir það búinn að takast á við tilslökun á sóttvarna- aðgerðum þrátt fyrir álag á bráðamóttöku. Sigríður benti á að Covid-sjúklingar færu ekki mikið í gegnum bráða- móttökuna og hefðu því ekki áhrif þar en meiri áhrif annars staðar og búið væri að gera ráð fyrir því í hættumati. Forstjóri spítalans sagði í samtali við Morgunblaðið að hún hefði rætt við sóttvarna- lækni um þetta og að rými væri til að slaka á aðgerðum, en að ráðast yrði í tilslakanir með raunsæi og varkárni og að taka yrði tillit til getu spítal- ans. Þetta eru fremur jákvæð skilaboð frá spítalanum og verða vonandi til þess að sótt- varnalæknir leggi til frekari tilslakanir á sóttvarnaaðgerð- um og að í framhaldi af því taki heilbrigðisráðherra ákvörðun um slíkar tilslakanir. En um leið og ástæða er til að vekja athygli á þessari jákvæðu þró- un er óhjákvæmilegt að benda á hve sérkennileg staða er uppi hér á landi eftir rúmlega hálfs annars árs glímu við kór- ónuveirufaraldurinn. Eftir all- an þennan tíma og þann mikla árangur sem náðst hefur er staðan enn sú að hér eru veru- legar takmarkanir á athafna- frelsi almennings vegna að- stæðna sem mögulega kunna að koma upp á Landspítal- anum. Og þá er jafnvel vísað til þess að skæðar kvefpestir eða flensur, sem landsmenn líkt og aðrir eiga að venjast í venjulegu ári, geti aukið svo álagið á spítalanum að það réttlæti skerðingu á frelsi al- mennings. Þessi staða kallar á umræð- ur langt umfram það sem að- eins snýr að kórónuveiru- faraldrinum. Eitt er að grípa til skamms tíma til hamlandi aðgerða til að bregðast við skyndilegri farsótt, allt annað er að halda þeim aðgerðum um lengri tíma og jafnvel að rétt- læta þær með annars konar pestum. Þórdís Kolbrún R. Gylfa- dóttir, ráðherra og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins, vék að þessu í grein í sunnudags- blaði Morgun- blaðsins um helgina og benti þar meðal annars á að verkefni stjórnvalda væri „töluvert flóknara en það sem sótt- varnayfirvöldum er falið. Stjórnvöldum ber að meta heildarhagsmuni samfélags- ins og geta ekki takmarkað út- sýni sitt við smittölur vegna einstakra sjúkdóma. Leggja þarf á vogarskálar hversu mikið er áunnið með þeim tak- mörkunum sem lagðar eru á samfélagið og hversu miklu er fórnað. Þær fórnir eru ekki aðeins efnahagslegar, heldur snúa þær líka að margvís- legum lífsgæðum og rétt- indum sem ekki er auðvelt að leggja tölfræðilega mælistiku á. Hvers virði er að lifa án þess að vera undir stöðugri áminningu um tilteknar hætt- ur og sjúkdóma? Hvers virði er að hafa möguleika til þess að ferðast? Hvers virði er frelsi frá afskiptum stjórn- valda í daglegu lífi?“ Þessar spurningar skipta sannarlega máli og þeim má að minnsta kosti svara með því að allt er þetta ákaflega mikils virði. Lífsgæði af þessu tagi geta þurft að víkja tíma- bundið þegar líf liggur við, en það þarf mikið til. Og það má aldrei líta á það sem sjálfsagt eða eðlilegt ástand að frelsi al- mennings sé skert, ekki held- ur vegna þess að mögulega sé von á frekar slæmri flensu. Heilbrigðisyfirvöld hafa haft drjúgan tíma til að búa spítalann og aðra þætti heil- brigðiskerfisins undir það að hömlum yrði aflétt og það geta vitaskuld ekki verið viðvar- andi rök fyrir hömlum hér á landi að sjálfur þjóðarspítal- inn sé svo veikburða að lands- menn geti ekki búið við það frelsi sem þeir eiga kröfu til. Sem betur fer virðist sem spít- alinn geti nú staðist frekari tilslakanir, en jafnvel þó að álagið þar verði mikið er fjarri því að það réttlæti alltaf höml- ur á athafnafrelsi almennings. Þórdís Kolbrún segir einnig í grein sinni að ekki komi til greina í hennar huga „að Ís- lendingar þurfi að sætta sig við að álag á heilbrigðiskerfið, af ýmsum ástæðum, sé notað sem réttlæting fyrir viðvar- andi skerðingu á réttindum og athafnafrelsi“. Þetta er sjón- armið sem aðrir ráðherrar og þingmenn geta vonandi tekið undir. Landspítalinn ræður við verkefnið, sem er gott, en á staða hans að ráða öllu?} Tímabært að slaka á hömlum H ækkaði Seðlabankinn vexti um daginn af því að skipulags- yfirvöld í Reykjavík hafa ekki verið nógu dugleg að útvega lóðir undir húsnæði? Það ætti ekki að vera flókið að fá svar við þessari spurn- ingu. Svar sem ekki er litað af pólitík og þeirri staðreynd að sveitastjórnarkosningar eru á næsta leiti. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur hald- ið því fram að ákvörðun Reykjavíkurborgar um að byggja ekki íbúðahverfi á nýju landi sé ástæða hækkandi fasteignaverðs sem sé síðan helsta orsök hækkandi verðbólgu. Vaxtahækk- anir séu svo nauðsynlegar til að hafa hemil á verðbólgunni. Hér vantar stóran kafla í söguna. Líkt og flest önnur vestræn hagkerfi brást hið íslenska við með vaxtalækkunum þegar hér fór allt í lás í upphafi síðasta árs vegna Covid. Eins og annars staðar höfðu þær vaxtalækkanir áhrif til hækkunar á húsnæðisverði. Til við- bótar við vexti í sögulegu lágmarki var hér kaupmáttur í sögulegu hámarki og aukinn stuðningur við fyrstu íbúða- kaup. Þessar aðstæður leiddu m.a. til hliðrunar á eft- irspurn frá leiguhúsnæði yfir í eignahúsnæði. Vaxtalækk- anir og breytt neysluhegðun leiddu þannig hækkun á húsnæðisverði. Byggingamarkaður verður aldrei mjög skilvirkt hags- tjórnartæki. Það fer auðvitað best á því að sem mestur stöðugleiki ríki enda tekur skipulags- og byggingartími nýrra hverfa langan tíma og ekki auðvelt að bregðast hratt við örum sveiflum í eftirspurn. Seðla- bankinn getur því ekki vísað ábyrgð á við- brögðum við áhrifum vaxtalækkana á sveit- arfélögin. Það að skipulagsyfirvöld í Reykjavík vilji til dæmis stýra uppbyggingu húsnæðis og nýrra hverfa er ekki áhyggjuefni. Það er hins vegar áhyggjuefni að frá því fyrir tíma Covid hefur verðbólga hér mælst yfir verðbólgu- markmiðum eða í 32 af síðustu 36 mánuðum. Vaxtalækkanirnar í fyrra voru því miður ekki vegna hagstæðra verðbólguhorfa heldur vegna niðursveiflu í hagkerfinu í boði Covid. Nú þegar aftur sér til sólar þar er rétt að hækka vexti aftur því blessuð verðbólgan okk- ar er enn í fullu fjöri. Peningastefnan sem örv- aði hagkerfið á tímum faraldursins á ekki leng- ur við. Nú þarf aftur að takast á við að ná settum verðbólgumarkmiðum. Það er verkefni Seðlabankans. Undanfarið hafa fullyrðingar og upphrópanir ýmissa hagsmunaaðila í tengslum við húsnæðismál og vaxta- ákvarðanir ekki allar verið sérstaklega málefnalegar. Að halda sig við að meintur lóðaskortur í Reykjavík sé ástæða verðbólgu og vaxtahækkana er vægast sagt einföld sögu- skýring sem vekur einfaldlega upp spurningar um hvað liggi þar að baki. Kannski má finna svarið í einhvers konar Reykjavíkurheilkenni í aðdraganda sveitarstjórnarkosn- inga frekar en málefnalegri hagsmunagæslu? hannakatrin@althingi.is Hanna Katrín Friðriksson Pistill Lóðir, vextir og pólitík Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Þ að er að sjálfsögðu okkar hlutverk að uppfylla óskir og þarfir lesenda. Hljóð- bókin hefur slegið í gegn og því höfum við gefið allt í botn þeg- ar kemur að framleiðslu og útgáfu,“ segir Egill Örn Jóhannsson, fram- kvæmdastjóri Forlagsins. Vinsældir hljóðbóka hafa aukist mikið á síðustu árum. Því er ekki síst að þakka tilkomu Storytel sem býður upp á streymisþjónustu í áskrift. Forlagið hefur um árabil verið stærsti bókaútgefandi landsins og nú ber svo við að í ár sendir fyrirtækið í fyrsta skipti frá sér fleiri hljóðbækur heldur en prentaðar bækur. Gamlar perlur bætast við „Við tókum þá ákvörðun í upp- hafi árs að svara þessari gríðarlegu eftirspurn og reistum nýtt og full- komið hljóðverk í húsnæði Forlags- ins á Fiskislóð. Þar höfum við fram- leitt hljóðbækur sleitulaust í ár og nú stefnir í að fjöldi útgefinna titla á hljóðbók verði næstum því tvöfaldur á við nýjar prentaðar bækur,“ segir Egill. Hann segir að alger viðsnún- ingur hafi orðið á síðustu árum. Áður hafi það heyrt til undantekninga að Forlagið gæfi út hljóðbækur en nú er hægt að nálgast bæði nýjar og ný- legar bækur á hljóðbók – sem og ýmsar perlur íslenskra bókmennta. Eldri bækur margra þekktra höf- unda hafa verið lesnar inn á hljóðbók að undanförnu, til að mynda þeirra Kristínar Marju Baldursdóttur, Guðrúnar frá Lundi og Einars Kára- sonar. „Mér sýnist stefna í að fjöldi hljóðbóka hjá okkur á þessu ári verði um eða yfir 200 titlar. Prentaðir titl- ar verða hins vegar um 130,“ segir Egill. Framkvæmdastjórinn kveðst fagna auknum áhuga fólks á hljóð- bókum. „Ég held að bæði tilkoma Storytel og tæknin að geta streymt hljóðbókum hafi gjörbreytt aðgengi almennings að hljóðbókum. Mín til- finning er að við höfum kannski að einhverju leyti misst af rafbókavæð- ingunni sem varð víða fyrir um ára- tug. En við erum að taka hljóð- bókabyltinguna með trompi í staðinn. Við hjá Forlaginu höfum stigið risaskref á þessu ári og mark- miðið er að gefa ekki færri en 200 titla á ári á næstu árum.“ Yfir 1.000 bækur frá upphafi Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni Hjörleifssyni, fram- kvæmdastjóra Storytel á Íslandi, hefur Storytel framleitt yfir 200 ís- lenskar hljóðbækur á árinu og gefið út yfir 1.000 bækur frá upphafi. „Áherslur í útgáfu hafa hins vegar breyst nokkuð á árinu og hefur út- gáfa Storytel Originals, þ.e. bóka sem eru sérstaklega skrifaðar fyrir hljóðbókaformið fyrir Storytel auk- ist verulega og nú flestir ef ekki allir útgefendur farnir að gefa út hefð- bundnar hljóðbækur,“ segir Stefán. Hann segir enn fremur að á næsta ári muni Storytel gefa út yfir 30 titla undir merkjum Storytel Original bæði sem hljóðbækur og svokölluð hlaðvörp eftir handriti (e. Scripted audio series) sem hafa notið mikilla vinsælda erlendis. Stefán segir það til marks um gróskuna í þessum geira að nú komi að jafnaði 1-2 nýjar hljóðbækur á dag á Íslandi. Stefán bendir á að kannanir hafi sýnt fram á að áskrifendur Storytel kaupi fleiri prentaðar bækur en þeir sem ekki eru áskrifendur og styðji þessi tvö form bóka því hvort annað. „Hljóðbókin hefur þannig snúið tíu ára samdrætti bókageirans í vöxt og gott betur og eru heildartekjur þeirra greinar nú hærri en þær voru árið 2008 þegar best lét,“ segir Stef- án. Fleiri hljóðbækur en prentaðar í fyrsta sinn Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bókmenntir Forlagið gefur í ár í fyrsta skipti út fleiri titla á hljóðbók heldur en prentaðar bækur. Eldri perlur eru nú lesnar inn á hljóðbækur. Egill Örn Jóhannsson Stefán Hjörleifsson Stefán Hjörleifsson hjá Storytel segir aðspurður að á Íslandi séu í boði rúmlega 3.000 íslenskar hljóðbækur og um 200.000 hljóðbækur á ensku, sænsku, dönsku, auk hundraða þúsunda rafbóka. „Þrátt fyrir að hlutfall ís- lenskra hljóðbóka af heildarfjölda í safninu sé einungis um 1,7% kjósa Íslendingar íslenskt efni og er 85% af hlustun á Storytel á ís- lenskar bækur. Rafbækur eru einnig að sækja á en nú eru um 1.500 íslenskar rafbækur í þjón- ustunni og er sá vöxtur knúinn áfram af sérstöku lesbretti sem Storytel setti á markað fyrir um ári síðan og hefur notið mikilla vinsælda,“ segir hann. Vilja hlusta á íslenskt efni 3.000 ÍSLENSKAR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.