Morgunblaðið - 18.10.2021, Side 15

Morgunblaðið - 18.10.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021 Gæsla Lögreglumenn í bílalest Fiðriks, krónprins Dana, slökuðu á á meðan færi gafst. Friðrik sótti Ísland heim til þess að taka þátt í hringborði norðurslóða, eða Arctic Circle. Kristinn Magnússon Hópur fólks, einkum ungs fólks, er að fyll- ast örvæntingu vegna loftslagsvandans. Auð- vitað er ástandið al- varlegt, en engin ástæða til ofsa- hræðslu. Hitastigs- breytingar eru langt innan þeirra marka sem hitinn hefur sveiflast á milli und- anfarin árþúsund. Hér á Íslandi hefur nánast ekkert hlýnað síðustu hundrað árin, svo dæmi sé tekið. Í loftslagssögunni er ekki dæmi um nema eina hamfarahlýnun, en ísald- ir, sem er mun verra, koma á 80- 100.000 ára fresti. Eins og lofts- lagsmál standa er ekki nokkur leið að spá um hvort við séum að kalla yfir okkur hamfarahlýnun eða slá næstu ísöld á frest. Aðgerðir stjórnvalda U.þ.b. helmingur raforkuvinnslu heimsins byggist á kolum og olíu. Það er orðið of seint að breyta yfir í kjarnorku, umhverfissinnar vilja leggja hana niður og þá verður bætt í kolin. Evrópsk og amerísk orkukerfi eru nánast fullbyggð og fólki þar hætt að fjölga. Vanda- málið í dag er Asía og Afríka. Ef bjarga á loftslaginu verður það að gerast þar, losunarskattar og að- gerðaáætlanir í öðrum heimsálfum gera það ekki. Niðurstaðan er því sú að þrátt fyrir ítrek- aðar heitstrengingar og skuldbindingar á alþjóðlegum þingum er losun ennþá að aukast. Ísland Raforkuvinnslan notar hvorki kol né ol- íu, svo hér á Íslandi er svo gott sem ekkert hægt að gera til að draga úr losun lands- ins ef menn ætla ekki að stöðva samgöngur og fiskveiðar og senda landið aftur í miðaldir. Stóriðjan og losun hennar fer í taugarnar á mörgum, en hafa verð- ur í huga að stóriðja á hreinni orku losar aðeins brot af stóriðju á olíu- orku. Ísland getur því gengið til samstarfs við önnur ríki um að stórauka þennan iðnað og þannig haft jákvæð áhrif á alþjóðlega þró- un loftslagsmála. En Ísland er búið að semja sig frá þessum möguleika. Umhverfisráðherra gengur nú hart fram í að friða allt sem hægt er að friða með því augljósa markmiði að koma í veg fyrir slíka þróun. Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum Plagg með þessu nafni var gefið út af ríkisstjórninni, þ.e.a.s. umhverfisráðuneytinu. Þarna er boðuð minnkandi losun, eins og fyrsti dálkurinn í meðfylgjandi töflu sýnir. Annar dálkurinn sýnir jafngildi losunarinnar í olíu, en erfitt er að minnka losun í liðunum A, B og C án þess að spara olíu eða bensín. Þegar liður A er skoðaður í að- gerðaáætluninni kemur í ljós að meginástæða hins áætlaða 50.000 tonna sparnaðar af olíujafngildi er vegna borgarlínunnar. Að borgar- línan spari einhverja losun er hrein skröksaga eins og sýnt hefur verið fram á (sjá www.samgongurfyriralla.com og blaðaskrif þess hóps). Þvert á móti; hún eykur óþarfa eldsneytis- eyðslu og losun með því að tefja aðra umferð. Umferðartafirnar eru þegar orðnar miklar, en áhrifa þeirra er hvergi getið í aðgerða- áætluninni eða skýrslum um borg- arlínu. Telja verður að áhrifin af þessu verði að 20.000 tonn bætist við eldsneytiseyðslu í samgöngum eins og sýnt er í þriðja dálki töfl- unnar. Þáttur sérfræðinga Vitnað er til sérfræðinga í að- gerðaáætluninni. Ef haldið er áfram með borgarlínuna, þá er orð- ið ljóst að áætluð áhrif hennar á ferðaval koma frá pólitíkusunum sjálfum. Það er lítið gagn í sér- fræðiálitum þegar sérfræðingar eru að segja eitthvað í sínum skýrslum sem áður var búið að segja þeim; af þeim sem pantar skýrsluna! Loftslagsblekkingin Af þeim gögnum sem birt eru í aðgerðaáætluninni er ekki að sjá neitt sem réttlætir losunarminnk- unina í liðum B og C. Hægt er að spara losun í þessum liðum með breyttum vél- og tækjabúnaði, slík- ar rannsóknir voru í gangi fyrir 40 árum en ekkert í dag að séð verður. Því er ekki hægt annað en áætla þá liði 0, en líklega mundi koma út úr þeim aukin losun ef málið er skoðað nánar. Niðurstaðan er því +20 í stað –270. Það er ábyrgðarhluti ef ríkisstjórnin ætlar að beita blekk- ingum af þessu tagi til að friða þann hóp sem hún sjálf er búin að hræða að óþörfu. Raunhæfar að- gerðir eru til, það er hægt að ráð- ast að umferðarvandanum, það er hægt að smíða skip og flutningabíla á rafmagni, en það þarf eitthvað að gera til þess að slíkt verði að veru- leika, það dugar ekki að gefa út að- gerðaáætlun og bíða svo eftir orku- skiptum með kraftaverki. Loftslagsvandinn verður ekki leyst- ur með kraftaverkum eða blekk- ingum og ábyrgð umhverfisráherra er mikil að standa fyrir slíku. Verðlausar orkulindir Á núverandi markaðsverði er verðmæti losunarheimilda málmiðn- aðar á Íslandi um 80 m EUR eða 12 Mia ISK og fer hratt hækkandi. Nú skal málmiðnaður draga úr los- un samkvæmt aðgerðaáætluninni, sem væntanlega þýðir samdrátt í framleiðslu og kaupum á raforku, vinnu og þjónustu sem er mikil aft- urför í atvinnumálum. Að lokum mun hagkvæmast fyrir málm- bræðslurnar að loka og selja sinn losunarkvóta. Þar með verður þeim mönnum að ósk sinni sem vilja losna við stóriðjuna, en í staðinn situr Ísland uppi með verðlausar orkulindir. Þegar stóriðjan er farin situr landið uppi með virkjanir sem duga henni um aldur og ævi og allt jákvætt framlag Íslands til lofts- lagsmála að engu gert. jonaseliassonhi@gmail.com Eftir Jónas Elíasson » Aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum skilar engum árangri í losun en gæti gert orkulindir landsins verðlausar. Jónas Elíasson Höfundur er prófessor. Loftslagsáætlunin: Verðlausar orkulindir og sýndarmennska Áætlað Jafngildi Raun CO2 Olía Olía A. Samgöngur á landi -161 -50 20 B. Skip og hafnir -320 -100 0 C. Orkuframleiðsla og smærri iðnaður -384 -120 0 Samdráttur í losun, þúsund tonn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.