Morgunblaðið - 18.10.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 18.10.2021, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021 Það þarf fólk eins og þig fyrir konur eins og okk- ur. Saumaklúbbur- inn var stundum stirður af stað á haustin, þá tók Bryndís af skarið og skellti í klúbb, ekki málið, hrista saman hópinn og hittast eftir sumarfríið. Hún var fram- takssöm, ekki mikið fyrir vol og væl, hún var hjálpsöm á svo marga vegu en lét ekkert á því bera því það var henni svo eðl- islægt. Margt höfum við brallað sam- an þessi 40 ár sem saumaklúbb- urinn hefur starfað, utanlands- ferðir, innanlandsferðir, óvissuferðir, gönguferðir og hitt- ingar. Núna fyrsta október eru 40 ár liðin síðan fyrsti sauma- klúbburinn var haldinn og er okkur minnisstætt að ekki þótti Bryndísi umræðuefnið oft spennandi, barnauppeldi og bleyjur, það breyttist síðan fljót- lega þegar hún var orðin þriggja barna móðir fyrst okkar, alltaf sami krafturinn og ekkert mál. Fyrstu árin liðu og fjölskyld- urnar stækkuðu, lífið var ein- Bryndís Theodórsdóttir ✝ Bryndís Theo- dórsdóttir fæddist 19. ágúst 1960. Hún lést 9. október 2021. Bryndís var jarð- sungin 16. október 2021. faldlega í fastri rút- ínu en eitthvað fannst körlunum við vera frekar nískar og ekki bjóða þeim að vera með, alla vega gáfu þeir okk- ur nafnið Níska Nálin, okkar mót- leikur var að panta siglingu um Karíba- hafið, hugmynd sem fæddist yfir jólaföndri og þremur mánuðum seinna í mars árið 1996 var ferð- in farin en nafninu höldum við því okkur þykir orðið vænt um Nísku Nálina og minningin um ferðina góðu er okkur dýrmæt. Nú í annað sinn á fimm árum syrgjum við kæra vinkonu og saumaklúbbssystur, en árið 2016 lést Ólafía Dröfn Hjálmarsdótt- ir. Stórt skarð er nú höggvið í okkar þétta og góða vinahóp, sárast og mest er samt skarðið sem nú er höggvið í fjölskyld- una. Elsku Guðni, Sigrún, Guðný, Þorkell og litli sólargeisl- inn Steinar Flóki, Guð gefi ykk- ur styrk til að takast á við sorg- ina, það er svo stutt síðan við samglöddumst vinkonu okkar þegar litli ömmustrákurinn kom í heiminn og átti hann hug og hjarta ömmu sinnar og afa. Okkar kæra vinkona kvaddi okkur í lok september þegar þau hjónin fóru til Spánar og var saumaklúbbsplanið spilað eftir því, fyrsti klúbbur vetrar var festur niður laugardaginn 9. október en í staðinn sátum við saman það kvöld í stofunni hjá Möggu lamaðar af sorg. Elsku Bryndís, þín verður sárt saknað en minning þín lifir. Þú komst til að kveðja í gær. Þú kvaddir og allt varð svo hljótt. Á glugganum frostrósin grær. Ég gat ekkert sofið í nótt. (Freymóður Jóhannsson) Níska Nálin: Hjördís, Jenný, Júlíanna, Margrét og Olga. Sú sem gott er að eiga að trúnaðarvinkonu. Sú sem fer með mér á vit ævintýra. Sú sem ég sýni það sem ég hef keypt. Sú sem stendur með mér. Sú sem ég læt mér annt um. Sú sem stendur mér nærri í gleði og sorg. Það ert þú. (Pam Brown) Bryndís vatt sér að mér fyrir 41 ári og sagði eigum við ekki að vera vinkonur? Mömmur okkar höfðu verið saman á síld á Helgu RE og góðar vinkonur. Góðar og traustar vinkonur upplifa með manni alls konar. Við erum fimm vinkonurnar eftir í saumaklúbbnum okkar, við kveðjum nú aðra vinkonu á fimm árum í fjörutíu ár höfum við átt hvora aðra að. Þrjár okkar hafa verið að ganga saman og eru minning- arnar allstaðar og allt um kring. Ferðirnar okkar skilja eftir, fal- legar minningar, orku og gleði. Ferðin að eldgosinu var samt virkilegt púl en Bryndís var ákveðin að koma okkur Möggu þangað og auðvitað tókst það sem betur fer. Önnur mögnuð ferð var Jónsmessunótt upp á Snæfellsjökli, já og svo gengum við í fyrra vetur kring um Kirkjufell ekki séns að hætta við þrátt fyrir ískulda og fljúgandi hálku á köflum sá kafli var þá bara skriðin og alla leið kom- umst við óbrotnar en smá blaut- ar og bláar af kulda. Hún skipulagði óvissuferðir fyrir saumaklúbbinn, gönguhóp- inn og stundum einkaferðir fyrir mig, þurfti að hressa vinkonu sína við eins og hún sagði. Ein ferðin átti að vera stutt en að kvöldi dags höfðum við farið kring um Kirkjufell og síðan í súpu í Fjöruhúsið á Hellnum með tilheyrandi stoppi. Önnur eftirminnileg ferð byrj- aði á því að hún sótti mig á kaffi- húsið, var þá búin að semja við dóttur mína að leysa mig af því við værum sko að fara í óvissu- ferð. Berserkjagötuna hafði hún valið, því hún var á óskalistanum mínum, síðan á heimleiðinni stoppuðum við í Kolgrafafirði þar hafði þá grindhvalavaða far- ið inn fyrir brú og björgunar- aðgerðir voru í gangi. Það var bara hún sem gat pantað og töfr- að fram svona óvissuferð. Ég sagði henni þá og sem betur fer oft hvað hún væri mér mikils virði og hve gott væri að eiga hana að. Þegar ég var að strögla við krabbamein þá var hún ótrúlega fundvís á erfiða daga, átti til að birtast heima hjá mér til að hressa mig við og auðvitað komst maður ekkert upp með neina eymd þegar hún var mætt á svæðið. Við erum svo mörg sem eigum margar góðar minningar um samveru, ferðalög, samvinnu og margt fleira. Um bæði nær- gætni, ögrun, stríðni og alveg óendanlega ást og umhyggju. Börnin mín, barnabörnin og Maríanna systurdóttir mín feng- um stóran skammt af gæðunum sem hún geislaði af, Elsa mín átti sérstaklega góð sumur með Bryndísi og fékk allan skalann af hennar persónuleika, þær vin- konurnar hurfu oft á bak við hús til að telja steinanna og spjalla. Fjölskylda Bryndísar sér nú á eftir einstakri eiginkonu, móður og ömmu, einnig systkini hennar og fjölskyldur þeirra, Bryndís var kletturinn þeirra allra. Elsku Guðni, Sigrún, Guðný, Þorkell og Steinar Flóki, ömmu og afastrákurinn Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tímum kæru vinir. Elsku Bryndís þín verður sárt saknað en minning þín og vin- áttan lifir. Olga, Grétar og fjölskylda. Það er tómlegt að sitja á skólabókasafninu í grunnskólan- um, panta nýútkomnar bækur fyrir krakkana og það er engin Bryndís sem kemur og skoðar yfir listann. Enn tómlegra verð- ur að taka á móti bókasending- um og það er engin Bryndís sem gramsar með mér í kassanum, spáir og spekúlerar. Við áttum okkar stundir á bókasafninu. Hún var mikil bókakona, las krimma en einnig hafði hún sér- stakan áhuga á barna og ung- lingabókunum. Það var hægt að ræða við hana um bækurnar, hún hafði sterkar skoðanir og sá oft í þeim eitthvað sem ég hafði ekki séð. Æði oft fór hún heim með bækur sem voru al- veg nýútkomnar, las og sagði mér frá, svo ég gæti komið þeim á framfæri við þennan eða hinn bekkinn sem henni fannst henta. Svona áttum við það til að skipta með okkur bókalestri fyrir krakkana. Hún hrósaði, hvatti og gaf mér ráð. Og ég fann að hún meinti það sem hún sagði. „Mikið er orðið fínt,“ sagði hún í hverjum einasta nóvember þegar jólin fóru upp á safninu. Og þegar ég kvartaði við hana um eitthvað sem mér fannst misheppnað hjá mér sagði hún „hafðu engar áhyggj- ur, börnin kunna að meta þetta“. Öll lestrarátök, skreyt- ingar, þemu bókasafnsins, allt þetta gat ég ávallt rætt við hana og upp úr þeim samræðum kviknaði oftast eitthvað skemmtilegt. Hún var alltaf boðin og búin til að aðstoða ef á þurfti að halda og alltaf með börnunum í liði. Við vorum ekki alltaf sammála en það var líka allt í lagi. Bókasafnið er æði tómlegt án hennar innlita og jólabókaflóð bókasafnsins verður ekki eins án minnar kæru samstarfskonu. Elsku Guðni og aðrir að- standendur Bryndísar, ég sendi ykkur samúðarkveðjur á þess- um erfiðu tímum, blessuð sé minning Bryndísar Theodórs- dóttur. Guðrún Lilja Magnúsdóttir. ✝ Magney Efemía Stein- grímsdóttir fæddist á Torfustöðum í Svartárdal 1. maí 1935. Hún lést á Hrafnistu, Sléttu- vegi, 7. október 2021. Foreldrar Magn- eyjar voru hjónin Ríkey Krístín Magnúsdóttir, f. 11. júlí 1911, d. 9. september 2005, og Steingrímur Bergmann Magnússon, f. 15. júní 1908, d. 13. mars 1975. Systkini Magn- eyjar: 1) Guðrún Þórunn, f. 9. október 1932, d. 4. september 2018, gift Ingólfi Bjarnasyni, f. 15. mars 1921, d. 22. maí 2000. Börn: Birgir Þór, f. 14. júlí 1951, giftur Rögnu Árnýju Björns- dóttur, f. 15. júní 1963. Bjarni Brynjar, f. 1. janúar 1956. 2) María Karolina, f. 19. október 1933, gift Sigurjóni Ólafssyni, f. Örnu Maríu Smáradóttur, f. 17. janúar 1976. Ingibjörg Magn- úsdóttir, f. 28. desember 1972. Ríkey Huld, f. 8. apríl 1979, gift Ólafi Jóhanni Jónssyni, f. 8. nóv- ember 1979. Magney ólst upp á Torfustöð- um þar til foreldrar hennar bregða búi og flytja að Eyvind- arstöðum í Blöndudal 1947. Hún gekk í barnaskóla Bólstaðahlíð- arhrepps og húsmæðraskólann á Löngumýri. Hún flyst til Reykjavíkur eftir 1960 og bjó þar með manni sínum, Bern- harði Sturlusyni, en þau slitu samvistum. Sem ung kona vann Magney á saumastofunni Tólidó, var ráðskona í fjallaferðum með Úlfari Jakobssyni og á heilsu- hælinu í Hveragerði. Hún vann við afgreiðslustörf í mörg ár, rak verslunina Grensáskjör um tíma og vann síðustu árin sem húsvörður og sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Útför Magneyjar fer fram frá Lindakirkju í dag, 18. október 2021, athöfnin hefst klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt frá Lindakirkju, https://www.lindakirkja.is/utfarir/ Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat 8. október 1922, d. 13. janúar 1971. Seinni maður Sig- urður Sigurðsson, f. 28. desember 1926, d. 5. júlí 1984. Dóttir Maríu og Sigurjóns er Guð- rún, f. 22. apríl 1956. 3) Bragi Bergmann, f. 15. september 1948, giftur Elínu Guð- rúnu Magnúsdóttur, f. 25. nóv- ember 1946. Börn: Steingrímur Magnús, f. 23. maí 1969, giftur Sylvíu Þórarinsdóttur, f. 20. jan- úar 1975. Ríkharður Sveinn, f. 22. júní 1971, giftur Oddnýju Þóru Baldvinsdóttur, f. 8. nóv- ember 1970. Magney Ósk, f. 30. september 1981, gift Bjarna Má Ásgeirssyni, f. 12. ágúst 1982. 4) Steingrímur Magnús, f. 2. júní 1951, giftur Lilju Pálsdóttur, f. 15. janúar 1948. Börn: Sigurjón Hólm, f. 31. júlí 1971, kvæntur Minningin er mild og góð, man ég alúð þína, stundum getur lítið ljóð, látið sorgir dvína. Drottinn sem að lífið léði, líka hinsta hvílu bjó, dýrð sé yfir dánarbeði, dreymi þig í friði og ró. (Bjarni Kristinsson) Með hlýju, þakklæti og sökn- uði í hjarta kveð ég elskulegu mágkonu mína hana Möggu eða Möggu frænku eins og hún var alltaf kölluð af frændsystkinum sínum. Magga hélt mikið upp á fjölskylduna sína og öll systkina- börnin voru henni mjög kær. Hafði hún nóg að gera að mæta í öll afmælin því ekki mátti frænku vanta í partíið með heimsins bestu pönnukökur. Ekki má gleyma öllum fjölskyldumótun- um sem haldin voru á hverju sumri fyrir norðan, voru það mestu fagnaðarfundir fyrir bæði börn og fullorðna. Magga var mikil handavinnukona, saumaði, heklaði og prjónaði mörg lista- verkin. Hún vann meðal annars á saumastofu, við umönnun á Heilsu- hælinu í Hveragerði, við verslunar- störf og sem húsvörður en í frítíma sínum í Rauðakrossbúðinni í fjöldamörg ár. Hún mágkona mín var mjög dugleg kona, það sást best þessi síðari ár þegar bakið og fæturnir fóru að gefa sig, en hún lét það ekki trufla sig, fór allra sinna ferða á göngugrindinni og keyrði bílinn sinn meðan kraftar leyfðu. Henni fannst það lúxus að geta keyrt því hún vildi alltaf bjarga sér sjálf. Já, hún var mögnuð kona, það kom best fram þegar heilsan þvarr og hún þurfti á allri aðstoð að halda og vera upp á aðra komin, alltaf ánægð með allt, aldrei heyrðist nema þakklæti frá henni um að all- ir væru svo góðir við hana. Hún fór á hjúkrunarheimilið Hrafnistu við Sléttuveg í sumar, þar leið henni vel, dásamaði fólkið sem hugsaði um hana og fannst lúxus eins og hún sagði að fá alla aðstoð, þurfa ekkert að gera sjálf. Já, hún Magga var einstök kona, vildi öllum vel og var mjög jákvæð um lífið í kringum sig. Við fjölskyldan eigum eftir að sakna hennar við jólaborðið á að- fangadag en hún hefur verið með okkur um öll jól nánast allan okkar búskap. Minningarnar eru margar og góðar en þær verða geymdar í hugum okkar. Að leiðarlokum vilj- um við þakka þér fyrir samferðina í þessi 54 ár sem við höfum þekkst og biðjum góðan guð að taka vel á móti þér í sumarlandinu. Við vott- um allri fjölskyldunni dýpstu sam- úð. Magga mín, far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson.) Elín Guðrún Magnúsdóttir og Bragi Bergmann Steingrímsson. Þá er komin kveðjustund. Magga frænka eins og hún var ávallt kölluð verður borin til grafar í dag og langar mig að minnast hennar með fáeinum orðum. Möggu hlotnaðist ekki sú gæfa að eignast börn, það sagði hún mér þegar hún lá á spítalanum síðustu jól, „þannig er nú bara líf- ið Magney mín,“ sagði hún. En við börn systkina hennar og okk- ar börn hafa svo sannarlega notið hennar góðvildar. Það voru ófá skutlin, alltaf nennti hún að snú- ast með mann. Mér þótti mjög gaman að vera hjá Möggu sem barn, hún átti mikið af kremum og ilmvötnum í baðskápnum sín- um og það var alltaf leyfilegt að skoða og prufa öll kremin og ilm- vötnin alveg eins og maður vildi. Magga var með meistaragráðu í pönnukökubakstri enda hús- mæðraskólagengin, en hún gekk í húsmæðraskólann á Löngu- mýri, ég upplifði það frá Möggu að það hafi verið henni góður tími. Magga var ekki mikið að að ræða sig eða sín mál heldur var hún meira að hugsa um aðra og það var kannski ekki fyrr en í seinni tíð að ég fór að velta henn- ar lífshlaupi fyrir mér og spyrja hana. Magga var sjálfstæð kona, hún var vön að gera alla hluti sjálf og fór sinna erinda á sínum græna bíl. Hún var lunkin með tölur og var fljót að reikna sem nýttist henni vel við störf sín, en hún rak verslunina Grensáskjör í mörg ár ásamt öðrum afgreiðslu- störfum. Sem ung stúlka ætlaði hún að verða „hjúkrunarkona“ sem þá var kallað en í dag er það „hjúkrunarfræðingur“. Þetta sagði hún mér ekki fyrr en löngu eftir að ég sjálf varð hjúkrunar- fræðingur. Magga hefur verið í kringum tvítugt þegar hún starf- aði á Hressingarhælinu í Hvera- gerði og langar mig að kveðja með ljóði til hennar frá gömlum manni sem launaði henni um- hyggjuna með þessum orðum: Ljúfa, stillta, lipra snót lífsins braut þér greiði. Guð og leiði góðs á mót gæfa faðm þér breiði. Elsku Magga, góða ferð í sum- arlandið takk fyrir allt og allt Magney Ósk Bragadóttir. Magney Steingrímsdóttir „Fyrsta kjólinn minn saumaði ég þegar ég var ellefu ára gömul. Ég tók gamlan kjól og spretti honum upp og tók síðan sniðið eftir honum,“ sagði Heiða við mig einhvern tímann þegar tími gafst í stutt spjall frá annasömum störfum hennar í mötuneytinu í Verslunarskólanum. Mér fannst þetta lýsa henni vel og gleymdi þessu ekki. Aðalheiður var af vest- firskum ættum en einnig komin af Ströndum og dugnaðurinn og kjarkurinn leyndi sér ekki. Hún kom til starfa í skólanum upp úr 1980 og vakti strax eftirtekt starfs- fólksins fyrir myndarskap í öllum verkum sínum. Allt sem hún brá þvöru í hafði notalegan keim, var Aðalheiður Árnadóttir ✝ Aðalheiður Árnadóttir fæddist 19. desem- ber 1928. Hún lést 28. september 2021. Útför Aðalheiðar fór fram 9. október 2021. einhvern tímann sagt um konu sem þótti búa til góðan mat og það mátti svo sannar- lega segja um Aðal- heiði. Ævinlega var eitthvert nýbakað kruðerí á borðum þegar þáttaskil urðu í starfi okkar kennar- anna. Okkur varð brátt vel til vina og hún sagði mér margt að vestan og var alltaf hrein og bein í tali um menn og málefni. Aðalheiður var myndarleg kona svo að eftir var tekið og bar sig vel. Hún var hannyrðakona og hafði gaman af að klæðast vel og hafa fal- legt í kringum sig. Það sá ég síðast þegar ég gat litið inn til hennar vestur á Ísafirði fyrir þremur árum en þar dvaldi hún á Heilbrigðis- stofnun Vestfjarða. Hún tók mér fagnandi og við áttum gott spjall saman um gamla daga. Sé hún nú guði falin og kært kvödd. Ættingjum hennar sendi ég mínar bestu samúðarkveðjur. Gunnar Skarphéðinsson. Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.