Morgunblaðið - 18.10.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 18.10.2021, Qupperneq 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021 alestur sj vi n f r l bla ið æ am ur b - ra e a M nbl ið viku, 22 la ið agleg um 100.000 manns 8 * G ll Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ef þú heldur vel á spöðunum varð- andi ákveðið mál muntu sjá það leysast far- sællega. Spennan sem var í vissu sambandi er að lognast út af. 20. apríl - 20. maí + Naut Farðu þér hægt í að gera aðra að trún- aðarmönnum þínum. Reyndu að gera ekki of miklar væntingar til annarra. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Notaðu daginn til þess að meta eiginfjárstöðuna, hann er frábær til þess. Reyndu að koma sem mestu í verk. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Á þessum árstíma er nauðsynlegt að tryggja undirstöður sínar og finna út úr því hvað aðrir eiga inni hjá þér. Finndu út hvaða stefnu þú vilt taka og fylgdu henni eft- ir. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Gefðu þér tíma til að aðstoða vini sem hafa leitað hjálpar hjá þér. Láttu ekki draga þig inn í þrætur eða samningaviðræður. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú gætir slegið einhverja út af laginu er þú viðrar skoðanir þínar vegna þess að þeir skilja ekki viðhorf þín. Sumum hlutum fær enginn breytt. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ættir að staldra við og gefa þér tíma til þess að vega líf þitt og meta. Láttu alla sjálfsmeðaumkun lönd og leið og treystu á sjálfan þig ef þú vilt koma einhverju í verk. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Nú er rétti tíminn til þess að gera langtímaáætlanir fyrir heimilið og vinn- una. Skilningur þinn á þörfum vina og ná- granna er meiri en endranær. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þótt þú hafir verið fastur fyrir í ákveðnu máli verður eitthvað til þess að þú skiptir um skoðun. Stundum getur svo virst að breytingar séu nauðsynlegar breyting- anna vegna. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú hefur lagt hart að þér og nú er komið að því að þú getir sýnt öðrum árangur erfiðis þíns. Leyfðu öðrum að njóta hlutanna með þér, það er miklu skemmtilegra. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þótt þér finnist þú hafa alla hluti á hreinu ertu samt ekki viss um hvaða skref þú átt að stíga næst. Farðu vel yfir stöðuna og þá finnurðu réttu lausnina. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þér kann að þykja framkoma ein- hverra vinnufélaga skrýtin. Reynið að gera það besta úr því sem að höndum ber. Fjölskylda Eiginkona Grétars var Fanney Har- aldsdóttir, f. 16.5. 1940 í Reykjavík, d. 11.12. 1992, vann frá 14 ára aldri á Sól- vangi í Hafnarfirði, vann í Leifsstöð, við útgerð Grétars og ýmsa aðra þjón- ustuvinnu. Þau voru búsett í Hafn- arfirði til 1977, en eftir það í Sandgerði. Grétar hefur verið duglegur að skreyta húsið sitt í Sandgerði fyrir jólin og fengið oftar en einu sinni verðlaun fyrir best skreytta húsið í bænum. „Ég skreyti ekki nálægt því eins mikið og ég gerði áður, á ekki auðvelt með að ganga upp í stiga, en ég set alltaf eitthvað upp.“ Þar hefur Grétar búið, á Stafnesvegi 3, í 36 ár. G rétar Vídalín Pálsson er fæddur 18. október 1936 í Reykjavík. „Byrjunin var þannig að ég var sendur í Staðarsveitina fyrir vestan til móðursystur minnar og var þar í sex mánuði. Svo fór ég í Hafnarfjörðinn til foreldra minna, og var síðan borinn í skinnpoka yfir Hellisheiði til Eyrarbakka og svo var farið með mig í trillu til Þorláks- hafnar. Á leiðinni stoppaði vélin og bátinn fór að reka. En svo komst vél- in í gang og ég fór til Þorlákshafnar og þaðan í Selvoginn. Ég hef verið svona ársgamall.“ Grétar ólst þar upp í hjáleigunni Sólheimum hjá móður- ömmu sinni sem bjó þar hjá vinafólki. Þar var Grétar til fjórtán ára aldurs. „Þá var ég tekinn og farið með mig á togara og var gerður að spíssara, eða kyndara.“ Grétar var efti það á sjónum en fór sjálfur í útgerð árið 1962. Þá keypti hann trilluna Sleipni og gerði hana út frá Hafnarfirði í átta ár. Hann rak einnig fiskbúðir á þess- um tíma, eina í Hafnarfirði og eina á Langholtsvegi í Reykjavík. „Síðan lét ég smíða fyrir mig bát í Bátalóni árið 1973, Sæljóma, hann var 11 tonn og ég gerði hann út í sautján ár frá Sandgerði. Síðan lét ég smíða bát úti í Noregi, plastbát og gerði hann út í sautján ár. Hann var 20 tonn. Á þess- um bátum voru ýmist tveir um borð á línu eða upp í fjóra á netum. Ég byggði líka fiskhús í Sandgerði og fór að verka fisk frá 1984 til 1987.“ Grét- ar var í útgerð til 2007 eða þar til hann var 71 árs. „Þá veiktist ég af krabbameini og ákvað að selja út- gerðina. Ég reri alltaf út sjálfur, treysti engum nema sjálfum mér til þess.“ Þegar Grétar seldi útgerðina keypti hann sumarhús í Grímsnesi. Hann er þar með gróðurhús og hefur verið að rækta sumarblóm þar og ým- islegt annað . „Ég lét líka gera 18 holu púttgolfvöll við bústaðinn.“ Grétar hefur ferðast mikið, fór á tímabili á jeppum upp á jökla og fjöll. Hann á hjólhýsi og hefur verið dug- legur að ferðast á því. „Það er stórt og mikið hús, en núna nota ég það að- allega til að fara í Selvog og slappa af.“ Foreldrar Fanneyjar voru Haraldur Agnar Guðmundsson, f. 29.7. 1913 í Hafnarfirði, d. 6.5. 1989, verkamaður í Hafnarfirði, síðast bús. í Reykjavík, og Halldóra Sigríður Guðvarðardóttir, f. 16.8. 1922 í Reykjavík, d. 27.8. 2008, húsfreyja. Börn Grétars og Fanneyjar eru 1) Kolbrún Vídalín Grétarsdóttir, f. 27.7. Grétar Pálsson, fyrrverandi útgerðarmaður – 85 ára Stafnesvegur Best skreytta húsið í Sandgerði 2010. Grétar skreytir ekki eins mikið núna, en setur alltaf eitthvað upp. Ársgamall á vélarvana bát Afmælisbarnið Grétar Pálsson stundaði sjómennsku í 57 áŕ, rak tvær fiskbúðir og var sjálfur í útgerð í 45 ár. Á sjó Grétar á Sæljóma en hann reri sjálfur til sjötugs. Vinkonurnar Sóley Yabing Kristinsdóttir, Hanna Elísabet Hákonardóttir, Elísa Builien Andradóttir, Sara Björk Eiríksdóttir, Hrafnhildur Elva Elvarsdóttir og Eva Lovísa Heimisdóttir söfnuðu peningum til styrktar Rauða krossinum með því að halda tombólu fyrir utan Hagkaup í Spönginni. Afraksturinn var 7.685 krónur. Tombóla Til hamingju með daginn Akureyri Pola Bríet Konradsdóttir fæddist 15. september 2020 klukkan 11.20 á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hún var 4.002 g og 52 cm. Foreldrar henn- ar eru Joanna Niewada og Konrad Kulis. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.