Morgunblaðið - 18.10.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 18.10.2021, Blaðsíða 26
BIKARÚRSLIT 2021 Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslandsmeistarar Víkings úr Reykja- vík fullkomnuðu stórkostlegt tímabil með því að vinna 3:0-sigur á ÍA í bik- arúrslitaleik á Laugardalsvelli á laug- ardaginn var. Víkingur varð með því aðeins fimmta félagið í sögunni til að verða tvöfaldur meistari í knattspyrnu í karlaflokki og fyrsta liðið frá því KR varð tvöfaldur meistari árið 2011. Sigurinn var verðskuldaður því Víkingur var betri á flestum sviðum, þrátt fyrir að ÍA hafi fengið sín tæki- færi. Pablo Punyed var besti maður vallarins en hann lagði upp bæði mörk Víkings í fyrri hálfleik. Það fyrra kom á 18. mínútu er hann sendi Erling Agnarsson einan í gegn og Erlingur sá um að skora. Það seinna kom í upp- bótartíma er hann spyrnti boltanum í höfuðið á Kára Árnasyni og í netið. Varamaðurinn Helgi Guðjónsson full- komnaði svo magnað tímabil með því að skora þriðja markið í uppbótartíma í seinni hálfleik. Sigurinn var ekki aðeins staðfest- ing á því að Víkingur er besta lið Ís- lands í dag, heldur líka falleg kveðju- stund fyrir tvo magnaða uppalda Víkinga. Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen eru á meðal bestu varn- armanna Íslands í seinni tíð og þeir stigu síðasta dansinn saman með glæsibrag. Kalt og með mjólk í andlitinu Kári og Sölvi áttu magnaða ferla og er óhætt að segja að þeir hætta á toppnum. Kári viðurkenndi í viðtali við Morgunblaðið eftir leik að hann hefði ekki trúað því að Víkingur yrði tvöfaldur meistari í ár. Kára var þá skítkalt, með mjólk í andlitinu (auð- vitað er sigri í Mjólkurbikarnum fagnað með mjólk) og haltrandi. Hann er eflaust feginn að vera hætt- ur! Spurður um meiðslin sagði Kári einfaldlega að hann væri búinn, sennilega líkamlega og andlega. Sölvi viðurkenndi einnig í viðtali við Morg- unblaðið að líkaminn á honum væri dauðfeginn að þetta væri nú komið gott. Kári og Sölvi eru jaxlar og er ekki annað hægt en að samgleðjast þeim. Þeir gáfu blóð, svita og tár til að taka eitt tímabil í viðbót. Ekki er langt síðan Víkingur var flakkandi á milli efstu deildar og 1. deildar og var fátt sem benti til þess að liðið yrði fyrsta liðið í áratug til að verða tvöfaldur meistari. Vegna þessa er þeim mun rómantískara að sjá „gömlu karlana“ ljúka ferlinum heima með þessum árangri. Þeir eiga einnig sinn þátt í því að ungir leikmenn hafa blómstrað í sum- ar og hafa nokkrir bætt sig gríð- arlega. Kári og Sölvi gera aðra leik- menn í kringum sig betri. Erlingur Agnarsson, Viktor Örlyg- ur Andrason og Kristall Máni Inga- son voru miklu betri í sumar en í fyrrasumar. Þá fór Daninn Nikolaj Hansen úr því að skora varla neitt í það að verða mesti markaskorari Ís- lands. Arnar Gunnlaugsson á líka mikið hrós skilið fyrir að stýra Vík- ingi af mikilli fagmennsku. Til hamingju Víkingur Reykjavík. Fullkomið í Fossvoginum - Víkingur tvöfaldur meistari fyrst liða í 10 ár - Sannfærandi 3:0-sigur í bik- arúrslitum - Rómantískur endir hjá Sölva og Kára - Pablo lagði upp tvö Ljósmynd/Óttar Geirsson Tvöfalt Víkingur úr Reykjavík er tvöfaldur meistari eftir sigur á ÍA í bikarúrslitum á laugardaginn var. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2021 England Manchester City – Burnley .................... 2:0 - Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á hjá Burnley á 72. mínútu. Watford – Liverpool................................. 0:5 Aston Villa – Wolves ................................ 2:3 Leicester – Manchester United .............. 4:2 Norwich – Brighton ................................. 0:0 Southampton – Leeds .............................. 1:0 Brentford – Chelsea................................. 0:1 Everton – West Ham ............................... 0:1 Newcastle – Tottenham........................... 2:3 Staða efstu liða: Chelsea 8 6 1 1 16:3 19 Liverpool 8 5 3 0 22:6 18 Manch. City 8 5 2 1 16:3 17 Brighton 8 4 3 1 8:5 15 Tottenham 8 5 0 3 9:12 15 Manch. Utd 8 4 2 2 16:10 14 West Ham 8 4 2 2 15:10 14 Everton 8 4 2 2 13:9 14 Þýskaland Eintracht Fr. – Bayern München .......... 3:2 - Alexandra Jóhannsdóttir lék fyrstu 79 mínúturnar með Frankfurt. - Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Bayern en Karólína Lea Vil- hjálmsdóttir var ekki í hópnum. Spánn C-deild: Real Madrid B – Barcelona B................. 0:0 - Andri Lucas Guðjohnsen lék fyrstu 67 mínúturnar með Real Madrid. Ítalía B-deild: Ascoli – Lecce .......................................... 1:1 - Þórir Jóhann Helgason lék fyrri hálfleik- inn með Lecce en Brynjar Ingi Bjarnason var ekki í leikmannahópnum. C-deild: Siena – Entella ......................................... 1:0 - Óttar Magnús Karlson kom inn á hjá Siena á 61. mínútu. Giana Erminio – Virtus Verona............. 1:1 - Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með Verona. Tyrkland Adana Demispor – Konyaspor............... 0:2 - Birkir Bjarnason lék fyrri hálfleikinn með Adana Demispor. Katar Al Shamal – Al-Arabi .............................. 1:3 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn með Al-Arabi. Danmörk Nordsjælland – Midtjylland ................... 2:2 - Elías Rafn Ólafsson lék allan leikinn með Midtjylland. OB – Randers ........................................... 1:2 - Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn með OB. SönderjyskE – Köbenhavn..................... 1:1 - Kristófer Ingi Kristinsson var ekki í leikmannhópi SönderjyskE. - Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn með Köbenhavn, Andri Fannar Baldursson og Hákon Arnar Haraldsson voru allan tímann á bekknum. B-deild: Horsens – Vendsyssel ............................. 1:1 - Aron Sigurðarson kom inn á hjá Horsens á 56. mínútu en Ágúst Eðvald Hlynsson var ekki með. Lyngby – Hobro....................................... 1:1 - Sævar Atli Magnússon lék fyrstu 72 mínúturnar með Lyngby. Frederik Schram var utan hóps. Freyr Alexandersson þjálf- ar liðið. Lettland Riga – Metta ............................................. 1:1 - Axel Óskar Andrésson fékk rautt spjald á 51. mínútu hjá Riga. Bandaríkin Racing Louisville – Orlando Pride........ 3:1 - Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék fyrstu 58 mínúturnar með Orlando. Svíþjóð Vittsjö – Hammarby................................ 3:1 - Berglind Björg Þorvaldsdóttir lék fyrstu 61 mínútuna með Hammarby. Eskilstuna – Örebro ................................ 1:2 - Berglind Rós Ágústsdóttir lék allan leik- inn með Örebro. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var allan tímann á bekknum. Noregur Bodö/Glimt – Sarpsborg ........................ 2:1 - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Rosenborg – Vålerenga.......................... 2:2 - Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn með Rosenborg. - Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn með Vålerenga. Sandefjord – Odd..................................... 0:0 - Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með Sandefjord. Arna-Björnar – Vålerenga..................... 0:8 - Amanda Andradóttir lék seinni hálfleik- inn með Vålerenga og skoraði. Ingibjörg Sigurðardóttir lék fyrstu 73 mínúturnar. B-deild: Aalesund – Sogndal................................. 3:0 - Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn með Aalesund. - Emil Pálsson lék fyrstu 67 mínúturnar með Sogndal. 50$99(/:+0$ _ Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði eitt marka Kristianstad þegar liðið vann öruggan 4:1 sigur á Djurgården í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á laugardag. Sveindís kom Kristianstad í 2:0 skömmu áður en flautað var til leikhlés. Hún hefur skorað sex mörk og lagt upp fjögur til viðbótar í 16 deild- arleikjum með Kristianstad á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku. Kristianstad er í þriðja sæti sænsku úr- valsdeildarinnar þegar liðið á eftir að spila tvo leiki á yfirstandandi tímabili. Sveindís lék allan leikinn í fremstu víg- línu og Sif Atladóttir lék sömuleiðis allan leikinn í hjarta varn- arinnar. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið. _ Bjarni Ófeig- ur Valdimarsson heldur áfram að gera það gott með liði Skövde í Svíþjóð. Á laugardag fór hann á kost- um í sterkum 33:30-útisigri gegn Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta. Bjarni Ófeigur hefur verið afar drjúgur í markaskorun á tíma- bilinu hingað til og hélt uppteknum hætti með því að skora sex mörk. Ekki nóg með það þá lagði hann upp sex önnur mörk fyrir samherja sína og var þannig með sanni allt í öllu í leiknum eins og oft áður. _ Albert Guðmundsson átti afar góð- an leik fyrir AZ Alkmaar er liðið vann 5:1-heimasigur á Utrecht í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Albert lagði upp fyrsta markið strax á sjöttu mínútu og skoraði svo sjálfur fimmta markið úr víti á 86. mínútu. AZ er að rétta úr kútnum eftir erfiða byrjun en liðið er í níunda sæti með 12 stig eftir átta leiki og þrjá sigra í röð. _ Mývetningarnir og hjónin Gunn- hildur Hinriksdóttir og Sigurbjörn Árni Arngrímsson ásamt Jóhönnu S. Kristjánsdóttur voru sæmd gullmerki UMFÍ á sambandsþingi UMFÍ á Húsa- vík á laugardag. Jóhanna og Sig- urbjörn Árni eru forsetar þingsins. Gunnhildur er framkvæmda- stjóri Héraðs- sambands Þing- eyinga (HSÞ), eins af sam- bandsaðilum UMFÍ. Jóhanna er jafnframt fyrrver- andi formaður HSÞ. _ Íslandsmeistarar SA unnu nauman 4:3-útisigur á Fjölni í Hertz-deild karla í íshokkí á laugardag. Jóhann Már Leifsson skoraði tvö mörk fyrir SA, sem er í toppsætinu með tíu stig, tveimur stigum á undan SR. Fjölnir er í þriðja og neðsta sæti með þrjú stig. Eitt ogannað Haukar höfðu ótrúlega yfirburði á heimavelli gegn Skallagrími í Subway-deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi og vann 64 stiga stig- ur, 93:29. Skallagrímur skoraði aðeins eitt stig í öðrum leikhluta og var ekki að spyrja að leiks- lokum eftir einstefnu í fyrri hálf- leik. Í Vís-bikar kvenna vann Keflavík afar sannfærandi 78:44- sigur á útivelli gegn Íslandsmeist- urum Vals. Önnur úrslit í bik- arkeppnum karla og kvenna má nálgast á næstu síðu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Rúst Daniela Wallen skoraði 21 stig og tók 14 fráköst fyrir Keflavík gegn Val í gærkvöldi. Keflavík mætir Fjölniskonum í næstu umferð. Meistararnir steinlágu Rosengård tryggði sér í gær sænska meistaratitilinn í fótbolta með 3:2-útisigri á Piteå í Íslend- ingaslag, þrátt fyrir að tvær um- ferðir séu eftir af tímabilinu. Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn með Rosengård en hún hef- ur leikið átta leiki frá upphafi til enda síðan hún kom til félagsins frá Djurgården á miðju tímabili. Hún leysti Glódísi Perlu Viggósdóttur af hólmi þegar Glódís gekk í raðir Bayern München. Glódís lék tólf leiki með Rosengård á leiktíðinni áður en hún fór til Þýskalands og á því sinn þátt í meistaratitlinum. Meistaratitilinn var sá fyrsti hjá Guðrúnu í Svíþjóð en númer tvö hjá Glódísi. Hlín Eiríksdóttir lék fyrstu 71 mínútuna með Piteå. Rosengård er með sjö stiga for- skot á Diljá Ýr Zomers og stöllur í Häcken. Diljá kom ekkert við sögu er liðið gerði markalaust jafntefli við AIK á útivelli en Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan leikinn með AIK og var fyrirliði. Guðrún og Glódís sænskir meistarar Ljósmynd/Rosengård Gleði Guðrún Arnardóttir er sænskur meistar í fótbolta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.