Morgunblaðið - 18.10.2021, Side 32

Morgunblaðið - 18.10.2021, Side 32
... stærsti uppskriftarvefur landsins! Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenski dansflokkurinn (Íd) flytja verkið Aiôn eftir danshöfundinn Ernu Ómars- dóttur og tónskáldið Önnu Þorvaldsdóttur í Eldborg Hörpu á fimmtudag kl. 20 undir stjórn Önnu-Mariu Helsing. Verkið er innblásið af abstrakt hugsun um tím- ann og ferðalag milli vídda. Aiôn var frumflutt af Sin- fóníuhljómsveit Gautaborgar og Íd í maí 2019 í Tónlist- arhúsinu í Gautaborg við frábærar viðtökur. Gagn- rýnandi Dagens Nyheter lýsti því sem „eins konar náttúruafli“ og Die Presse í Þýskalandi sagði verkið „sönnun þess hve tónlist og hreyfing eiga vel saman“. Aiôn flutt í Eldborg á fimmtudag MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 291. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Haukar tryggðu sér um helgina þátttökurétt í 3. umferð Evrópubikars karla í handbolta með samanlögðum 62:39-sigri á Panassos Strovolu frá Kýpur. Báðir leik- irnir fóru fram ytra og höfðu Haukar mikla yfirburði. Selfoss gerði 31:31-jafntefli við Jerusalem Ormoz frá Slóveníu í fyrri leik liðanna á Selfossi á laugardag. FH er hinsvegar í baasli eftir 29:37-tap á heimavelli gegn Minsk frá Hvíta-Rússlandi í fyrri leiknum á Kaplakrika. Í kvennaflokki er KA/Þór komið áfram eftir sannfær- andi sigur á Istogu frá Kósóvó en Valur er úr leik eftir tvö töp fyrir Bekament í Serbíu. »27 Fimm íslensk lið í Evrópubikarnum ÍÞRÓTTIR MENNING Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Miðasala hefur farið fram úr björt- ustu vonum. Það voru margir sem komu 2019 sem voru ákveðnir í að missa ekki af þessari hátíð, ekki síst þar sem við gátum ekki haldið hátíð- ina í fyrra út af Covid,“ segir Laufey Sif Lárusdóttir, einn eigenda veit- ingastaðarins Ölverks í Hveragerði. Margir þekkja Ölverk sem í rúm fjögur ár hefur boðið upp á frábærar pítsur og handverksbjór. Um næstu helgi verður bjórhátíð Ölverks hald- in í annað sinn. Hátíðin er haldin í stóru gróð- urhúsi miðsvæðis í Hveragerði og þar gefst gestum tækifæri á að kynna sér fram- leiðslu fjölda ís- lenskra brugg- húsa. Að sögn Laufeyjar verða þar bæði lítil handverksbrugghús víða að á land- inu sem og stóru brugghúsin. „Auk þess verða líka framleiðendur þarna sem gera viskí, kokteila og mjöð svo það verður úr nægu að velja,“ segir Laufey sem sjálf er formaður sam- taka íslenskra handverksbrugghúsa. Bjartmar mætir á svæðið Bjórhátíðir hafa átt nokkrum vin- sældum að fagna hér á landi síðustu ár. Laufey segir að bjórheimurinn sé mjög vingjarnlegur geiri og það smiti út frá sér til gesta. „Þegar eitt brugghús stendur fyrir hátíð eru öll hin til í að mæta og taka þátt. Bjórhátíðir eru yfirleitt með ein- hverju þema og við höfum helst lagt áherslu á að vera með stór og flott tónlistaratriði sem auka bónus fyrir hátíðargesti. Að þessu sinni geta gestir séð Bjartmar Guðlaugsson og Hjálma troða upp auk DJ-setta frá FM Belfast og Gunna Ewok. Svo verða mögulega einhverjir fleiri.“ Hún segir að það sé frábær til- breyting þegar haustlægðir ganga yfir og vetur er að ganga í garð að gera vel við sig í upphituðu gróð- urhúsi. „Við erum svolítil hitabelt- isdýr hér í Hveragerði. Okkur líður best í hita og jafnvel smá raka.“ Sterkar sósur og dósabjór Greint var frá því í Morg- unblaðinu fyrir helgi að Ölverk hygði á frekari uppbyggingu í Hveragerði. Haft var eftir bæjarstjóranum að áform væru uppi um ferðatengda þjónustu í tengslum við bjór og bjór- garð. Laufey segir ekki tímabært að tala um þau áform en neitar því ekki að hún og maður hennar Elvar Þrastarson vilji styrkja stoðirnar undir Ölverk. Sú vegferð hafi raunar hafist þegar kórónuveirufaraldurinn skall á. Ölverk hóf framleiðslu á sterkum chili-sósum sem seldar eru víðar og bjór fyrirtækisins fæst nú í dósum í Vínbúðunum. „Við fundum það í Covid að það er betra að vera með fjölbreytta starfsemi. Í stað þess að bíða eftir því að fólk kæmi til okkar fundum við lausnir til að við gætum komið til okkar við- skiptavina. Sá angi af Ölverk á bara eftir að fara stækkandi.“ Hitabeltisdýr í Hvera- gerði gera vel við gesti - Bjórhátíð Ölverks haldin í annað sinn um næstu helgi Skál! Gestir á bjórhátíð Ölverks árið 2019 voru sáttir við móttökurnar. Hiti Fólk tók upp á ýmsu í hitanum í gróðurhúsinu á síðustu hátíð. Laufey Sif Lárusdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.