Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. 17. NÓV. - 01. DES.- 14 DAGA FERÐ 01. - 20. DES. - 20 DAGA FERÐ Úrvalsferðir til Kanarí í vetur með íslenskri fararstjórn og góðri dagskrá á sérkjörum. Gott úrval gistinga í boði. INNIFALIÐ Í VERÐI BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA INNRITUÐ TASKA 20 KG. OG 8 KG. HANDFARANGUR GISTING Í 13 EÐA 19 NÆTUR ÍSLENSK FARARSTJÓRN AKSTUR TIL OG FRÁ FLUGVELLI VERÐ FRÁ 112.900 KR. VERÐ Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA. VERÐ FRÁ 129.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA. ÚRVAL ÚTSÝN | 585 4000 | INFO@UU.IS | UU.IS ÚRVALSFÓLK 60+ SÉRTILBOÐ TIL KANARÍ Guðni Einarsson gudni@mbl.is Langflestir aldraðra, 67 ára og eldri í Reykjavík, eða 87%, bjuggu í eigin húsnæði, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Félagsvísindastofnun HÍ gerði á högum og líðan aldraðra fyrir velferðarsvið Reykjavíkur- borgar, félagsmálaráðuneytið og Landssamband eldri borgara frá nóvember 2020 til janúar 2021. Í leiguhúsnæði bjuggu 16% aldr- aðra, á hjúkrunarheimili voru 3%, í þjónustuíbúð á vegum velferðar- sviðs bjuggu 2%, 1% bjó hjá börnum og 1% annars staðar. Af þeim sem voru í leiguhúsnæði leigðu 35% á al- mennum markaði, 29% voru í leigu- íbúð á vegum félagasamtaka, 18% í félagslegu húsnæði og 18% í annars konar leiguíbúð. Þetta kom fram í minnisblaði Regínu Ásvaldsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs, um hús- næðismál eldra fólks í Reykjavík. Meðalævin er að lengjast Í mannfjöldaspá fyrir Reykjavík er gert ráð fyrir að hlutfall 67 ára og eldri fari úr 12% árið 2020 upp í 21% árið 2050. Eldri en 80 ára mun fjölga hlutfallslega meira en fólki á aldr- inum 67-79 ára. Íbúar landsins verða orðnir 461 þúsund árið 2069, samkvæmt miðspá mannfjöldaspár Hagstofu Íslands. Mannfjöldinn var um 368 þúsund í lok síðasta árs. Þá er meðalævi fólks að lengjast. Í lok 2020 var hún 84,1 ár hjá konum en því er spáð að hún verði 88,7 ár árið 2069. Meðalævilengd karla var 80 ár í lok síðasta árs en verður 84,4 ár ár- ið 2069. Regína segir í minnisblaðinu að það sé stefna Reykjavíkurborgar að allir borgarbúar hafi öruggt hús- næði á viðráðanlegu verði. Það á við hvort sem fólk þarfnast stuðnings með húsnæðismál sín eða ekki. Húsnæðisstefna borgarinnar nær til allra borgarbúa, þar með talið eldra fólks sem þarf að geta eignast og/ eða leigt húsnæði eftir þörfum hverju sinni. Þá þarf að vera fjöl- breytt framboð á húsnæði í hverju hverfi. Unnið hefur verið með samtökum og stofnunum sem vilja byggja íbúð- ir fyrir eldra fólk á undanförnum ár- um. Í minnisblaðinu segir að áætlun miði vel um að byggja um 450 íbúðir í samstarfi við Hrafnistu, Grund, Sóltún, Samtök aldraðra og Leigu- félag aldraðra/Félag eldri borgara. „Byggingu 246 íbúða fyrir eldri borgara er lokið, þ. á m. byggingu 60 íbúða á Sléttuvegi 27. Þá eru 120 íbúðir á framkvæmdastigi og sam- þykkt deiliskipulag er fyrir bygg- ingu 162 íbúða eldra fólks,“ segir í minnisblaðinu. Þróun íbúafjölda 67 ára og eldri í Reykjavík 30 20 10 0 20% 15% 10% 5% 0% Fjöldi 67-79 ára Fjöldi 80 ára og eldri Hlutfall 67 ára og eldri af heildar- íbúafjölda í Reykjavík,% 2016 2017 2018 2020 2030 2040 2050 Heimild: Reykjavíkurborg,mannfjöldaspáFjöldi, þúsundir Hlutfall Flestir aldraðir í eigin húsnæði - Könnun hjá öldruðum í Reykjavík - Horfur á mikilli fjölgun aldraðra Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra segir að sú hátt- semi að byrla manneskju ólyfjan geti nú þegar fallið undir nokkur ákvæði hegningarlaganna en ekki hafi komið neinar tillögur né athuga- semdir um hvernig breyta þyrfti löggjöfinni. Taka þurfi það alvarlega þegar einstaklingum er byrluð ólyfjan, gæta að verkferlum og reyna að auðvelda rannsókn slíkra mála, sem er torveld vegna sönn- unarskorts. „Það hafa ekki komið neinar til- lögur né athugasemdir um hvernig breyta þyrfti löggjöfinni þar sem sú háttsemi að byrla manneskju ólyfjan getur nú þegar fallið undir nokkur ákvæði hegningarlaganna,“ segir Áslaug og heldur áfram: „Það er þó alltaf ástæða til að skoða í takt við þróun samfélagsins hvernig við get- um gert betur eins og við höfum gert með breytingum undanfarin ár.“ Að lokum nefnir Áslaug að skoða þurfi aðgengi að blóðrannsóknum vegna byrlunar, auk annarra atriða. Ekkert byrlunarmál hefur komið á borð héraðssaksóknara til þessa en þó hafa komið fyrir embættið kyn- ferðisbrotamál þar sem brotaþoli hefur grun um að hafa orðið fyrir byrlun en ekki tekist að sanna það. Í þessu samhengi sagði héraðssak- sóknari í samtali við mbl.is á sunnu- dag að mikilvægt væri fyrir brota- þola að leita strax til læknis til að tryggja gögn. Hegningarlögin nái yfir byrlun - Ástæða til að skoða lagabreytingar í takt við þróun samfélags Morgunblaðið/Árni Sæberg Byrlun Áslaug segir háttsemina þeg- ar geta fallið undir hegningarlög. Bláskotta hefur glatt fuglaáhuga- menn á Stokkseyri undanfarna daga. Tvær bláskottur sáust fyrst hér á landi á Höfn í Hornafirði í október 2017. Þriðja bláskottan sást á Höfn í október í fyrra og nú er sú fjórða komin til Stokkseyrar. „Bláskotta er eiginlega asísk fugla- tegund sem er að mjaka sér vestur á bóginn,“ sagði Jóhann Óli Hilm- arsson, fuglafræðingur á Stokkseyri. Hann sagði að bláskottan væri minni en þúfutittlingur en stærri en músar- rindill. Tegundin verpir frá Finnlandi í vestri og austur um Síberíu og Mongólíu að Kyrrahafi. Vetrarstöðv- arnar eru á Indlandi og austur til Kóreuskagans og Japans. „Hún er mjög kvik og gerði lítið af því að sitja fyrir. Þó sat hún kyrr í nokkrar sekúndur á grein og sýndi sig, en annars kann hún best við sig inni í greinaþykkni. Minnir á hegðun músarrindils, en hún er kvikari,“ skrifaði Jóhann Óli. gudni@mbl.is Langt að komin bláskotta Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson Bláskotta á Stokkseyri Tegundin verpir frá Finnlandi í vestri og austur að Kyrrahafi. Fuglarnir fara almennt til vetursetu á Indlandi og austur til Japans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.