Morgunblaðið - 27.10.2021, Page 6

Morgunblaðið - 27.10.2021, Page 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í Snókalöndum við Bláfjallaveg í upplöndum Hafnarfjarðar hefur ver- ið komið upp Norðurljósasetri. Að- sókn ferðamanna hefur farið vaxandi í haust og miðað við fjarlægð frá höf- uðborginni þykja gæði myrkursins einstök til að fylgjast með dansi norðurljósanna. Fyrirtækið Aurora Basecamp rekur starfsemina og býð- ur m.a. upp á skoðun og fræðslu í tveimur kúlutjöldum. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar aug- lýsti nýverið breytingu á aðalskipu- lagi bæjarins. „Í endurskoðun aðal- skipulags Hafnarfjarðar, sem nú stendur yfir, er vilji til þess að auka á fjölbreytni í ferðaþjónustu. Hluti af þeirri fjölbreytni er að geta boðið upp á svæði með miklum myrkur- gæðum, þar sem komið hefur í ljós aukinn áhugi fyrir norðurljósa- og stjörnuskoðunarferðum. Myrkur- gæði við Bláfjallaveg í Snókalöndum eru mjög mikil og það sem er eftir- sóknarvert er nálægðin við höfuð- borgarsvæðið,“ segir í lýsingu á breyttri landnotkun. Fyrirtækið sem reki þarna þjónustu sjái fyrir sér að þegar fram í sæki sé hægt að gera ráð fyrir 150 manns á hverjum tíma og allt að 300 manns hvert kvöld. Auður Jónsdóttir, framkvæmda- stjóri Aurora Basecamp, segir að í Norðurljósasetrinu sé ekki bara hægt að skoða norðurljósin. Þar sé líka fræðsla um fyrirbærið og stjörn- urnar á himninum. Ef skýjað er í veðri og norðurljós sjást ekki er í nokkrum súlum hægt að líkja eftir því sem gerist í rauntíma í loft- hjúpnum. Rafmagn og gas er notað til að gera þá sýningu sem eðlileg- asta. Fræðsla og upplifun Tvö kúlutjöld eru á svæðinu og í stærra tjaldinu er rúmgóður salur. Þriðja tjaldið verður tekið í notkun eftir áramót. Auður segir að fyrir- tækið hafi tekið til starfa fyrir um tveimur árum, en fljótlega hafi heimsfaraldurinn skollið á með til- heyrandi lokunum um allan heim. Í haust hafi þráðurinn verið tekinn upp að nýju og veturinn lofi góðu. „Undanfarið hafa komið mjög góðir dagar, en þegar norðurljós sjást ekki fær fólk alltaf fræðslu og einhverja upplifun á þessum af- skekkta stað, sem er þó aðeins í 20 mínútna akstursfjarlægð frá borg- inni,“ segir Auður. Gestafjöldi hefur farið yfir 30 einstök kvöld síðustu vikur, en gestir eru langflestir er- lendir. Íslendingar og íslensk ferðaþjón- ustufyrirtæki hafa einnig verið dug- leg að leigja salinn undir veislur og viðburði, hvort sem er brúðkaup, út- skriftir eða afmæli, en Auður nefnir einnig dans og hugleiðslu. Síðustu daga hefur hún fengið fyrirspurnir vegna jólahlaðborða og þá eru fram- undan tvennir tónleikar hljómsveit- arinnar Lights on the Highway. Ljósmyndir/Aurora Basecamp/Eric Wolf Norðurljósasetur Boðið er upp á skoðun og fræðslu um norðurljósin og þar er myrkrið lykilatriði. Gert út á gæði myrk- urs í Snókalöndum - Vaxandi aðsókn í Norðurljósasetur við Bláfjallaveg Möguleikar Viðburðir af ýmsum toga hafa farið fram í kúlutjöldunum. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Til skoðunar er hjá ÁTVR að loka vínbúðinni í Austurstræti. Fyrir- tækið leitar nú að húsnæði fyrir vín- búð á sama svæði. Vínbúðin í Aust- urstræti er sú af stærri vínbúðum ÁTVR þar sem minnst er selt af áfengi á ári hverju. Á laugardaginn birtist auglýsing í Morgunblaðinu þar sem Ríkiskaup fyrir hönd Áfengis- og tóbaksversl- unar ríkisins óskaði eftir að taka á leigu 400-600 fermetra húsnæði fyr- ir vínbúð i Reykjavík. Tekið var fram í auglýsingunni að leitað væri að húsnæði sem afmarkaðist af Snorrabraut, Hverfisgötu, Tryggva- götu, Geirsgötu og til sjávar í norð- ur. „Ástæðan er sú að við erum að skoða með húsnæði sem kæmi vænt- anlega í staðinn fyrir Vínbúðina í Austurstræti,“ segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir aðstoðarforstjóri ÁTVR í skriflegu svari við fyrir- spurn Morgunblaðsins. Húsnæðið í Austurstræti sé frekar óhagstætt á tveimur hæðum, þar sem lagerinn er á neðri hæðinni. Einnig sé mjög þröngt með allan flutning til og frá Vínbúðinni. „Við munum meta stöð- una þegar við sjáum hvort við fáum tilboð í annað húsnæði,“ segir Sig- rún. Í auglýsingu Ríkiskaupa er sér- staklega tekið fram að góð aðkoma að húsnæðinu verði fyrir viðskipta- vini og næg bílastæði. Æskilegt sé að sérmerkja megi um 20 stæði vín- búðinni. Við vínbúðina í Austur- stræti eru sárafá bílastæði og þau oftast upptekin. Leigutími húsnæð- isins verði allt að 10 ár. Fram kemur í Ársskýslu ÁTVR fyrir árið 2020 að svokallaðar stærri vínbúðir fyrirtækisins séu 17 talsins. Af þeim var minnst sala í vínbúðinni í Austurstræti, en árið 2020 seldist þar áfengi fyrir 694 milljónir króna. Mest var salan í vínbúðinni Dalvegi, 3.954 milljónir króna, og næstmest í Vínbúðinni í Skeifunni, 3.226 millj- ónir. Rétt er að taka fram að þær verslanir eru með betra aðgengi og lengri afgreiðslutíma en verslunin í Austurstræti. Vínbúðin Austurstræti 10a var opnuð 4. febrúar 1992 og endurbætt árið 2013. Hún komst í fréttirnar sumarið 2007 þegar þáverandi borg- arstjóri óskaði eftir því að ÁTVR fjarlægði kæli úr versluninni og hætti að selja bjór í stykkjatali. Vildi borgarstjóri með þessu stemma stigu við bjórdrykkju á Austurvelli. Vínbúðinni í Austurstræti lokað? - Húsnæðið er að mörgu leyti óhentugt - ÁTVR hefur auglýst eftir húsnæði til leigu á sama svæði Morgunblaðið/sisi Austurstræti Vínbúðin hefur verið starfrækt þarna síðan í febrúar 1992. Betur fór en á horfðist í júlí í sumar þegar vörubíll valt á Eyrarfjallsvegi við bæinn Þúfu í Kjós og lenti úti í skurði. Á annað hundrað lítrar af dísilolíu runnu úr tanki bílsins en starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Kjós- arsýslu, verktaka sem átti bílinn, slökkviliðsmenn og lögregla náðu að hreinsa olíuna upp að mestu. Atburðarásinni er lýst í minnis- blaði sem Árni Davíðsson, fram- kvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins, skrifaði og fjallað var um á fundi hreppsnefndar Kjósarhrepps ný- lega. Þegar Árni kom á staðinn laust eftir klukkan 17 þennan dag lá vöru- bíllinn á hvolfi ofan í skurði sem var þéttvaxinn með stör. Við nánari eft- irgrennslan sást áberandi brák í störinni í skurðinum og þegar þessi brák var rakin sást að olía lak í um- talsverðu magni undir veginn gegn- um ræsi og endaði í litlum læk sem rennur um mýri. Óskað var eftir að slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins kæmi með ísogs- efni, pulsur og dúka, úr Hafnarfirði til að fanga olíuna. Þá var hringt í eigendur hrossa sem voru á beit á landinu og þeim tilkynnt að þeir yrðu að taka hestana sem ella myndu eiga á hættu að drekka olíumengað vatn. Unnið var við það sleitulaust til kl. 21 um kvöldið að safna olíu og tókst að safna í 200 lítra olíutunnu a.m.k. 125 lítrum af hreinni dísilolíu úr læknum í mýrinni. Verktaki mokaði mold og möl sem virtist vera olíu- menguð upp á vörubílspall og gekk síðan frá vegkanti með hreinni möl af vörubílspallinum. Verktaki skilaði heilbrigðiseftirliti síðar afriti af nótu fyrir skilum á um 5,2 tonnum af menguðum jarðvegi sem skilað hafði verið í Sorpu. Árni sagði við Morgunblaðið að hann teldi að hreinsunin hefði tekist nokkuð vel miðað við aðstæður. Hætta hefði verið á að olían bærist með læk út í Laxárvog ef ekki hefði tekist að hreinsa hana upp og einnig hefði beitarland spillst. Sýni hefðu verið tekin úr jarðveginum undir haust og eftir það talið óhætt opna fyrir beit á ný. Árni sagði að vörubílstjórann hefði að sér vitandi ekki sakað í velt- unni. Hreinsuðu upp 120 lítra af olíu - Tókst að afstýra mengunarslysi Morgunblaðið/Kristinn Mengun Olíumengun í vatni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.