Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 Gæfir Tveir gæfir selir flatmöguðu í höfninni á Þórshöfn rétt við mynni Hafnarlækjarins í gær. Litu þeir upp og sperrtu sig þegar flautað var til þeirra. Selir eru ekki óalgeng sjón á Þórshöfn. Líney Sigurðardóttir Stjórnlyndir sam- félagsverkfræðingar og ríkisreknar barn- fóstrur láta ekki að sér hæða og eru alltaf á vaktinni. Sjálfstæðir fjöl- miðlar hafa átt erfitt uppdráttar á síðustu árum. Rekstrarum- hverfið hefur verið þeim óhagstætt. Al- þjóðleg risafyrirtæki hafa gert strandhögg í mikilvægum tekju- stofnum, jafnt auglýsingum sem áskriftartekjum. Og lifa auk þess ágætu lífi af því að nýta ritstjórnar- og dagskrárefni litlu íslensku miðl- anna sér að kostnaðarlausu. Á heimamarkaði þurfa sjálfstæðir miðlar að berjast við ríkisrekið fyrirtækið sem engu eirir. Sú bar- átta verður aldrei háð á jafnræð- isgrunni – er ósanngjörn og gerir flóru fjölmiðlunar fábreyttari en ella. En framtakssamir og hug- myndaríkir einstaklingar leggja ekki árar í bát. Þeir finna nýjar leiðir, móta nýjar hugmyndir og ryðja farveg þar sem tækni samtím- ans er nýtt. Á undanförnum árum hefur komið fram á sjónarsviðið fjöldi hlaðvarpa sem mörg hver hafa notið mikilla vinsælda. Fjöl- breytileikinn virðist óendanlegur; þjóðmál, sagnfræði, kvenréttindi, heilsa, hugleiðsla, listir og menning, íþróttir og raunar nær allt mann- legt. Halda má því fram að hlaðvörp framtaks- samra einstaklinga hafi verið og séu vaxt- arbroddar íslenskrar fjölmiðlunar síðustu misserin. Þegar efni- legir vaxtarbroddar ná að festa rætur getur kerfið – báknið – ekki á sér setið. En í stað þess að vökva er klipið og sært. Til atlögu við einstaklinga Ríkisútvarpið, sem nýtur þess að landsmenn (og allir lögaðilar) eru þvingaðir til að greiða milljarða í „áskrift“ á hverju ári, sér ofsjónum yfir velgengni nokkurra einstak- linga sem hafa notið vinsælda með sjálfstæðum hlaðvarpsþáttum. Ekki nægir það ríkisstofnuninni að setja dagskrárefni sitt á „öldur“ hlað- varpsins heldur eru framleiddir sér- stakir þættir í samkeppni við ein- staklinga. Hvort ríkisfyrirtækinu sé heimilt að stunda slíka samkeppni er vafasamt en hitt er víst að engin lagaleg skylda hvílir á stofnuninni að vera stöðugt á vaktinni og hasla sér völl alls staðar þar sem einka- aðilar ná að skjóta lífvænlegum rót- um í nýrri fjölmiðlun. Hvorki Samkeppniseftirlitið né Fjölmiðlanefnd hafa nokkuð við það að athuga að ríkisfyrirtæki stundi hernað af þessu tagi gagnvart ein- staklingum. Engu skiptir þótt leik- urinn sé ójafn. Fjölmiðlanefnd sem telur sér skylt að lögum að standa vörð um „fjölbreytni og fjölræði á fjölmiðla- markaði“ er upptekin af því að fylgjast með vinsælum sjálfstæðum hlaðvarpsþáttum, sekta þá og tryggja að þeir séu skráðir í op- inbera skrá stofnunarinnar um eig- endur fjölmiðla. Ríkið fer sínu fram en einstaklingar eru sektaðir og þeir settir undir smásjá og hnepptir í spennitreyju opinbers eftirlits. Samkeppniseftirlitið er of upp- tekið af því að koma böndum á tals- menn hagsmunasamtaka atvinnu- lífsins til að huga að því hvort ríkisfyrirtæki sé að nýta sér lög- þvingaða meðgjöf með óeðlilegum og ósanngjörnum hætti. Að verja einkaaðila gagnvart ásælni ríkisfyr- irtækis er léttvægara en að beita forystufólk atvinnurekenda agavaldi svo það taki sem minnstan þátt í op- inberri umræðu, ekki síst þegar það bendir á hið augljósa; hækkun á al- þjóðlegum mörkuðum hrávöru og vöruskortur geti til skamms tíma valdið verðhækkunum hér á landi. (Annars er það umhugsunarefni að samtök blaðamanna skuli sitja þegjandi hjá. Kannski á það ekki að koma á óvart þegar forysta þeirra er sannfærð um að ekki sé hægt að reka sjálfstæða fjölmiðla á Íslandi án beinna ríkisstyrkja. Barátta fyrir ríkisstyrkjum virðist mikilvægari en sæmilega heilbrigt rekstrar- umhverfi sjálfstæðra fjölmiðla eða varðstaða um málfrelsi viðmælenda fjölmiðla.) Stjórnlyndi gegn fjölbreytileika Stjórnlyndi breytist ekkert þótt það klæðist nýjum búningi. Sam- félagsverkfræðingar hafa hægt en örugglega náð yfirhöndinni með að- stoð sérhæfðra ríkisrekinna barn- fóstra. Ekkert mannlegt er þeim óviðkomandi. Mannleg hegðun skal römmuð inn og böndum komið á einstaklinga með lögum og reglum. Allt undir þeim formerkjum að ver- ið sé að verja einstaklinginn sjálfan gagnvart sjálfum sér. Velviljaðir embættismenn taka að sér hlutverk barnfóstrunnar og stunda öflugt eftirlit í nafni umhyggju og al- mannaheilla. Afleiðingin er sú að til verður samfélag sem drepur niður frum- kvæði og sköpunarkraft ein- staklinga. Stjórnlyndi hefur aldrei valið sér fjölbreytni og dínamík sem ferðafélaga. Samfélagsverkfræð- ingar skilja ekki að í frjálsu sam- félagi greiða borgararnir atkvæði á hverjum degi með viðskiptum og veita fyrirtækjum með þeim hætti beint aðhald. Valfrelsi einstaklinga er forsenda heilbrigðrar samkeppni sem leiðir til betri þjónustu, meiri gæða vöru og hagstæðara verðs. Og svo það sé sagt enn einu sinni: Ekkert op- inbert eftirlit, reglugerðir eða lög koma í stað þessa aðhalds. Við sem höfum barist fyrir frjáls- um viðskiptum og takmörkuðum af- skiptum ríkisins verðum að við- urkenna að við erum undir í baráttunni við stjórnlyndi og sam- félagsverkfræði. Við höfum ekki náð að tryggja skilvirkni í eftirliti með samkeppni og starfsháttum fyrirtækja eða komið á jafnræði á mörkuðum þar sem ríkið sjálft situr á fleti. Tækifærin til að stokka upp, byggja undir virka samkeppni og efla neytendavernd og samkeppn- iseftirlit hafa ekki verið nýtt. Það væri ábyrgðarlaust að láta næstu fjögur ár líða með hendur í skauti og horfa á dauða hönd fábreytileik- ans leggjast yfir af fullum þunga. Eftir Óla Björn Kárason » Til verður samfélag sem drepur niður frumkvæði og sköp- unarkraft einstaklinga. Stjórnlyndi velur sér aldrei fjölbreytni og dínamík sem ferða- félaga. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Að klípa og særa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.