Morgunblaðið - 27.10.2021, Síða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021
Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com
Sölustaðir:
Hagkaup, Nettó, Fjarðarkaup, Melabúð,
Frú Lauga, Heimkaup, Veganbúðin
„COVID-PRÓFIÐ VAR NEIKVÆTT –
EN ÞÚ GREINDIST JÁKVÆÐ FYRIR
INNILOKUNARKENND.“
„ÞIÐ HAFIÐ EFLAUST ÖLL VERIÐ
GRÍÐARLEGA SPENNT AÐ HITTA NÝJA
FRAMKVÆMDASTJÓRANN.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að vera gott par.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
TOGNAÐI ÉG HEFOFT
SAGT ÞETTA …
teygja
fyrst
SKILURÐU BARA EFTIR EINN SKILDING FYRIR
MIG? HVAÐ Á ÉG AÐ GERA VIÐ HANN?
SKYTTAN MÍN ER AÐ HÆTTA … ÞÚ GETUR
LAGT ÞITT Í PÚKKIÐ FYRIR KVEÐJUGJÖF!
reyni ég eins og hægt er að heim-
sækja dóttur mína og fjölskyldu
hennar í Belgíu og njóta samveru
við þau. Ég er búinn að fara til
Belgíu að lágmarki einu sinni á ári
í 20 ár og þekki orðið vel til þar.“
Fjölskylda
Eiginkona Torfa var Ingibjörg
Erla Jósefsdóttir, f. 16.12. 1951, d.
10.12. 2012, skrifstofumaður og
húsfreyja. Giftingardagur þeirra
var 10.6. 1978. Torfi og Ingibjörg
bjuggu í Kópavogi í Hjallahverfinu
og í Hafnarfirði í Norðurbænum og
síðan í Áslandi 2. Foreldrar Ingi-
bjargar voru hjónin Jósef Sigurðs-
son, f. 21.8. 1922, d. 24.4. 1999, inn-
heimtumaður, og Aðalheiður
Helgadóttir, f. 7.8. 1926, d. 23.8.
2018, húsfreyja. Giftingardagur
þeirra var 27.10. 1951. Þau bjuggu
lengst af í Breiðholti.
Börn Torfa og Ingibjargar eru:
1) Jósef Trausti Magnússon (stjúp-
sonur Torfa), f. 4.11. 1972, búsettur
í Þýskalandi. Börn hans eru
Alexander Birgir, f. 21.9. 1994, og
Hafsteinn Aron, f. 19.7. 1998. Maki
Jósefs er Sarah Knappe, f. 15.7.
1979 í Þýskalandi, starfar hjá Gall-
up. Börn þeirra eru Rakel Anna, f.
8.5. 2005, og Natan Oliver, f. 20.4.
2010; 2) Sveinhildur, f. 22.2. 1977,
hópbókanastjóri hjá Hotel Ibis
Gent Kathedraal, búsett í Belgíu.
Sambýlismaður hennar er Rodolfo
Varea Kulczewski, f. 13.2. 1973 í
Síle, „operations manager“ hjá
Residence Inn by Marriott í Gent.
Börn þeirra eru Maximiliano Andr-
és Varea Kulczewski, f. 14.10. 2010,
og Sebastián Varea Kulczewski, f.
7.1. 2013; 3) Erla Hjördís, f. 22.5.
1983, starfsmaður íþróttamann-
virkja Akureyrarbæjar.
Foreldrar Torfa voru hjónin Ant-
on Gunnarsson, f. 30.9. 1927, d.
20.8. 2001, múrari, og Sveinhildur
Torfadóttir, f. 4.2. 1926, d. 30.9.
2016, sjúkraliði. Giftingardagur
þeirra var 8.4. 1950. Þau bjuggu
fyrstu árin í Ólafsfirði og Reykja-
vík, en lengstum í Kópavogi. Síð-
ustu æviárin voru þau loks í
Hafnarfirði.
Torfi Karl
Antonsson
Sveinhildur HIldibrandsdóttir
húsfreyja á Barðsnesi við Norðfjörð
Brandur Jónsson
sjómaður á Barðsnesi
Guðrún Sigríður Brandsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Torfi Karl Eggertsson
verkamaður í Reykjavík
Sveinhildur Torfadóttir
sjúkraliði í Kópavogi
Elinborg Magnúsdóttir
húsfreyja í Hítardal
Eggert Eggertsson
bóndi í Hítardal á Mýrum
Anna Rósída Jóhannsdóttir
húsfreyja í Garði
Sigurður Jóakim Baldvinsson
bóndi í Garði í Ólafsfirði
Guðfinna Stefanía Sigurðardóttir
húsfreyja í Ólafsfirði
Þorgrímur Gunnar Ásgrímsson
fiskmatsmaður í Ólafsfirði
Guðfinna Hólmfríður Steinsdóttir
húsfreyja á Reykjum og Karlsstöðum
Ásgrímur Þorgrímsson
bóndi á Reykjum og Karlsstöðum í Ólafsfirði
Ætt Torfa Karls Antonssonar
Anton Gunnarsson
múrari í Kópavogi
Limra eftir Kristján Karlsson:
„Ég fer,“ sagði faldabrík,
„klukkan fimm suðrí Grindavík.“
Hvílík endemisreisa
og heimska og hneisa.
En það hélt henni engin flík.
Sigtryggur Jónsson yrkir á
Boðnarmiði:
Einhvers staðar inn til dala,
einn er bóndi fé að smala.
Við tjörn þar hjá,
í taumlausri þrá,
tófur sínum fýsnum svala.
„Annríki,“ eftir Guðmund Arn-
finnsson:
Við tóvinnu sat hún Tinna
og Tumi var fénu að sinna,
Gunna var þreytt
og gerði ekki neitt,
en Geiri fór músum að brynna.
Hún Rúna á rokk var að spinna,
en Rósi gekk örna sinna
upp fyrir garð
og Oddnýju sarð,
hver hafði sitt verk að vinna.
Hallmundur Kristinsson yrkir:
Ef einhver nú um það mig bæði
að yrkja fullkomið kvæði,
ljóst bæði og leynt
við ljóð skyldi reynt,
en þyrfti víst þokkalegt næði!
Enn kveður Hallmundur:
Hárin á höfði mér rísa
er hennar kostum skal lýsa.
Við þessu ei bjóst.
Þó er nú ljóst
að þetta er ágætis vísa!
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir:
Kvað Ari „á elsku ég veðja,
ég umber, er mjúkur sem leðja“
og hann brosti í því
að þeir börð́ann á ný,
„en bráðlega flyt ég frá Steðja“.
Þormóður í Gvendareyjum var
haldinn kraftaskáld. Oddur lög-
maður Sigurðsson reiddist eitt sinn
Þormóði vegna vísu, sem Þormóður
kastaði fram við hann og sló hann
kinnhest. Þá er sagt að Þormóður
kvæði vísu þessa:
Hér er sigin hurð að gátt;
hittir loku kengur.
Kjaftshögg hefur enginn átt
ári hjá mér lengur.
Skömmu síðar varð Oddur skip-
reika, og voru hann og menn hans
mjög hætt komnir. Var Þormóði
kennt um.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af faldabrík,
sauðfé og tófum