Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 24

Morgunblaðið - 27.10.2021, Side 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þessi bók kom til mín með allt öðrum hætti en aðrar bækur mínar. Mér var veitt innsýn í kjall- araíbúð með mjög lágri lofthæð þar sem ein kona hafðist við og var með kemískt klósett. Þetta tvennt gengur í gegnum bókina eins og rauður þráður, enda finnst Systu þetta ekki mannsæmandi aðstæður,“ segir Steinunn Sig- urðardóttir um nýjustu bók sína, Systu megin, sem hún skilgreinir sem leiksögu. Að sögn Steinunnar hefur hugmyndin að Systu lifað með henni í um tvo áratugi. „Ég hef alltaf búið við hugmyndagnótt og helsti vandinn verið að vinna með réttu hugmyndina á réttum tíma. Hugmyndirnar koma alltaf frá hjartanu og ég held að á endanum verði sú fyrir valinu sem er allra næst hjartanu,“ segir Steinunn og rifjar upp að hún hafi byrjað að skrifa um Systu fyrir um 20 árum. „Ég er rekin áfram ekki bara af því að mig langar að gefa jaðarsettu fólk rödd og ásýnd, heldur einnig af forvitni um það hvernig hægt sé að draga fram lífið við þessar aðstæður,“ segir Steinunn og leggur áherslu á að Systa skrimti án þess að vera bitur. Tortryggin gagnvart rannsóknarvinnu „Það hefur engin sögupersóna fylgt mér svona lengi, sem helgast meðal annars af því að ég þurfti að finna efninu rétta formið. Frásögn- in af Systu hófst sem löng smásaga, en ég sá fljótt að venjulegur prósi gerði Systu ekki skil. Í framhaldinu skrifaði ég leikrit um hana og setti svo allt í pækil. Eftir því sem tíminn leið fann ég sífellt sterkar að ég gæti ekki farið í gröfina án þess að draga Systu fram í dagsljósið. Annað væri svik og sambærilegt við það að myrða söguhetjuna mína og það hefði verið þokkalegt, því ég hef alltaf hugsað hlýlega til Systu líkt og hún væri vinur minn. Ég ákvað því að fara þá leið að láta innri rödd Systu heyrast í stuttu prósaköflunum og gefa lesendum svo tækifæri á að sjá hana utan frá í leiktextanum. Mér fannst sú leið best til að gera Systu rétt skil,“ segir Steinunn þegar hún er beðin að útskýra hvað leiksaga sé. Í bókinni fá lesendur ekki aðeins innsýn í aðstæður utangarðsfólks því ofbeldi í nánum samskiptum er til umfjöllunar sem og vinnu- þrælkun. „Það hefur verið átakanlegt í gegnum tíðina að fylgjast með fréttaflutningi af aðstæðum fátæks og heimilislauss fólks og þeirri útbreiddu útlendingaþrælkun sem hér hefur viðgengist. Allt hefur þetta brýnt mig til dáða í skrifunum,“ segir Steinunn. Annað lyk- ilþema bókarinnar snýr að mótun barna í upp- vexti, því Systa og Brósi, bróðir hennar, bjuggu við vanrækslu móðurinnar sem nýtur sjálf vel- lystinga á sama tíma og dóttirin skrimtir. „Það má velta fyrir sér á hvaða mörkum raunsæis þessi ófrýnilega móðurmynd er og eins hvernig túlka megi hana sem yfirvald sem heldur þétt um pyngjuna og lætur ekkert af hendi rakna þótt hún geti það,“ segir Steinunn og bætir því við að sér finnist það skandall að fátækt fái að viðgangast á Íslandi. „Við erum rík þjóð og hér á enginn að þurfa að búa við fátækt. Ef ég væri stjórnmálamaður myndi ég byrja á því að stoppa í þetta gat vegna þess að fátæktin er mein, og ekki staðbundin meinsemd, hún dreifir sér.“ Spurð hvort bókin hafi kallað á mikla rann- sóknarvinnu af hennar hendi svarar Steinunn því neitandi. „Ég held að ég megi fullyrða það að ég hafi aldrei unnið rannsóknarvinnu fyrir neitt sem ég hef gert. Ég er tortryggin gagn- vart þessari ítarlegu rannsóknarvinnu sem höf- undar tala gjarnan um og velti fyrir mér hvort hún helgist af skorti á ímyndunarafli eða hvort þetta sé þessi uggvænlega tilhneiging til „ná- raunsæis“ þar sem hlutir þykja merkilegri ef þeir hafa verið í alvörunni,“ segir Steinunn og tekur fram að ímyndunaraflið sé aðaldrifkraft- urinn í hennar skrifum. Ég er að brjóta formleikreglur „Í þeim bókum þar sem ég kem inn á sértæk svið bið ég vini sem eru sérfræðingar í efninu að lesa yfir. Þannig fékk ég Kristin heitinn Al- bertsson eldfjallafræðing, sem var kær vinur minn, til að lesa yfir skáldsöguna mína Gæða- konur þar sem söguhetjan er María Hólm eld- fjallafræðingur. Hún óttast að gosið geti orðið í grennd við Reykjavík og fylgist því vel með gíg- um á Bláfjallasvæðinu, sem henni stendur sér- stök ógn af. Svona yfirlestur kemur í veg fyrir að ég verði uppvís að hreinu bulli, og varðandi „rannsóknarvinnu“ þá dugar það mér.“ Í ljósi þess að Systa hefur lifað með Stein- unni í um 20 ár liggur beint við að spyrja hvern- ig sé nú að kveðja hana eftir að hafa komið henni út í heiminn. „Ég veit að ég á eftir að halda áfram að hugsa hlýlega til Systu og ann- arra í hennar aðstæðum í þjóðfélaginu sem fest- ast í ákveðnu neti og erfiðum aðstæðum án þess að hafa til þess unnið. Ég er mjög sátt við að hafa loksins dregið Systu fram í dagsljósið. Það var þungur prósess, því þótt bókin sé aðgengi- leg er ég að brjóta formleikreglur,“ segir Stein- unn og viðurkennir að hún hafi verið hálffeimin við að sýna útgefanda sínum handritið. „Ég átti von á hverju sem var, en mér til mikillar ánægju tók Hólmfríður Úa Matthíasdóttir útgáfustjóri handritinu opnum örmum. Hún og Sigríður Rögnvaldsdóttir súperyfirlesari hvöttu mig til dáða á lokametrunum. Ég lít aldrei svo á þegar ég er búin með verk að það sé sjálfgefið að það rati á prent. Ég er alltaf við öllu búin og því ekki verr haldin en svo af mikil- mennskubrjálæði,“ segir Steinunn og tekur fram að hún hafi síðustu þrjá áratugi notið góðs af yfirlestri eiginmanns síns, Þorsteins Hauks- sonar tónskálds. „Sem er mikill sérfræðingur í formi og hefur frábært auga fyrir texta og hlut- föllum.“ Hlær í dag að eigin andhælishætti Spurð hvort hún sé farin að huga að næstu bók svarar Steinunn því játandi. „Stór hluti af Systu megin er hrein samtöl. Ég hef mikinn áhuga á því formi,“ segir Steinunn og tekur fram að hún sé með árunum orðin ófeimnari við að skrifa samtöl í bókum sínum. „Framan af ferlinum fannst mér það eiginlega liggja of vel fyrir mér að skrifa samtöl og fyrir vikið valdi ég meðvitað að skrifa nær engin samtöl inn í fyrstu prósabækurnar mínar,“ segir Steinunn og hlær að því sem hún kallar eigin „andhælishátt“ í dag. „Enda betri hugmynd en ég hélt að nýta það sem liggur sérlega vel fyrir manni. Ég yrði því alls ekki hissa á því að samtöl yrðu fyrir- ferðarmikil í næstu bók, enda býður það upp á allt aðra möguleika að geta látið persónur tjá sig í beinum samtölum,“ segir Steinunn. Þess má að lokum geta að rithöfundurinn og bókmenntafræðingurinn Björn Halldórsson ræðir við Steinunni um bókina Systu megin á höfundakvöldi í Gunnarshúsi annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Morgunblaðið/Eggert Rödd „Ég er rekin áfram ekki bara af því að mig langar að gefa jaðarsettu fólk rödd og ásýnd, heldur einnig af forvitni um það hvernig hægt sé að draga fram lífið við þessar aðstæður,“ segir rithöfundurinn Steinunn Sigurðardóttir um nýjustu bók sína sem nefnist Systu megin. Systa lifað með Steinunni í 20 ár - Steinunn Sigurðardóttir sendir frá sér leiksöguna Systu megin - „Ég þurfti að finna efninu rétta formið,“ segir skáldið - Steinunn upplifði það sem morð á Systu að segja ekki sögu hennar á prenti Hátíðin Óperudagar stendur fyrir viðburði þar sem áhugamenn um prjónasakap, óperu og bíó fá eitt- hvað fyrir sinn snúð; prjónaóperu- bíói svokölluðu. Í samstarfi við Bíó Paradís verður kvikmyndin Flor- ence Foster Jenkins sýnd í kvöld, miðvikudagskvöldið 27. október, kl. 20 og gestum boðið að taka upp prjónana eða heklunálina samhliða glápinu. Þó er tekið fram að við- burðurinn er opinn öllum, líka þeim sem hafa ekki áhuga á að prjóna eða hekla meðan á sýningu stendur. Húsið verður opnað kl. 19. Kviikmyndin sem sýnd verður er frá 2016 og fjallar hina óvenjulegu óperusöngkonu Florence Foster Jenkins. Meryl Streep fer með aðal- hlutverkið og flytur meðal annars brot úr aríu næturdrottningarinnar í Töfraflautunni á sinn einstaka hátt. Hugh Grant og Simon Hel- berg fara með mikilvæg hlutverk. Óperudagar eru grasrótarhátíð sem byrjaði 14. október og stendur til 20. nóvember. Upplýsingar um hátíðina má finna á operudagar.is. Prjón, ópera og bíó í einn hrærigraut Lífleg Meryl Streep í hlutverki söngkon- unnar Florence Foster Jenkins. Í kvöld kl. 20 setjast rithöfundarnir Ragnar Helgi Ólafsson og Arndís Þórarinsdóttir, ásamt Höllu Þór- laugu Óskarsdóttur, niður á Borg- arbókasafninu Gerðubergi og ræða um allt mögulegt sem tengist bók- um og ekki síst ástríðu sína fyrir þeim. Ragnar stóð frammi fyrir flóknu verkefni þegar faðir hans lést, fyrir utan sorgarferlið sjálft, að grisja bækurnar hans. Í Bókasafni föður míns fjallar hann um þessi ferli samtvinnast. Arndís fjallar um hið gagnstæða, nefnilega varðveislu handrita, í nýrri bók sinni Bál tím- ans. Þar mælir sjálf Möðruvallabók og segir sögu sína. Ragnar og Arndís munu ræða tilurð bóka sinna og rann- sóknarferlið. Margt ber á góma: Bókabúð- ir, bókasöfn, bækur af netinu, ljóð um bækur, lestrarupplifunina, kiljur og inn- bundnar bækur, upprunalegu út- gáfuna eða endurprentun. Og gjörðina að brenna bækur sem selj- ast ekki á útgáfudegi. Rithöfundar ræða ástríðu fyrir bókum Arndís Þórarinsdóttir Kunnur bandarískur píanóleikari, Ben Waters, kemur fram á þrennum tónleikum hér á landi á næstu dög- um, með íslenskum meðleikurum, en hann er meðal annars þekktur fyrir að hafa starfað með meðlimum Roll- ing Stones, í hljómsveitum Ronnies Woods og Charlies Watts. Waters kemur fyrst fram annað kvöld, fimmtudagskvöld, á Dillon og hefjast leikar kl. 21. Þá verða aðal- tónleikarnir í Húsi Máls og menn- ingar, Laugavegi 18, á föstudags- kvöld kl. 20. Waters verður líka sérstakur gestur á Guitarama- tónleikum Björns Thoroddsens í Bæjarbíói í Hafnarfirði á laugardag. Ben Waters er mjög afkastamikill tónlistarmaður og ekki síst þekktur fyrir kraftmikinn boogie-woogie- píanóleik og söng. Eins og fyrr segir hefur hann átt í miklu samstarfi við meðlimi Rolling Stones. Hann leikur í hljómsveits Ronnies Woods, Wild Five, en sveitin hefur sent frá sér tvær plötur. Þá fór hann í margar tónleikaferðir með hljómsveit Charl- ies Watts, A,B,C & D of Boogie- Woogie. Um þessar mundir vinnur Ben Waters að verkefni með gítar- hetjunni Jeff Beck. Þess má líka geta að hann er tíður gestur í hinum vinsæla tónlistarþætti Jools Hol- lands á BBC. Ben Waters leikur hér á tónleikum - Meðleikari meðlima Rolling Stones Píanóskálmari Hinn slyngi Ben Waters glaðbeittur við slaghörpuna. Í tilefni af hrekkjavöku flyt- ur rithöfund- urinn Emil Hjörvar Petersen fyrirlestur um hrollvekjur og hryllingsskrif á fjórum bókasöfn- um höfuðborgar- svæðisins með styrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta. Fyrsti fyr- irlesturinn verður í dag, 27. októ- ber, kl. 17.30 á Borgarbókasafninu í Grófinni. Fimmtudaginn 28. októ- ber kl. 18:15 flytur hann fyrirlestur á Bókasafni Kópavogs og laugar- daginn 30. október kl. 13 á Bóka- safni Hafnarfjarðar. Fjórði og síð- asti fyrirlestur Emils verður fluttur 1. nóvember kl. 18 á Bókasafni Garðabæjar. „Emil fer yfir sögu hrollvekj- unnar, talar um mismunandi teg- undir hennar og stöðu greinarinnar á Íslandi. Að lokum ræðir hann hvað vert er að hafa í huga við skrif á hryllingi, en hann hefur undan- farið lagt áherslu á hrollvekjuna,“ segir í tilkynningu. Í upphafi árs kom dulræni tryllirinn Ó, Karítas út sem hljóðbók hjá Storytel og nýlega kom út áttunda skáldsaga hans, sögulega hrollvekjan Hælið, en hún er fyrsta prentaða bók Storytel á Íslandi. Fyrirlestur um hrollvekjur og hryllingsskrif Emil Hjörvar Petersen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.