Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.10.2021, Blaðsíða 28
Léttar veitingar Happdrætti Frábær tilboð Kynningar Uppákomur Jólavörur Ljósmyndabox á Smáratorgi 28. október frá 19:00 – 20:30 Bleikt kvöld Fiskislóð • Bíldshöfði • Smáratorg • Helluhraun • Baldursnes www.gaeludyr.is Tumi Árnason, saxófónleikari og tónskáld, flytur ásamt hljómsveit tónverkið Hlýnun á tónleikum á vegum Jazz- klúbbsins Múlans á Björtuloftum Hörpu í kvöld kl. 20. Í verkinu er „tekist á við eina helstu tilvistarógn samtím- ans, hamfarahlýnun, í gegnum frjálsa djasstónlist, framúrstefnu og tilraunakenndan spuna“, segir í til- kynningu. Með Tuma í ráðum eru Magnús Jóhann Ragn- arsson á hljómborð, Skúli Sverrisson á rafbassa og Magnús Trygvason Eliassen á trommur. Miðar fást í miðasölu Hörpu, á harpa.is og tix.is. Hlýnun á Múlanum í kvöld kl. 20 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 300. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handknattleik, hefur valið leikmenn til æfinga hér heima dagana 1.-6. nóvember næstkomandi. HSÍ til- kynnti þetta í gær en þessi törn verður að líkindum mikilvæg fyrir landsliðið vegna undirbúnings þess fyrir lokakeppni EM sem fram fer í Ungverjalandi og Slóvak- íu í janúar. Í tilkynningu frá HSÍ kemur fram að liðið muni ekki koma saman aftur fyrr en á nýju ári en þá fær liðið tvo vináttuleiki fyrir EM gegn Litháen. »23 Mikilvæg æfingatörn framundan hjá landsliðinu í nóvember ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Torg listamessa stendur yfir á Korp- úlfsstöðum á vegum Sambands ís- lenskra myndlistarmanna. Þar eru til sýnis og sölu verk fjölmargra listamanna, þar á meðal fimm stórar andlitsteikningar unnar með litkrít á pappír eftir Bjarna Ólaf Magnússon, en hann hefur ekki sýnt síðan 2014. „Ég hef ekki náð að safna verkum í sýningu, sem er lúxusvandamál en vandamál samt,“ segir hann. „Ég var ekki mjög gamall þegar ég uppgötvaði að ég væri teiknari frekar en málari,“ heldur Bjarni Ólafur áfram. Í námi erlendis segist hann hafa þurft að standa á sínu þegar kennarar hafi viljað beina sér yfir í málverkið. „Ég hef verið í mál- verkinu en enda alltaf í teikning- unni.“ Tilviljun réð því að Bjarni Ólafur fór í Myndlista- og handíðaskólann. „Ég ætlaði mér að verða arkitekt en prófkvíði vegna stúdentsprófanna gerði það að verkum að ég varð af- huga frekara bóklegu námi og komst í Myndlista- og handíðaskólann án þess að taka inntökupróf. Pabbi fór með teikningar eftir mig til Einars Hákonarsonar skólastjóra og þær nægðu.“ Athyglisbrestur til góðs og ills Bjarni Ólafur stundaði BFA- listnám við Kansas City Art Insti- tute 1988-1990. Hann var einnig gestanemandi við San Francisco Art Institute árið 1990 og í mastersnámi við Goldsmith’s College University of London 1991-1992. „Síðan hef ég sinnt myndlistinni af og til og hef einbeitt mér að henni að undan- förnu.“ Listamaðurinn leggur áherslu á að hann geri það í myndlistinni sem sér þyki gaman. Hann vinni mikið rómantískar landslagsmyndir og portrett og sé undir áhrifum frá ýmsum listamönnum, en verk hans eru meðal annars á Instagram (@bjarniolafurart). „Ég vinn mikið með fegurðina í kvenmannsandlitinu en öll andlitin tengjast mér sjálfum og því eru þetta allt í og með sjálfs- myndir.“ Bætir við að hugsunin sé sú að þetta séu persónur í ósögðu æv- intýri. „Ævintýrið verður stöðugt flóknara vegna þess að persónurnar verða alltaf fleiri og þegar ég byrja á mynd veit ég aldrei hvert hún stefn- ir.“ Frá unga aldri hefur Bjarni Ólafur verið með athyglisbrest og haldinn kvíða. „Athyglisbresturinn var til trafala í náminu, ég var hálfgerður geimfari, eins og einn kennari kallaði mig,“ rifjar hann upp. „Ég blótaði þessum bresti lengi en nýlega áttaði ég mig á því að hann er guðsgjöf, því í honum liggur sköpunin.“ Til að hlutirnir gangi upp í mynd- listinni þarf að kúpla sig frá öllu öðru, að mati Bjarna Ólafs. „Tónlist- in hjálpar mér að færa mig yfir í þetta órökræna flæði og oft er ég allt of lengi, tími ekki að hætta, því þetta er svo gaman, en kærastan og dótt- irin hafa oft vit fyrir mér og kalla mig til baka.“ Sýningin á Korpúlfsstöðum var opnuð um liðna helgi og verður aftur opin á morgun kl. 18-22, föstudag kl. 18-20, og laugardag og sunnudag kl. 12-18. Ljósmynd/Erling Aðalsteinsson Á Korpúlfsstöðum Bjarni Ólafur Magnússon við verk sín á sýningu Sambands íslenskra myndlistarmanna. Fólk í ósögðu ævintýri - Andlitsteikningar Bjarna Ólafs í raun sjálfsmyndir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.