Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 2
Nautic sækir fram af
miklum krafti í Rúss-
landi og hefur nú um 60
starfsmenn þar í landi.
12-13
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
„Þegar fólkið talar um líf
sitt er það fyrir og eftir
Íslandsdvölina,“ segir
forstöðumaður Sjávar-
útvegsskólans.
8
Útgefandi
Árvakur
Umsjón
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Blaðamenn
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Auglýsingar
Bjarni Ólafur Guðmundsson
daddi@k100.is
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Prentun
Landsprent ehf.
Í nýafstöðnum kosningum voru margir sem vildu
gera tilhögun fiskveiða að kosningamáli og rembd-
ust eins og rjúpan við staurinn að sannfæra kjós-
endur um að hér á landi væri stunduð ósvífin rán-
yrkja í skjóli spilltra stjórnmálamanna. Bentu sumir
á að lækkun greiddra veiðigjalda væri sönnnun þess
og að tími væri kominn til að krefja útgerðina um
„sanngjörn“ gjöld til samfélagsins. Máli sínu til
stuðnings var vísað til þess að veiðigjöld ársins
2020 námu 4,8 milljörðum króna á móti 6,6 millj-
örðum 2019 og 11,3 milljörðum 2018.
Það var sama hve mikið var reynt að vekja athygli
á að veiðigjöldin væru afkomutengd aftur í tíma og
því ekki óeðlilegt að upphæðir yrðu lægri 2020 í
samræmi við heldur slappa afkomu greinarinnar
2018; hér hlaut að vera eitthvað óeðlilegt á ferð.
Þessir sömu og höfðu uppi þessa miklu gagnrýni
hljóta því að hæla ríkisstjórninni um þessar mundir,
en fram kom á Sjávarútvegsdeginum í Hörpu að það
stefndi í að veiðigjöldin fyrir 2021 verði á bilinu sjö
til átta milljarðar króna, sem gerir um 45 til 66%
hækkun milli ára.
Það gleymist einnig að nefna að veiðigjaldið er
ekki eina gjaldið sem er innheimt af sjávarútvegi og
vegur tekjuskattur og tryggingagjald þungt. Vegna
þessara þriggja gjalda hefur sjávarútvegurinn á ár-
unum 2016 til 2019 greitt ríkissjóði 16,7 milljarða
umfram það sem fyrirtækin hafa greitt hluthöfum í
arð. Það er því óumdeilanlegt að eigendur auðlind-
arinnar hafa fengið meira í sinn hlut en eigendur
aflaheimildanna af nýtingu auðlindarinnar.
gso@mbl.is
Morgunblaðið/Gunnlaugur
Eigendur auðlindarinnar hafa fengið mest
Lög sem skylda alla sjómenn ESB
til að landa öllum afla virðast ekki
hafa haft teljandi áhrif á brottkast.
22
Söfnun kvarna er hornsteinn í
stofnmati margra fiskistofna. Fleiri
þúsund er safnað úr þorski á ári
hverju.
6