Morgunblaðið - 23.10.2021, Side 6

Morgunblaðið - 23.10.2021, Side 6
Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is H ægt er að beita nokkrum aðferðum við aldursgrein- ingu á fiskum. Algengastar eru greiningar á hörðum líkamshlutum fiska svo sem kvörn- um, sem einnig kallast eyrna- steinar, og hreistri. Finna má kvarnir í pokalaga líffærum eða skjóðum í innra eyra allra beinfiska. Þær vaxa alla ævi líkt og fiskurinn sjálfur og talin mikil fylgni milli stærðar kvarna og stærðar fisksins og er á þeim grundvelli hægt að áætla stærð fisks út frá kvörnum. Að aldursgreina þorsk er ekki mikið frábrugðið því að aldurs- greina tré. Eins og flestum er kunn- ugt er aldur trjáa metin með því að telja árhringi í þverskornum drumbi. Það sama á við um þorsk- inn en þá eru taldir vaxtarhringir á kvörnum sem myndast árlega. Breiðir og hvítir hringir myndast yfir sumarið þegar fæðuframboð er mikið og fiskurinn er í vexti en dekkri og mjórri hringir á veturna þegar vöxturinn er hægur. Ekki eina verkefni starfsmanna Árlega er fjöldi fiska aldurs- greindur hér á landi og er slík greining á ábyrgð Hafrannsókna- stofnunar sem styðst við grein- inguna í rannsóknum sínum. „Kvörnum þorska úr afla er safn- að í landi. Safnað er á Suðurnesj- unum og uppi á Akranesi frá höf- uðstöðvunum í Hafnarfirði en útibú stofnunarinnar í Ólafsvík, á Ísafirði, Akureyri, í Neskaupstað og Vest- mannaeyjum sjá um söfnunina úti á landi. Yfirleitt eru fengin sýni beint frá bátum, á fiskmörkuðum eða í vinnslum,“ segir Guðmundur Þórð- arson, sviðstjóri botnsjávarsviðs hjá Hafrannsóknastofnun. „Árlega er safnað um fjögur til sex þúsund þorskkvörnum úr afla,“ útskýrir Guðmundur. Tíu starfs- menn stofnunarinnar koma að söfn- uninni í útibúum og um sex starfs- menn í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar í Hafn- arfirði, „en í öllum tilfellum er þetta ekki eina verkefnið sem fólk sinnir.“ 15 þúsund úr leiðöngrum Auk þeirra kvarna sem safnað er úr afla er um tíu til 15 þúsund safnað á ári í vorralli, haustralli og netaralli, en í slíkum stofnmælingum fer söfnun fram um boð í rann- sóknaskipum stofnunarinnar, Bjarna Sæmundssyni og Árna Frið- rikssyni, eða í leiguskipum. Mest er safnað í vorrallinu að sögn Guð- mundar en þá er safnað um fimm þúsund kvörnum. „Áður en kvarnir eru aldurs- lesnar eru þær steyptar í resin og sagaðar í sérstakri sög sem skilar þunnum sneiðum sem teknar eru úr miðri kvörninni. Þessum sneiðum er raðað á gler og síðan aldurs- greindar undir víðsjá. Það eru nokkuð mörg handtökin við utanumhald um kvarnirnar, bæði við undirbúning fyrir aldurslestur og frágang þeirra eftir greiningu. Að þessari vinnu koma þrír til fjórir starfsmenn í Hafnarfirði,“ segir Guðmundur. Það er hins vegar ekki fyrir hvern sem er að lesa úr kvörnum enda þarfnast slíkt umtalsverðrar þekkingar. „Aldurslesningarnar eru svo gerðar af tveimur sérhæfðum kvarnalesurum en það tekur tals- verðan tíma að þjálfa upp kvarna- lesara og eru þeir oftast sérhæfðir á ákveðnar tegundir.“ Hornsteinn í stofnmati Spurður hvaða hlutverk aldurs- greining þorska hefur í tengslum við veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofn- unar svarar Guðmundur: „Aldurs- greiningar eru hornsteinn í stofn- mati þorsks og ýmissa annarra fiskistofna. Með því að aldursgreina þorsk fást upplýsingar um styrk ár- ganga og dánartölu. Það er með því að skoða fjölda þorska, til dæmis fimm ára í fyrra miðað við sex ára í ár, má fá mat á veiðiálag að gefnum ákveðnum forsendum um náttúru- lega dánartölu. Með náttúrulegum dauða er átt við þann þorsk sem er étinn af afræningjum, verður fyrir sjúkdómum eða álíka.“ En hvað segir aldursgreiningin okkur um framtíðarhorfur þorsk- stofnsins? „Framtíðahorfur þorsks miðað við aldurssamsetninguna eru þær að núna er vægi tiltölulega sterkra árganga að minnka í stofn- inum og þeir árgangar sem mynda megnið af veiðistofninum næstu tvö til þrjú árin eru lakari. Þannig er ekki búist við aukningu alveg í bráð. Það eru hins vegar bundnar nokkrar vonir við 2019 og 2020 ár- gangana en þeir mældust nokkuð efnilegir í stofnmælingum í vor og haustralli í fyrra. Hins vegar getur brugðið til beggja vona með þá, en þeir koma ekki inn í veiðistofninn fyrr en 2023 og 2024,“ útskýrir Guðmundur. Safna 20 þúsund eyrnasteinum á ári Meðal helstu tækja til að leggja mat á stöðu fiski- stofna er að mæla aldur þeirra og í tilfelli þorsks- ins er aldur lesin í eyrnasteinum eða kvörnum fisksins. Það kallar á mikla þekkingu að geta greint aldur fisksins með þessum hætti, en um 20 þúsund kvarnir eru teknar úr þorskum á ári hverju. Kvörn tekin úr höfði þorsks. Kvörn úr sex ára þorski sem steypt er í gler. Aldur sést með talningu hringa. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar að vinnu í leiðangri stofnunarinnar vorið 2021. Eitt af meginmarkmiðunum er að mæla stofnstærðir botnsjávarfiska. 6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Jón Már Halldórsson líffræðingur skrifar um gagnsemi kvarna fyrir fiska á Vísindavef Háskóla Íslands: „Kvarnirnar eru í þremur vökva- fylltum hólfum í innri eyrunum beggja megin við aftari hluta heilans og eru því sex talsins (þrjú pör). Veggir hólfanna eru alsettir skyn- frumum með bifhárum sem skynja hreyfingar kvarnanna í vökvanum og senda boð um þær til heilans. Helstu hlutverk kvarnanna tengjast heyrn- ar- og jafnvægisskyni fisksins í sjón- um. Kvarnapörin þrjú nefnast sagitta eða stóra heyrnarkvörn, astericus eða litla heyrnarkvörn og lapillus eða jafnvægiskvörn. Sagitta-steinarnir eru stærstir og það eru árhringir þeirra sem vísindamenn skoða þegar meta á aldur fisks. Þessir steinar, ásamt astericus, sjá um heyrnar- skynjun. Þegar hljóðbylgjur berast um sjó- inn fara þær í gegnum fiskinn því þéttleikinn er svipaður og hafið. Þeg- ar bylgjurnar lenda á kvörninni, sem er mun þéttari, þá fer hún að titra og skynfrumurnar í veggjum skjóðunnar nema þennan titring sem hljóð. Þriðja parið, jafnvægiskvörn, sér um jafnvægisskynjun. Þegar fisk- urinn hallar á hliðina, færist kvörnin til í skjóðunni og snerting við bifhár skynfrumnanna gefur hallann til kynna og fiskurinn getur því rétt sig af.“ Ljósmynd/Havforskningsinstituttet Kvarnir í þorski er að finna í eins- konar poka í höfði fisksins. Eyru og jafnvægis- skyn fisksins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.