Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 6
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
H
ægt er að beita nokkrum
aðferðum við aldursgrein-
ingu á fiskum. Algengastar
eru greiningar á hörðum
líkamshlutum fiska svo sem kvörn-
um, sem einnig kallast eyrna-
steinar, og hreistri. Finna má
kvarnir í pokalaga líffærum eða
skjóðum í innra eyra allra beinfiska.
Þær vaxa alla ævi líkt og fiskurinn
sjálfur og talin mikil fylgni milli
stærðar kvarna og stærðar fisksins
og er á þeim grundvelli hægt að
áætla stærð fisks út frá kvörnum.
Að aldursgreina þorsk er ekki
mikið frábrugðið því að aldurs-
greina tré. Eins og flestum er kunn-
ugt er aldur trjáa metin með því að
telja árhringi í þverskornum
drumbi. Það sama á við um þorsk-
inn en þá eru taldir vaxtarhringir á
kvörnum sem myndast árlega.
Breiðir og hvítir hringir myndast
yfir sumarið þegar fæðuframboð er
mikið og fiskurinn er í vexti en
dekkri og mjórri hringir á veturna
þegar vöxturinn er hægur.
Ekki eina verkefni
starfsmanna
Árlega er fjöldi fiska aldurs-
greindur hér á landi og er slík
greining á ábyrgð Hafrannsókna-
stofnunar sem styðst við grein-
inguna í rannsóknum sínum.
„Kvörnum þorska úr afla er safn-
að í landi. Safnað er á Suðurnesj-
unum og uppi á Akranesi frá höf-
uðstöðvunum í Hafnarfirði en útibú
stofnunarinnar í Ólafsvík, á Ísafirði,
Akureyri, í Neskaupstað og Vest-
mannaeyjum sjá um söfnunina úti á
landi. Yfirleitt eru fengin sýni beint
frá bátum, á fiskmörkuðum eða í
vinnslum,“ segir Guðmundur Þórð-
arson, sviðstjóri botnsjávarsviðs hjá
Hafrannsóknastofnun.
„Árlega er safnað um fjögur til
sex þúsund þorskkvörnum úr afla,“
útskýrir Guðmundur. Tíu starfs-
menn stofnunarinnar koma að söfn-
uninni í útibúum og um sex starfs-
menn í höfuðstöðvum
Hafrannsóknastofnunar í Hafn-
arfirði, „en í öllum tilfellum er þetta
ekki eina verkefnið sem fólk sinnir.“
15 þúsund úr leiðöngrum
Auk þeirra kvarna sem safnað er úr
afla er um tíu til 15 þúsund safnað á
ári í vorralli, haustralli og netaralli,
en í slíkum stofnmælingum fer
söfnun fram um boð í rann-
sóknaskipum stofnunarinnar,
Bjarna Sæmundssyni og Árna Frið-
rikssyni, eða í leiguskipum. Mest er
safnað í vorrallinu að sögn Guð-
mundar en þá er safnað um fimm
þúsund kvörnum.
„Áður en kvarnir eru aldurs-
lesnar eru þær steyptar í resin og
sagaðar í sérstakri sög sem skilar
þunnum sneiðum sem teknar eru úr
miðri kvörninni. Þessum sneiðum er
raðað á gler og síðan aldurs-
greindar undir víðsjá. Það eru
nokkuð mörg handtökin við
utanumhald um kvarnirnar, bæði
við undirbúning fyrir aldurslestur
og frágang þeirra eftir greiningu.
Að þessari vinnu koma þrír til fjórir
starfsmenn í Hafnarfirði,“ segir
Guðmundur.
Það er hins vegar ekki fyrir
hvern sem er að lesa úr kvörnum
enda þarfnast slíkt umtalsverðrar
þekkingar. „Aldurslesningarnar eru
svo gerðar af tveimur sérhæfðum
kvarnalesurum en það tekur tals-
verðan tíma að þjálfa upp kvarna-
lesara og eru þeir oftast sérhæfðir á
ákveðnar tegundir.“
Hornsteinn í stofnmati
Spurður hvaða hlutverk aldurs-
greining þorska hefur í tengslum
við veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofn-
unar svarar Guðmundur: „Aldurs-
greiningar eru hornsteinn í stofn-
mati þorsks og ýmissa annarra
fiskistofna. Með því að aldursgreina
þorsk fást upplýsingar um styrk ár-
ganga og dánartölu. Það er með því
að skoða fjölda þorska, til dæmis
fimm ára í fyrra miðað við sex ára í
ár, má fá mat á veiðiálag að gefnum
ákveðnum forsendum um náttúru-
lega dánartölu. Með náttúrulegum
dauða er átt við þann þorsk sem er
étinn af afræningjum, verður fyrir
sjúkdómum eða álíka.“
En hvað segir aldursgreiningin
okkur um framtíðarhorfur þorsk-
stofnsins? „Framtíðahorfur þorsks
miðað við aldurssamsetninguna eru
þær að núna er vægi tiltölulega
sterkra árganga að minnka í stofn-
inum og þeir árgangar sem mynda
megnið af veiðistofninum næstu tvö
til þrjú árin eru lakari. Þannig er
ekki búist við aukningu alveg í bráð.
Það eru hins vegar bundnar
nokkrar vonir við 2019 og 2020 ár-
gangana en þeir mældust nokkuð
efnilegir í stofnmælingum í vor og
haustralli í fyrra. Hins vegar getur
brugðið til beggja vona með þá, en
þeir koma ekki inn í veiðistofninn
fyrr en 2023 og 2024,“ útskýrir
Guðmundur.
Safna 20 þúsund eyrnasteinum á ári
Meðal helstu tækja til að
leggja mat á stöðu fiski-
stofna er að mæla aldur
þeirra og í tilfelli þorsks-
ins er aldur lesin í
eyrnasteinum eða
kvörnum fisksins. Það
kallar á mikla þekkingu
að geta greint aldur
fisksins með þessum
hætti, en um 20 þúsund
kvarnir eru teknar úr
þorskum á ári hverju.
Kvörn tekin úr
höfði þorsks.
Kvörn úr sex ára þorski sem steypt er í
gler. Aldur sést með talningu hringa.
Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Svanhildur Egilsdóttir
Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar að vinnu í leiðangri stofnunarinnar vorið 2021. Eitt af meginmarkmiðunum er að mæla stofnstærðir botnsjávarfiska.
6 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Jón Már Halldórsson líffræðingur
skrifar um gagnsemi kvarna fyrir
fiska á Vísindavef Háskóla Íslands:
„Kvarnirnar eru í þremur vökva-
fylltum hólfum í innri eyrunum
beggja megin við aftari hluta heilans
og eru því sex talsins (þrjú pör).
Veggir hólfanna eru alsettir skyn-
frumum með bifhárum sem skynja
hreyfingar kvarnanna í vökvanum og
senda boð um þær til heilans. Helstu
hlutverk kvarnanna tengjast heyrn-
ar- og jafnvægisskyni fisksins í sjón-
um.
Kvarnapörin þrjú nefnast sagitta
eða stóra heyrnarkvörn, astericus
eða litla heyrnarkvörn og lapillus eða
jafnvægiskvörn. Sagitta-steinarnir
eru stærstir og það eru árhringir
þeirra sem vísindamenn skoða þegar
meta á aldur fisks. Þessir steinar,
ásamt astericus, sjá um heyrnar-
skynjun.
Þegar hljóðbylgjur berast um sjó-
inn fara þær í gegnum fiskinn því
þéttleikinn er svipaður og hafið. Þeg-
ar bylgjurnar lenda á kvörninni, sem
er mun þéttari, þá fer hún að titra og
skynfrumurnar í veggjum skjóðunnar
nema þennan titring sem hljóð.
Þriðja parið, jafnvægiskvörn, sér
um jafnvægisskynjun. Þegar fisk-
urinn hallar á hliðina, færist kvörnin
til í skjóðunni og snerting við bifhár
skynfrumnanna gefur hallann til
kynna og fiskurinn getur því rétt sig
af.“
Ljósmynd/Havforskningsinstituttet
Kvarnir í þorski er að finna í eins-
konar poka í höfði fisksins.
Eyru og jafnvægis-
skyn fisksins