Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 8
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Á
síðasta ári þurftum við að
fresta námskeiðinu okkar
því það var of erfitt að
koma fólki frá þróunar-
löndum hingað vegna kórónuveiru-
faraldursins. En okkur tókst að
taka á móti þessum hópi sem er
hér á landi núna í september og
það er fólkið sem ekki komst í
fyrra. Þau hafa nú nýlokið kynn-
ingarhlutanum og hafa hafið sér-
fræðiþjálfunarhluta námskeiðsins,“
segir Mary Frances Davidson, for-
stöðumaður Sjávarútvegsskólans
sem nú er starfræktur undir
merkjum UNESCO.
„Á þessu ári sérstaklega erum
við afar þakklát fyrir þær hlýju
móttökur sem við fáum þegar við
heimsækjum fyrirtækin, því það
opnar augu nemenda okkar og þau
sjá hvaða árangri er hægt að ná
með góðri nýtingarstjórnun sjávar-
auðlinda. […] Það væri einfalt fyr-
ir þau að segja nei, en fólk er
tilbúið að opna dyrnar fyrir okkur
og deila því sem það hefur verið að
fást við auk þess sem það deilir
þekkingu og reynslu sinni. Helsti
styrkur skólans er tengingin sem
við höfum við greinina.“
Engar umsóknir
Nám og þjálfun við Sjávarútvegs-
skólann er ætlað fagfólki sem þeg-
ar hefur hafið störf í sinni sér-
grein, útskýrir Mary. „Þetta er
fólk sem þarf að hafa útskrifast að
minnsta kosti úr grunnnámi á há-
skólastigi, en um helmingur hóps-
ins sem er hér á landi núna hefur
lokið meistara- eða doktorsnámi.
Hugsunin á bak við þetta er að
nám gefur ákveðinn undirbúning
en eftir nokkurra ára starf öðlast
fólk dýpri skilning á áskorunum
sjávarútvegs í heimalandi sínu.“
Um er að ræða framhaldsnám
fyrir sérfræðinga sem þurfa að
kafa dýpra í hugmyndir, þekkingu
og aðferðir á hinum ýmsu sviðum í
nýtingu auðlinda hafsins, svo sem
stofnmat, veiðistjórn, gæðastjórn
og sjálfbært fiskeldi.
„Ekki er sótt um að komast í
þetta nám heldur erum við í sam-
starfi við stofnanir og við metum
hvað sé þörf á að efla á þeim stað
og veljum svo starfsfólk sem boðið
er að koma og taka þátt,“ segir
Mary. Þeir sem koma taka með
sér gögn og upplýsingar um þær
áskoranir sem glímt er við í grein-
inni heima fyrir og er helmingi
námsins varið í rannsókn sem
tengist því.
Margir hafa ekki endilega tæki-
færi til að verja nægum tíma til að
rýna í þau gögn sem til eru og
leita lausna á vandamálum þróun-
arríkjanna, að sögn Mary. Mark-
miðið er að nemendurnir geti snúið
aftur heim með mögulegar lausnir
við þeim vandamálum sem eru í
heimalandi hvers og eins.
„Allt sem við gerum er innan
ramma heimsmarkmiða Sameinuðu
þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Meginmarkmiðið sem við styðj-
umst við er númer 14, líf í vatni,
og eru undir því tíu undirmarkmið,
þar af eru fimm sem snúa beint að
fiskveiðum.
Eitt þeirra snýr að því að binda
enda á ólöglegar, ótilkynntar og/
eða stjórnlausar veiðar sem eru
mikið vandamál í þeim ríkjum sem
við störfum í. Einnig er markmið
sem snýr að því að koma á fisk-
veiðistjórn sem byggist á vísinda-
legum grunni og að finna leiðir til
að auka verðmæti afurða sjálf-
stæðra sjómanna,“ segir Mary.
Áberandi er hversu heimsmark-
miðin eru tengd öðrum heims-
markmiðum, að mati Mary. „Við
sjáum til dæmis að markmið 14 er
mjög tengt markmiði 1 um baráttu
gegn fátækt og markmiði 2 um að
binda enda á hungur. Sífellt vax-
andi þáttur í fiskveiðistjórnun snýr
að loftslagsmálum og tengist þetta
því þeim markmiðum auk þess
sem sérstaklega í litlum útgerðum
eru þættir sem snúa að kynjajafn-
rétti.“
Aukin eftirspurn
Hópurinn sem sækir skólann í ár
er sá fjölmennasti sem tekur þátt
frá upphafi en hópurinn á undan
var sá næstfjölmennasti. „Við
sjáum skýra þróun í auknum
áhuga á svona námi og það er skýr
vilji hjá okkur að halda áfram að
veita einstaklingsmiðað nám með
sama hætti og við höfum gert frá
því að skólinn tók til starfa 1998,“
segir Mary.
Það er hins vegar engin auðsótt
leið til að mæta aukinni eftirspurn,
að sögn hennar. „Vegna þess hve
námið er einstaklingsmiðað höfum
við komist að þeirri niðurstöðu að
20 til 30 nemendur séu tilvalinn
fjöldi nemenda. Skólinn er bara
sex mánuði á ári, en í millitíðinni
vinnur starfsfólk skólans með sam-
starfsaðilum á Íslandi að þróun
styttri námskeiða. Einnig styður
skólinn við bakið á nemendum sem
vilja sækja ráðstefnur og við erum
með verkefni sem snýr að því að
koma upp ráðgjöf fyrir þá sem
starfa í sjávarútvegi í þróunar-
ríkjum. Það eru því ýmis verkefni í
gangi samhliða hefðbundnu starfi
skólans.“
Það er því ekki stefnt að því að
fjölga nemendum heldur styrkja
nemendur enn frekar eftir að þeir
fara til heimalanda sinna og vinna
með þeim að þróun verkefna þar.
Breytir lífi fólks
Er upplifun nemendanna jákvæð?
spyr blaðamaður. Mary svarar því
með hlátri en segir það ekki vegna
þess að spurningin sé skrýtin held-
ur veki það mikla gleði að hugsa
til þess hve ánægðir nemendurnir
eru með dvöl sína hér á landi og
þá þekkingu sem þau öðlast.
„Ég hef gengið um gangana í
sjávarútvegsráðuneytinu í Tansan-
íu og í hverri skrifstofu æðstu
stjórnenda er fyrrverandi nem-
andi. Þegar fólkið talar um líf sitt
er það fyrir og eftir Íslandsdvöl-
ina. Ég held að starf okkar, góðar
móttökur sem atvinnugreinin hér á
landi hefur veitt okkur og stuðn-
ingur samstarfsaðila okkar á Ís-
landi breyti lífi fólks.“
Þá sé vonin að þessir nemendur
fari til heimalanda sinna og hafi já-
kvæð áhrif á fólk þar. „Við erum
að framleiða umbótafólk,“ segir
Mary.
„Við erum að framleiða umbótafólk“
Alls hafa 430 nemendur
sótt sjávarútvegsskóla
sem starfræktur hefur
verið hér á landi undir
merkjum UNESCO á
undanförnum 23 árum. Í
ár kom stærsti hópur
hingað til lands í sögu
skólans og segir for-
stöðumaður skólans til-
ganginn vera að efla fólk
til að verða hreyfiafl til
jákvæðra umbóta í
heimalöndum sínum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nemendur skólans hafa aldrei verið fleiri og er augljós eftirspurn eftir tækifærum til að öðlast þekkingu á sviði
sjálfbærrar nýtingu sjávarauðlinda. Alls hafa 430 nemendur sótt skólann frá stofnun árið 1998.
„Ég held að starf okkar, góðar móttökur
sem atvinnugreinin hér á landi hefur
veitt okkur og stuðningur samstarfs-
aðila okkar á Íslandi breyti lífi fólks“
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Sjávarútvegsskóli Sameinuðu þjóð-
anna á Íslandi var stofnaður árið
1998 þegar undirritaður var samn-
ingur milli utanríkisráðuneytisins,
Háskóla Sameinuðu þjóðanna og
Hafrannsóknastofnunar.
Skólinn var rekinn í 22 ár undir
merkjum Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna undir skammstöfuninni UNU-
FTP (United Nations University –
Fisheries Training Programme) og
sóttu um 400 fræðimenn frá rúm-
lega 60 ríkjum skólann á þessum
tíma.
Fyrsta janúar 2020 færðist skól-
inn undir UNESCO í gegnum aðild að
GRÓ – Þekkingarmiðstöð þróun-
arsamvinnu.
Í upphafi var lögð áhersla á þróun
sex mánaða fræðslu á sviði sjávar-
útvegs fyrir fagfólk frá þróunar-
ríkjum. Auk sex mánaða fræðslu
býður sjávarútvegsskólinn nú einnig
styrki til fyrri nemenda sem uppfylla
skilyrði til meistara- og dokt-
orsnáms við íslenskar fræðastofn-
anir. Jafnframt eru haldin styttri
námskeið í samstarfslöndum.
Sjávarútvegsskólinn er starf-
ræktur í húsakynnum Hafrann-
sóknastofnunar í Hafnarfirði en auk
hans eru undir merkjum GRÓ starf-
ræktir jafnréttisskóli í Háskóla Ís-
lands, jarðhitaskóli hjá Íslenskum
orkurannsóknum og land-
græðsluskóli hjá Landbúnaðarhá-
skólanum.
GRÓ-verkefnið í heild sinni er hluti
af framlagi Íslands vegna markmiði
númer 17 sem snýr að því að koma á
alþjóðlegri samvinnu um að ná
markmiðunum eða „blása lífi í al-
þjóðlegt samstarf um sjálfbæra þró-
un og grípa til aðgerða“ eins og seg-
ir á á vef stjórnarráðsins um
heimsmarkmiðin.
23. starfsár skólans