Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 23.10.2021, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 Ómar Garðarsson fréttaritari í Vestmannaeyjum É g byrjaði að vinna í Magna 1969, fór þaðan yfir í Krók, aftur í Magna og þaðan inn í Skipalyftu,“ segir Stefán Örn Jónsson framkvæmdastjóri um starfsferilinn. Krókur var plötuverkstæði í eigu Magna. Þar réð húsum Jón Þorgilsson, faðir Stefáns sem fetaði í fótspor föður síns sem var einn af stofnendum Skipalyftunnar 1981. Stefán tók sveinspróf í ketil- og plötusmíði 1973 og árið 1986 verð- ur hann flokksstjóri. „Þegar pabbi deyr 1988 var ég orðinn hans hægri hönd og tók við starfi hans sem verkstjóri. Síðar eignaðist ég hlut móður minnar. Ég hef verið óbreyttur starfsmaður, flokks- stjóri, verkstjóri, yfirverkstjóri og framkvæmdastjóri og einn af aðal- eigendum,“ bætir Stefán við. Mikð var um breytingar á skip- um á níunda áratugnum og þar lét Skipalyftan til sín taka. „Við lengdum mörg skip, byggðum yfir þau og settum á nýjar brýr, auk þess að smíða Lóðsinn. Upptöku- mannvirkin og fyrirtækið sönnuðu sig á þessum árum. Voru allt upp í 80 skip og bátar tekin upp á ári og flestir voru starfsmenn 106.“ Með stærri skipum minnkuðu möguleikar Skipalyftunnar. „Það var þó nóg að gera en svo fór að borga sig fyrir útgerðina að fara til útlanda með skipin í breytingar. Við löguðum okkur að breyttum aðstæðum og skilgreinum okkur sem almennt þjónustufyrirtæki við flotann og fyrirtæki í landi. Starfs- mennirnir hafa tekið þátt í þessu með okkur og takast á við hin ólík- ustu verkefni. Það hefur hjálpað okkur mikið. Hér eru fyrirtæki sem líka þjónusta sjávarútveginn en á annan hátt.“ Á sömu kennitölu frá upphafi Árið 1981 sameinuðust vélaverkstæðin Magni og Völundur og Raf- tækjaverkstæðið Geisli og úr varð Skipalyftan ehf. Fyrirtækið hefur séð miklar breytingar á undanförnum 40 ár- um og hefur þurft að aðlagast breyttum aðstæðum. Nú er stefnan sett á þurrkví. Starfsfólk Skipalyftunnar í Vestmannaeyjum fagnaði 40 ára afmæli fyrirtækisins í gær, 22. október. Við stuðlum að verðmætasköpun í íslenskum sjávarútvegi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.