Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 17
Upptökumannvirkin geta í dag aðeins tekið upp fá skip í Eyjaflot- anum. Stefán segir nýja tíma kalla á nýjar áherslur og horfa Skipa- lyftumenn til þurrkvíar. „Við höf- um kynnt þessa hugmynd okkar og alls staðar fengið jákvæð við- brögð. Ætlum við að þjónusta þessi stóru og myndarlegu fiski- skip sem við eigum í dag er þurrkví það eina sem kemur til greina. Það verður ekki í dag eða á morgun en þurrkví er framtíðin. Með aðkomu margra er þetta mögulegt og að því munum við stefna. Og allir njóta góðs af,“ seg- ir Stefán sem er nokkuð sáttur þegar hann lítur til baka. „Auðvitað hefur verið tröppu- gangur í rekstrinum en við erum enn á upphaflegu kennitölunni. Við skiptum máli fyrir Vestmanna- eyjar sem 40 manna vinnustaður. Tökum nema á samning og höfum lagt okkur fram um að taka nem- endur í vélstjórn á samning í vél- virkjun. Það flýtir fyrir þeim að fá réttindi og við fáum öfluga starfs- menn.“ Þykir vænt um fyrirtækið og vill sjá það dafna „Ég byrjaði í Magna 1977 og fer yfir í Skipalyftuna þegar hún er stofnuð þannig að ég þekki rekst- urinn nokkuð vel. Mér hefur aldrei leiðst og þetta eru fínir karlar og líka konur sem hafa unnið hérna. Ætli það séu ekki að verða um 1.000 manns sem hafa starfað hérna frá byrjun,“ segir Anna Sig- rid Karlsdóttir, fjármálastjóri Skipalyftunnar, sem sér um bók- hald, laun og reikninga. Anna segir góðan anda ríkja á vinnustaðnum sem er stór og hún hefur kynnst mörgu góðu fólki sem hefur unnið hjá Skipalyftunni um lengri eða skemmri tíma. „Það hefur verið nóg að gera og ekki síst þegar mest var að gera í að mála skip. Þá voru hjá okkur margir krakkar, bæði strákar og stelpur, á sumrin og mikil vinna, hálfgerð vertíðarstemning. Mikill fjöldi og hressir krakkar sem hafa starfað hjá okkur. Sumir héldu áfram hjá okkur og lærðu iðnina. Mér finnst ég eiga heil- mikið í þeim og þykir vænt um þau,“ segir Anna Sigrid, sem var á fullu að undirbúa kaffiveislu sem haldin var í gær, föstudag. „Við erum að fagna því að vera eitt af framúrskarandi fyrir- tækjum Íslands að mati Creditinfo. Þetta er áttunda árið í röð, sem er mikil viðurkenning fyrir okkur. Auðvitað hefur stundum verið erf- itt en með samstilltu átaki allra hefur okkur tekist að komast í gegnum þetta. Það er eins hjá okkur og öðrum fyrirtækjum að það er starfsfólkið sem gerir gæfu- muninn og við höfum verið ein- staklega heppin í gegnum tíðina með starfsfólk,“ segir Anna Sigrid og bætir við: „Mér þykir vænt um fyrirtækið og vil sjá það þróast og vænkast. Þetta er svona eins og með börnin, maður vill veg þeirra sem mestan. Fyrirtækið gengi ekki svona vel nema fyrir það að hér er gott starfsfólk og við erum með mjög góða stráka sem margir hafa starf- að hjá okkur til fjölda ára og and- inn hér er góður.“ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 MORGUNBLAÐIÐ 17 Breyttir tímar og ný tækni í fisk- veiðum og landvinnslu voru kveikjan að því að tvö gamalgróin vélaverk- stæði, Magni og Völundur og Raf- tækjaverkstæðið Geisli, stofnuðu Skipalyftuna ehf. í Vestmannaeyjum árið 1981. Árið eftir hófst starfsemin í nýju húsnæði við hlið skipalyftu sem Vestmannaeyjabær setti upp. Fyrirtækið fagnar 40 ára afmæli hinn 14. nóvember nk. Verkefnin voru næg enda Eyjaflot- inn stór og mikill munur fyrir út- gerðarmenn að þurfa ekki að sækja annað með viðhald, viðgerðir og breytingar. Árið 1998 smíðaði Skipa- lyftan Lóðsinn lóðs- og hafnarbát fyrir Vestmannaeyjahöfn sem hefur reynst vel í alla staði. Reksturinn ræðst af gengi í sjáv- arútvegi. Var bann við loðnuveiðum 2019 og 2020 mikið högg fyrir Vest- mannaeyjar sem hafa yfir að ráða um 32% aflaheimilda í loðnu. Færri og stærri skip hafa breytt rekstr- inum en líka skapað tækifæri. Dæmi um það eru fjórir 500 rúmmetra hráefnistankar fyrir Ísfélagið sem fyrirtækið lét smíða í samvinnu við Eyjablikk í Vestmannaeyjum. Tryggja þeir gæði og ferskleika hráefnis og flýta löndun uppsjávarfisks sem kemur sér vel, ekki síst þegar vinnsla á loðnuhrognum stendur sem hæst. Starfsemin er í 1.600 fermetra húsi auk tveggja nýrra húsa upp á samtals 1.400 fm. Er glæsilegt véla- verkstæði í öðru þeirra. Fjárfestingar sem sýna trú eigenda á framtíð fé- lagsins. Í dag er Skipalyftan fyrst og fremst plötusmiðja, véla- og renni- verkstæði og þjónustar skip sem tekin eru upp í lyftuna. Er með lager og glæsilega verslun með miklu úr- vali af vörum tengdum málmiðnaði, sjósókn og veiðum. Starfa um 40 manns hjá Skipalyftunni, þar af þrjú frá stofnun félagsins, Anna Sigrid Karlsdóttir fjármálastjóri, Hlynur Richardsson verkstjóri og Stefán Örn Jónsson framkvæmdastjóri. Þegar mest var störfuðu um og yfir 100 hefur fyrirtækið hlotið viðurkenningu CreditInfo sem eitt af fyrir- myndarfyrirtækjum Íslands árlega síðan 2014. Það sem skilað hefur góðum rekstri Skipalyftunnar er fyrst og síðast frábært starfsfólk sem margt hefur haldið tryggð við félagið. starfsmenn hjá Skipalyftunni og þurfti m.a. að flytja inn erlent vinnu- afl til að hafa undan. Var Skipalyftan eitt fyrstu fyrirtækja landsins til að ráða til sín pólska starfsmenn. Í dag búa og starfa þúsundir Pólverja á Ís- landi við góðan orðstír. Reksturinn hefur gengið vel og Stofnendur Skipalyftunnar: Gunnlaugur Axelsson, Tryggvi Jónsson, Pétur And- ersen, Kristján Ólafsson, Þórarinn Sigurðsson, Tryggvi Jónasson, Jón Yngvi Þorgilsson, Njáll Andersen, Erlendur Eyjólfsson og Friðþór Guðlaugsson. Starfsemi í 40 ár Stefán Jónsson framkvæmdastjóri, Anna Sigrid fjármálastjóri og Hlynur Richardsson lagerstjóri hafa unnið hjá Skipalyftunni frá upphafi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.