Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 18

Morgunblaðið - 23.10.2021, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is É g er bjartsýnismaður og lít ekki á stöðuna sem skelfi- lega. Við erum með nokkur af auðugustu og þróuðustu ríkjum heims sem koma að málinu. Ég held að áskorunin felist í að þessir kvótar sem settir hafa verið einhliða hafa farið um- fram vísindalega ráðgjöf Alþjóða- hafrannsókna- ráðsins [ICES] í allt of langan tíma,“ segir Ru- pert Howes, for- stjóri Marine Stewardship Co- uncil (MSC). Hann kom hingað til lands í tilefni arctic Circle ráðstefn- unnar í Hörpu en MSC efndi til málstofu um sjálfbæra nýtingu makríls, kolmunna og norsk- íslenskrar síldar. „Stofnarnir eru að minnka, en það er enn tími til þess að snúa þessari þróun við og það er það sem MSC og mörg fyrirtæki sem við störfum með eru að hvetja ríkis- stjórnir strandríkjanna og fulltrúa þeirra – sem eru nú að hittast og semja um uppsjávarstofnana – til að taka að sér leiðtogahlutverkið og viðurkenna vandann og gera sitt ýtrasta til að leysa úr þessum hnút í viðræðunum. Það þarf að finna lausn í málinu, sanngjarna lausn á því hvernig aflahlutdeild er úthlutað og tryggja að veiðar verði í takti við vísindalega ráðgjöf,“ segir Howes. Hann telur ljóst að þrýstingurinn á stjórnvöld í Noregi, Rússlandi, Bretlandi, Evrópusambandinu, Færeyjum og á Íslandi muni fara vaxandi á næstu misserum. „Það eru miklar væntingar til ríkis- stjórna um að gera það sem er rétt. Við erum í heimi sem er undir áhrif- um kórónuveirufaraldurins og fólk er orðið meðvitað um umhverfismál og hvernig tengingar eru orðnar al- þjóðlegar og hversu háð við erum orðin hvert öðru.“ Árlegur haustfundur strandríkja um makríl, norsk-íslenska síld og kolmunna hófst í London í þessari viku og heldur áfram eftir helgi. Þrýstingur eykst „MSC er aðeins hluti af örygg- isventli og sem sýnir fram á hvað þarf til að nýting hafsins sé með góðum hætti. Vottanir okkar ná til hluta af 20% af fiskistofnum heims- ins. Sjálfbærni er mál sem mun ekki hverfa í bráð. Neytendur og fyrir- tæki vilja í auknum mæli vottaðar afurðir og þrýstingurinn á strand- ríkin eykst stöðugt,“ fullyrðir How- es. „Þó svo að ríkin séu sammála um hvert veitt heildarmagn á að vera þá er ljóst að útgefnar veiðiheim- ildir eru um 41% umfram ráðgjöf fyrir makríl, um 25% umfram ráð- gjöf fyrir kolmunna og 35% fyrir norsk-íslenska síld. Þetta er ekki sjálfbært og ég held að neytendur og fyrirtæki eru í auknum mæli að horfast í augu við það og því lengur sem þetta heldur áfram verður stað- an óviðunandi. Fyrirtæki hafa boðað að þau munu breyta innkaupastefnu sína og yfirlýsingar fyrirtækja benda til þess að kaupendur eru reiðubúnir til að grípa til aðgerða,“ segir Howes. Fram kom á málfundi MSC sem haldinn var á Arctic Circle að stórir kaupendur uppsjávarafurða hafa ákveðið að gefa strandríkjum í norð- austurhluta Atlantshafs þrjú ár til að tryggja að veiðar á makríl, síld og kolmunna verði innan vísinda- legrar ráðgjafar áður en fyrirtækin fari að leita annarra afurða. Þar sagði Tom Pickerell, verkefnastjóri North Atlantic Pelagic Advocacy Group (NAPA), að skilaboðin frá yf- ir 40 verslunarkeðjum og mat- vælaframleiðendum væru skýr: Þau vilja sjálfbærar afurðir í virðiskeðju sinni. Öll sammála um vísindin „Án efa hefur Ísland frábæra fisk- veiðistjórnun og öll þessi strandríki sem um ræðir vita hvernig á að stjórna veiðum. Jafnframt eru þau öll sammála um gildi vísindalegrar ráðgjafar ICES sem er ótrúlega já- kvætt. Þannig að lausnirnar eru fyr- ir hendi en auðvitað er erfiðleikinn að koma á samkomulagi um skipt- ingu aflahlut- deilda milli ríkjanna. Þarna þurfum við einhvern til að taka af skarið og horfast í augu við að öll ríkin þurfa að taka skerðingu, því það er ljóst að stofnarnir eru að minnka og eru að nálgast hættu- markið. Síldarstofninn hefur minnk- að um meira en þriðjung. Þannig að það eru takmörk fyrir því hversu lengi er hægt að sækja úr stofn- unum í miklum mæli,“ segir Howes. Telur þú að þessi þriggja ára frestur sem kaupendur afurða gefa verði afgerandi þáttur í að leysa vandamálið? „Það á eftir að koma í ljós, en þetta er þróunin út um allan heim. Í Evrópu, Bandaríkjunum og sífellt meira í Asíu og Afríku. Markmið Sameinuðu þjóðanna um að ná að stýra nýtingu allra auðlinda hafsins í takti við vísindin innan 2030 hefur þegar verið samþykkt af flestum ríkjum heims. Ég vona að með þess- um aukna þrýstingi frá markaðnum og frá útgerðunum sjálfum ná ríkin að finna hagstæða lausn á deilunni um stofnana.“ Howes kveðst hafa hitt fjölda fólks hér á landi úr stjórnmálum, stjórnsýslu og sjávarútvegi og hefur heyrt mörg ólík sjónarmið um hvað gæti þurft að gera fram að því að lausn finnist. Bendir hann meðal annars á að sumir hafi viðrað þær hugmyndir að koma á veiðibanni á þessum tegundum þar til samningur milli strandríkja liggur fyrir. Jafn- framt hafi verið rætt um alþjóðlega sáttamiðlun. „Þetta eru allt nýjar hugmyndir í mínum huga, en okkar afstaða hjá MSC er einfaldlega að halda áfram að hvetja til þess að fundinn verði farsæll farvegur í málinu því það er í hag þjóðanna til lengri tíma, útgerðanna og mann- eskjanna.“ Hrósar Íslendingum Forstjórinn segir Ísland hafa verið fljótt til að sýna vilja til að votta af- urðir. „Ísland hefur með stórkost- legum hætti ákveðið að vera í fremstu röð þegar kemur að sam- starfi við MSC. Á einum tímapunkti höfðu 97% af sjávarafurðum Íslands fengið MSC-vottun, þar af níu teg- undir sem Íslendingar voru fyrstir að láta votta og eru fimm þeirra enn aðeins vottaðar á Íslandi.“ „Þurfum einhvern til að taka af skarið“ Fulltrúar ríkja sem stunda uppsjávarveiðar í norðausturhluta Atl- antshafs funda nú um leiðir til að koma á samningum um nýtingu þessara deilistofna. Stórfyrirtæki hafa heitið því að hætta eða draga úr kaupum sínum á þessum uppsjávar- afurðum ef deilan verð- ur ekki leyst. Forstjóri MSC-vottunarstofunnar kveðst sannfærður um að hægt sé að leysa málið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ekki er öruggt að stofnar eins og makríll þoli að sótt sé í þá af jafn miklum krafti og verið hefur. Rupert Howes Makríll, norsk-íslensk síld og kol- munni í Norðuraustur-Atlantshafi eru stærstu fiskstofnar í Evrópu. Engir samningar hafa verið gerðir milli allra ríkja sem nýta þessa stofna um langt skeið eða frá 1996 og hafa stofnarnir því verið ofveiddir. Er talið að hætta sé á hruni þeirra ef ekki verður komið á stjórn veiða sem tryggir sjálfbæra nýtingu. Undanfarin ár hefur stofnunum hnignað og hafa vísindamenn sér- staklega áhyggjur af norsk-íslenskri síld en sá stofn er sagður hafa minnk- að um 36% á síðasta áratug. Stofn- inn hrundi seint á sjöunda áratugnum vegna ofveiði og náði sér aðeins eftir að veiðar voru takmarkaðar í 20 ár. Að missa þessa stofna myndi valda miklum skaða á lífríki sjávar á svæð- inu, þar sem þeir eru mikilvæg fæða fyrir aðrar tegundir. Neytendur myndu sjá vinsælar vörur hverfa úr hillum stórmarkaða og af matseðlum um alla Evrópu og Japan. Fiskeld- isstöðvar geta staðið frammi fyrir truflunum á fóðurframboði, þar sem kolmunni er almennt notaður til framleiðslu fiskimjöls. Ráðlögðu minni afla Í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) sem veitt var 30. september um aflamark uppsjávarstofna fyrir 2022 er gert ráð fyrir 7-19% sam- drætti í afla á norsk-íslenskri síld, makríl og kolmunna frá ráðgjöf fyrir árið 2021. Í samræmi við samþykkta aflareglu strandríkja leggur ICES til að afli norsk-íslenskrar síldar nái ekki um- fram 599 þúsund tonn á næsta ári. Er því gert ráð fyrir 52 þúsund tonnum minna en fyrir árið 2021, sem gerir um 9% lækkun. Leggur ICES til að afli makríls nái ekki umfram 795 þús- und tonn á næsta ári. Er það 57 þús- undum tonnum minna en fyrir þetta ár, eða um 7% lækkun. Jafnframt er lagt til að afli kol- munna nái ekki umfram 753 þúsund tonn, sem er 176 þúsund tonnum minna en fyrir þetta ár og því um 19% lækkun að ræða. Heimild: MSC Útbreiðsla kolmunna, makríls og norsk-íslenskrar síldar Kolmunni Makríll Norsk-íslensk síld GRÆNLAND ÍSLAND NOREGUR BRETLAND Mikill skaði fyrir lífríki sjávar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.