Morgunblaðið - 23.10.2021, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
É
g er bjartsýnismaður og lít
ekki á stöðuna sem skelfi-
lega. Við erum með nokkur
af auðugustu og þróuðustu
ríkjum heims sem koma að málinu.
Ég held að áskorunin felist í að
þessir kvótar
sem settir hafa
verið einhliða
hafa farið um-
fram vísindalega
ráðgjöf Alþjóða-
hafrannsókna-
ráðsins [ICES] í
allt of langan
tíma,“ segir Ru-
pert Howes, for-
stjóri Marine
Stewardship Co-
uncil (MSC). Hann kom hingað til
lands í tilefni arctic Circle ráðstefn-
unnar í Hörpu en MSC efndi til
málstofu um sjálfbæra nýtingu
makríls, kolmunna og norsk-
íslenskrar síldar.
„Stofnarnir eru að minnka, en
það er enn tími til þess að snúa
þessari þróun við og það er það sem
MSC og mörg fyrirtæki sem við
störfum með eru að hvetja ríkis-
stjórnir strandríkjanna og fulltrúa
þeirra – sem eru nú að hittast og
semja um uppsjávarstofnana – til að
taka að sér leiðtogahlutverkið og
viðurkenna vandann og gera sitt
ýtrasta til að leysa úr þessum hnút í
viðræðunum. Það þarf að finna
lausn í málinu, sanngjarna lausn á
því hvernig aflahlutdeild er úthlutað
og tryggja að veiðar verði í takti við
vísindalega ráðgjöf,“ segir Howes.
Hann telur ljóst að þrýstingurinn
á stjórnvöld í Noregi, Rússlandi,
Bretlandi, Evrópusambandinu,
Færeyjum og á Íslandi muni fara
vaxandi á næstu misserum. „Það
eru miklar væntingar til ríkis-
stjórna um að gera það sem er rétt.
Við erum í heimi sem er undir áhrif-
um kórónuveirufaraldurins og fólk
er orðið meðvitað um umhverfismál
og hvernig tengingar eru orðnar al-
þjóðlegar og hversu háð við erum
orðin hvert öðru.“
Árlegur haustfundur strandríkja
um makríl, norsk-íslenska síld og
kolmunna hófst í London í þessari
viku og heldur áfram eftir helgi.
Þrýstingur eykst
„MSC er aðeins hluti af örygg-
isventli og sem sýnir fram á hvað
þarf til að nýting hafsins sé með
góðum hætti. Vottanir okkar ná til
hluta af 20% af fiskistofnum heims-
ins. Sjálfbærni er mál sem mun ekki
hverfa í bráð. Neytendur og fyrir-
tæki vilja í auknum mæli vottaðar
afurðir og þrýstingurinn á strand-
ríkin eykst stöðugt,“ fullyrðir How-
es.
„Þó svo að ríkin séu sammála um
hvert veitt heildarmagn á að vera
þá er ljóst að útgefnar veiðiheim-
ildir eru um 41% umfram ráðgjöf
fyrir makríl, um 25% umfram ráð-
gjöf fyrir kolmunna og 35% fyrir
norsk-íslenska síld. Þetta er ekki
sjálfbært og ég held að neytendur
og fyrirtæki eru í auknum mæli að
horfast í augu við það og því lengur
sem þetta heldur áfram verður stað-
an óviðunandi. Fyrirtæki hafa boðað
að þau munu breyta innkaupastefnu
sína og yfirlýsingar fyrirtækja
benda til þess að kaupendur eru
reiðubúnir til að grípa til aðgerða,“
segir Howes.
Fram kom á málfundi MSC sem
haldinn var á Arctic Circle að stórir
kaupendur uppsjávarafurða hafa
ákveðið að gefa strandríkjum í norð-
austurhluta Atlantshafs þrjú ár til
að tryggja að veiðar á makríl, síld
og kolmunna verði innan vísinda-
legrar ráðgjafar áður en fyrirtækin
fari að leita annarra afurða. Þar
sagði Tom Pickerell, verkefnastjóri
North Atlantic Pelagic Advocacy
Group (NAPA), að skilaboðin frá yf-
ir 40 verslunarkeðjum og mat-
vælaframleiðendum væru skýr: Þau
vilja sjálfbærar afurðir í virðiskeðju
sinni.
Öll sammála um vísindin
„Án efa hefur Ísland frábæra fisk-
veiðistjórnun og öll þessi strandríki
sem um ræðir vita hvernig á að
stjórna veiðum. Jafnframt eru þau
öll sammála um gildi vísindalegrar
ráðgjafar ICES sem er ótrúlega já-
kvætt. Þannig að lausnirnar eru fyr-
ir hendi en auðvitað er erfiðleikinn
að koma á samkomulagi um skipt-
ingu aflahlut- deilda milli ríkjanna.
Þarna þurfum við einhvern til að
taka af skarið og horfast í augu við
að öll ríkin þurfa að taka skerðingu,
því það er ljóst að stofnarnir eru að
minnka og eru að nálgast hættu-
markið. Síldarstofninn hefur minnk-
að um meira en þriðjung. Þannig að
það eru takmörk fyrir því hversu
lengi er hægt að sækja úr stofn-
unum í miklum mæli,“ segir Howes.
Telur þú að þessi þriggja ára
frestur sem kaupendur afurða gefa
verði afgerandi þáttur í að leysa
vandamálið?
„Það á eftir að koma í ljós, en
þetta er þróunin út um allan heim. Í
Evrópu, Bandaríkjunum og sífellt
meira í Asíu og Afríku. Markmið
Sameinuðu þjóðanna um að ná að
stýra nýtingu allra auðlinda hafsins
í takti við vísindin innan 2030 hefur
þegar verið samþykkt af flestum
ríkjum heims. Ég vona að með þess-
um aukna þrýstingi frá markaðnum
og frá útgerðunum sjálfum ná ríkin
að finna hagstæða lausn á deilunni
um stofnana.“
Howes kveðst hafa hitt fjölda
fólks hér á landi úr stjórnmálum,
stjórnsýslu og sjávarútvegi og hefur
heyrt mörg ólík sjónarmið um hvað
gæti þurft að gera fram að því að
lausn finnist. Bendir hann meðal
annars á að sumir hafi viðrað þær
hugmyndir að koma á veiðibanni á
þessum tegundum þar til samningur
milli strandríkja liggur fyrir. Jafn-
framt hafi verið rætt um alþjóðlega
sáttamiðlun. „Þetta eru allt nýjar
hugmyndir í mínum huga, en okkar
afstaða hjá MSC er einfaldlega að
halda áfram að hvetja til þess að
fundinn verði farsæll farvegur í
málinu því það er í hag þjóðanna til
lengri tíma, útgerðanna og mann-
eskjanna.“
Hrósar Íslendingum
Forstjórinn segir Ísland hafa verið
fljótt til að sýna vilja til að votta af-
urðir. „Ísland hefur með stórkost-
legum hætti ákveðið að vera í
fremstu röð þegar kemur að sam-
starfi við MSC. Á einum tímapunkti
höfðu 97% af sjávarafurðum Íslands
fengið MSC-vottun, þar af níu teg-
undir sem Íslendingar voru fyrstir
að láta votta og eru fimm þeirra enn
aðeins vottaðar á Íslandi.“
„Þurfum einhvern til að taka af skarið“
Fulltrúar ríkja sem
stunda uppsjávarveiðar
í norðausturhluta Atl-
antshafs funda nú um
leiðir til að koma á
samningum um nýtingu
þessara deilistofna.
Stórfyrirtæki hafa heitið
því að hætta eða draga
úr kaupum sínum á
þessum uppsjávar-
afurðum ef deilan verð-
ur ekki leyst. Forstjóri
MSC-vottunarstofunnar
kveðst sannfærður um
að hægt sé að leysa
málið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ekki er öruggt að stofnar eins og makríll þoli að sótt sé í þá af jafn miklum krafti og verið hefur.
Rupert Howes
Makríll, norsk-íslensk síld og kol-
munni í Norðuraustur-Atlantshafi eru
stærstu fiskstofnar í Evrópu. Engir
samningar hafa verið gerðir milli allra
ríkja sem nýta þessa stofna um langt
skeið eða frá 1996 og hafa stofnarnir
því verið ofveiddir. Er talið að hætta
sé á hruni þeirra ef ekki verður komið
á stjórn veiða sem tryggir sjálfbæra
nýtingu.
Undanfarin ár hefur stofnunum
hnignað og hafa vísindamenn sér-
staklega áhyggjur af norsk-íslenskri
síld en sá stofn er sagður hafa minnk-
að um 36% á síðasta áratug. Stofn-
inn hrundi seint á sjöunda áratugnum
vegna ofveiði og náði sér aðeins eftir
að veiðar voru takmarkaðar í 20 ár.
Að missa þessa stofna myndi valda
miklum skaða á lífríki sjávar á svæð-
inu, þar sem þeir eru mikilvæg fæða
fyrir aðrar tegundir. Neytendur
myndu sjá vinsælar vörur hverfa úr
hillum stórmarkaða og af matseðlum
um alla Evrópu og Japan. Fiskeld-
isstöðvar geta staðið frammi fyrir
truflunum á fóðurframboði, þar sem
kolmunni er almennt notaður til
framleiðslu fiskimjöls.
Ráðlögðu minni afla
Í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins
(ICES) sem veitt var 30. september
um aflamark uppsjávarstofna fyrir
2022 er gert ráð fyrir 7-19% sam-
drætti í afla á norsk-íslenskri síld,
makríl og kolmunna frá ráðgjöf fyrir
árið 2021.
Í samræmi við samþykkta aflareglu
strandríkja leggur ICES til að afli
norsk-íslenskrar síldar nái ekki um-
fram 599 þúsund tonn á næsta ári. Er
því gert ráð fyrir 52 þúsund tonnum
minna en fyrir árið 2021, sem gerir
um 9% lækkun. Leggur ICES til að
afli makríls nái ekki umfram 795 þús-
und tonn á næsta ári. Er það 57 þús-
undum tonnum minna en fyrir þetta
ár, eða um 7% lækkun.
Jafnframt er lagt til að afli kol-
munna nái ekki umfram 753 þúsund
tonn, sem er 176 þúsund tonnum
minna en fyrir þetta ár og því um
19% lækkun að ræða.
Heimild: MSC
Útbreiðsla kolmunna, makríls
og norsk-íslenskrar síldar
Kolmunni
Makríll
Norsk-íslensk síld
GRÆNLAND
ÍSLAND
NOREGUR
BRETLAND
Mikill skaði fyrir lífríki sjávar