Morgunblaðið - 23.10.2021, Side 22
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
R
afrænt eftirlit er áhrifarík-
asta leiðin til að sporna við
brottkasti og hagkvæmasta
lausnin í aðgerðum gegn
brottkasti og eftirliti með veiðum.
Þetta er kemur fram í skýrslu Wa-
geningen Marine Research sem
unnin var fyrir framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins um ákvæði
laga um löndunarskyldu alls afla og
brottkast.
Lög um löndunarskyldu afla var
samþykkt 2015 og öðlaðist gildi í
Evrópusambandinu í janúar 2019.
Markmið laganna er að koma í veg
fyrir brottkast með því að hvetja til
markvissari veiða. Í stuttu máli má
segja að ákvæði laganna gangi út á
að fisk, sem er veiddur innan
kvótakerfis, eins og makríll og an-
sjósur, verði að bera að landi og
skal draga hann frá veiðiheimildum
útgerðarinnar.
Þá á ekki að selja undirmálsfisk
sem matvæli heldur nýta í dýrafóð-
ur, mjöl, lyf eða fæðubótarefni.
Bera samtök framleiðenda í Evr-
ópusambandinu skyldu til að að-
stoða félagsmenn við að finna
kaupendur fyrir undirmálsfisk án
þess þó að skapa markað fyrir slík-
an fisk. Jafnframt bera aðildarríki
Evrópusambandsins skyldu til að
aðstoða útgerðir svo hægt sé að
geyma undirmálsfisk þar til hægt
sé að koma fiskinum í nýtingu.
Ágallar við hefðbundið eftirlit
Heilt yfir er niðurstaða rannsókn-
arinnar að eftirliti og framkvæmd löndunarskyldunnar sé ábótavant
og er sérstaklega vakin athygli á
því að aðildarríkin hafa ekki gripið
til fullnægjandi aðgerða svo hægt
sé að framfylgja ákvæðum laganna.
Þá er fullyrt að umfangsmikið
óskráð brottkast sé að eiga sér stað
í sjávarútvegi í Evrópusamband-
inu.
Þegar árangur hefðbundins eft-
irlits með framkvæmd lönd-
unarskyldunnar er borið saman við
afköst rafræns eftirlits þykir
skýrsluhöfundum ljóst að rafrænt
eftirlit skilar mun betri árangri.
Fleiri aðildarríki hafa gert til-
raunir með rafrænt eftirlit en ekk-
ert ríkjanna hefur innleit slíkt eft-
irlit með umfangsmiklum hætti.
Í skýrslunni kemur fram að
verulegir ágallar eru við það að
reiða sig á hefðbundið eftirlit eins
og eftirlitsmannaskap á sjó, lönd-
unareftirlit og afladagbækur þar
sem slíkt gefur bara takmarkaða
mynd af stöðunni, einkum á þeim
tíma er eftirlit fer fram. Jafnframt
hafa sjómenn lýst áhyggjum af
friðhelgi sinni í tengslum við stöð-
ugt eftirlit um borð.
Umfangsmikið brottkast
Þá bendir fátt til þess að lönd-
unarskyldan hafi haft þau áhrif
sem ætlað var. Komast skýrsluhöf-
undar að þeirri niðurstöðu að ekki
liggi fyrir nokkur gögn sem sýna
fram á einhverjar breytingar í
málaflokknum og telja skýrsluhöf-
undar sig því knúna til að álykta að
brottkast sé enn umfangsmikið í
Evrópusambandinu.
Hagsmunaaðilar sem veittu
rannsakendum upplýsingar bentu
á að ýmsar skýringar gætu verið að
baki því að ekki hafi fundist gögn
sem benda til marktækra breyt-
inga í brottkasti. Vöktu sumir
þeirra athygli á að löggjöfin og til-
heyrandi reglugerðir þykja of
flóknar, auk þess sem krafist er
verulegrar endurskipulagningar
þeirrar vinnu sem á sér stað um
borð í fiskiskipum til að uppfylla
kröfur sem gerðar eru til fram-
kvæmdar veiða.
Talið er að hægt sé að mæta
þessum áskorunum með aukinni
þjálfun sjómanna og betri og not-
endavænni afladagbókum. Eru
hagsmunaaðilar sagðir þegar hafa
unnið að því að aðlagast nýjum
lagaákvæðum, en fram kemur að
útgerðir hafa verulegt svigrúm til
að gera mun betur í þeim efnum.
Hins vegar er viðvarandi vandamál
hversu flókið undanþágukerfi
fylgir lögunum.
„Takist ekki að tryggja eftirlit
og framkvæmd löndunarskyld-
unnar mun það ekki einungis
marka að þessi meginstoð sjáv-
arútvegsstefnunnar hafi misheppn-
ast, heldur gæti það einnig leitt til
mikillar ofveiði,“ rita skýrsluhöf-
undar.
Ekki sammála um kvótakerfi
Fram kemur að sjávarútvegurinn í
Evrópusambandinu sé almennt
sáttur við löndunarskylduna. Hins
vegar virðist ekki eining í Evrópu
um hvaða leið sé árangursríkust í
að skapa rekstrarumhverfi sem
hvetur til þess að lögunum sé fylgt.
Útgerðir á Eystrasalti og við
Norðursjó telja best að innleiða
kvótakerfi með framseljanlegum
veiðiheimildum eða að minnsta
kosti heimild til kvótaskipta. Hags-
munaaðilar lengra vestur við Atl-
antshaf voru hrifnari af því að auka
sveigjanleika með fleiri und-
anþágum og beitingu skyndilokana.
Löndunarskylda hefur engin áhrif á brottkast í ESB
Evrópusambandið hefur
látið leggja mat á áhrif
löndunarskyldu á brott-
kast. Ekkert bendir til að
lögin hafi haft tilætluð
áhrif á brottkast og er
eftirliti talið ábótavant.
Unnið er að því að veita
auknar heimildir til raf-
ræns eftirlits.
AFP
Eftirliti með veiðum er talið ábótavant í Evrópusambandinu en sjómenn hafa lýst áhyggjum af friðhelgi sinni ef myndavélar verða settar í fiskveiðiskip.
Tilraunir sýna að eftirlitsmyndavélar séu skilvirk og hagkvæm leið til að efla eft-
irlit með fiskveiðum en hvergi í Evrópu hefur slíkt verið innleitt í miklum mæli.
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Íslensk stjórnvöld hafa gert tölu-
verðar breytingar á framkvæmd
eftirlits hér á landi en ekki hafa
verið veittar heimildir til rafrænnar
vöktunar með myndavélum sem
skýrsla sem unnin er fyrir fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandisns
segir að sé árangursríkasta eft-
irlitið.
Fiskistofa hefur innleitt nýja raf-
ræna afladagbók sem leyst hefur
pappírinn af hólmi. Það hefur auð-
veldað gagnasöfnun og greiningu
gagna. Jafnframt hefur Fiskistofa
talið þetta auka rekjanleika
gagnanna sem um ræðir enda
skipstjóra kleift að skila upplýs-
ingum um afla strax þegar veiðum
lýkur.
Þá hefur Fiskistofa hafið eftirlit
með drónum og rötuðu 84 brott-
kastsmál inn á borð stofnunarinnar
frá því að drónaeftirlitið var tekið
upp 1. september 2020 til 13.
ágúst á þessu ári. Var þeim málum
lokið með leiðbeiningabréfi en
Fiskistofa hefur boðað aukna
hörku í þessum málum á yfirstand-
andi fiskveiðiári. Elín B. Ragn-
arsdóttir, sviðsstjóri veiðieftirlits
Fiskistofu, hefur áður sagt tilkomu
drónanna „algjöra byltingu“.
Ógeðfelld framtíðarmynd
Frumvarp um myndavélaeftirlit í
sjávarútvegi var kynnt árið 2018 en
fram kom í Samráðsgátt stjórnvalda
um mitt ár í fyrra að frumvarpið var
aldrei lagt fyrir ríkisstjórn. Í fyrra
upplýsti atvinnuvegaráðuneytið að
umfjöllun um myndavélaeftirlit væri
ekki lokið en ekkert mál hefur verið
lagt fram í Samráðsgáttinni eða fyr-
ir Alþingi sem myndi heimila slíkt
eftirlit.
Þegar frumvarpsdrögin voru
kynnt lögðust hagsmunaðailar gegn
frumvarpinu í umsögnum sínum.
Sagði meðal annars í umsögn Sam-
taka atvinnulífsins: „Sú framtíð-
armynd sem dregin er upp í frum-
varpsdrögunum er ógeðfelld, og
ástæða er til að efast um að árang-
ur verði í samræmi við erfiðið.“
Jafnframt lagðist Landssamband
smábátaeigenda eindregið gegn
myndavélaeftirliti um borð í fiski-
skipum og sagði kröfu um slíkt
„óraunhæfa“ vegn asmæðar þeirra
báta sem heyra undir LS.
Ekki heimild til
myndavéla hér á landi
Sjávarútvegur hér á landi hefur ekki tekið vel í hugmyndir um myndavélar.